Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 70

Fréttablaðið - 13.07.2006, Síða 70
50 13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu er nú metið það 107. besta í heiminum af Alþjóðaknattspyrnu- sambandinu, FIFA. Skiptar skoð- anir erum téðan styrkleikalista en mörgum finnst að hann gefi ekki rétta mynd af styrkleika landsliða í heiminum. Einn þeirra er Eggert Magnússon, formaður KSÍ, en aldrei áður hefur Ísland fallið fyrir neðan 100. sæti listans. „Ég hef aldrei haft miklar áhyggjur af þessum lista og tek aldrei mark á honum,“ sagði Egg- ert við Fréttablaðið í gær. „Þar að auki sá ég að það stæði til að breyta þeim forsendum sem listinn er reiknaður á en ég veit ekki hvernig það mál stendur. En það segir vissulega ákveðna sögu að lið falla niður þennan lista án þess að spila nokkurn leik.“ Það er vissulega rétt, Ísland hefur ekki spilað landsleik fyrr en það tapaði fyrir Trínidad og Tób- agó í lok febrúar síðastliðnum en næsti leikur liðsins verður gegn Spáni þann 15. ágúst á Laugardals- velli. Ísland er þó ekki eina landið sem fellur niður listann án þess að spila leik. Dæmi eru um aðrar Evr- ópuþjóðir sem taka stór stökk niður á við, svo sem Færeyjar og San Marínó sem hvor falla um 30 sæti. Lúxemborg datt niður um 41 sæti. Átta Evrópuþjóðir eru neðar á listanum en Ísland og hlýtur það að segja sína sögu, hvaða skoðun sem menn hafa á listanum. En Eggert segir það ekki tilefni til að spila fleiri landsleiki. „Ég hef oft sagt að vináttuleikir hafi ekki mikla þýðingu og þar að auki er áhuginn á þeim oft mjög takmarkaður. En það má alltaf deila um þetta. Mér finnst til að mynda það hafa reynst mjög vel þegar landsliðið hefur spilað á litlum mótum yfir vetrar- tímann og þá með leikmönnum sem eiga ekki alltaf fast sæti í lið- inu. En ég gef ekki mikið fyrir að spila vináttulandsleiki bara til að spila vináttulandsleiki. Og ég gef enn minna fyrir þennan FIFA- lista.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is FORMAÐURINN OG ÞJÁLFARINN Eggert Magnússon formaður KSÍ og Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari karla. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Íslenska landsliðið aldrei neðar Nýr styrkleikalisti FIFA var gefinn út í gær og er íslenska landsliðið í 107. sæti listans. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, segist aldrei hafa tekið mikið mark á þessum lista og það breytist ekki nú. NÆSTU LIÐ FYRIR OFAN ÍSLAND ÞAU 20 LIÐ SEM ERU Í SÆTUM 86-106: OMAN, ÍRAK, KÍNA, SAMEINUÐU ARABÍSKU FURSTADÆMIN, NORÐUR-KÓREA, KÝPUR, ALSÍR, BAREIN, MIÐBAUGSGÍNEA, GABON, KÚBA, JÓRDANÍA, ÚGANDA, KÚVÆT, EÞÍÓPÍA, GRÆNHÖFÐAEYJAR, RÚANDA, BOTSVANA, ARMENÍA, BENÍN. EFSTU LIÐ FIFA-LISTANS SÆTI LIÐ BREYTING 1. BRASILÍA 0 2. ÍTALÍA +11 3. ARGENTÍNA +6 4. FRAKKLAND +4 5. ENGLAND +5 6. HOLLAND -3 7. SPÁNN -2 8. PORTÚGAL -1 9. ÞÝSKALAND +10 10. TÉKKLAND -8 11. NÍGERÍA 0 12. KAMERÚN +3 13. SVISS +22 14. ÚRÚGVÆ +8 15. ÚKRAÍNA +30 16. BANDARÍKIN -11 17. DANMÖRK -6 18. MEXÍKÓ -14 19. PARAGVÆ +14 20. FÍLABEINSSTRÖNDIN +12 FÓTBOLTI Hafnfirðingurinn Hannes Þ. Sigurðsson var á skotskónum fyrir Stoke City í fyrradag er liðið vann Chester 2-0 í æfingaleik. Hannes skoraði annað mark sinna manna í leiknum. Stoke hélt í gær til Austurríkis í æfingaferð. - esá Æfingaleikur hjá Stoke: Hannes skoraði HANNES Þ. SIGURÐSSON Skoraði fyrir Stoke City í æfingaleik. NORDIC PHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Unglingalandsliðsmað- urinn Hafþór Björnsson hefur gengið til liðs við úrvalsdeildar- liðs KR í körfubolta en hann lék með liði FSu á síðasta ári. Hafþór er uppalinn í Breiðabliki en ákvað að leika með KR-ingum á næstu leiktíð. Hann átti við meiðsli að stríða í vetur og var af þeim sökum lengi frá. - esá Körfuboltalið KR styrkir sig: Hafþór til KR Ólafur Ingi Skúlason hefur nú jafnað sig á krossbandaslitum í hné sem hann varð fyrir í leik með enska 2. deildarfé- laginu Brentford í ágúst síðastliðnum. Það var einn af hans fyrstu leikjum með félaginu en hann hefur nú náð sér að fullu. „Ég hef verið að æfa á fullu með félaginu og spilaði um daginn minn fyrsta leik í ellefu mánuði,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið í gær. „Eins og staðan er í dag gengur allt vel og ekkert sem er í rauninni að angra mig. Ég þarf bara halda áfram að byggja mig upp. Það vantar kannski aðeins upp á leikformið hjá mér en það kemur vonandi til á undirbúningstímabilinu.