Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 73
FIMMTUDAGUR 13. júlí 2006 53
��������
FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið FIFA hefur ákveðið að
aflétta banninu sem það setti á
Grikkland í síðustu viku. Sam-
kvæmt því banni átti að meina
Grikklandi allri þátttöku í mótum á
vegum FIFA og UEFA, bæði lands-
liðinu og grískum félagsliðum.
Ástæðan var sú að ríkisstjórn
landsins var talin hafa of mikil
áhrif innan knattspyrnuhreyfing-
arinnar í landinu.
Bannið var sett í síðustu viku en
því hefur þegar verið aflétt eftir að
gríska þingið ákvað að hætta
afskiptum sínum af knattspyrnu-
málum. „Reglurnar í Grikklandi
eru nú í samræmi við reglur FIFA
og UEFA, því hefur banninu verið
aflétt,“ sagði í fréttatilkynningu
frá FIFA. - egm
Gleðitíðindi fyrir Grikkland:
Banninu aflétt
GRIKKLAND Fær að taka þátt í mótum á
vegum UEFA og FIFA.NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Í fyrradag var það kunn-
gjört að Leo Beenhakker hafði
verið ráðinn landsliðsþjálfari Pól-
lands en hann stýrði liði Trínidad
og Tóbagó á HM í sumar en íslenska
landsliðið mætti liðinu í febrúar
síðastliðnum í Lundúnum. Við
starfi hans tekur aðstoðarþjálfar-
inn Wim Rijsbergen en hann lék
með hollenska landsliðinu á HM
1974. - esá
Beenhakker til Póllands:
Rijsbergen tek-
ur við af Leo
FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn
Djibril Cisse gekk í gær frá láns-
samningi við Marseille í heima-
landi sínu. Líklegt er að Cisse skrifi
síðan undir annan samning við
Marseille sem er líklegt til að borga
Liverpool átta milljónir punda
fyrir kappann, eftir tímabilið.
„Þetta er mjög gott fyrir Dji-
bril af því hann þarf að fá að spila.
Það mun henta honum vel að fara
aftur til Frakklands,“ sagði Rafael
Benítez, stjóri Liverpool, um
Cisse. Hann kostaði Liverpool
fjórtán milljónir punda þegar
hann kom frá Auxerre en hefur
verið óheppinn með meiðsli og
meðal annars fótbrotnað í tvígang.
Hann getur byrjað að spila aftur í
október þar sem hann er enn að
jafna sig af seinna brotinu.
Liverpool er talið vera nálægt
því að klófesta Daniel Alves, leik-
mann Sevilla, sem er hægri kant-
maður. Þá má leiða líkur að því að
Benítez snúi sér að hollenska sókn-
armanninum Dirk Kuyt, sem hann
hefur lengi haft augastað á. - hþh
Djibril Cisse:
Lánaður til
Marseille
CISSE OG FRÚ Yfirgefa hér Elysee-torgið í
París, eftir heimkomu franska landsliðsins
frá HM, með Thierry Henry í baksýn.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Franski knattspyrnumað-
urinn Zinedine Zidane hélt blaða-
mannafund í gærkvöldi þar sem
hann ræddi hið umdeilda atvik í
úrslitaleik heimsmeistarakeppn-
innar þegar hann skallaði hinn
ítalska Marco Materazzi í bring-
una og fékk að líta rauða spjaldið.
Zidane vildi ekki segja nákvæm-
lega frá því hvað það var sem Mat-
erazzi sagði sem varð til þess að
hann brást svona við en sagði að
það hefði verið mjög alvarlegt og
snert móður hans og systur.
„Ég reyndi að hlusta ekki á
hann en hann endurtók þetta aftur
og aftur. Viðbrögð mín eru óafsak-
anleg en ég er enn á þeirri skoðun
að Materazzi sé sá seki. Ég vil nota
tækifærið og biðja öll börn sem
urðu vitni að þessu afsökunar,
svona á ekki að hegða sér,“ sagði
Zidane á fundinum en þrátt fyrir
atvikið var hann valinn maður
heimsmeistarakeppninnar. Sepp
Blatter, forseti FIFA, hefur reynd-
ar gefið það í skyn að svo gæti
farið að Zidane missi þann titil
vegna hegðunar sinnar.
Materazzi sjálfur vill ekki gefa
upp hvað hann sagði við Zidane en
segir að það hafi verið ummæli sem
fótboltamenn eigi að vera vanir að
heyra í nánast hverjum leik. Á
blaðamannafundinum í gær sagði
Zidane að þetta atvik hefði ekki átt
sér lengri aðdraganda og samskipt-
in milli þeirra tveggja hefðu hafist
örfáum sekúndum áður en hann
skallaði Materazzi í bringuna.
BBC fékk til sín varalesara til
að skoða upptöku af atvikinu og er
niðurstaða hans sú að Materazzi á
að hafa sagt við Zidane: „Þú ert
sonur hryðjuverkahóru,“ og hafa
nokkrir aðrir varalesarar haldið
því sama fram. Þá halda sumir
fjölmiðlar því fram að Materazzi
hafi sagt: „Ég gerði þetta bara eins
og mamma þín vill hafa það,“ eftir
að hafa klipið í geirvörtu franska
leikmannsins. Materazzi hefur
neitað báðum þessum ummælum
en hann missti móður sína þegar
hann var fjórtán ára gamall.
elvargeir@frettabladid.is
Zidane baðst afsökunar
Zinedine Zidane sagði ekki nákvæmlega frá því í gær hvað Marco Materazzi
sagði við hann í úrslitaleik HM. Hann baðst þó afsökunar á hegðun sinni.
ZIDANE Er hér á blaðamannafundinum í gær með atvikið í baksýn en hann segir að Mater-
azzi hafi látið alvarleg orð falla um móður sína og systur.NORDICPHOTOS/AFP