Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 50

Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 50
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 16. JÚLÍ 14:00 - 16:00 Það er gott að búa á Egilsstöðum Kaupvangur 41, Egilsstaðir Fasteignafélag Austurlands kynnir glæsilegar, rúmgóðar 2. & 3. herbergja íbúðir í sjö hæða lyftuhúsi á frábærum stað í sólríkum bæ. Íbúðirnar eru á besta stað í bænum, steinsnar frá þjónustukjarna bæjarins. Stórar og góðar svalir fylgja öllum íbúðum, með einstöku útsýni. Íbúðirnar afhendast tilbúnar án gólfefna. Eldhúsinnréttingar eru úr eik, góðir skápar eru í herbergjum & anddyri. Hjóla og vagna-geymsla er á jarðhæð, og geymslur fyrir hverja íbúð í kjallara. Lóð verður skilað fullfrágenginni. Sérafnotaréttur á lóð, fylgir íbúðum á jarðhæð með hellulagðri verönd. Íbúðir eru tilbúnar til afhendingar. FFA og Fasteignasalar veita allar frekari upplýsingar. Fasteignafélag Austurlands ehf · Melgerði 7 · 730 Reyðarfjörður · Sími: 567-3400 · GSM: 896-8934 Nánari upplýsingar á netinu: www.nmedia.is/ffa 567 3400 580 7905 545 0555 2 herb. verð frá KR. 12.850.000* TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR 3 herb. verð frá KR. 16.450.000* TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR Egilsstaðir eru hjarta austurlands, miðstöð þjónustu við fjórðunginn. Sólríkur og veðursæll bær þar sem mikil gróska er í öllu atvinnulífi. Verið velkomin til Egilsstaða. * Verðlisti miðaður við vísitölu byggingarkostnaðar fyrir mars 2006 (325,3) AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi og Skeiða-og Gnúpverjahreppi. Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur: 1 Krókur í Grafningi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Víðihlíð, frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í Víðihlíð í landi Króks í Grafningi. Gert er ráð fyrir 5 frístundahúsalóðum á bilinu 6.000 til 6.500 m2, Víðihlíð 5-9, á svæði austan Ölfusvatnsár með aðkomu frá Víðihlíðarvegi. Hús eru þegar risin á þremur lóðanna. Heimilt verður að reisa allt að 120 m2 frístundahús og allt að 25 m2 aukahús. Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar: 2 Hæðarendi í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafnings hreppi. Frísundabyggð við Selhól Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við Selhól í landi Hæðarenda. Gert er ráð fyrir að fyrirhugað skógræktarsvæði minnki úr tæpum 11 ha í tæpa 9 ha og í staðinn bætast við tvær um 1 ha frístundahúsalóðir syðst á svæðinu. Einnig breytist afmörkun og stærð tveg- gja frístundahúsalóða norðan við skógræktarsvæðið, þ.e. önnur stækkar á kostnað hinnar. Skilmálar deiliskipu- lagsins breytast ekki. 3 Kiðjaberg í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafnings- hreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðar. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags í Kiðjabergi, orlofs- og sumarhúsasvæðis Meistarafélags húsasmiða. Í tillögunni felst að gerð er breyting á skilmálum er varða stærð og útlit húsa, h. liður í greinargerð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 250 m2 frístundahús og allt að 25 m2 geymslu- hús/gestahús auk breytinga er varða meðal annars mænishæð og þakhalla. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðko- mandi sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 13. júlí til 10. ágúst 2006. Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 24. ágúst 2006 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu 7. júlí 2006 20 FASTEIGNIR 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR TILKYNNINGAR 41-50/11-20 smáar 12.7.2006 15:52 Page 12

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.