Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 80

Fréttablaðið - 13.07.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ���������� TRAUSTUR FERÐAFÉLAGIEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR Á FERÐ OG FLUGI ‒ með ferðatösku frá FAXE FERÐAFRELSI ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 29 08 07 /2 00 6 Taktu Frelsið með í ferðina. Ferðafrelsið virkar alveg eins og Frelsið þitt hér heima! Símtölin eru gjaldfærð samstundis og því færðu enga bakreikninga eftir heimkomuna. Núna þarftu ekki að skrá þig sérstaklega í Ferðafrelsi Og Vodafone og þú getur notað það í flestum löndum. Kynntu þér málið á ogvodafone.is áður en þú leggur af stað. Góða ferð. Smelltu þér á www.ogvodafone.is, komdu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar. Ég er ákaflega skapgóður maður að eðlisfari. Ég reyni yfirleitt að vera elskulegur við fólk og gefa því tíma minn. Ef ég er eitthvað lumpinn eða illa fyrirkallaður þá hringi ég gjarnan í fólk og bið það fyrirgefningar eða útskýri fyrir því. Flestir vina minna eru eins. En þó ekki allir. Í gegnum tíðina hef ég eignast nokkra vini og kunningja sem eru mislyndir. Eina stundina eru þeir hvers manns hugljúfi en þá næstu kannski eins og snúið roð í hund. Þeir leyfa sér að vera leiðinlegir og láta eins og það sé allt í lagi og skipti hreinlega ekki máli. Þegar ég hitti þá þá fæ ég gjarnan kvíða vegna þess að ég veit ekki hvernig skapi þeir eru í þá stundina. ÉG á einn vin sem ég hitti nokkuð reglulega. Hann er yfirleitt elsku- legur og ljúfur. En svo getur hann líka verið fálátur, afundinn og hranalegur og þá líður mér eins og ég sé ekki vinur hans heldur einhver sem hann þolir hreinlega ekki. En það er alls ekki málið. Fleiri hafa sömu sögu að segja. Stundum lætur hann bara skap sitt og fýlu bitna á öðrum. Hann einfaldlega notar aðra til að fá útrás á þeim. MÉR líður oft illa eftir þessi sam- skipti. Ég velti því stundum fyrir mér hvort ég hafi gert honum eitt- hvað. Stundum fýkur hreinlega í mig. ÉG hef haft langlundargeð gagn- vart þessu fólki og umborið það á þeim forsendum að það væri bara svona. Ég hef varið það fyrir gagn- rýni annarra og leyft því að nota mig vegna þess að mér fannst ég ekki eiga neitt betra skilið. En ekki lengur. Ég er hættur því. Ég hef ekki þörf fyrir að eiga vini sem láta mér líða eins og ég sé hálfviti. Mér finnst of vænt um mig til að leyfa einhverjum egóistum að koma illa fram við mig. Þetta er ekki vinátta. Ef fólki finnst í lagi að vera leiðinlegt við mig eða mína þá er það einfald- lega ekki vinir mínir. TÍMINN er dýrmætur. Ég hef ekki tíma í svona samskipti. Ég nenni ekki einu sinni að segja þessu fólki hvað það er leiðinlegt. Ég vil ekki eyða tíma í það. Heim- urinn er fullur af elskulegu fólki sem er ekki að kafna í naflalónni af sjálfu sér. Og mig langar að eyða meiri tíma með því. Ég þakka því öllum leiðindapokum og sér- viskupúkum fyrir samfylgdina í gegnum árin. Gangi ykkur vel. Mislyndi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.