Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 50
50 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
KAFFIBARINN Kaffibarinn er í allt að því organísku húsnæði sem virðist
stundum svitna af sjálfsdáðum. En þessi skemmtilegi þröngi bar hefur
notið mikilla vinsælda undanfarin ár og meira að segja Íslandsvinurinn
Damon Albarn heillaðist svo af staðnum að hann keypti 1 prósent í
staðnum. Hann er af svipuðum toga og Sirkus því þar spila öllu
jafna sömu plötusnúðar.
Hverjir?
Fastagestir á Kaffibarnum eru tónlistarfólk, leikarar og nemar
í Listaháskólanum en aldursbil gesta er milli 20-30 ára.
Baltasar Kormákur er oftar en ekki með einhverja fræga
upp á arminn og ef Hollywood-stjörnur koma til landsins
verður Kaffibarinn fyrir valinu. TónlistinