Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 34

Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 34
[ ] Nýr vefur hefur verið stofnað- ur í þeim tilgangi að kynna íslenska leiðsögumenn og breikka starfsvettvang þeirra. Á vefnum er hægt að fletta upp faglærðum leiðsögumönnum þar sem þeir eru kynntir og þjónusta þeirra. Lára Hanna Einarsdóttir hefur umsjón með vefnum en hana hefur lengi langað til að opna sér- stakan vef fyrir leiðsögumenn. „Tilgangurinn með síðunni er að leiðsögumenn geti komið sér á framfæri. Þeir koma úr öllum áttum og það er erfitt fyrir ein- staklingana sjálfa að kynna sig. Einnig er tilgangurinn að búa til fleiri starfstækifæri fyrir leið- sögumenn. Til dæmis geta bíla- leigur boðið upp á starfskrafta þeirra fyrir viðskiptavini sína. Við erum sannfærð um að miklu fleiri myndu nýta sér bílaleigurnar ef þeir fengju einhvern með sér til að segja sér til og jafnvel keyra með þeim,“ segir Lára Hanna, sem starfar sjálf sem leiðsögumaður. Vefurinn er hentugur fyrir fyr- irtæki sem koma að ferðaþjón- ustu, bæði erlend og íslensk, en einnig fyrir einstaklinga. „Það er til alls kyns leiðsögn, til dæmis afþreyingar-, öku- og gönguleið- sögn. Íslendingar ættu að gera meira af því að ferðast um landið og nýta sér þá sérfræðikunnáttu sem leiðsögumenn búa yfir. Það er gaman að fá að heyra þjóðsögurn- ar sem tengjast landinu og prófa að vera túristi í eigin landi. Einnig geta fyrirtæki sem eru með erlenda gesti á sínum vegum fund- ið leiðsögumann í gegnum vefinn til að fara í ferðir með gestina. Leiðsögumenn eru miklir áhrifa- valdar í íslenskri ferðaþjónustu því þeir benda á alls kyns þjón- ustu og afþreyingu fyrir ferða- menn. Það eru margir möguleikar fyrir hendi og um að gera að nýta sér þá,“ segir Lára Hanna að lokum. Vefslóðin er: www.iceland- guide.is. erlabjorg@frettabladid.is Kynning á leið- sögumönnum Leiðsögumenn starfa bæði innan borgarmarka og utan. BJÖRGUNARSVEITIR Á HÁLENDINU HÆTTULEG VÖÐ OG HVASST GRJÓT Björgunarsveitin Garðar frá Húsavík var þessa vikuna stödd norðan við Vatnajökul. „Við erum með býsna stórt svæði. Á þessu svæði er til dæmis Askja, Kverkfjöll, Snæfell, Herðubreiðarlindir, Geldingafell og fleira. Það er mikið búið að aka,“ segir Guðbergur Ægisson björgun- arsveitarmaður, sem fer um svæðið ásamt Friðriki Þór Brynjarssyni á stórum Ford Econoline á 44 tommu dekkjum. „Það er býsna mikið af ferðafólki hér, á bílum, rútum, reiðhjólum og svo gangandi.“ Þeir félagar hafa haft í nógu að snúast enda mikið af ferðafólki á svæðinu um þessar mundir. „Við erum að þjónusta ferðafólkið, vísa til vegar, aðstoða ef bílar bila eða dekk springa. Það er svipaður straumur hérna alla daga, mest útlendingar, og mesti fjöldinn er við Dreka og við Kverkfjöll,“ segir Guðbergur en þeir félagar voru ein- mitt á leið í útkall þegar Fréttablað- ið hafði samband við þá. Garðarsmenn ættu ekki að fara framhjá neinum á stóra bílnum sínum og Guðbergur segir ferða- menn ekki feimna að gefa sig á tal við þá af fyrra bragði til að fá upplýsingar. „Það sem ferðafólk þarf helst að passa sig á á þessu svæði eru vöðin og svo auðvitað vegslóðarnir, það stendur hvasst grjót upp úr þeim hér og þar,“ segir Guðbergur að lokum. - elí Meðal vinsælla ferðamannastaða norðan Vatnajökuls eru Herðubreið og Herðubreiðalindir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Norðan Vatnajökuls Ekki gleyma að gera ráðstafanir vegna gæludýranna þegar haldið er í sumarleyfi. Fáið einhvern til að gæta þeirra eða koma reglulega heim til að líta eftir þeim. Þessi pistill kemur úr hnjúka- þeynum á norðausturhorninu þar sem könnun á högum sjóbleikj- unnar stendur yfir. Hún er tekin að ganga í ánum allt