Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 26
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR26
Orðspor stuðningsmanna Millwall FC er samtvinn-að sögu þessa rótgróna enska knattspyrnufélags
sem fyrrum leikmaður félagsins,
blaðamaðurinn Eamon Dunphy,
hefur dregið saman í eina setn-
ingu: „Millwall hefur alltaf verið í
úrvalsdeildinni í ofbeldi en neðri
deildum í fótbolta.“ Dunphy vitn-
ar hér til þess að það tók félagið
103 ár að vinna réttinn til að spila
í efstu deild enskrar knattspyrnu
en þá höfðu áhangendur félagsins
verið á forsíðum dagblaða um
allan heim í rúman áratug fyrir að
vera hörðustu fótboltabullur Eng-
lands. Það orðspor stuðnings-
mannanna hefur í engu breyst;
Millwall féll niður í 2. deild í
fyrra.
Góðan daginn!
Þegar inn á völlinn er komið eru
sárafáir þar fyrir. KR-ingarnir,
sem sennilega tengjast allir leik-
mönnum félagsins blóðböndum,
sitja hljóðir í öðrum enda stúkunn-
ar þrátt fyrir að staðan sé 2-0
þeirra mönnum í hag en í fljótu
bragði bólar ekkert á þeim sem
ætlunin var að hitta. Þegar gengið
er á hljóðið fer þó ekkert á milli
mála hverjir það eru sem fylgja
liðinu að málum. Svo virðist sem
allar erkitýpur enskrar verka-
mannastéttar séu samankomnar í
litlum hópi sem situr innan um
rauðhvíta fána.
Augnagotur þeirra bresku
senda ákveðin skilaboð en þrátt
fyrir það mannar blaðamaður sig
upp og kynnir sig fyrir þéttvöxn-
um, rauðbirknum náunga sem
skemmtir sér greinilega hið besta.
Svar hans lofar allt annað en góðu:
„Ég heiti Simon. Þú veist að við
hötum blaðamenn?“ Kvikmyndin
Green Street Hooligans rifjast
upp þar sem fram kemur að ensk-
ir blaðamenn hafa skrifað margt
niðrandi um stuðningsmenn Mill-
wall og bætt gráu ofan á svart með
því að aðstoða lögregluna þar í
landi við að finna forsprakka
slagsmálagengja; ekki síst þeirra
sem tengjast Millwall. Til að segja
eitthvað útskýri ég að öllum fót-
boltaáhugamönnum á Íslandi sé í
nöp við KR-inga ef þeir á annað
borð halda ekki með þeim. Kannski
var það ósjálfráð tilraun til að
finna eitthvað sem ég og Simon
áttum sameiginlegt. Það skilar
þeim árangri að Simon spyr með
hvaða liði ég haldi á Englandi. Í
gegnum hugann flýgur hvort það
sé einfaldlega skynsamlegt að
segja frá því, en áður en ég veit af
er ég tekinn að segja söguna af því
að KR-ingar spili einmitt í búning-
um þess liðs sem ég held með.
Árið 1907 hafi Newcastle United
verið Englandsmeistari og því
hafi stjórn félagsins ákveðið að
skarta búningum þess félags. Ég
enda ræðuna á því að segjast vera
stuðningsmaður liðs sem heitir
Fram og þeir séu erkióvinir KR.
Hverjir eru helstu andstæðingar
Millwall, bæti ég við. „West Ham,“
segir Simon með áherslu. „Og
Crystal Palace.“ Simon útskýrir
að áhangendur Millwall séu marg-
ir hverjir hafnarverkamenn og
allir af verkamannastétt. Því sé
eins farið með West Ham áhang-
endur, nema þeir búa hinum megin
við Thames-fljótið. Það er næg
ástæða til að vera illa við þá and-
skota, segir Simon. Crystal Palace
áhangendur hins vegar eru milli-
stéttarfólk. „Þeir líta niður á okkur
vegna þess að við eigum minna af
peningum en þeir. Við hötum þá
fyrir að hata okkur fyrir peninga-
leysið.“ Ekki langt frá standa feðg-
arnir David og John Kelly. Þeir
leggja orð í belg en það eina sem
er skiljanlegt verður ekki haft
eftir hér, en það tengdist West
Ham og Crystal Palace.
Fæddist í ljónagryfju
Sagan segir að árið 1966, aðeins
nokkrum mánuðum áður en enska
landsliðið lyfti heimsbikarnum á
Wembley, sé fæðingar-
ár fótboltabullunnar
eins og við þekkjum
hana. Millwall var í
heimsókn á Loftus
Road, heimavelli Queens
Park Rangers, og var
að tapa leiknum 6-1. Þá
var peningi kastað úr
stúkunni og lenti hann í
höfði Len Juliens, fram-
herja heimsliðsins, og
úr blæddi. Þá var til- kynnt
í hátalarakerfi að ef áhorfendur
höguðu sér ekki eins og menn yrði
leikurinn flautaður af. Áhang-
endur Millwall vissu að
samkvæmt reglum þess
tíma yrði leikurinn ógilt-
ur og leikinn að nýju. Í
stððunni 6-1 var það alls
ekki svo vitlaus hug-
mynd að fá annað tæki-
færi og því fjölmenntu
stuðningsmenn Millwall
inn á völlinn og settust
niður í miðjuhringnum.
