Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 10
10 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR YAHYA BIN YAHYA AL-GHADER Hann yfir- gefur hér þinghúsið í Sanaa í Jemen. Hann reyndi að bjóða sig fram til forseta í kom- andi kosningum og uppfyllti öll skilyrði, nema hvað að hann er dvergvaxinn og var því meinað framboðið.NORDICPHOTOS/AFP SÝKNUDÓMUR Héraðsdómur kvað upp sýknudóm í máli Kristjáns Björns Snorrasonar, fyrrverandi útibússtjóra KB banka í Borgar- nesi, en hann var ákærður fyrir að hafa svikið út tíu milljónir króna í nafni annars manns á meðan hann gegndi fyrrnefndu starfi. Kristjáni var gefið að sök að hafa, þann 10. mars árið 2003, stofnað tékkareikning með yfir- dráttarheimild upp á tvær millj- ónir króna í nafni manns, sem þá var félagi Kristjáns, í leyfisleysi. Þá var honum gert að hafa, síðar þetta sama ár, hækkað yfirdrátt- arheimild umrædds reiknings upp í tíu milljónir og nýtt upphæðina í eigin þágu. Kristján hélt ávallt fram sak- leysi sínu og sagðist hafa stofnað umræddan tékkareikning sam- kvæmt beiðni félaga síns. Þeir hugðust kaupa tvo bíla frá Banda- ríkjunum og var stofnun reikn- ingsins liður í því, að sögn Kristj- áns. Félagi Kristjáns hefur ekki viljað kannast við þetta. Í Héraðsdómi var lagt fram bréf frá lögmanni Búnaðarbanka, þar sem fram kom að félaga Kristjáns hafi verið sendar til- kynningar um stofnun reiknings- ins og reikningsyfirlit með reglu- legu millibili, auk þess sem hann hafi ítrekað haft samband við starfsmenn bankans vegna stöðu umrædds reiknings. Það var þó ekki fyrr en rúmu einu og hálfu ári frá stofnun reikningsins sem hann kom á framfæri athuga- semdum við bankann um að reikn- ingurinn hefði verið stofnaður án hans vitundar. Kristjáni var sagt upp störfum sem útibússtjóri í Borgarnesi vegna samskiptaþreytu, áður en málið var kært til lögreglu og tengist uppsögn hans þessu máli ekki á nokkurn hátt. Kristján starfar nú sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Skagafjarðar, en stjórn Sparisjóðsins lýsti yfir trausti á störf hans meðan á málaferlunum stóð. aegir@frettabladid.is Sýknaður af fjársvikum Kristján B. Snorrason, fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi, var í fyrradag sýknaður af fjár- og umboðssvikum í Héraðsdómi Reykjaness. KB BANKI Fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi var sýknaður af ákæru um fjár- drátt.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNSÝSLA Fulltrúar minnihlut- ans í borgarstjórn greiddu atkvæði gegn því að starf jafnréttisráðgjafa yrði lagt niður hjá Reykjavíkur- borg í borgarráði í fyrradag. Í stað embættisins verður stofnað embætti mann- réttindafulltrúa sem mun starfa með nýrri mann- réttindanefnd borgarinnar, en stofnun hennar var ákveðin í vor. „Það komu fram áhyggjur frá kvennahreyfingum, að þessi breyt- ing myndi draga þrótt úr jafnréttis- starfi,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar. „Það var sameiginlegur skilningur að jafn- réttisfulltrúi fengi sér við hlið mannréttindafulltrúa þó að verk- efni sem snúa að innflytjendum, fötluðum og samkynhneigðum bæt- ist við.“ Meirihlutinn vildi ekki gefa afdráttarlausar tryggingar fyrir að það gengi eftir á fundi borgarráðs, að sögn Dags. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, segir þetta útúrsnúning hjá minnihlutanum. „Með sömu rökum væri hægt að segja að R-listinn hefði verið að vega að kynjajafn- rétti með því að leggja niður jafn- réttisnefnd og stofna mannrétt- indanefnd. Við þær breytingar treysti R-listinn sér ekki til að fjölga stöðugildum en við ætlum í samráði við nýjan mannréttinda- fulltrúa að skoða vel hans starfs- svið og hvort nauðsynlegt verði að fjölga þeim sem vinna með þessi mál.“ - sdg Mannréttindafulltrúi í stað jafnréttisráðgjafa: Átök í borgarstjórn GÍSLI MARTEINN BALDURSSON FJÁRSVIKAMÁL Mál þeirra þriggja manna sem lögreglan í Reykjavík handtók í janúar vegna gruns um fjársvik hefur nú verið fellt niður. Mennirn- ir, einn Íslend- ingur og tveir útlendingar, voru handteknir í Íslandsbanka, grunaðir um að hafa ætlað að svíkja hundruð milljóna íslenskra króna úr bank- anum. Að sögn Harðar Jóhannssonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar í Reykjavík, þótti einfaldlega ekki ástæða til að halda áfram með rannsókn málsins og því var henni formlega hætt. Holberg Másson, Íslendingur- inn sem var handtekinn, segist afar ánægður með að málinu sé lokið. „Augljóslega hef ég vitað það frá upphafi að málið var byggt á röngum upplýsingum en engu að síður er afskaplega leiðinlegt að lenda í þessu. Þetta mál hefur verið erfitt fyrir mig og fjölskyldu mína og við erum mjög fegin að þessu sé lokið.“ Hann segir að verið sé að kanna grundvöll fyrir skaðabótamáli. „Lögmaður minn er nú að skrifa bréf þar sem farið verður fram á bætur vegna ólögmætrar hand- töku. Svo verður í framhaldi af því skoðað hvort farið verður í skaða- bótamál.“ - sþs Rannsókn hætt á máli þriggja manna sem grunaðir voru um fjársvik: Feginn að málinu sé lokið HÖRÐUR JÓHANNESSON Það þótti einfald- lega ekki ástæða til að halda málinu áfram. HOLBERG MÁSSON SVÍÞJÓÐ Barnaníðingur, sem geng- ið hefur undir nafninu Alexöndru- maðurinn í sænskum fjölmiðlum, var í Malmö í gær dæmdur í ell- efu ára fangelsi fyrir að hafa mis- notað 58 unglingsstúlkur. Þetta kemur fram á fréttavef sænska blaðsins Dagens Nyheter. Maðurinn, sem er 31 árs og af erlendu bergi brotinn, verður gerður brottrækur frá Svíþjóð þegar hann hefur afplánað dóm- inn. Hann vingaðist við 150 stúlkur á aldrinum tólf til átján ára með aðstoð netsins og þóttist vera 25 ára gömul kona sem rak módel- skrifstofu og fylgdarþjónustu. Hann fékk stúlkurnar til að afklæða sig fyrir framan vef- myndavél, greiddi öðrum fyrir kynmök og nauðgaði sumum þeirra, að sögn sænskra saksókn- ara. - smk Alexöndru-maðurinn: Dæmdur í ell- efu ára fangelsi ÞÝSKALAND, AP Milliríkjadeilan um björninn Brúnó, sem ráfaði yfir Alpana til Þýskalands og var skot- inn af veiðimönnum, hefur náð nýjum hæðum, en þýsk yfirvöld neita nú að skila hræinu til heima- lands bjarnarins, Ítalíu. Brúnó var skotinn að ósk yfirvalda sem ótt- uðust að hann myndi ráðast á menn, en hann hafði drepið kindur og kanínur á ferðum sínum um Bæjaraland. Ítalir hafa harðlega mótmælt bjarnarvíginu og segja að frekar hefði átt að skjóta Brúnó með deyfilyfjum og flytja hann til síns heima. Þýsk yfirvöld hafa neitað bón Ítala um að hræinu verði skil- að og hyggjast nota það til vísinda- rannsókna. - sgj Deila Þjóðverja og Ítala um björninn Brúnó: Skila ekki hræinu BANGSINN BRÚNÓ Yfirvöldum í Bæjara- landi bárust fjölmargar hótanir í kjölfar launmorðsins á birninum vinsæla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJARAMÁL Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli AFL - Starfs- greinafélags Austurlands og Heilbrigðisstofnunar Austur- lands um fjögurra launaflokka hækkun til þeirra starfsmanna sem tilheyra AFLi. Hækkunin er afturvirk frá 1. maí síðstliðnum. Unnið hefur verið að nýjum stofnanasamningi síðustu tvo mánuði en ekki hefur enn náðst samkomulag um launahækkanir 1. september. Afl og forystumenn HSA eru sammála um að stefna að því að lægst launuðu starfsmenn HSA hækki einum launaflokki meira en aðrir 1. september. - hs AFL gengur frá samkomulagi: Samið við starfsfólk HSA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.