Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 61
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 41
Það eru nokkuð brotnir ungir menn
sem mætast í þessu verki. Vinirnir
Maggi og Alli deila saman íbúð. Líf
þeirra einkennist af innihalds- og
tilgangsleysi. Þeir stefna ekkert.
Maggi er tiltölulega nýfráskilinn,
hefur ekkert fyrir stafni; sefur, les
tímarit, reykir, drekkur bjór, fær
sér í hausinn. Alli er ekki eins illa
staddur. Hann hefur eiginlega tekið
Magga að sér. Maggi misnotar sér
góðmennsku hans með algeru
aðgerðarleysi. Dag einn er barið á
dyr og til þeirra er kominn Stinni,
gamall vinur Magga og biður um
gistingu í eina nótt. Alla líst ekki á
hann, en Maggi veitir leyfi sitt án
þess að hugsa. Það er ljóst frá byrj-
un að það er eitthvað meira en lítið
að Stinna sem hefur um skeið verið
í herþjálfun.
Smám saman er fortíðarvinátta
Magga og Steina afhjúpuð; fortíð
sem felur í sér ofbeldi, grimmd,
valdbeitingu og það er ljóst að
Maggi er ennþá vanmáttugur gagn-
vart Steina. Of vanmáttugur til að
nýta sér stuðning Alla.
Penetreitor er fantavel skrifað
verk, auk þess að vera vel þýtt og
staðfært. Því er ætlað að sýna
áhorfandanum við hvað aðstand-
endur geðsjúkra mega oft búa – og
tekst það svo um munar. En það er
ekki bara vel skrifað, heldur skila
þremenningarnir því óaðfinnan-
lega. Stefán Hallur Stefánsson skil-
ar hinum geðsjúka Stinna af miklu
öryggi. Öll tjáning er svo vel unnin
að maður trúir því alveg að hann sé
súrrandi galinn. Það verður for-
vitnilegt að sjá Stefán í næsta hlut-
verki. Vignir Rafn er í hlutverki
góða, feimna og einlæga stráksins
– sem er almennt ekki þakklátt
hlutverk – og gerir það mjög svo
eftirminnilega. Í hlutverki miðju-
mannsins, Magga, er Jörundur
Ragnarsson. Tilfinningalíf Magga
er all sveiflugjarnt; það er eins og
hann hafi engan grunn til að standa
á, ekkert fast land undir fótum – en
reyni að komast af. Það er lang-
fljótlegast að segja að Jörundur
leikur hlutverkið af stakri snilld.
Hann hefur afar sterka nærveru,
svo sterka að það jaðrar við að leik-
rýmið í húsi Sjóminjasafnsins sé of
lítið fyrir hann. Ég sé ekki betur en
að hér sé kominn fram á sjónar-
sviðið leikari á borð við þá bestu
sem við eigum í dag. Það verður
virkilega spennandi að fylgjast
með honum á næstu árum.
Það er fagmannlega að öllum
þáttum sýningarinnar staðið. Leik-
myndin hentar verkinu vel og leik-
stjórinn hefur greinilega góðan
skilning á persónunum og nær dýpt
þeirra út úr leikurunum.
Penetreitor er ein af þessum
sýningum sem enginn ætti að missa
af. Innihald verksins á erindi við
okkur öll. Það opnar augu okkar
fyrir því að það njóta ekki allir
sömu gæfunnar í því staðlaða gild-
ismati sem við höfum búið okkur
til. Það fýkur bátur á svo marga í
æsku.
FAGMANNLEG SÝNING SEM ENGINN ÆTTI
AÐ MISSA AF Leikfélagið Vér morðingjar
sýnir Penetreitor.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Áhrifarík sýning og fanta vel skrifað verk
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚLÍ
10 11 12 13 14 15 16
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Lenka Mátéová, organisti
Fella- og Hólakirkju, leikur á hádegis-
tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars
í Hallgrímskirkju.
17.00 Hljómsveitin Shadow
Parade og tónlistarmaðurinn Bela
koma fram í tónleikaröð Grapevine
og Smekkleysu. Tónleikarnir fara
fram í Galleríi Humri eða frægð
kl. 17 og á Café Amsterdam í
Hafnarstræti kl. 21.30.
21.00 Hljómsveitartónleikar á
Draugabarnum á Stokkseyri í
Tilefni af Bryggjuhátíð.
21.30 Kvartett Eriks Qvick leikur í
Deiglunni á Akureyri. Með tromm-
aranum geðþekka leika Thomas
Markusson, Haukur Gröndal og
Ásgeir Ásgeirsson.
■ ■ LEIKLIST
10.00 Brúðubíllinn sýnir leikþáttinn
Týnda eggið við Austurbæjarskóla
kl. 10 og á torginu við Miðberg kl.
14.
■ ■ OPNANIR
18.00 Börn sem tóku þátt í lista-
smiðju í Þorlákshöfn í sumar sýna
afrakstur af starfi sínu í Galleríinu
undir stiganum í Bæjarbókasafni
Ölfuss.
■ ■ SKEMMTANIR
Trúbadorinn Helgi Valur skemmtir á
skemmtistaðnum Yello í Keflavík.
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Fræðslusamstarf skóg-
ræktarfélaganna og KB banka
stendur fyrir Græna trefils göngu
í samstarfi við Skógræktarfélag
Garðabæjar. Göngustjóri er
Barbara Stanzeit líffræðingur.
■ ■ SAMKOMUR
17.00 Félagið Ísland-Palestína
stendur fyrir mótmælafundi á
Austurvelli vegna stríðsglæpa
Ísraelshers á Gaza. Guðrún
Ögmundsdóttir og Sveinn Rúnar
Hauksson flytja ávörp og um tón-
listaratriði sjá hljómsveitin Llama
og KK.
■ ■ UPPÁKOMUR
20.00 Fimmtudagsskemmtun
og uppskeruhátíð Skapandi sum-
arhópa Hins Hússins í hátíðarsal
Ráðhúss Reykjavíkur.
20.30 Minjasafnið á Akureyri
stendur fyrir kvöldvöku í Gamla
bænum í Laufási.
■ ■ KVÖLDGÖNGUR
20.00 Iðnaðarsafnið á Akureyri
býður til gönguferðar umhverfis
verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum á
Akureyri.
20.00 Borgarbókasafn
Reykjavíkur býður til kvöld-
göngu um gamla kirkjugarðinn við
Suðurgötu.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Alþjóðleg Döffleiklistar-
hátíð er haldin í Rýminu hjá
Leikfélagi Akureyrar. Flutt verður
leikritið This side up eftir Ramesh
Meyyappan frá Singapúr.
LEIKLIST
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR
Vér morðingjar
Sjóminjasafnið Grandagarði 8
Penetreitor eftir Anthony Neilson
Leikarar: Jörundur Ragnarsson/
Vignir Rafn Valþórsson/Stefán Hallur
Stefánsson Leikmynd: Vér morðingjar
Hljóðmynd: Karl Newman Leikstjóri:
Kristín Eysteinsdóttir Þýðandi: Vignir
Rafn Valþórsson.