Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 66
 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR46 Dj Skeleton spila r geðveika tónlis t milli 18 og 21. Léttar veitingar. Láttu sjá þig í Al l Saints Kringlun ni. All Saints heldur party fimmtudagin n 13.júlí 50-70% afsláttur af öllum útsöluvörum. Nýtt korta tímabil ! Gestum á Ölstofu Kormáks og Skjaldar varð bylt við á dögunum þegar klukku staðarins var stolið. Veit- ingamennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson eiga hins vegar hauk í horni þar sem ítalski barþjónninn Fabio la Marca er, því hann gerði sér lítið fyrir og hafði upp á þjófnum og endurheimti klukkuna. Uppi varð fótur og fit aðfara- nótt laugardags þegar gestir á Ölstofunni tóku eftir því að klukka staðarins var horfin af veggnum sem hún hangir venjulega á. Eftir að hafa leitað klukkunnar dyrum og dyngjum lék ekki vafi á að henni hafði verið stolið en þegar barþjón- ar staðarins voru orðnir úrkula vonar um að sjá gripinn nokkurn tímann aftur hljóp hins vegar á snærið hjá þeim. „Ég var í pásu og brá mér aðeins út fyrir til að fá mér ferskt loft,“ segir Fabio la Marca, barþjónn á Ölstofunni. „Þá tók ég eftir ungum manni þarna fyrir utan en hann hafði verið inni fyrr um kvöldið. Ég sá að hann var að reyna að fela eitthvað innan undir jakkanum sínum og þegar betur var að gáð sást að þetta var klukkan.“ Þegar Fabio kallaði til mannsins og bað hann um að skila klukkunni tók tíma- þjófurinn til fótanna. Fabio beið þá ekki boðanna heldur stökk á eftir honum og hljóp þjóf- inn uppi á örskot- stundu. „Ég greip í hann og bað hann um að skila mér klukk- unni sem og hann gerði mótþróa- laust. Ég spurði hann hvað hann væri eiginlega að spá í að stela klukku og hann svaraði að sig hefði bara langað í hana. Hann var greinilega vel við skál,“ segir Fabio, sem minnnist þess ekki að hafa séð þennan bíræfna gest á Ölstofunni áður. Rummungurinn slapp þó með skrekkinn í þetta sinn því Fabio, sem fastagestir Ölstofunnar lýsa sem manni sátta, ákvað að kæra þjófnað- inn ekki til lögreglunnar. „Mér fannst nóg að fá klukkuna aftur. Þetta var bara eitthvert fyllerísrugl og maður- inn skammaðist sín greinilega.“ Fabio var tekið sem hetju þegar hann sneri aftur með klukkuna og klöppuðu gestir Ölstofunnar honum lof í lófa. Sjálfur gerir hann þó lítið úr afreki sínu. „Ég sá bara að hann var með klukkuna og ákvað að ná henni aftur. Þetta var ekkert stór- mál.“ Klukkan er nú komin aftur á sinn stað upp á vegg og þurfa gestir Ölstofunnar því ekki að hafa áhyggj- ur af því að sitja of lengi fram eftir við ölið. bergsteinn@frettabladid.is Tímaþjófur á Ölstofunni ÖLSTOFA KORMÁKS OG SKJALDAR Barnum er lokað klukkan eitt á virkum dögum en klukkan fimm um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND KLUKKA STAÐARINS Úrverk Ölstofunnar mun ekki vera sérstaklega dýrt en gerir tilætlað gagn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Hin nýgiftu Nicole Kidman og Keith Urban hafa ákveðið að setjast að í heimabæ Urbans, Nash- ville í Bandaríkj- unum vegna þess að þau telja sig fá meiri frið fyrir fjölmiðlum þar en annars staðar. Ekki var það samt alveg raunin á þjóðhá- tíðardag Banda- ríkjamanna, 4. júlí, þegar skötuhjúin fóru á útsýnispall í áðurnefndum bæ og voru að horfa á flugeldasýningu. Margmennið sem þar var saman- komið endaði með því að snúa baki í flugeldana og taka aðeins myndir af þeim hjónum. Urban og Kidman giftu fyrir stuttu í Ástralíu. Æstir aðdáendur KIDMAN OG URBAN Fengu ekki frið fyrir æstum aðdáendum á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.