Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 50
OPIÐ HÚS
SUNNUDAGINN 16. JÚLÍ
14:00 - 16:00
Það er gott að
búa á Egilsstöðum
Kaupvangur 41, Egilsstaðir
Fasteignafélag Austurlands kynnir glæsilegar, rúmgóðar 2. & 3.
herbergja íbúðir í sjö hæða lyftuhúsi á frábærum stað í sólríkum bæ.
Íbúðirnar eru á besta stað í bænum, steinsnar frá þjónustukjarna
bæjarins. Stórar og góðar svalir fylgja öllum íbúðum, með einstöku
útsýni. Íbúðirnar afhendast tilbúnar án gólfefna.
Eldhúsinnréttingar eru úr eik, góðir skápar eru í herbergjum & anddyri.
Hjóla og vagna-geymsla er á jarðhæð, og geymslur fyrir hverja íbúð í
kjallara. Lóð verður skilað fullfrágenginni. Sérafnotaréttur á lóð, fylgir
íbúðum á jarðhæð með hellulagðri verönd. Íbúðir eru tilbúnar til
afhendingar.
FFA og Fasteignasalar veita allar frekari upplýsingar.
Fasteignafélag Austurlands ehf · Melgerði 7 · 730 Reyðarfjörður · Sími: 567-3400 · GSM: 896-8934
Nánari upplýsingar á netinu: www.nmedia.is/ffa
567 3400 580 7905 545 0555
2 herb. verð frá
KR. 12.850.000*
TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR
3 herb. verð frá
KR. 16.450.000*
TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR
Egilsstaðir eru hjarta austurlands, miðstöð þjónustu við fjórðunginn. Sólríkur og
veðursæll bær þar sem mikil gróska er í öllu atvinnulífi. Verið velkomin til Egilsstaða.
* Verðlisti miðaður við vísitölu byggingarkostnaðar fyrir mars 2006 (325,3)
AUGLÝSING
UM SKIPULAGSMÁL Í
UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU
Bláskógabyggð,Grímsnes-og
Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi
og Skeiða-og Gnúpverjahreppi.
Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga
nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum
við eftirfarandi deiliskipulagstillögur:
1 Krókur í Grafningi, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Víðihlíð, frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í Víðihlíð í landi
Króks í Grafningi. Gert er ráð fyrir 5 frístundahúsalóðum
á bilinu 6.000 til 6.500 m2, Víðihlíð 5-9, á svæði austan
Ölfusvatnsár með aðkomu frá Víðihlíðarvegi. Hús eru
þegar risin á þremur lóðanna. Heimilt verður að reisa allt
að 120 m2 frístundahús og allt að 25 m2 aukahús.
Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr.
73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við
eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:
2 Hæðarendi í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafnings
hreppi. Frísundabyggð við Selhól
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við
Selhól í landi Hæðarenda. Gert er ráð fyrir að fyrirhugað
skógræktarsvæði minnki úr tæpum 11 ha í tæpa 9 ha
og í staðinn bætast við tvær um 1 ha frístundahúsalóðir
syðst á svæðinu. Einnig breytist afmörkun og stærð tveg-
gja frístundahúsalóða norðan við skógræktarsvæðið, þ.e.
önnur stækkar á kostnað hinnar. Skilmálar deiliskipu-
lagsins breytast ekki.
3 Kiðjaberg í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags í
Kiðjabergi, orlofs- og sumarhúsasvæðis Meistarafélags
húsasmiða. Í tillögunni felst að gerð er breyting á
skilmálum er varða stærð og útlit húsa, h. liður í
greinargerð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt
að 250 m2 frístundahús og allt að 25 m2 geymslu-
hús/gestahús auk breytinga er varða meðal annars
mænishæð og þakhalla.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðko-
mandi sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa
uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á
skrifstofutíma frá 13. júlí til 10. ágúst 2006.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til
skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi
24. ágúst 2006 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá
sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan
tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu
7. júlí 2006
20
FASTEIGNIR
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
TILKYNNINGAR
41-50/11-20 smáar 12.7.2006 15:52 Page 12