Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 54
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Í kvöld stendur Minjasafn Akureyrar
fyrir kvöldvöku í Gamla bænum í
Laufási þar sem sagðar verða sögur
af Elís Gíslasyni sem var ráðsmaður í
Laufási en hann fæddist þennan dag
fyrir 109 árum. „Elli var dálítið sér-
stakur kall og við höfum verið að fá
ýmsa gripi sem hann átti og fengið
sögur af honum líka,“ segir Ingibjörg
Svafa Siglaugsdóttir, safnvörður
Minjasafnsins á Akureyri.
„Hann var ættaður að austan og
fór suður til þess að vera á þjóðhátið
árið 1930 en allt hans fólk hafði farið
til Vesturheims og hann ætlaði að
hitta systur sína sem ætlaði að koma
á þjóðhátíðina og fara með henni til
Vesturheims. Systirin veiktist og kom
ekki þannig að hann var svona úrræða-
laus á þessari hátíð og þá hitti frændi
prestsins í Laufási hann, en hann var
ættaður þarna að austan líka og spurði
hvort hann vildi ekki verða ráðsmað-
ur í eitt ár í Laufási. Hann sló til og
ætlaði bara að vera í eitt ár en þau
urðu þrjátíu og sex,“ segir Ingibjörg.
Hún segir að Elli hafi verið nokkuð
ýkinn en meðal hluta sem hann kom
með norður var forláta byssa. „Þar
sem ég sit núna í Laufási og horfi yfir
Eyjafjörðinn er Hjalteyri beint á móti
mér. Þetta eru nokkuð margir kíló-
metrar og maður sér verksmiðjuna á
Hjalteyri eins og kannski einn fjórða
úr tíeyringi, hún er svo pínulítil, en
Elli sagði að hann hefði einu sinni
skotið hrafn sem sat á þakinu þar, af
hlaðinu í Laufási. Eins hafi hann drep-
ið ref sem var hinum megin við fjörð-
inn og hann var svo hittinn að hann
hitti hann beint á milli augnanna,“
segir Ingibjörg og hlær.
Elli var ráðsmaður, sem þýddi að
hann var verkstjóri yfir vinnufólkinu
en sjálfur var hann ókvæntur og barn-
laus. Árið 1966 flutti Elli frá Laufási
eftir að hafa búið þar í yfir þrjátíu ár
og flutti til Reykjavíkur þar sem hann
starfaði sem stöðumælavörður. Hann
kom síðan aftur norður til þar sem
hann lést á elliheimilinu í Skjaldarvík
árið 1970.
Gamli bærinn í Laufási er í eigu
Þjóðminjasafns Íslands og er rekinn
af Minjasafninu en gestir þess voru
sextán þúsund í fyrra. Ingibjörg
segir að árið 1994 hafi hafist miklar
endurbætur sem er ekki enn lokið en
til stendur að byggja allan bæinn
upp.
Minjasafnið hefur staðið fyrir
kvöldvökum á fimmtudögum í sumar
og hefst vakan klukkan hálf níu í
kvöld en Ingibjörg telur líklegt að
Elladagur verði að árlegum viðburði í
safninu. gudrun@frettabladid.is
ELLADAGUR: RÁÐSMANNSINS Í LAUFÁSI MINNST
Dálítið sérstakur kall
INGIBJÖRG FYRIR FRAMAN LAUFÁS Elli fór aldrei til Vesturheims eins og hann ætlaði sér heldur til Eyjafjarðar þar sem hann bjó og starfaði í yfir þrjátíu ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Þennan dag árið 1793 var bylt-
ingarmaðurinn Jean-Paul Marat
myrtur. Hann var vísindamaður og
læknir, fæddur í Sviss hinn 24. maí
árið 1743, en er þó þekktastur fyrir
byltingarstarf sitt meðal hóps sem
var kenndur við Jakobína á tímum
frönsku byltingarinnar.
Í frönsku byltingunni helgaði
Marat sig algjörlega stjórnmálastarfi.
Hann hóf blaðaútgáfu og gagnrýndi
blað hans valdhafa í Frakklandi
harkalega. Eitt sinn neyddist hann
til að fela sig fyrir óvinum sínum í
Katakómbunum, grafhýsum í París, en þar fékk hann
húðsjúkdóm sem plagaði hann til æviloka.
