Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 32
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR4
Vespan er er gífurlega vin-
sæll fararmáti í stórborgum
enda létt og meðfærileg. Saga
vespunar, allt frá því Piaggio-
hergagnaframleiðandinn setti
hana fyrst á markað, spannar
sextíu ár.
„Þetta lítur út eins og vespa,“
sagði Enrico Piaggio, forseti
Piaggio-herflugvélaframleiðand-
ans, og átti hann þar við fluguteg-
undina. Þessi fleyga setning sem
hrökk út úr forsetanum í undrun
var fyrstu viðbrögð hans við litlu
vélhjóli sem þá var nýjasta viðbót
fyrirtækisins, nafnið festist á vél-
hjólið undir eins og þar með var
vespan fædd.
Árið 1946 var heldur hrörlegt
um að lítast á Ítalíu og Piaggio-
fyrirtækið, sem hafði nær ein-
göngu einbeitt sér að hergagna-
framleiðslu í stríðinu, var
algjörlega lamað. Seinna þetta ár
kom vespan í fyrsta skipti á mark-
að og seldist nægilega vel til þess
að fyrirtækið lifði af. Tvöþúsund
og fimmhundruð eintök seldust
fyrsta árið en fjórum árum síðar
var salan komin upp í sextíu þús-
und eintök og vespurnar farnar að
vekja töluverða athygli.
Snjóboltinn fór fyrst að rúlla
fyrir alvöru þegar Hollywood fór
að sýna vespunni áhuga. Audrey
Hepburn og Gregory Peck sáust
þeysa um á vespu í kvikmyndinni
Roman Holiday frá árinu 1952,
salan rauk upp og það ár seldust
hundrað þúsund eintök af vesp-
unni. Á næstu áratugum varð
vespan tískuvara í Evrópu og
Bandaríkjunum og spruttu upp
vespuklúbbar úti um allt, í lok
áttunda áratugarins höfðu um tíu
milljón vespur selst í heiminum.
Fjöldi bíla- og vélhjólaframleið-
enda fór að framleiða lítil vélhljól
sem öll byggja á hönnun uppruna-
legu vespunar frá Piaggio.
Vespan varð útbreidd um allan
heim.
Eftir erfitt tímabil í lok tíunda
áratugarins sem leiddi næstum
því til gjaldþrots fyrirtækisins er
Piaggio aftur komið á stall sem
leiðandi fyrirtæki í ítalskri gæða-
hönnun. Hollywood-stjörnur sem
venjulega aka um á rándýrum
eðalvögnum hafa margar sést aka
um á Piaggio-vespum, meðal
þeirra eru Marlon Brando, Jerry
Seinfeld og Gwyneth Paltrow.
Áhugamenn um vespuna geta
heimsótt Piaggio-safnið í
Pontedera við Pisa en sýningin á
safninu hefur meðal annars verið
sýnd á Guggenheim-safninu í New
York og Pompidou-miðstöðinni í
París. Á sýningunni gefur meðal
annars að líta frægustu vespu
allra tíma, sem sjálfur Salvador
Dali hannaði árið 1962 fyrir
Piaggio.
valgeir@frettabladid.is
Vespan vinsæla
Piaggio-vespan á sér langa sögu. NORDICPHOTOS/GETTY
Piaggio er mikil tískuvara.
NORDICPHOTOS/GETTY
Subaru Forester er sigurvegari í flokki fjórhjóla-
drifsbíla í fimmta sinn.
Hollendingar eru iðnir við útilegur og þá sérstaklega
þegar kemur að notkun ýmissa eftirvagna, svo sem
tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa.
Gefið er út sérstakt tímarit sem fjallar þessa
ástríðu Hollendinga, „Kampeer-en Caravan Kampio-
en“. Árlega eru bílum veitt verðlaun sem þykja
standa sig afburðavel þegar kemur að drætti eftir-
vagna. Subaru Forester 2,0 var sigurvegari í flokki
fjórhjóladrifinna bíla og völdu átta dómarar á milli
23 bíla sem kynntir hafa verið frá byrjun seinasta
árs. Bílarnir fóru í gegnum strangar prófanir með
vagn í eftirdragi og var einnig reynt á bílana við mis-
jafnar aðstæður á vegum. Tekið var tillit til stöðug-
leika, þæginda og krafts.
Fjórhjóladrif bílsins fékk sérstaklega góða dóma,
sem og lárétt Boxer-vél sem skilar bílnum lágum
þyngdarpunkti og eykur þar með stöðugleika, veg-
grip og rásfestu. Þetta er í fimmta sinn sem Subaru
vinnur til verðlauna en verðlaun af þessu tagi voru
fyrst veitt árið 1991. Einnig má geta þess að árin 2004
og 2005 var Subaru Forester valinn dráttarbíll ársins
í Bretlandi í sínum flokki.
Dráttarbíll ársins í Hollandi
Subaru Forester fékk hæstu einkunn fjórhjóladrifsbíla í prófunum
felli- og hjólhýsatímarits í Hollandi.
Ertu á leið í fríið? Nýir bílar - Árgerð 2006
Úrval nýrra húsbíla tilbúnir
til skráningar á lager á
Egilsstöðum. Erum einnig
með úrval notaðra bíla.
Upplýsingar veitir Bóas í síma 0049 175 2711 783 eða Eðvald í 896-6456
Við bjóðum flug til Egilsstaða fyrir tvo við kaup á hverjum bíl!
Erum með umboð fyrir
Rockwood Íbúð á hjólum.
Árgerð ‘93 V8 Sjálfskiptur. Einn með öllu,
ekinn 100.000 km, lengd 8,5 metrar.
Kr. 3.300.000,-
Blucamp Sky 20, Ford 125 hestöfl TDCI,
lengd 6,3m, svefnpláss fyrir 4, loftkæling,
rafm. rúður, tveir airbag, geislaspilari m/fjarstýringu.
Verð 4,6 skráður
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
���������������������������������������������
����������������������������������������������
�����������������������������������������
�
�����������������������������
������������� ���������� ������������
��
�
��
�
��
�
��
�
�
��
��
�
�
�
��
�
��