Fréttablaðið - 13.07.2006, Page 62
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR42
bio@frettabladid.is
V I N N I N G A R V E R ÐA A F H E N D I R H J Á BT S M Á R A L I N D. KÓ PAVO G I .
M E Ð Þ V Í A Ð TA K A Þ ÁT T E R T U KO M I N N Í S M S K LÚ B B. 9 9 K R / S K E YT I Ð.
S E N D U S M S S K E YT I Ð J A S M F Á N Ú M E R I Ð
1 9 0 0 O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð M I ÐA F YR I R T VO.
V I N N I N G A R E R U B Í Ó M IÐA R F YR I R T VO * DV D M YN D I R
TÖ LV U L E I K I R VA R N I N G U R T E N G D U R M YN D I N N I
O G M A R G T F L E I R A
9.
HVE
R
VIN
NUR
!
Nítján ár eru liðin síðan
Christopher Reeve flaug
um himininn og bjargaði
heiminum frá Lex Luthor
sem hafði þá komist yfir
kjarnorkusprengju. Nú
snýr Brandon Routh aftur í
hlutverki Ofurmennisins en
þessarar endurkomu hefur
verið beðið með mikilli eftir-
væntingu.
í Superman Returns er Ofur-
mennið horfið eftir að hafa
verndað borgina sína Metrópolis
og Lois Lane frá óþjóðalýð
heimsins. Það leitar að öðrum
sem hugsanlega gætu hafa lifað
af tortímingu Krypton en kemst
í raun um að hann er sá eini.
Þegar Ofurmennið snýr aftur
hefur borgin og ástin í lífi hans
lært að lifa án hans. Heimurinn
þarf ekki á ofurhetju að halda
fyrr en Lex Luthor og gengi hans
snýr aftur og hyggst láta til sína
taka í borginni. Ofurmennið
verður því enn og aftur að sýna
hvað í því býr.
Erfið fæðing
Eftir að Christopher Reeve hafði
gert þessari þekktustu persónu
teiknimyndabókanna nánast
ódauðleg skil efuðust menn um að
hægt væri að gera mynd um Ofur-
mennið aftur. Vafalítið hefur vel-
gengni ofurhetja að undanförnu
heillað Warner-kvikmyndaverið
auk þess sem tæknibrellunum
hefur fleygt svo mikið fram að
þeim hefur fundist tími til kominn
að heimsbyggðin fengi að sjá hina
bláklæddu hetju fljúga á ný.
Fæðingin var þó langt frá því að
vera auðveld. Í fyrstu leitaði Warn-
er til Kevins Smith sem ætlaði að
láta Ofurmennið deyja. Það myndi
síðan lifna aftur við og þá mun öfl-
ugra en nokkru sinni áður. Tim
Burton hafði lýst yfir miklum
áhuga á að leikstýra myndinni eftir
handriti Smiths og hefði verið fróð-
legt að sjá þá útkomu. Warner leist
mjög vel á þetta til að byrja með og
lét prenta plaköt með silfurlituðu
„S“ en þá var myndin sögð væntan-
leg árið 1998. Sögusagnir um að
Nicholas Cage hefði samþykkt að
taka að sér hlutverkið fóru af stað
en þegar ljóst varð að Burton ætl-
aði að klæða Ofurmennið í svart
sögðu jakkafataklæddu mennirnir
stopp og verkefninu var ýtt til hlið-
ar. Í kjölfarið var JJ Abrams feng-
inn til að skrifa handrit sem væri í
stíl við upphaflegu myndirnar en
hann er að góðu kunnur fyrir sjón-
varpsþættina Lost og Alias. Brett
Ratner var orðaður við leikstjóra-
stólinn.
Abrams var síðan rekinn og
Bryan Singer ráðinn í leikstjóra-
stólinn. Hann kom í kjölfarið með
allt gengið sitt frá X-Men mynd-
unum og þeirra á meðal voru hand-
ritshöfundarnir Dan Harris og
Michael Dougherty sem réðust
strax í að gera handritið sem
Superman Returns er gerð eftir.
Tíu ár og þrjá leikstjóra þurfti því
til að koma myndinni loksins á
koppinn. Singer ákvað síðan að
taka þann pólinn í hæðina að leita
eftir ungum leikara sem enginn
þekkti. Sama fyrirkomulag hafði
verið árið 1978 en Christopher
Reeve hafði eingöngu leikið í einni
mynd áður en hann fékk að klæð-
ast búningnum bláa. Brandon
Routh hreppti hlutverkið en meðal
annarra leikara má nefna Kate
Bosworth og Kevin Spacey sem
bregður sér í hlutverk Lex Lut-
hor.
Sviknir af útgáfunni
„Einkenni ofurhetja er að þú hefur
ofurhetjuna og síðan þann sem
birtist dagsdaglega meðal fólks-
ins. Leðurblökumaðurinn er Bruce
Wayne og Köngulóarmaðurinn er
Peter Parker þegar hann vaknar á
morgnana. Hann þarf að fara í
búning til að verða Köngulóar-
maðurinn. Hvað þetta varðar er
Ofurmennið ólíkt þeim báðum.
Ofurmennið fæddist sem Ofur-
mennið. Þegar Clark Kent vaknar
á morgnana er hann í raun Ofur-
mennið. Búningurinn með stóra
rauða S-inu sem Kent-fjölskyldan
fann hann í eru föt Ofurmennis-
ins. Þegar Ofurmennið fer í bún-
ing, setur hann upp gleraugu og
fer í jakkaföt. Það er búningur
OFURMENNIÐ SVÍFUR YFIR JÖRÐINNI Hvort Clark Kent sé ofur-gyðingur eða venjuleg ofurhetja skal ósagt látið en vinsældir Ofurmennisins
eru ótvíræðar.