Þetta atvik fékk gríð-
arlega umfjöllun í enskum
fjölmiðlum þrátt fyrir að upp-
reisnarseggirnir hafi ekki haft
erindi sem erfiði. Hinum ungu og
uppreisnargjörnu Millwall-stuðn-
ingsmönnum líkaði athyglin vel og
á næstu vikum endurtóku þeir
leikinn, bæði á heima- og útileikj-
um liðsins. Þessi uppátæki fengu
umfjöllun fjölmiðla og svo kom að
þegar Millwall hélt til Oxford til
að spila deildarleik beið hópur lög-
reglumanna á lestarstöðinni. Þeir
handtóku ekki nokkurn mann
heldur ruddu leið í gegnum
stærstu verslunargötuna í bænum
svo Millwall-stuðningsmennirnir
kæmust sem fyrst á völlinn án
þess að angra almenning með
hrópum sínum og stráksskap.
Á aðeins fáum árum spruttu
upp svipaðir flokkar ungra upp-
reisnargjarnra pilta í fjölmörgum
borgum Englands. Það sem hafði
þá bæst við var þörfin til að sanna
sig. Það var gert með slagsmálum.
Allir litu til stuðningsmanna Mill-
wall, þeir voru upphafsmennirnir
og því viðmið allra þeirra sem
töldu sig hafa eitthvað að sanna.
Ekki bætti úr skák að Millwall-
hverfið í suðausturhluta Lundúna-
borgar er þekkt af öllu öðru en að
ala af sér dúkkudrengi. Hafnar-
verkamennirnir voru tilbúnir til
að svara ef einhver kom kallandi.
Fjölskyldan í fríi
Ég kemst að því að Simon er í fríi
ásamt fjölskyldu sinni sem hann
kynnir fyrir mér. Faðir hans, Roy,
segir mér að hann hafi farið með
strákana sína á völlinn í fyrsta
skipti þegar þeir voru tveggja ára
gamlir. Ég spyr um orðsporið sem
fer af stuðningsmönnum liðsins
en hann minnir á að ekki megi
setja alla undir einn hatt. Þeir séu
miklu fleiri sem aldrei hafa komið
nálægt slagsmálum en þeir sem
slást og láta eins og skepnur, eins
og hann orðar það. „Ef það er eitt-
hvað sem þig vantar að vita um
þann hóp ættirðu að tala við hann
þennan,“ segir Roy og bendir í átt-
ina að skuggalegum náunga sem
situr með félögum sínum nokkr-
um sætaröðum frá.
Ísland eins og Kanada
Mark, eins og hann reynist heita,
Í úrvalsdeildinni í ofbeldi
Vesturbær Reykjavíkur í júlí. Bólgin rigningarský hanga
ógnandi yfir lágreistri stúkunni á KR-vellinum. Til eyrna
berast hávær köll og söngur knattspyrnuáhugamanna.
Hefðbundnar íslenskar háðsglósur um dómarann heyrast
ekki heldur framandi skilaboð upp á enska tungu. „No one
likes us, no one likes us, no one likes us, we don‘t care.“ Æf-
ingaleikur heimaliðsins og enska Lundúnaliðsins Millwall
FC er nýhafinn. „Þeir hljóta að vera mörg hundruð saman,“
hugsar Svavar Hávarðsson sem, í orðsins fyllstu merkingu,
á stefnumót við óvissuna.
ÚR SÖNGBÓKINNI
„Hillsborough! Hillsborough, you
should have all died at Hills-
borough.“
Beint að Liverpool-áhangendum á
leik liðanna árið 1996. Hér er verið
að vitna til eins sorglegasta atburðar
í sögu knattspyrnunnar þegar 96
áhangendur Liverpool krömdust til
bana á Hillsborough-leikvanginum í
Sheffield árið 1989.
NO ONE LIKES US
No one likes us, no one likes us
No one likes us, we don‘t care
We are Millwall
Super Millwall
We are Millwall from The Den
WE ARE THE MILLWALL
Fuck ‘em, fuck ‘em all
United, West Ham, Liverpool
Cause we are the Millwall and we
are the best
We are the Millwall
So fuck all the rest
WEST HAM HATERS
We hate West Ham and we hate
West Ham
We hate West Ham and we hate
West Ham
We hate West Ham and we hate
West Ham
We are the West Ham haters
A WELSH VISIT
Sheep, sheep, sheep shaggers
Sheep, sheep, sheep shaggers
Sheep, sheep, sheep shaggers
SNEAKING OUT
We can see you, we can see you
We can see you sneaking out
We can see you sneaking out
AAAAAARRRRRRGGGGHHHH
Beint til þeirra sem yfirgefa „Ljóna-
gryfjuna“ áður en leik lýkur.
MARK Hefur fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt í gegnum árin. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SIMON OG FJÖLSKYLDA Frá vinstri eru Paul, þá Jenny eiginkona
hans, þá Roy og Simon. Þau áttu nokkra daga í frí og ákváðu að
fylgja liðinu til Íslands. Ekkert annað kom til greina enda langt
síðan þau sáu liðið spila síðast. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI ER LÍFIÐ John gamli Kelly hefur farið á alla leiki liðsins frá
því að hann man eftir sér. „Jafnvel líka löngu fyrir þann tíma,“ segir
hann og glottir við eina tönn. „Alls staðar eruð þið blaðasnáparnir,“
bætir hann við. „Við erum heimsfrægir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL