Fréttablaðið - 13.07.2006, Qupperneq 78
13. júlí 2006 FIMMTUDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Mumbai á Indlandi.
2 Syd Barrett.
3 Snædís Guðnadóttir.
LÁRÉTT
2 teikniblek 6 dreifa 8 X 9 heyskaparam-
boð 11 tveir eins 12 gabba 14 nuddast
16 einnig 17 arinn 18 fát 20 gangþófi 21
traðkaði.
LÓÐRÉTT
1 lofttegund 3 utan 4 seinasti 5 niður 7
frammistaða 10 titill 13 flan 15 fita 16
margsinnis 19 eldsneyti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 túss, 6 sá, 8 tíu, 9 orf, 11 ðð, 12
narra, 14 núast, 16 og, 17 stó, 18 fum, 20
il, 21 tróð.
LÓÐRÉTT: 1 óson, 3 út, 4 síðasti, 5 suð,
7 árangur, 10 frú, 13 ras, 15 tólg, 16 oft,
19 mó.
opið alla laugardaga 11-14
Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA,
VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA
Á grillið! Nýr humar, lúða, sólþurrkaður
saltfi skur, skötuselur og keila.
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Fyrir
hornið…
„Samkvæmt innanbúðarmanni okkar
hjá Zidane er hann miður sín yfir
þessu og niðurbrotinn maður,“ segir
Sigurjón Sighvatsson sem frumsýndi
nýstárlega heimildarmynd um knatt-
spyrnukappann fyrr á þessu ári. Fátt
hefur vakið jafn mikla athygli og rauða
spjaldið sem Zidane fékk þegar hann
skallaði ítalska varnarjaxlinn Mater-
azzi í úrslitaleik heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu. Kvikmyndin um
Zidane er á margan hátt mjög
óvenjuleg en hún gerist á rauntíma,
í leik Real Madrid og Villarreal.
Hið merkilega er að þar fær Frakk-
inn einnig að líta rauða spjaldið
eftir að hafa lent í útistöðum við
Quique Alvarez, leikmann Villar-
real. „Því verður ekki neitað að
þetta atvik í Þýskalandi hefur
aukið áhugann á myndinni,“ útskýrir Sig-
urjón.,Þrátt fyrir að leika mjög framar-
lega á vellinum hefur Zidane fengið
fjórtán rauð spjöld á ferlinum en Sigur-
jón segir að sín fyrstu kynni af honum
bendi alls ekki til þess að hann sé ein-
hver skapofsamaður. „Þetta er mjög
feiminn en um leið yfirvegaður
maður með mikið keppnisskap,“
segir Sigurjón og bætir við að Zid-
ane sé ákaflega stoltur af þessari
mynd. „Hann hefur gefið okkur
loforð um að kynna myndina með
okkur í september og ég veit ekki
betur en að það standi.“ - fgg
Zidane er niðurbrotinn maður
AUKIN ATHYGLI Sigurjón getur
ekki neitað því að atvikið í
Þýskalandi hafi aukið áhugann á
heimildarmyndinni um Zidane.
SKAPMAÐUR Zidane hefur fengið fjórtán rauð spjöld á
sínum ferli og í heimildarmyndinni fær hann að líta eitt
slíkt eftir útistöður við Quique Alvarez.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Barbiedúkka í íslenskum peysu-
fötum er til sölu á uppboðsvefn-
um e-bay. Dúkkan var framleidd
árið 1986 og er hluti af Heims-
dúkkusafni Mattel-framleiðand-
ans. Dúkkan er í upprunalegum
umbúðum sem hafa aldrei verið
opnaðar.
Að neðan er íslenska barbie-
dúkkan í bláu pilsi og með hvíta
svuntu en að ofan í hvítri skyrtu
og bláum upphlut. Á höfði ber
hún bláa skotthúfu. Auk dúkk-
unnar fylgir landslagsvegg-
mynd, kort og ferðahandbók af
Íslandi, peningar, passi og flug-
miðar fyrir dúkkuna góðu í pakk-
anum.
Um þrjúleytið í gær var hæsta
boð í dúkkuna 25 dollarar, sem
samsvarar tæpum tvö þúsund
krónum en frestur til að bjóða í
dúkkuna rennur út um klukkan
hálf sjö í kvöld.
Íslensk barbie-
dúkka á e-bay
ÍSLENSK BARBIE
Barbiedúkkan í peysufötun-
um sem er til sölu á e-bay.
