Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 28

Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 28
Kevin Spacey sló í gegn í myndinni Usual Suspects í leikstjórn Singers fyrir 11 árum. Stuttu síðar festi hann sig endanlega í sessi sem einn af bestu leikur- um samtímans með afbragðs leik í American Beauty. Síðustu misseri hefur Kevin eytt nær öllum tíma sínum í að reyna að endurvekja dýrðarljóma Old Vic leikhússins í London, bæði með því að sjá um rekstur þess og leika í verkum sem þar eru sett upp. Hann hefur því ekki verið mjög iðinn við að leika í bíómyndum upp á síðkastið og fannst sumum skrítið að sjá hann í sumarsmelli á við Superman Returns og hafa hörðustu gagnrýnendur hans spurt hvers vegna „alvarlegur leikari“ skuli leika í svona mynd? „Ef svona myndir eru nægilega fínar fyrir Mar- lon Brando, þá eru þær nægilega fínar fyrir mig,“ svarar Kevin án þess að blikna. „Bryan Singer lokkaði mig að þessu verkefni. Mér finnst hann frábær leikstjóri og það var frábært að vinna með honum fyrir 11 árum síðan. Þegar hann hringdi og sagði mér frá því að hann ætlaði að leikstýra Súper- man fannst mér það vera hárrétt ákvörðun. Ég vissi líka að þetta yrði alveg svakalega skemmti- legt. Eins lengi og ég finn hlutverk sem mér finnst áhugaverð og tímasetningin stangast ekki á við vinnuna í Old Vic, þá er ég meira en reiðubúinn til þess að halda áfram að leika í bíómyndum.“ Spacey fer á kostum í hlutverki Lex Luthor, og virðist skemmta sér vel þegar hann leikur illmenni. „Það lítur kannski út fyrir það. Kannski er það vegna þess að möguleikarnir með persónu eins og Lex Luthor eru svo miklir. Maður kemst upp með að vera stór og hádramatískur í talanda og gjörð- um. Maður verður að finna jafnvægi á milli þess að vera skondinn og raunverulegur. Þetta var virki- lega frábær upplifun.“ Í fyrri myndunum fór Gene Hackman með hlut- verk Luthors og segist Spacey vissulega hafa hald- ið í ákveðna takta. „Ég dáist mikið að gömlu Súper- man-myndunum og fannst Gene Hacman frábær í þeim. Bryan sagði mér að hann langaði til að halda í nokkra þætti persónuleika hans, sérstaklega þeirra sem voru fyndnir og kjánalegir. Hann vildi líka að samband hans við kærustuna yrði nokkuð stormasamt. Hann vildi líka sýna hlið af Luthor sem hefur ekki sést áður, að hann getur verið mjög ógnvekjandi og hættulegur. Alvöru andstæðingur Súpermans. Þannig að þegar Súperman er veikast- ur gæti fólk trúað því að Lex myndi virkilega hafa betur. Ég kem úr þeim ranni leikhússins þar sem menn hugsa ekki þannig að leikarar eigi hlutverk, heldur fái þau lánuð í vissan tíma, til dæmis höfum við séð óteljandi útgáfur af Hamlet eða Óþelló. Að leika hlutverk er eins og að klæða sig í stakk sem maður sníður sér síðan eftir vexti.“ 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR28 Eftir hverja mislukkaða tilraun af fætur annarri til að koma Súper- man aftur á flug tókst Bryan Singer loksins að klára verkið með Brandon Routh í hlutverki stálmannsins og Kevin Spacey í hlutverki Lex Luthor. Birgir Örn Steinarsson hitti þre- menningana að máli og ræddi við þá um myndina. Það eru ekki aðeins ofurkraftar Súpermans sem gera hann frábrugðinn flestum öðrum ofurhetjum, það sem greinir hann frá þeim Batman og Spider- man er að þeir eru menn með ofurkrafta og dulbúa sig þegar þeir nota þá. Í tilfelli Súpermans er þessu einmitt öfugt farið. Hann er geimvera sem dulbýr sig á meðan hann er ekki að bjarga heiminum. Hans rétta ímynd er Súperman en blaðamaðurinn Clark Kent er dulargervið. Uppruni Súpermans er ástæða þess að í upphafi Superman Returns hefur hann verið horfinn af jörð- inni í fimm ár. Kal-El, eins og foreldrar hans á Krypton nefndu hann, hafði greinilega lent í tilvistar- kreppu því hann ákvað að kanna uppruna sinn með því að halda í heljarinnar leiðangur í gegnum himin- geimanna í von um að finna aðra sem lifðu af þegar heimkynni hans eyðilögðust. Svo er ekki og myndin hefst á því að Brandon Routh, sem tekur við hlut- verki Christophers Reeve sem Súperman, fellur til jarðar eftir að hafa eytt fimm árum af ævi sinni til einskis. Heimurinn þarf bjargvætti Yfirvegaður suðurríkjastrákur Það er ekki furða að Brandon Routh hafi verið valinn í hlutverk stál- mannsins; hann er dökkhærður, hávaxinn og lítur út eins og klón úr sameiginlegum genum Christopher Reeve og og Tom Welling, sem leikur