Svífur um loftin blá
LEX LUTHOR Snýr aftur eftir langa dvöl í fangelsi og hyggst klekkja á erkióvini sínum.
Hryllingsmyndasumarið heldur
áfram á Íslandi en aðdáendur
þeirra ganga væntanlega flestir
ánægðir frá borði eftir árið. Varla
hefur liðið sú vika að ekki hefur
verið frumsýnd ein hrollvekja til
að hræða líftóruna úr kvikmynda-
húsagestum. Að þessu sinni er það
See No Evil sem skartar fjölbragða-
glímuhetjunni Glen Jacobs í aðal-
hlutverki. Vegur þeirra í kvik-
myndum hefur oft verið þyrnum
stráður en þessi sér-ameríska
íþróttagrein nýtur mikilla vin-
sælda vestan hafs. Margir muna
eflaust eftir Hulk Hogan sem
lamdi mann og annan á árum áður
að ógleymdum The Rock sem
reyndar fór hamförum í Be Cool.
See No Evil segir frá átta ung-
mennum sem stytta fangelsisvist
sína með því að gista á yfirgefnu
sveitabýli ásamt einhenta lög-
reglumanninum Jacob Goodnight.
Sá glataði hendinni í baráttu við
stórhættulegan fjöldamorðingja
sem Goodnight taldi sig hafa sigr-
að fyrir mörgum árum. Þegar
unglingunum í hópnum fækkar
óðfluga gerir Goodnight sér grein
fyrir því að enn og aftur þarf hann
að taka á stóra sínum til að hafa
sigur á hinu illa.
Leikstjórinn Gregory Dark er
fæstum kunnur, en hann hefur
lengi starfað með kvikmyndafyr-
irtækinu Dark Brothers sem fram-
leiðir klámmyndir. Hann var áður
giftur klámmyndastjörnunni Star
Chandler og hefur leikstýrt mörg-
um af stærstu nöfnunum í heimi
klámsins. Dark hefur hins vegar
verið að færa sig fjær þessum
milljarðaiðnaði og leikstýrði
meðal annars myndbandi fyrir
Britney Spears en það vakti mikla
athygli á sínum tíma.
Hryllingurinn held-
ur áfram í bíó
SEE NO EVIL Fjöldamorðingi gengur laus á
yfirgefnum búgarði og þarf lögreglumaður-
inn Jacob Goodnight að taka á öllu sínu til
að hafa sigur.
You think you can catch Keyser Soze?
You think a guy like that comes this
close to getting fingered and sticks
his head out? If he comes up for
anything, it will be to get rid of me.
After that, my guess is you´ll never
hear from him again.
Verbal Kint útskýrir fyrir lögreglumanninum Kujan hversu erfitt
það sé að ná í Keyser Soze í Usual Suspects sem verður minnst
fyrir óvænt endalok.
Eftirlætis kvikmynd?
„Þær eru margar en í fyrsta sæti
er örugglega Night of the Creeps.
Þetta er svona b-hryllingsmynd
sem kom og fór og fáir vissu
af henni, en hún er bara svo
fáránlega vel skrifuð. Hún blandar
saman nokkrum vinsælum stílum
frá þessum tíma, háskólamynd-
um, nördamyndum og auðvitað
hryllingsmyndum“
Eftirminnilegasta atriðið?
„Það er til dæmis hægt að kvóta
mikið í Night at the Creeps. Í einu
atriðinu eru háskólastúlkurnar í
systrafélaginu að bíða eftir strák-
unum sem eru að koma að sækja
þær á lokaballið, nema hvað
að þeir eru allir dánir og orðnir
uppvakningar. Lögreglumaður
kemur upp að stelpunum og segir
þeim að hann hafi góðar fréttir og
slæmar fréttir. Góðu fréttirnar séu
þær að strákarnir séu komnir, en
slæmu fréttirnar eru þær að þeir
eru allir dánir og orðnir uppvakn-
ingar“
Uppáhalds leikstjóri?
„Guillermo del Toro sem leik-
stýrði meðal annars Hell Boy.
Hann er mikill snillingur, algjör
hrillingsmyndanörd eins og ég.
Hann leggur ofboðlsega mikið í
myndirnar sínar. Fred Dekker sem
leikstýrði einmitt Night at the
Creeps er líka í uppáhaldi.
Mesta hetja hvíta tjaldsins?
„Bruce Campell úr Evil Dead
myndunum er algjör spaði, hann
er samt ekkert mjög góður leikari
en mikill töffari.“
Mesti skúrkurinn?
„svarthöfði úr Star Wars.“
Hvaða persóna fer mest í taug-
arnar á þér?
„Ace Ventura var ótrúlega óþol-
andi maður. Jim Carrey hefur
samt batnað mikið með árunum.“
Ef þú fengir að velja kvikmynd
til að leika í, leikstjóra og mót-
leikara, hvernig mynd yrði það?
„Ég myndi vilja gera horror mynd
og leikstjórinn yrði Guillermo
del Toro. Svo myndi einhver flott
gella leika á móti mér, eða nei
Bruce Campell yrði mótleikarinn
minn“
KVIKMYNDANJÖRÐURINN: ÓMAR ÖRN HAUKSSON
Mikill hryllingsmyndaaðdáandi
ÓMAR ÖRN HAUKSSON Ómar Örn er
mikill aðdáandi hryllingsmynda.