Fréttablaðið - 15.07.2006, Side 4

Fréttablaðið - 15.07.2006, Side 4
4 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR MS drykkjarvörur í garðveisluna MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í handhægum umbúðum í næstu verslun. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 14.7.2006 Bandaríkjadalur 74,68 75,04 Sterlingspund 137,57 138,23 Evra 94,59 95,11 Dönsk króna 12,679 12,753 Norsk króna 11,96 12,03 Sænsk króna 10,274 10,334 Japanskt jen 0,6444 0,6482 SDR 110,21 110,87 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 130,9663 Gengisvísitala krónunnar WASHINGTON, AP Hinn tvítugi varnarliðsmaður, Calvin Hill, sem grunaður er um morðið á flug- liðanum Ashley Turner þann 14. ágúst á varnar- svæðinu í Kefla- vík, verður sótt- ur til saka fyrir morðið, en verj- endur hans höfðu reynt að fá mál- inu vísað frá vegna formgalla. Hill er ákærð- ur fyrir morð að yfirlögðu ráði, þjófnað og ólögmæta eignaupptöku. Einnig fyrir að setja fram ósannar opinberar fullyrðingar, að taka sér leyfi í heimildarleysi og koma í veg fyrir framgang réttvísinnar. Turner átti, viku fyrir dauða sinn, að bera vitni gegn Hill fyrir að taka út 2000 dollara, um 150 þúsund krónur, af bankareikningi hennar. Ekki hefur verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir. - kóþ Morðið á Ashley Turner: Hill verður sóttur til saka ASHLEY TURNER FLUGLIÐI ÁREKSTUR Ökumaður sendibíls slasaðist lítillega þegar bifreiðin sem hann ók og vörubifreið skullu saman á Reykjanesbrautinni á níunda tímanum í gærmorgun. Vegfarandi olli slysinu þegar hann gekk út á akbrautina með þeim afleiðingum að vörubifreið sem ók í átt að honum snarheml- aði. Við það sveigði vörubíll sem ók á eftir fram hjá flutninga- bifreiðinni og lenti framan á sendi- bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Beita þurfti klippum til að ná manninum úr sendibílnum og var hann fluttur til aðhlynningar á slysadeild. Að sögn læknis eru meiðsli hans minniháttar. - æþe Árekstur á Reykjanesbraut: Fótgangandi olli árekstri STJÓRNMÁL ,,Við erum með í við- ræðunum,“ sagði Hermann Tómas- son, formaður bæjarráðs Akur- eyrar og í stóli bæjarstjóra í fjarveru Kristjáns Þórs Júlíussonar. Það er þvert á fullyrðingu borgar- stjórans við blaðamann um að Reykjavíkurborg standi ein í við- ræðum við Landsvirkjun um kaup ríkisins á hlut borgarinnar í fyrir- tækinu. „Þetta kemur mér á óvart,“ segir Hermann undrandi. Fulltrúi ríkisins hafi haft samband við þeirra fulltrúa um að bærinn kæmi aftur að samningaborðinu. Hann þekki ekki stöðuna í viðræðunum á þessari stundu, en fulltrúinn hafi fengið umboð til að halda söluvið- ræðunum áfram eftir að upp úr slitnaði síðast: „Ég held að það hljóti að vera að söluviðræðunum verði stillt upp saman og kláraðar saman.“ Spurður hvort bærinn vilji setja skilyrði í söluviðræðunum verði Landsvirkjun einkavædd segir Hermann það hugsanlegt: „Ég vil ekki upplýsa þau í þessu samhengi.“ Hann sagði þó að þau væru jafnvel önnur en borgarinnar. „Við munum vilja koma okkar sjónarmiðum varðandi raforkumál í landinu á framfæri í viðræðunum.“ Ekki standi þó á áhuganum að selja ríkinu hlutinn: „Mér finnst ekki eðlilegt að við séum með eignaraðild í orkufyrirtæki á landsvísu. Hags- munir sveitarfélagsins eiga fyrst og fremst að nýtast íbúum þess.“ Borgarfulltrúar vinstri grænna í Reykjavík hafa sent frá sér yfir- lýsingu og vara við sölu borgarinnar á eignarhlutnum í Landsvirkjun. Salan sé liður í stefnu ríkisstjórn- arinnar að einkavæða fyrirtækið, og sé komin í Ráðhúsið. Í yfirlýsingunni stendur að flokkurinn vilji ekki liðka fyrir einkavæðingaræði ríkisstjórnar- innar. Hann telur að fari Reykja- víkurborg út úr Landsvirkjun séu verulegar líkur á að orkuverð til Reykvíkinga stórhækki þá þegar. Borgarfulltrúar Vinstri grænna eru sammála Degi B. Eggertssyni, Samfylkingu, um að tryggja eignarhald borgarinnar á flutnings- netinu og segja að lokum að sú tíð geti komið að borgin losi um eignar- hald í Landsvirkjun: „En það má ekki verða á forsendum einkavina- væðingar mikilvægrar samfélags- legrar þjónustu, verðmats sem er fjarri öllu lagi, eða skammtíma- hagsmuna.