Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 12
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.515 +1,13% Fjöldi viðskipta: 304
Velta: 3.840 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Actavis 63,60 +0,00% ... Alfesca 4,26 +0,47% ... Atlantic Pet-
roleum 582,00 +0,69% ... Atorka 6,26 -0,32% ... Avion 33,80
+0,90% ... Bakkavör 49,90 +2,68%% ... Dagsbrún 5,65 +0,36% ...
FL Group 17,00 -0,59% ... Glitnir 17,00 +1,19% ... KB banki 738,00
+0,68% ... Landsbankinn 21,60 +1,89% ... Marel 73,00 +2,10%
... Mosaic Fashions 17,40 +6,10% ... Straumur-Burðarás 16,90
+1,81% ... Össur 112,50 +1,35%
MESTA HÆKKUN
Mosaic +6,10%
Bakkavör +2,68%
Marel +2,10%
MESTA LÆKKUN
Icelandic Group -0,63%
FL Group -0,59%
Atorka -0,32%
MARKAÐSPUNKTAR...
Alfesca og Icelandic Group hafa skrifað
undir formlegan kaupsamning um kaup
IG á frystisviði Delpierre. Formleg yfir-
taka IG á verksmiðjunni mun fara fram á
næstu vikum en salan er háð samþykki
þar til bærra yfirvalda.
Hannes Smárason hefur sagt sig úr
stjórn Glitnis banka vegna fyrirsjáan-
legrar stjórnarþátttöku sinnar í
Straumi-Burðarási. Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri hjá FL Group, tekur sæti
Hannesar í stjórninni.
Stjórn Dagsbrúnar ákvað hinn 13. júlí
að nýta að hluta heimild til hækkunar
hlutafjár að fjárhæð 85 milljónir króna
vegna kaupa á EJS. Heildarhlutafé eftir
hækkun verður 6.014.871.824 krónur að
nafnverði.
Olíuverð stendur nú í 78
Bandaríkjadölum fatið
og hefur aldrei verið
hærra. Verðið hefur
hækkað dag frá degi síð-
an Ísraelar hófu árásir á
Líbanon og slegið hvert
metið á fætur öðru.
Heimsmarkaðsverð á
olíu hefur hækkað um
tæp þrjátíu prósent það
sem af er ári og hef-
ur fjórfaldast frá því
snemma árs 2002.
Olíuverð hér heima er á bilinu
127,90 til 134,4 krónur fyrir lítra
af bensíni eftir því hvar keypt er.
Már Erlingsson, innkaupastjóri
hjá Skeljungi, segir í raun ómögu-
legt að spá fyrir um þróun olíu-
verðs.
Hann segir bæði mikla eftir-
spurn eftir olíu auk ástandsins í
Austurlöndum nær halda olíu-
verði svo háu sem raun ber vitni.
„Það er viðvarandi eftirspurn
eftir olíu. Þetta virðist ekki ennþá
farið að hafa áhrif á hegðun
fólks.“
Már segir einnig fróðlegt að
bera saman olíuverð á Íslandi og í
nágrannalöndunum. „Maður þarf
nú ekki að leita lengra en til Dan-
merkur til að finna hærra verð á
bensíni en hér á landi.“ Bensínlítr-
inn hjá Shell í Danmörku kostar
rúmar 138 íslenskar krónur.
Hlutabréfamarkaðir hafa ekki
farið varhluta af hækkandi olíu-
verði; FTSE-vísitalan í Lundúnum
hefur lækkað um tæp þrjú pró-
sent undanfarna viku. Bandaríska
Dow Jones-vísitalan féll um 1,5
prósent á fimmtudag og eins fór
með hina japönsku NIKKEI.
Úrvalsvísitala Kauphallar
Íslands hækkaði um rúmt prósent
í liðinni viku. Hlutabréf í fær-
eyska olíuleitarfyrirtækinu Atl-
antic Petroleum, sem skráð er í
Kauphöllina, hækkuðu um þrjú
prósent.
Þrátt fyrir að hvorki Ísraelar
né Líbanir framleiði olíu óttast
sérfræðingar að átökin breiðist út
og hafi þá áhrif á olíuvinnslu í
Austurlöndum nær. Mahmoud
Ahmadinejad, forseti Íran, lét ein-
mitt í veðri vaka að Íranar væru
tilbúnir að koma nágrannaþjóðum
sínum til hjálpar „Ef Ísraelar láta
sprengjur falla í Sýrlandi mun það
hafa alvarlegar afleiðingar“, sagði
forsetinn. jsk@frettabladid.is
Olíuverð aldrei hærra
Fat af olíu kostar tæpa áttatíu Bandaríkjadali. Sérfræðingar treysta sér ekki til
að spá fyrir um þróun olíuverðs. Bensín er dýrara í Danmörku en á Íslandi.