“ Ólafur segir að ellefu mánuðir séu óvenjulega langur tími fyrir meiðsli af þeim toga sem hann hlaut en bæði hann og þjálfarar liðsins voru sammála um að það væri betra að flýta sér hægt og vera þá orðinn 100 prósent klár í upphafi nýs tímabils. En skyldi hann bera sig öðruvísi eftir meiðslin? „Nei, í sjálfu sér ekki. Ég er svo sem ekkert að henda mér í allar tæklingar en það á við alla leikmenn enda vilja allir vera heilir í upphafi tímabilsins. Ég gleymi þessu um leið og ég er kominn inn á völlinn og er það mjög þægilegt.“ Þegar Ólafur kom til félagsins þá var Martin Allen knattspyrnustjóri liðsins en hann hætti í vor eftir að liðinu mistókst að vinna sér sæti í ensku 1. deildinni. Allen hafði miklar mætur á Ólafi Inga og var einna fyrstur manna að votta Ólafi samúð sína þegar hann meiddist í haust. Við liðinu er tekinn Leroy Rosenior sem var áður þjálfari 3. deildar- liðsins Torquay í fjögur ár. Ólafur er ánægður með eftirmann Allens og segir hann leggja áherslu á leikstíl sem henti honum vel. ÓLAFUR INGI SKÚLASON: Á FULLRI FERÐ EFTIR KROSSBANDASLIT Spilaði fyrsta leikinn í 11 mánuði > Akureyri handboltafélag Ekki er enn búið að binda alla lausa enda í sameiningu handknattleiksliða Þórs og KA fyrir næsta tímabil. Þau mál eru þó öll á lokastigi og er ný reiknað með að allt verði komið á hreint í næstu viku. Allt útlit er fyrir að þetta sameigin- lega lið muni einfaldlega heita Akureyri líkt og bæjarfélagið og þá segja sögur að litur búningsins verði í takt við skjald- armerki Akureyr- ar. Rúnar Sigtryggs- son mun líklega þjálfa Akureyri handbolta- félag. Marko Pavlov til Mallorca Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Marko Pavlov er genginn í raðir spænska liðsins Mallorca en hann hefur skrifað undir eins árs unglingasamning við félagið. Marko er átján ára og hefur verið búsettur hér á landi í átta ár. FÓTBOLTI Valur og ÍA hefja í dag leik í forkeppni UEFA-bikarkeppn- innar þegar þau mæta dönsku lið- unum Bröndby og Randers ytra. Valsmenn mæta liði Bröndby sem er vitanlega fornfrægt félag og hefur gengið hvað best af dönsk- um liðum í Evrópukeppninni. Mörgum er enn í fersku minni þegar liðið sló Liverpool úr UEFA- bikarkeppninni árið 1994 en und- anfarin ár hefur liðið ekki átt jafn góðu gengi að fagna og til að mynda mistekist að vinna sér þátttökurétt í aðalkeppni Meistaradeildarinn- ar. Þjálfari liðsins er René Meul- ensteen en hann tók við liðinu í vor af Michael Laudrup eftir að liðinu mistókst að verja meistaratitil sinn og lenti í 2. sæti deildarinnar. „Það er klárt mál að þeir eru líklegri til sigurs á heimavelli og við þurfum fyrst og fremst að verj- ast vel,“ sagði Willum Þór Þórsson í gær. „En það eru allir heilir og ég hlakka til leiksins.“ ÍA mætir Randers sem vann heldur óvænt dönsku bikarkeppn- ina í vor en liðið lék þá í 1. deild- inni og vann sér svo sæti í úrvals- deildinni. „Við vitum svo sem ekki mikið um liðið en úrslit FH í Eistlandi gefa okkur byr undir báða vængi,“ sagði Arnar Gunnlaugsson þjálf- ari. „Það eru allir heilir, meira að segja ég og Bjarki og þá er mikið sagt,“ bætti Arnar við í léttum tón. - esá Bikarmeistarar Vals og ÍA í eldlínunni: Valur og ÍA spila í Danmörku í dag SPILA Í DANAVELDI Í DAG Frá leik Vals og ÍA í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.