frá Öxarfirði að Héraðsflóa. Merkilegt hve göngumynstrið er ólíkt: Í Brunná í Öxarfirði sést hún ekki fyrr en í júlí, í Lónsá í Þistilfirði kemur hún fyrst í maí, í Hofsá sést hún fyrst um þetta leyti, og í Fögru- hlíðará í Héraðsflóa er hún löngu tekin að veiðast. Í Breiðdalnum sitja menn fyrir henni fyrst í maí. En nú má sjá hana á öllu þessu svæði. Einn mesti sjóbleikjuveiði- maður sem ég þekki er Pálmi Gunnarsson og nutum við sam- vista í vikunni ásamt stórri göngu af bleikju sem var að ganga í flottan hyl. Við fengum drauma- veðrið. Dumbung, logn eða smá vindgáru. Ég stóð ofarlega en Pálmi var að góna á fugla þegar hann sá stóran fugl gera gáru, en sá fugl kom aldrei úr kafi aftur. Ályktunargáfan brást ekki: Fisk- ur! Við vorum búnir að finn‘ana. Þarna komu hringir upp örstutt frá landi, við máttum ekkert vaða. Ég hugsaði með mér að nú yrði gaman. Og það reyndist rétt. En við veiddum ekkert! Næstu þrjá tímana reyndum við allar gerðir af flugum, þurrflugum, lirfum, kúluhausum, minnstu teg- undir sem við áttum í boxinu, fórum niður í grennstu tauma sem mögulegt var að þræða. Bleikjan kom upp og tók með smellum svo undir tók í brekkun- um! Þær gerðu pena hringi eins og þegar þær taka lirfu undir yfirborði. Og þær skelltu sér á flugu í gárunni með látum. Og svo komu þær eins og hnísur, með höfuðið fyrst, svo hrygginn og loks sporðinn, og við sáum þær snúa sér á eftir ætinu þegar sólin hellti sólstöfum á hylinn. Ég hef áður skrifað um dynti bleikjunnar og á vefnum flugur. is er heilmikill fræðilestur eftir okkur Pálma, en það er ljóst að stundum verður maður einfald- lega gjörsamlega kjaftstopp. Við játuðum okkur sigraða og um kvöldið þegar við komum aftur sást hvorki tangur né tetur af fiski. Þegar þessi pistill er skrif- aður á föstudagsmorgni er ég nýkominn utan úr á. Frá klukkan 7-9 lægði tvisvar í eina mínútu í hvort skipti. Annars var hífandi hnjúkaþeyr. Um leið og lægði sá ég bleikjur koma upp, og kastaði þurrflugu úr rassendafjöður andar beint á hausinn á fiskinum. Ég tók tvær! Bið að heilsa öllum vonglöðum sjóbleikjuveiðimönnum og bendi ykkur á heilræðagreinar á flug- ur.is, það veitir sko ekki af þegar hún er svona! Sjóbleikjan sér um sig Veiðisumarið með Stefáni Jóni Hafstein Silungsveiðin stendur nú sem hæst. Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is. Listaborgin Berlín EXPRESS FERÐIR BJÓÐA UPPÁ HELGARFERÐ TIL BERLÍNAR 27. JÚLÍ TIL 1. ÁGÚST. Nú gefst þeim sem ekki komust á heimsmeistaramótið í fótbolta tæki- færi til að heimsækja Berlín helgina 27. júlí til 1. ágúst. Gist er á 4* hóteli á hinu fræga Alexanderplatz. Boðið upp á skoðunarferð um borg- ina, siglingu á ánni Spree sem er ógleymanleg upplifun að sögn þeirra sem reynt hafa og ferð til Pots- dam torgsins, leikvangs endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Berlín er mikil menningar- og listaborg með áhugaverð söfn, óperuhús og fjölbreytt úrval tónleika. Einnig jazz og kabarettsýningar, sem borgin er heimsfræg fyrir allt frá tímum Mar- lene Dietrich á millistríðs- árunum. Potsdamer-Platz í Berlín. Í ferðalagið Mikið úrval af LCD flatskjám og loftnetum tilvalið í ferðalagið. 20” LCD 12V/220) 17” LCD flatskjár með innb. DVD 12V/220V 15” LCD flatskjár með innb. DVD 12V/220V Aðeins örfá sæti Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Bologna og Trieste á Ítalíu 19. júlí í 2 vikur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Ítalíu eða yfir til Króatíu á einstökum kjörum. Verð kr. 19.990 Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Netverð á mann. 2 fyrir 1 til Ítalíu / Króatíu 19. júlí frá kr. 19.990 Skemmtilegur ferðafélagi 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.