Hrein eign lífeyrissjóðanna rýrn-
aði um rúma ellefu milljarða króna
í maí samkvæmt tölum frá Seðla-
bankanum. Er þetta í fyrsta skipti
í rúmt hálft ár sem eignir sjóð-
anna lækka milli mánaða.
Ástæðan er rakin til 15,5 millj-
arða rýrnunar á eign sjóðanna í
erlendum hlutabréfasjóðum auk
4,5 milljarða lækkunar á erlend-
um hlutabréfum. Eign lífeyris-
sjóðanna í innlendum hlutabréf-
um jókst um tæpa 8,6 milljarða
króna í maí.
Eignir lífeyrissjóðanna hafa
vaxið um tæpa 126 milljarða, eða
rúm tíu prósent frá áramótum. -jsk
Lífeyrissjóðirnir rýrna
Breski fjárfestingarbankinn
HBOS verður meðal lykilfjárfesta
í kaupum Baugs á bresku vöru-
húsakeðjunni House of Fraser.
Frá þessu sagði í The Daily Tele-
graph og öðrum breskum fjölmiðl-
um í gær. Aðrir sem vænst er að
komi að yfirtökunni eru FL Group,
breski fjárfestirinn Kevin Stan-
ford auk smærri fjárfesta.
Baugur, sem þegar á 9,5 pró-
senta hlut í HoF, lagði fram tilboð
í félagið í júní. Hljóðaði það upp á
148 pens á hlut, sem nemur um 48
milljörðum króna, með þeim fyr-
irvara að áreiðanleikakönnun
myndi standast. Baugur er nú í
óða önn við framkvæmd hennar
og er þess vænst að endanlegt
yfirtökutilboð berist um miðjan
ágúst.
- hhs
HBOS með Baugi
Meðallaun á almennum vinnu-
markaði voru 315 þúsund krónur á
mánuði í fyrra samkvæmt launa-
könnun Hagstofunnar sem birt
var í gær. 12,6 prósenta hækkun
varð frá árinu áður þegar meðal-
laun voru 280 þúsund krónur.
Í Morgunkornum Glitnis segir
að þessar niðurstöður endurspegli
mikinn hagvöxt á tímabilinu og
spennu á vinnumarkaði.
Fjöldi greiddra vinnustunda
var 46,5 að meðaltali á viku og
hafði þeim fjölgað um 1,2 klukku-
stundir frá árinu áður. Skráð
atvinnuleysi mældist 2,1 prósent á
árinu.
Stjórnendur reyndust hafa
hæstu meðallaunin, 507 þúsund
krónur á mánuði. Þá komu sér-
fræðingar með 430 þúsund krón-
ur. Iðnaðarmenn voru með 368
þúsund krónur. Lægstu launin
höfðu verkamenn með 253 þúsund
krónur að meðaltali á mánuði.
Fólk milli fertugs og fimmtugs
hefur hæstu launin en ungmenni
undir tvítugu þau lægstu. Yfir-
vinnugreiðslur voru mestar hjá
iðnaðarmönnum og verkafólki eða
tæpur fjórðungur heildarlauna;
samanborið við þrjú prósent hjá
stjórnendum og fjögur prósent
hjá sérfræðingum. - jsk
Þrettán prósenta
launahækkun
Meðallaun á Íslandi eru 315 þúsund krónur á mánuði.
Stjórnendur fá bestu launin, verkafólk þau lægstu.
VERKAMAÐUR VIÐ VINNU Launahækkanir síðasta árs á almennum vinnumarkaði eru sagð-
ar endurspegla mikinn hagvöxt og spennu á vinnumarkaði.
HÖFUÐSTÖÐVAR LÍFEYRISSJÓÐSINS FRAM-
SÝNAR Hrein eign lífeyrissjóðanna rýrnaði í
maí í fyrsta skipti í rúmt ár.
DÆLT SEM ALDREI FYRR Þrátt fyrir að olíverð hafi aldrei verið hærra virðist eftirspurnin
síður en svo minnka. Már Erlingsson hjá Skeljungi segir hækkanir ekki hafa áhrif á hegðun
fólks enn sem komið er.
Króatíska samheitalyfjafyrir-
tækið Pliva sendi í gær frá sér til-
kynningu um að fyrirtæki með
höfuðstöðvar í Reykjavík, ELL 33
ehf., hafi keypt sem jafngildir
1.894.650 hlutum eða um 10,19
prósent af almennu hlutafé
félagsins.