HRÓSIÐ
...fær Atli Guðnason, leikmaður
FH, sem skoraði mark og tryggði
FH 3-2 sigur á TMVMK Tallinn í
sínum fyrsta Evrópuleik.
Klukkurnar sem staðið hafa við
Hlemm eru horfnar. Ástæðan er
einföld: „Klukkurnar voru ónýt-
ar og við tókum þær niður.
Úrverkið í þeim var úr sér geng-
ið,“ segir Þórhallur Halldórsson,
deildarstjóri farþegaþjónustu
Strætó bs, sem sér um rekstur-
inn á Hlemmi.
Hinar þríhyrndu klukkur sem
gnæft hafa yfir torginu við
Hlemm og mælt tímann í næst-
um þrjá áratugi hafa ekki gengið
sem skyldi upp á síðkastið.
„Klukkurnar hafa verið meira
og minna bilaðar síðustu ár. Þær
hafa í raun gengið minna en
meira,“ segir Þórhallur deildar-
stjóri. „Þegar þær gengu gengu
þær sitt á hvað. Það var aldrei
hægt að treysta á þær.“
Í stað klukknanna í turninum
voru settar upp þrjár stafrænar
klukkur innandyra. Gömlu
klukkurnar í turninum eru hins
vegar komnar í geymslu í stöðv-
um Strætó bs. við Kirkjusand og
alls óvíst hvað verður um þær.
„Ég veit ekki hvað verður um
klukkurnar en ég reikna alla-
vega ekki með því að við setjum
þær aftur upp. Ef eitthvað annað
kemur í staðinn verður það að
vera huggulegra,“ segir Halldór
hjá Strætó bs. „Það er nefnilega
betra að vera klukkulaus en með
vitlausa klukku.“
Klukkurnar við Hlemm voru
settar upp í kringum 1975 þegar
Strætisvagnar Reykjavíkur,
betur þekktir sem SVR, tóku yfir
húsnæðið við Hlemm. Síðan þá
hefur fyrirtækið fengið nýtt
nafn. Það er því óhætt að segja
að klukkurnar sem staðið hafa
við Laugaveg 107 muni tímana
tvenna.
kristjan@frettabladid.is
BREYTINGAR VIÐ HLEMM: KLUKKURNAR ÚR SÉR GENGNAR
Betra að vera klukkulaus
en með vitlausa klukku
GRÍMUR BRANDSSON Bendir á turninn þar sem klukkan var. Grímur vann á sínum tíma við að setja upp klukkuna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FRÉTTIR AF FÓLKI
Innan tíðar er von á fjölgun í fjölskyldu forseta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Tinna Ólafsdóttir, dóttir hans, á
von á öðru barni sínu með eiginmann-
inum Karli Pétri Jónssyni,
sem starfar sem
fulltrúi forstjóra
Dagsbrúnar. Fyrir
eiga þau hjóna-
kornin dóttur-
ina Katrínu
Önnu sem er
þriggja ára.
Tinna er sögð
vera komin
rúmlega
fjóra mánuði
á leið og
hafa þau til-
kynnt sínum
nánustu um
þungunina. Karl Pétur vildi ekki ræða
þetta við Fréttablaðið í gær, sagði ein-
faldlega að hann ræddi ekki einkamál
fjölskyldu sinnar í fjölmiðlum.
Tónlistarmaðurinn Sverrir Storm-sker er staddur á Íslandi um þessar
mundir. Af og til hafa birst fréttir í
fjölmiðlum af ferð Sverris um Asíu en
þar hefur hann verið
síðasta árið eða þar
um bil. Þetta mun þó
verða stutt stopp því
Sverrir ætlar aftur
út til Taílands
bráðlega. Í
Taílandi hefur
hann náð sér
í þarlenda
konu sem
hyggst flytjast
með honum
til Íslands innan
tíðar.
Magni Ásgeirsson söng öðru sinni í Rockstar: Supernova aðfaranótt
miðvikudags, að þessu sinni í beinni
útsendingu á Skjá einum. Magni söng
My Generation sem The Who gerðu
frægt. Flutningur Magna mæltist mis-
jafnlega vel fyrir hjá Supernova-hljóm-
sveitinni. Þannig var Jason Newsted
ánægður með drenginn en Tommy Lee
var ekki nógu sáttur. Miklar umræður
eru um frammistöðu
söngvaranna á
spjallborði þáttarins
og þar hefur meðal
annars verið
stofnaður þráður
þar sem Magna
er spáð sigri.
Skiptar skoðanir
eru um þetta, eins
og lesa má á heima-
síðunni rockstar.msn.
com.
- hdm