Ofurmennið á yngri árum í sjónvarpsþáttunum Smallville sjónvarpsþáttunum. Ekki spillir fyrir að Routh er borinn og barn- fæddur sveitastrákur úr suðurríkjum Bandaríkjanna, rétt eins og Clark Kent, sem réði miklu um að hann hreppti hnossið. „Sá sem elst upp í smábæ í Bandaríkjunum verður að venjast kyrð- inni,“ segir Brandon um uppeldisárin. „Sumir njóta hennar sem krakki, en aðrir verða fúlir vegna þess að það er ekkert að gera. Ég var einn þeirra sem naut kyrðarinnar. Fannst frábært að hafa opið rými, og geta hjólað út um allt. Ég á því minningar af því að hlaupa um á ökrunum og njóta þess að slappa af í sveitinni. Þannig finnst mér Súperman vera. Hann er alinn upp á friðsömum stað, sem útskýr- ir kannski að vissu leyti hvers vegna hann er alltaf svona rólegur og yfirvegaður. Mér finnst ég sjálfur yfirleitt vera þannig.“ Routh kveðst hafa verið mikill aðdáandi fyrstu tveggja myndanna um Súperman sem Richard Donner leikstýrði. „Ég fletti blöðunum líka annars lagið sem krakki. Ég man að það var aðal umtalsefnið í skólanum þegar Súpermnn dó í einni sögunni. Þannig að ég vissi stundum hvað var að gerast en ég las sögurnar aldrei gaumgæfi- lega.“ Hann kveðst þó ekki hafa verið smeykur við að taka að sér rulluna. „Ég var vissulega meðvitaður og varkár vegna túlkunar Christpher Reeves, það var jú hann sem gerði mig að aðdáanda Súpermans. Ég gerði mitt besta til þess að muna að sýna hlutverkinu virðingu, en ég var nú ekkert að eyða of miklum tíma í það að velta því stöðugt fyrir mér. Ég átti að vera leika kröftugustu lífveru jarðar, og í þannig hlut- verki er ekkert pláss fyrir ótta. Þannig að ég ýtti honum bara til hlið- ar.“ Brandon segist hafa undirbúið sig vel andlega fyrir þá miklu athygli sem hlutverkið hefur veitt honum á skömmum tíma og hann getur vel hugsað sér að leika Súperman aftur í fleiri myndum svo lengi sem teymið í kringum framleiðsluna er gott. Vissi að þetta yrði skemmtilegt Að hreyfa við ofurhetju Eftir tíu ára vandræðagang, nokkra leikstjóra og enn fleiri aðalleik- ara var það Bryan Singer sem tók að sér að leikstýra Superman Ret- urns og þykir hafa farist það vel úr hendi. Hvernig fór hann að þessu? „Þeir sem tóku að sér verkið á undan mér ætluðu að byrja upp á nýtt og sýna upphaf Súpermans. Mér fannst það alltaf hugsunar- villa,“ útskýrir leikstjórinn. „Sá sem er eldri en 25 ára ætti að muna eftir fyrstu myndinni og þekkir þess vegna uppruna hans. Þeir sem eru yngri þekkja ábyggilega til hans í gegnum myndasögurnar eða Smallville-þættina. Eftir að hafa leikstýrt tveimur myndum um X- mennina tel ég mig líka hafa náð valdi á ofurhetjumyndum og þess vegna treystu framleiðendurnir mér að koma með nýja hugmynd. Við ákváðum að tengja þessa mynd við þær eldri með því að láta Súperman snúa aftur til jarðarinnar eftir fimm ára fjarveru. Myndin er hlaðin Biblíutilvísunum enda er Ofurmennið einn þekktasti kristgervingur kvikmyndasögunnar. „Ég vildi alls ekki beygja frá þeirri Messíasarímynd sem hefur alltaf loðað við Súper- man, allt frá því hann var sendur til jarðar eins og Móses var sendur niður ána í sefkörfunni til að mæta örlögum sínum. Í þessari mynd tók ég svolítið á þörf fólks fyrir bjargvætti og að láta bjarga sér. Stundum er ástæða fyrir þeirri þörf en stundum þurfum við menn að takast á við eigin vandamál. Mörg stefin í Súperman eru jafngömul mannkynssögunni. Áður en lengra er haldið er rétt að vara þá við sem ekki hafa séð myndina og vilja láta koma sér á óvart. Í Superman Returns er kynntur til sögunnar sonur Súpermans en hann hefur aldrei komið fram í myndasögunum. Singer kveðst hvergi hafa verið smeykur við þessa djörfu ákvörðun. „Þetta var ekkert mál mín vegna. Ég hef lært það af því að gera X-manna-myndirnar að það verða alltaf einhverjir aðdáendur sem eiga eftir að kvarta. En allar þessar ofurhetjur hafa farið í gegnum svo margar breytingar í gegn- um tíðina. En svona ákvarðanir tekur maður bara ef það hentar sög- unni. Ég var mjög spenntur fyrir því að kynna til sögunnar þessa breytingu, því burt séð frá kryptóníti þá er erfitt að hugsa sér nokk- urn skapaðan hlut sem getur hreyft við þessari ofurhetju. Að Lois Lane eigi unnusta sem sé ekki slæmur gæi, og að það sé barn í spilinu sem sé ekki hægt að stroka bara út, eða endurskrifa, finnst mér vera alvöru mál að takast á við.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.