Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 60

Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 60
 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR40 ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA SKÍTA MÓRALL FÖSTUD. 14. JÚLÍ 2006 LAUGARD. 15. JÚLÍ 2006 HÚSIÐ OPNAR KL. 23 / MIÐAVERÐ 1900 KR. FORSALA Á NASA FÖSTUDAG KL. 13-17 HÚSIÐ OPNAR KL. 23 / MIÐAVERÐ 1000 KR. ALDURSTAKMARK 20 ÁRA Maður í regnkápu kann að vera rigningarlegur en hann er ekki regn Hann er ekki regn handa gróindum Hann er með hettu sem hnýtt er undir kverk Þetta flippaða ljóð, sem ber heitið Sýnd, er úr síðustu ljóðabók Stefáns Harðar Grímssonar, Yfir heiðan morgun. Ég held það sé eitt af þessum ljóð- um sem borgar sig ekkert að vera að túlka um of, þetta er bara skemmtileg mynd sem kom í hugann í þessari eilífu súld sem við Íslendingar köllum sumar. Það hefur verið rigningarlegt vikum saman, og maður sér þá úti um allt í bænum, túristana í litsterku regnkápunum sínum, með hetturnar hnýttar undir kverk. Það er ekki annað hægt en að hafa samúð með t.d. þýsku fjölskyldunni sem leggur sitt sparifé í rándýra Íslandsferð og fylgir síðan gangi lægðanna hringinn í kringum landið. Þarna gætu verið foss- ar og fjöll, gljúfur og fuglabjörg, en maður sér það bara ekki. Og svo fara þau kannski aftur og hafa ekki annað uppúr ferðinni en óljósan grun um íslenska náttúru. Engin hversdagssál En við þurfum ekki að láta rigna inn. Óháð veðri geta Íslendingar nú með sýningum gefið útlendingum nasasjón af því sem þeir eru líka stoltir af eins- og náttúrunni, bókmenntunum. Það eru starfandi þrjú skáldasetur tileinkuð 20. aldar höfundum í landinu. Það síðasta, setur helgað Þórbergi Þórðarsyni frá Hala í Suðursveit, var einmitt opnað á æskustöðvum hans þann 30. júní - í ausandi rigningu. Húsið, sem teiknað er af Sveini Ívarssyni dóttursyni Þórbergs, blasir við af þjóðveginum og snýr heilum vegg af bókum að for- vitnum vegfaranda. Glöggir menn geta séð að þetta eru ekki núverandi kilir verkanna sem þarna sjást, heldur önnur hönnun sem myndi henta vel á nýja heildarútgáfu bóka Þórbergs. Innandyra er stór kaffistofa, góður sýningarsalur með ljósmyndum úr Suðursveit en öðru fremur feiknavel heppnuð upplifunarsýning í stærsta salnum, sem Jón Þórisson á veg og vanda af. Þar má sjá margar vörður á ævibraut Þórbergs: Baðstofuna á Hala, Bergshús, íbúðina á Hringbraut, í baksýn er strönduð skúta og stjörnuhiminninn sem hann sýndi elskunni sinni forðum. Það er hægt að horfa á sjónvarps- og kvikmyndaupptökur með þessum sérstæðasta höfundi Íslendinga og fræðast um líf hans og verk á sýningarspjöldum. Hali er í þjóðbraut hringvegarins, svo á ferðalagi er öldungis upplagt að forða sér inn úr rigningunni og skoða þessa sýningu, sem krakkar geta líka haft hina bestu skemmtun af. Þá geta þeir kannski séð með eigin augum að bækur eru svosem nógu saklausir hlutir, en rit- höfundar eru ægilegar verur, einsog Þórbergur orðaði það sjálfur forðum. „Oss vantar ekki menn, sem hugsa og breyta eins og allir aðrir“, skrifaði hann í Bréfi til Láru: „Borgaralegar hversdagssálir eru hér nógar.