Fréttablaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Björn Ástmarsson er algjör bíladellukarl að eigin
sögn og leggur ýmislegt á sig fyrir áhugamálið. Hann
er aðeins nítján ára en þrátt fyrir ungan aldur hefur
hann átt átta bíla.
„Ég á BMW Z4 árgerð 2003. Þetta er blæjubíll og mjög flott-
ur. Ég er búinn að eiga hann síðan í apríl og hann hefur
reynst mér mjög vel. Ég er eiginlega ekkert búinn að gera
við hann, bara bóna hann,“ segir Björn, sem þurfti ekkert
að gera við bílinn þegar hann fékk hann. „Hann var í góðu
ástandi enda bara keyrður 30.000 kílómetra.“
„Ef það er sól þá er ég með blæjuna niðri. Það er eitthvað
tekið eftir manni þá,“ segir Björn en hann er duglegur að
skipta um bíla. „Ég er frekar mikill bílakarl. Ég er búinn að
eiga einhver átta stykki eða svo,“ segir Björn, sem er aðeins
nítján ára. „Þegar maður er með dellu þá er þetta bara
þannig. Ég skipti reglulega um bíl og mér finnst gaman að
breyta til, þó það standi ekkert til að selja þennan.“
„Ég er eiginlega bæði með bíladellu og BMW-dellu. Ég er
búinn að eiga þrjá BMW en það er algjörlega óákveðið hvort
ég haldi mig við BMW eða fái mér aðra tegund næst,“ segir
Björn, sem á samt engan sérstakan draumabíl.
„Ég er duglegur að fylgjast vel með nýjungum og panta
bæði frá útlöndum og kaupi hér, það er misjafnt eftir því
hvað það er. Ég legg ýmislegt á mig fyrir þetta áhugamál og
það tekur mestan hluta af peningunum sem maður vinnur
sér inn. Ég er í fullri smíðavinnu á sumrin og vinn með
skóla þannig að ég get leyft mér þetta. Þetta sleppur alveg,
ég bara spara annars staðar.“
„Þetta er góður bíll og flottur og það er líka gott að keyra
hann. Ég hugsa vel um hann og þríf hann reglulega,“ segir
Björn en hann á ekki langt að sækja þetta skemmtilega
áhugamál. „Pabbi er líka bíladellugaur þannig að hann smit-
aði mig.“ lilja@frettabladid.is
Búinn að
eiga átta bíla
Björn er duglegur að skipta um bíla og leggur meira upp úr því að gott sé að keyra þá en að þeir séu flottir.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
UNDANÞÁGA TIL VERÐSAMRÁÐS
Margir eru uggandi yfir því að afnám á sameiginlegum hámarkstaxta
leigubifreiðastöðva kunni að koma illa niður á farþegum. BÍLAR 2
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
15. júlí, 196. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.40 13.34 23.25
Akureyri 2.54 13.18 23.39
XC90 BÆTIST Í BÍLAFLOTA PÁFANS, SEM HEFUR ALDREI
VERIÐ MEÐ BÍLPRÓF.
Yfirmenn Volvo afhentu Benedikt XVI páfa nýlega Volvo XC90
sem er sérsmíðaður fyrir hans þarfir. Bíllinn er dökkblár með
ljósar innréttingar, fjórhjóladrifinn og að sjálfsögðu mjög
öruggur eins og við er að búast af Volvo.
Páfinn átti fyrir meðal annars BMW X-5 sem hann fékk gefins
frá BMW í München. Páfinn, sem hefur aldrei haft bílpróf,
átti Golf meðan hann var enn kardínáli og treysti þá ýmist á
bróður sinn eða einkaritara til að ferja sig
á bílnum.
Páfinn fær Volvo
Volvo XC90 mun
framvegis sjá um
að koma páfa á
milli staða.
Gönguhátíð verður haldin á
Vestfjörðum 27. til 30. júlí. Hvern
dag verður boðað til einnar aðal-
göngu og einnar léttari göngu
ásamt barnadag-
skrá. Ýmis menning
og afþreying
verður í boði
öll kvöld
hátíðarinnar.
Sem dæmi má nefna að gengið
verður úr Krossadal í Tálknafirði
yfir í Selárdal við Arnarfjörð, siglt
yfir í Geirþjófsfjörð og gengið
upp á Lónfell. Nánari upplýsingar
má finna á www.vesturbyggd.is
eða www.utivera.is.
Hin 72 ára gamla þokkagyðja
Sophia Loren mun sitja fyrir á
dagatali sem ítalska dekkjafyrir-
tækið Pirelli gefur út. Hún verður
líklega klædd demöntum einum
saman.
Hún verður þó ekki eina þokka-
gyðjan á dagatalinu 2007. Hinar
verða Penelope Cruz, Hilary
Swank og Naomi Watts. Aldurs-
ins vegna gæti Sophia Loren
verið langamma þeirra.
Heimsferðir hafa sett upp
vetraráætlun sína og hægt er
að nálgast bæklinginn á www.
heimsferdir.is.
ALLT HITT
[FERÐIR BÍLAR]
KYNNING Á
LEIÐSÖGU-
MÖNNUM
Nýr vefur hefur verið
stofnaður í þeim tilgangi
að kynna íslenska
leiðsögumenn.
FERÐIR 6