Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 2

Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 2
2 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR SAMSKIPTI Í rannsókn sem gerð var á heilsu og lífskjörum skólabarna nú í vor kemur í ljós að 32,4 pró- sent unglinga í 10. bekk hafa haft samfarir. Þetta hlutfall er hæst á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vest- fjörðum, um 40 prósent en lægst um 28 prósent í nágrenni Reykja- víkur. Í Reykjavík er þetta hlutfall rétt um landsmeðaltal. Þóroddur Bjarnason, einn skýrsluhöfunda og prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akur- eyri, segir það vekja athygli hversu mikill munur sé á kynhegðun ungl- inga eftir landshlutum. „Það geta verið margvíslegar ástæður fyrir þessu mynstri. Kynhegðun ungl- inga mótast að vissu marki af hefð- um, venjum og viðhorfum sem ríkja í því samfélagi sem þau alast upp í.“ Í rannsókninni kemur einnig fram að um 29 prósent stráka og 36 prósent stelpna í 10. bekk hafa haft samfarir en hlutfall stelpnanna er með því hæsta í Evrópu. Sóley Bender, dósent við hjúkrunar- fræðideild Háskóla Íslands segir þessar tölur um kynhegðun ungl- inga ekki koma sér á óvart en bætir við að í ljósi umfjöllunar um eftir- litslausa unglinga á útihátíðum undanfarið sé ekki úr vegi að geta þess að áfengisnotkun tengist áhættuþáttum varðandi kynlíf. - hs Hlutfall þeirra sem stunda kynlíf í 10. bekk hæst á Suðurnesjum og Vestfjörðum: Fleiri stelpur hafa sofið hjá E N N E M M / S ÍA / N M 2 17 15 HVALVEIÐAR Mikil eftirspurn er á Íslandi eftir hrefnukjöti að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar, framkvæmdastjóra Félags hrefnu- veiðimanna. „Við bjóðum núna upp á bæði reykt og kryddlegið hrefnukjöt og satt að segja óraði okkur ekki fyrir því að fólk yrði svona æst í þetta.“ Gunnar segir að félagið hafi haldið í mikla mark- aðssetningu á hrefnukjöti í fyrra sem sé að skila sér núna. Hrefnuveiðitímabilið hófst 13. júní og hafa alls átján hrefnur verið veiddar af þeim fimmtíu sem sjávarútvegsráðuneytið gaf leyfi fyrir að yrðu veiddar á þessu tímabili. Í dag eru fjögur skip að veiðum, tvö fyrir sunnan land og tvö fyrir norðan. Rannsóknaráætlun Hafrann- sóknarstofnunar, sem hófst árið 2003, felur í sér veiðar á 200 hrefn- um og gert er ráð fyrir að áætlun- inni ljúki á næsta ári. Meginmark- mið áætlunarinnar er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu en auk rannsókna á fæðu- samsetningu með greiningu maga- innihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. Félag hrefnuveiðimanna var fengið sem verktaki til að sjá um þessar vísindaveiðar en enginn annar hefur leyfi til að veiða hrefnur. Konráð Eggertsson, skipstjóri á hrefnuveiðibátnum Halldóri Sig- urðsson IS14, er ekki viss um að það náist að klára kvótann áður en veiðitímabilinu lýkur 4. ágúst. „Veiðar ganga þokkalega en það hefur þó verið bræla meirihlutann af tímabilinu. Ef svipað ástand helst áfram þá er ekki ólíklegt að í kringum 35 hrefnur muni veið- ast.“ Konráð segir þetta þó geta gengið skarpt þegar fjórir bátar eru að í einu og veður helst gott. sdg@frettabladid.is Óvíst hvort náist að veiða hrefnukvótann Alls hafa átján hrefnur verið veiddar á veiðitímabilinu sem lýkur 4. ágúst. Óvíst er hvort náist að fullnýta kvótann sem er 50 dýr. Markaðssetning á hrefnukjöti er að skila árangri að sögn framkvæmdastjóra Félags hrefnuveiðimanna. HVALKJÖT ER KOMIÐ Í VERSLANIR VÍÐA UM LAND Gunnar Bergmann, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna og Árni Nílsson, kjötiðnaðarmaður. SAMSKIPTI KYNJANNA Það vekur athygli hversu mikill munur er á kynhegðun unglinga eftir landshlutum. LÍBANON Flugvirkjarnir sem eru staddir í Beirút á vegum Atlanta þurftu í gærmorgun að færa sig á hótel lengra frá flugvellinum af ótta við árásir Ísraelsmanna á flugvöllinn sem héldu áfram í gær. Aukin harka hefur færst í hernaðar- aðgerðir þeirra í suðurhluta Líbanon, sem hófust seinasta mið- vikudag. Mennirnir, þrír Íslendingar og Belgi, eru í Beirút vegna viðhalds á Airbus-þotu í eigu Atlanta flug- félagsins. Þeir hafa haldið kyrru fyrir á hótelherbergjum síðan árásirnar hófust, en lokað hefur verið fyrir flug og siglingar til og frá Líbanon. Fjöldi Líbana reynir nú að yfir- gefa landið og hefur mikil örtröð myndast við landamærin inn í Sýr- land, einu