“ Það var Þórbergur sannarlega ekki. Setrin þrjú Skáldasetrin hafa hvert til síns ágætis nokkuð: Á Gljúfrasteini má sjá heimili Halldórs og Auðar Laxness í hálfa öld, en þar vantar betri aðstöðu fyrir veit- ingar, sýningar og samkomuhald. Á Skriðuklaustri er hægt að skoða bæinn sem Gunnar Gunnarsson reisti þegar hann flutti heim og var svo stór að meira að segja Jónasi vini hans frá Hriflu blöskraði og allir bankar landsins urðu að leggjast á eitt til að fjármagna bygginguna. Þar er líka fínt kaffihús og góð aðstaða fyrir fræðimenn. Stærsta sýningin er hins vegar á Þórbergs- setrinu; og reyndar er bændagisting á næsta bæ, búið að merkja göngu- leiðir um nágrennið svo gestir geta sökkt sér ofan í bakgrunn Þórbergs, og kannað hvort það er rétt sem hann sagði sjálfur í Bréfi til Láru, að hann væri einn af mestu ritsnillingum sem ritað hafa á íslenska tungu: „Og sál mín er víð og djúp eins og alvaldið.“ Svo látum ekki á okkur fá þótt hann sé rigningarlegur. Nú er bara að hnýta hettu undir kverk og drífa sig austur. Halldór Guðmundsson Skáldasetur HALLDÓR GUÐMUNDSSON > SKRIFAR UM BÓKMENNTIR Djass á Veitingahúsinu Horninu Hafnarstræti 15 í kvöld kl 21 Seth Sharp söngvari frá USA og hljómsveit Á fallegu sumarkvöldi er tilvalið að rölta um miðbæjarsvæðið og ekki er verra að hafa leiðsögn og góðan félagsskap. Í kvöld býður Borgarbókasafn Reykjavíkur til kvöldgöngu um gamla kirkjugarð- inn við Suðurgötu. Skáldin og bókaverðirnir Einar Ólafsson og Jónína Óskarsdóttir leiða gönguna, en hún er hluti af göngudagskrá menningarstofnana borgarinnar, Kvöldgöngur úr Kvosinni, sem nú er boðið upp á annað árið í röð. Í Hólavallagarði hvíla mörg skáld og ætla Jónína og Einar að leiða gesti um garðinn og staldra við hjá nokkrum þess- ara skálda, segja af þeim sögur og lesa úr verkum þeirra. „Þessi skáld eru flest í eldri kantinum því lítið hefur verið jarðað í garð- inum síðan á fyrri hluta síðustu aldar,“ útskýrir Einar Ólafsson og nefnir dæmi af skáldunum Þor- steini Erlingssyni, Hannesi Haf- stein, Sigurði Breiðfjörð og Bene- dikt Gröndal. „Svo eru tvö svokallaðra atómskáldanna sem einnig hvíla þarna, þeir Jón Óskar og Einar Bragi og þar komumst við kannski nær nútímaskáldun- um,“ segir Einar. Borgarbókasafnið hefur staðið fyrir gönguferðum með menn- ingarívafi síðan 2004 og eru þær yfirleitt mjög vel sóttar. Erlendir gestir geta líka fengið að kynnast borginni í gegnum bókmenntirnar því skipulegar gönguferðir eru haldnar fyrir útlendinga á hverj- um fimmtudegi. Í kvöld verður lagt upp frá Grófinni, á milli aðalsafns Borgar- bóksafns og Listasafns Reykjavík- ur kl. 20 og tekur gangan um eina klukkustund. Ekki er þörf á að skrá sig og eru allir velkomnir. - khh Kærkomin kvöldganga KIRKJUGARÐURINN VIÐ SUÐURGÖTU Skartar sínu fegursta. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Uppskeruhátíð Skapandi sumar- hópa Hins hússins og Reykjavík- urborgar verður haldin í Ráðhús- inu í kvöld en þar gefst áhugasömum unnendum menning- ar kostur á að kynnast frumleika og krafti listamanna framtíðar- innar. Tuttugu hópar hafa starfað að margskonar listrænum verkum á vegum Hins hússins í sumar og munu þeir allir stíga á stokk í kvöld og sýna hvað í þeim býr. Dagskráin er afar fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjöllistahópurinn Grísa- lappalísur fremur gjörning, Götu- leikhúsið sveimar um og Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan sýnir nútímadans. Rannsóknarsvið íslenskrar þjóðmenningar og for- sprakkar femíníska veftímarits- ins Lata stelpan munu kryfja sam- tímann á frumlegan hátt og afsprengi hugsunar hönnunartví- eykisins Stígvéls verða til sýnis. Fjörið hefst kl. 20 í kvöld. - khh Afrakstur sumarsins ÞREMENNINGASAMBANDIÐ Skapandi sumarhópur sem leikur klassíska tónlist. �������������� ������� ���������� ���� ������������ ���������� ��� �

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.