Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 27
Í úrvalsdeildinni í ofbeldi
„Dvöl okkar á Íslandi hefur verið
frábær. Okkur hefur verið sýnd
mikil gestrisni og aðstæður til
æfinga eru mjög góðar. Það sama
má segja um hótelið og við höfum
notið dvalarinnar hér þrátt fyrir
að það sé kalt í veðri.“ Nigel Spack-
man, sem tók við stjórn liðsins
fyrir stuttu, segir að úrslit leikj-
anna í ferðinni segi ekki mikið um
liðið.
„Við höfum aðeins verið saman
við æfingar í rúma viku og þetta
eru fyrstu leikir okkar á undir-
búningstímabilinu. Það dregur þó
ekki úr þeirri staðreynd að
íslensku liðin eru mjög góð.“
Næstu verkefni leikmanna eru
stífar æfingar og fleiri leikir.
„Næstu verkefni eru vináttuleikir
gegn Charlton, Reading og Crystal
Palace og vonandi verðum við til-
búnir í þann slag. Vera okkar hér á
Íslandi mun reynast okkur vel
sem undirbúningur fyrir komandi
átök.“
Vináttuleikur gegn Crystal
Palace, er það mögulegt? „Nei, og
ekki heldur gegn Charlton. En við
munum samt nýta þessa leiki til
þess að öðlast meiri leikæfingu og
skilning innan liðsins. Það er líka
gott fyrir leikmennina að takast á
við þessi lið því hvatningin til þess
að standa sig er vissulega fyrir
hendi.“
Nigel Spackman, framkvæmdastjóri:
Frábær ferð til Íslands
Barry Hayles, framherji:
Áhangendurnir
eru mikilvægir
„Það var erfitt að byrja æfingar að
nýju, ekki síst vegna þess að ég er
búinn að vera meiddur lengi. Fyrstu
leikirnir eru alltaf erfiðir, sérstaklega
þegar leikið er gegn góðum liðum
eins og því sem við lékum við í dag.“
Hayles segir
að ekki gefist
mikill tími til
að skoða borg-
ina eða landið.
Æft er tvisvar á
dag og enginn
frítími á milli.
„Við förum
heim strax
á morgun
og fáum þá
frídag.“
Hayles hefur verið í tvö ár með Mill-
wall en lék áður með Bristol Rovers,
Fulham og Sheffield United. Hann
á ættir sínar að rekja til Jamaíka
en ólst upp í Lundúnum, aðeins
steinsnar frá „Ljónagryfjunni“. „Ég er
ekki áhangandi eins og þessir sem
eru með liðinu. En ég hef taugar
til þeirra á minn hátt. Áhangend-
urnir hafa ekkert sérstakt orð á sér.
En þeir láta vel í sér heyra og það
hjálpar liðinu.“
NIGEL SPACKMAN
er ekki viljugur til að spjalla við
blaðamenn, ég veit af hverju.
„How do you like Iceland?“ Spurn-
ingin lá einhvern veginn beint við
og svarið er einfalt. „Eftir leikinn,
félagi.“
Mark reynist þekkja vel til orð-
sporsins sem af hans mönnum fer
og ekki er hægt að skilja hann
öðruvísi en sú þekking hans sé frá
fyrstu hendi. Hann hefur ekki tölu
á öllum þeim þjóðlöndum sem
hann hefur ferðast til í tengslum
við leiki liðsins, en Kanada líkir
hann við Ísland. „Klúbburinn
bókar æfingaleiki í svona löndum
af því að þar eru engin vandamál.
Þar bíða okkar ekki einhverjir
sem vilja slást. Þetta er reyndar
ekkert vandamál lengur því það er
svo mikil gæsla. En þegar við
mætum West Ham stoppar okkur
enginn. Þar á milli ríkir algjört
hatur og ekkert stoppar okkur,
ekki lögreglan; enginn.“ Mark
segir að það hafi aldrei skipt máli
þó að önnur lið eigi fleiri stuðn-
ingsmenn. „Við erum einfaldlega
harðari og höfum alltaf betur.“ Ég
hef engar forsendur til að rengja
orð hans og kveð.
Þeir halda út í sumarnóttina og
á milli húsanna í Vesturbænum
hljóma síðustu skilaboð kvöldsins:
„There is a long way home, 4-0,
There is a long way home, 4-0“.
104732
Flügger tréolía
Fljótleg og einföld í notkun
www.flugger.is
0,4 ltr. 934 kr.
Tréolíu sprey
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Egilsholt 1
LAUGARDAGUR 15. júlí 2006 27