“ gag@frettabladid.is Undrast ef borgin semur án Akureyrar Formaður bæjarráðs Akureyrar hélt að Reykjavíkurborg og bærinn stæðu saman í viðræðum um sölu á hlutunum í Landsvirkjun. Vinstri grænir mótmæla því að borgin selji ríkinu, því fyrirtækið verði þá einkavætt. FRAMKVÆMDIR Sprungur komu í þriðju stærstu stíflu veraldar, sem er í suðurhluta Brasilíu, eftir að byrjað var að fylla hana af vatni, með þeim afleiðingum að allt vatnið flæddi úr stíflunni. Stíflan er sömu gerðar og sú sem verið er að reisa á Kárahnjúkum. Campos Novos stíflan er 202 metra há og er grjótstífla með steyptri forhlið, eins og stíflan sem er í byggingu á Kárahnjúk- um. Sigurður Arnalds, kynningar- stjóri Kárahnjúkavirkjunar segist hafa heyrt af málinu. „Ég hef heyrt af því að stífla í Brasilíu hafi á sínum fyrstu stig- um, þegar fyllingin hafi verið að ná endilegri þjöppun með sigi, þá hafi forhliðin sprungið. Allar stíflur síga bæði á meðan þær eru byggðar og fyrst þar á eftir til að ná fullri þjöppun. Ég þekki málavexti ekki mjög vel en mér skilst að við sig þessarar stíflu í Brasilíu hafi steypti flek- inn skriðið til og í hann hafi komið sprunga. Það eina sem ég veit er að hönnuðir Kárahnjúkastíflu fylgj- ast með því sem gerist í heimin- um með svona stíflur. Þeir hafa skoðað það mjög gaumgæfilega hvernig stíflan sígur og hafa sér- stök ráð til að fyrirbyggja að svona fari.“ - sh Stífla í Brasilíu sem er sömu gerðar og Kárahnjúkastífla: Sprunga kom í stífluvegginn UNNIÐ VIÐ STÍFLUNA Hér má sjá stífluna á Kárahnjúkum, en að sögn Sigurðar Arnalds hafa hönnuðir stíflunnar sérstök ráð til að hindra óhöpp. HÖFUÐSTÖÐVAR LANDSVIRKJUNAR Hlutur Akureyringa í Landsvirkjun verður einnig seldur rétt eins og hlutur Reykvíkinga. Vinstri grænir í borginni eru á móti sölunni þrátt fyrir að ríkið kaupi af borginni, því salan sé liður í einkavæðingarferli ríkisstjórnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI BORGARMÁL Borgarráð hefur ákveðið að halda áfram með hugmyndasamkeppni um heildar- skipulag Vatnsmýrarinnar. Úrskurðarnefnd útboðsmála ógilti fyrra útboð þar sem það samrýmdist ekki reglugerð um opinber innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu að nota tvær leiðir í útboði. Önnur var undir nafnleynd og hin undir nafni. Dómnefnd verður falið að útbúa ný keppnisgögn, þar sem tekið verður mið af úrskurðinum. Með ákvörðuninni er tekið af skarið um að heildarskipulag muni liggja fyrir áður en einstakir reitir Vatnsmýrarinnar koma til upp- byggingar á næstu árum. - sdg Heildarskipulag Vatnsmýrar: Ný keppnis- gögn útbúin MUMBAI, AP Sprengjuárásirnar á lestakerfið í Mumbai, sem áður hét Bombay, hafa tefjandi áhrif á friðarviðræður milli Indlands og Pakistans. Tengsl ríkjanna hafa orðið töluvert vinsamlegri á síðustu árum, en nú hefur fundi utanríkisráðherra ríkjanna, sem átti að halda í næstu viku, verið frestað. Manmohan Singh, forsætis- ráðherra Indlands, sagði á blaða- mannafundi í gær að sprengju- mennirnir hafi „notið stuðnings handan landamæranna,“ og á þar við Pakistan. - gb Indland og Pakistan: Hætta við að semja um frið HEIMSÓKN Á SJÚKRAHÚS Forsætisráð- herra Indlands heimsótti í gær fórnarlömb sprengjuárásanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÓHAPP Fólksbíl var ekið á hús veitingasölunnar Hreðavatnsskála í Borgarfirði seinnipartinn í gær. Lögreglan í Borgarnesi segir öku- manninn hafa verið ungan að árum og að hann hafi ætlað að leggja bílnum við inngang hússins en hafi misst stjórn á honum og hafnað svo að segja inni í anddyri skálans. Mjög fáir voru inni í skálanum þegar óhappið varð og engin meiðsl urðu á fólki. Bíll piltsins er að mestu óskemmdur en að sögn lögreglu skemmdist anddyri skál- ans þónokkuð. - sh Hreðavatnsskáli í Borgarfirði: Bíl ekið inn í anddyrið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.