Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 40
[ ]
Nýr DVD diskur með öllum æfingunumfylgir með RopeYoga æfingatækjum.
Líkaminn gengur í gegnum
miklar breytingar á með-
göngu. Þegar grindin byrjar að
gliðna finna sumar konur fyrir
verkjum í baki eða mjaðma-
grind og eiga efitt með að
stunda líkamsrækt eða hreyfa
sig eðlilega. Meðgöngusund er
tilvalin hreyfing fyrir þessar
konur því líkaminn verður létt-
ur í vatninu og hreyfingarnar
mjúkar.
Konum er oft bent á meðgöngu-
sund af heilbrigðisstarfsfólki og
leiðbeina faglærðir sjúkraþjálfar-
ar í sundinu. Það geta þó allir sem
vilja farið í sundið en það er sér-
staklega hentugt fyrir þær sem
geta ekki nýtt sér aðra hreyfingu,
eins og meðgöngujóga eða venju-
lega leikfimi. „Konurnar eru
miklu léttari í vatninu þannig að
það er auðveldara að gera æfing-
arnar,“ segir Sandra Dögg Árna-
dóttir, sjúkraþjálfari, sem er leið-
beinandi í meðgöngusundi í
sundlaug Hrafnistu og á Reykja-
lundi. „Það losnar um liðböndin
hjá öllum konum á meðgöngu en
það er misjafnt hvort konur fái
verki í kjölfarið. Það getur komið
til vegna mismunandi ástæðna, til
dæmis út frá vandamálum í bein-
um, liðum eða skekkju í bakinu.
Við gerum stöðugleikaþjálfun
fyrir mjóbak og mjaðmagrind
sem styrkir vöðvana á því svæði
og hjálpar þannig konunni að
hreyfa sig eðlilega á meðgöngu.
Hreyfing í vatni minnkar líka
verki, bætir svefn og þrýstingur-
inn í vatninu dregur úr bjúg,“
segir Sandra Dögg.
Það er góð aðsókn í sundtímana
enda konur orðnar meðvitaðri um
að láta sér líða vel á meðan á með-
göngu stendur. „Maður er ekki svo
oft óléttur og því um að gera að
hugsa vel um sig meðan á því
stendur og njóta þess í botn.
Félagsskapurinn er líka skemmti-
legur. Konurnar spjalla í pottun-
um eftir tímana og halda oft sam-
bandi eftir að meðgöngu lýkur og
hittast með litlu krílin. Óléttar
konur eru svo æðislegar og það er
svo gaman að kenna þeim. Jafnvel
þó þær séu með verki í líkamanum
þá leggst það ekki svo þungt á þær
því að flest þessi vandamál lagast
eftir meðgönguna. Svo er bara um
að gera að hætta að vinna fyrr og
passa upp á heilsuna. Þetta eru
bara nokkrir mánuðir og engin
ástæða til þess að keyra sig út,“
segir Sandra Dögg, nokkuð ákveð-
in, í lokin.
Frekari upplýsingar um skrán-
ingu og tímasetningar fást á
heimasíðunni www.medgongu-
sund.is erlabjorg@frettabladid.is
Styrkjandi og
bætir líðanina
Meðgöngusund felur í sér hreyfingu, slökun og góðan félagsskap. MYND: ÚR EINKASAFNI
FÖSTUDAGINN 14. JÚLÍ EFNIR NÁTT-
ÚRULÆKNINGAFÉLAG REYKJAVÍKUR
TIL GRASAFERÐAR FYRIR FÉLAGS-
MENN SÍNA.
Markmið ferðarinnar er að tína holl
grös sem eru góð fyrir heilsuna og
njóta sín í fallegri náttúru og góðum
félagsskap.
Grasatínslan hefst klukkan sex annað
kvöld og að þessu sinni er það
Ásthildur Einarsdóttir, grasalæknir
og fegrunarsérfræðingur, sem hefur
umsjón með ferðinni. Að tínslu
lokinni verður boðið upp á jurtate og
hollt meðlæti. Áætlað er að ferðin
taki um tvær klukkustundir. Skráning
og nánari upplýsingar fást í síma 565
6133 og 692 8151.
Æfingafötin þurfa ekki að vera í nýjastu tísku og rándýr. Það er
mun mikilvægara að fjárfesta í góðum skóm og láta gamlar jogging-
buxur duga.
Engifer vex í suðaustanverðri Asíu
og hefur um langt skeið verið notað
í austurlenskri
matargerð,
bæði þar sem
stöngullinn þykir
bragðgóður og eins
af því að plantan
er talin búa
yfir lækninga-
mætti. Það þykir
til dæmis ljót að
engifer hefur róandi áhrif á
meltingarveg, hann virkar vel gegn
liðabólgu og fyrirbyggir hjartasjúk-
dóma og heilablóðfall. Sumir telja að
engifer sé líka gott meðal við höfuð-
verkjum, getuleysi, kvefi og hafi
hreinsandi áhrif. Tilvalið er að blanda
engiferi saman við epli og gulrætur
til að búa til góðan safa.
engifer styrkir }
grasaferð NLFR }