Að sögn Halldórs Kristmanns-
sonar, almanna- og fjölmiðla-
tengslafulltrúa Actavis, keypti
ELL 33 ehf. þessa hluti fyrir
tveimur vikum og Actavis gerði
um leið kaupréttarsamning um
þá. Hann segir félagið sjálfstætt
og ekki í eigu Actavis. Fleira fæst
ekki upp gefið um fyrirtækið sem
er ekki í Fyrirtækjaskrá sem
bendir til þess að það sé nýtt. Í lok
júní upplýsti Actavis að það réði
með beinum eða óbeinum hætti
yfir 20,8 prósentum hlutafjár í
Pliva. Hlutirnir sem hér um ræðir
voru þar með taldir.
Eftir rúman mánuð hefst form-
legt þrjátíu daga söluferli á Pliva
þar sem hluthöfum gefst færi á
að meta hvorum þeir vilja selja
bréf sín. Stjórn Pliva hefur lýst
stuðningi við tilboð Barr. Halldór
telur ekki að það muni hafa áhrif
á ákvörðun hluthafa um sölu á
sínum hlutum. Um sjötíu prósent
þeirra séu alþjóðlegir fjárfestar
utan Króatíu sem er fyrst og
fremst umhugað um að fá gott
verð fyrir sinn hlut. - hhs
Keyptu fyrir Actavis
RÓBERT WESSMAN, FORSTJÓRI ACTAVIS
10,19 prósenta hlutur fyrirtækisins ELL 33
ehf. í Pliva telst til þeirra 20,4 prósenta
hluta sem Actavis ræður yfir.
Seðlabanki Japans hækkaði stýri-
vexti um 25 punkta í gær en þetta
er fyrsta stýrivaxtahækkun bank-
ans í sex ár en vextirnir hafa verið
núll prósent síðan í ágúst árið 2000.
Þeir eru nú 0,25 prósent.
Toshihiko Fukui, seðlabanka-
stjóri Japans, segir bankann fylgj-
ast mjög vel með þróun efnahags-
lífsins og ákveða hvort þörf sé á
frekari hækkunum í framtíðinni.
Fjármálasérfræðingar segja um
sögulega stund að ræða og sé ljóst
að stjórn seðlabankans hafi tekið
ákvörðunina eftir að seðlabankar í
Evrópu og Bandaríkjunum hækk-
uðu stýrivexti sína fyrir skemmstu.
Þrátt fyrir þetta er ekki búist við
frekari hækkunum í bráð. - jab
Stýrivextir
hækka í Japan
TOSHIHIKO FUKUI Seðlabankastjóri Japans
greindi frá fyrstu hækkun stýrivaxta í land-
inu í sex ár í gær. MYND/AFP
Á gulu ljósi
Danska Samkeppnisstofnunin hefur veitt sam-
starfi 365 Media Scandinavia og Post Danmark
bráðabirgðasamþykki. Post Danmark er
ætlað að sjá um dreifingu á fyrirhuguðu
fríblaði 365 Media, Nyhedsavisen. Slíkt
samþykki er vanalega undanfari endanlegs
úrskurðar sama efnis og gerir fyrirtækjum
kleift að hefja undirbúning þeirra verkefna
sem eru í burðarliðnum. Endanlegs úrskurðar
er að vænta nú síðsumars. Í tilkynningu
frá Samkeppnisstofnuninni segir að
„engin sjánleg hætta“ sé af samstarfi
fyrirtækjanna, enda mikillar sam-
keppni að vænta á fríblaðamarkaði
í Danmörku. Fyrsta eintak Nyheds-
avisen kemur út nú á haustdögum.
Líklegt þykir að 24 Timer, fríblað
keppinautarins JP/Politiken, fylgi
strax í kjölfarið.
Í fótspor frændþjóðar
Og enn af Dönum og Danmörku, því greinilegt er
að fasteignir falla víðar í verði en í Reykjavík. Nýver-
ið var greint frá því að fasteignir í Danmörku
hefðu fallið í verði um rúm tvö prósent á fyrsta
fjórðungi árs. Hvergi var lækkunin meiri en í
höfuðborginni, Kaupmannahöfn, þar sem hún
nam rúmum níu prósentum. Danir hafa eins
og við Íslendingar búið við hátt fasteignaverð
og hefur verð meira en þrefaldast
á átta árum. Á sama tíma hefur
verð hér heima hækkað um 207
prósent. Svo virðist því sem við
fylgjum frændum okkar eftir í
þessu, sem svo mörgu öðru,
en greiningardeildir íslensku
bankanna hafa spáð allt
að tíu prósenta raunlækk-
un fasteigna næstu tólf
mánuði.
Peningaskápurinn...