færu leiðina út úr land- inu. Í gærkvöld höfðu alls 73 Líban- ar farist í átökunum, nær allir óbreyttir borgarar, og 12 Ísraelar, þar af fjórir óbreyttir borgarar. Eru þetta hörðustu árásir Ísraelshers gegn Líbanon í 24 ár, og er herinn að reyna að útrýma Hezbollah samtökunum í hefndar- skyni, en meðlimir samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn hönd- um fyrr í vikunni. Herinn gerði árásir á höfuðstöðvar samtakanna í gær og í kjölfarið lýsti Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, yfir stríði á hendur ísraelsku þjóðinni. Jafnframt hafa meðlimir Hez- bollah neitað að sleppa hermönn- unum. Utanríkisráðuneytið biður Íslendinga sem þurfa að ferðast til Mið-Austurlanda á næstunni um að sýna fyllstu gát og láta vita af ferðum sínum. - smk/sþs Hezbollah-samtökin hafa lýst yfir stríði á hendur Ísraelum í kjölfar hörðustu árása Ísraela á Líbanon í 24 ár: Íslenskir flugvirkjar flytja vegna ótta ÖNGÞVEITI Fjölmargir reyndu í gær að yfirgefa Líbanon vegna árása Ísraelshers, og mynd- aðist mikið öngþveiti við landamæri Líbanons og Sýrlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Viktor, var þetta engin smá auglýsing? „Nei, þessi smáauglýsing var sko engin smá augýsing.“ Viktor Urbancic er annar eigandi fyrirtæksins Sparibíll sem auglýsti 250 milljón króna bíl í smáauglýsingum Fréttablaðsins í fyrradag. VIÐURKENNING Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Glasgow Caldonian háskólann í Skotlandi við hátíðlega athöfn þann 5. júlí síð- astliðinn. Henni var veitt nafnbótin fyrir að hafa um árabil tekið mál- stað menningar- innar, bæði í heimalandi sínu og á alþjóðlegum vettvangi, og fyrir að vera einarður talsmaður þess að menningarleg sjálfsvitund hverrar þjóðar auðveldi fólki að skilja menningu annarra. Háskólinn er sá átjándi sem sæmir Vigdísi heiðursdoktorsnafnbót. - sþs Vigdís Finnbogadóttir: Sæmd nafnbót heiðursdoktors FRÚ VIGDÍS FINN- BOGADÓTTIR LÖGREGLA Fjórir menn, sem hand- teknir voru fyrir að hafa flutt á þriðja tug kílóa af fíkniefnum til landsins og hafa setið í gæsluvarð- haldi frá því í apríl, munu sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 25. ágúst, þegar mál þeirra fer fyrir dómstóla. Þrír mannanna fjögurra, sem voru þrír Íslendingar og einn Hol- lendingur, voru handteknir á skír- dag í vöruhúsi á Krókhálsi þegar þeir voru að fjarlægja efnin, fimmtán kíló af amfetamíni og tíu kíló af hassi, úr bensíntanki bifreiðar. Hörður Jóhannesson yfirlög- regluþjónn segir málinu lokið af þeirra hálfu og mennirnir bíði nú málsmeðferðar. - sh Bensíntankssmyglararnir: Sæta varðhaldi til 25. ágúst VEÐUR Búist er við töluverðu hvassviðri víða um land í dag að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. Sigurður býst við að vindhrað- inn verði um átján metrar á sek- úndu með ströndum og í námunda við fjöll sunnan og vestan til og enn hærri í hviðum. Hann segir ekki glóru í því að ætla að ferðast með hjólhýsi í svo miklum vindi og vill beina þeim tilmælum til eigenda hjólhýsa, fellihýsa og hús- bíla að vera helst ekki mikið á ferðinni um miðjan dag. Búist er við að veður skáni í nótt. - sh Víða hvasst í dag: Hjólhýsafólk varist vindinn Bíll út í Sogið Mikill viðbúnaður var í gær við Sogið í Árnessýslu þar sem bíll fór út í ána. Betur fór en á horfðist því ökumaður bílsins komst á þurrt og var lítið sem ekkert meiddur. LÖGREGLUFRÉTTIR KJARAMÁL Búast má við töfum á millilandaflugi næstu daga en starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustu- störf í Leifsstöð, ætla að fara sér hægt í vinnunni og hætta að vinna yfirvinnu til að knýja fram kröfur um betri laun og bætta vinnu- aðstöðu. Starfsfólkið lagði niður störf í tvær klukkustundir einn sunnu- dag í lok júní, og hlutust nokkrar tafir af aðgerðinni. Hún var hins vegar ólögleg og var samþykkt á fundi á miðvikudag að hætta ólög- legum aðgerðum og beita þess í stað aðgerðum eins og þeim sem hefjast í dag. - sþs Kjarabarátta starfsmanna IGS: Ætla að hætta allri yfirvinnu Þyrla hrapar Kanadísk herþyrla hrapaði á fimmtudagskvöld undan ströndum Nova Scotia í Kanada með þeim afleiðingum að þrír hermenn fórust og fjórir slösuðust, þó ekki alvarlega. Áhöfn herþyrlunnar var við æfingar ásamt kanadísku strandgæslunni þegar slysið varð. KANADA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.