Marat tók sæti í Parísarkommúnunni og skrifaði
„dauðalista“ yfir þá sem hann taldi að væru pólitískir
andstæðingar og hvatti til að þeir
yrðu drepnir. Hann varð harður and-
stæðingur Gírondína seinustu ár sín
og taldi þá vera á móti lýðveldinu.
Eitt sinn var stúlku að nafni Char-
lotte Corday hleypt inn til hans þegar
hann var í baði til að lina óþægindin
vegna húðsjúkdómsins, en Marat
spurði hana að nöfnum yfirboðara
hennar og sagði að þeir yrðu allir
sendir fyrir fallöxina. Þá tók Charlotte
upp hníf og stakk hann til bana.
Charlotte var Gírondíni og urðu
gjörðir hennar til þess að fjölmargir
andstæðingar Jakobína voru teknir af lífi og hún
sjálf send í fallöxina fjórum dögum eftir morðið. Við
réttarhöldin sagðist hún hafa „drepið einn mann til
að bjarga hundrað þúsund”.
ÞETTA GERÐIST 13. JÚLÍ 1793
Marat stunginn til bana í baðkeri
MERKISATBURÐIR
1908 Konur keppa í fyrsta skipti
á nútíma Ólympíuleikum, í
London.
1923 Hollywood-skiltið er vígt
í hæðunum fyrir ofan Holly-
wood. Upphaflega stóð
Hollywoodland en fjórir
síðustu stafirnir voru teknir
út árið 1949.
1959 Eyjólfur Jónsson syndir frá
Vestmannaeyjum til lands á
fimm og hálfri klukkustund
en leiðin er um tíu og
hálfur kílómetri.
1973 Nýja eldfjallið á Heimaey
hlýtur nafnið Eldfell, að
tillögu Örnefnanefndar.
1977 Rafmagnið fer af New York í
25 klukkustundir
1985 Live Aid tónleikarnir fara
fram meðal annars í Lond-
on, Philadelphiu og Sydney.
FRIDA KAHLO (1907-1954)
LÉST ÞENNAN DAG
„Ég mála hvorki
drauma né martraðir.
Ég mála minn eigin
veruleika.“
Frida Kahlo var mexíkanskur
málari og málaði aðallega
sjálfsmyndir.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
Sigrún Hjördís Eiríksdóttir
Hlíðarhjalla 61, Kópavogi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðinesi föstu-
daginn 7. júlí, verður jarðsungin frá kapellunni í
Fossvogi föstudaginn 14. júlí kl. 15.00.
Haraldur Gunnarsson Lilja Hólm Ólafsdóttir
Eiríkur Haraldsson
Ólafur Aron Haraldsson
Ástkær eiginmaðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
Ólafur Andrés Andrésson
fyrrverandi sjómaður, Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 14. júlí kl. 15.
Oddný Pétursdóttir
Valdís Ólafsdóttir
Sigurður Ólafsson Ásdís H. Finnbogadóttir
Örn Ólafsson Margrét Bledhill
Ólafur Þröstur Ólafsson Agnes Sigurðardóttir
Valur Ólafsson
Barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær og góð eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Gísladóttir
Hrafnistu, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 9. júlí á Landspítalanum,
Hringbraut, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
þriðjdaginn 18. júlí kl. 15.00.
Jósef Halldórsson
Guðni Dagbjartsson Elísabeth Dagbjartsson
Guðrún Katrín Dagbjartsdóttir
Gísli Dagbjartsson
Sigurður Dagbjartsson
Baldur Dagbjartsson Soffía Þórissdóttir
Gunnar Dagbjartsson Helga Ottósdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
Í dag er 90 ára
Sigurjón Guðmundsson
Hólmgarði 24, Reykjavík,
fyrrverandi kranamaður.
Hann er að heiman í dag.
90 ára afmæli
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Valgarður Stefánsson
eðlisfræðingur og framkvæmdastjóri
Alþjóðlegu jarðhitasamtakanna IGA,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt
mánudagsins 10. júlí.
Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir
Ásdís Ingibjargardóttir
Guðlaugur Valgarðsson Guðrún Helga Stefánsdóttir
Lárus Valgarðsson
Valgerður R. Valgarðsdóttir
og afabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI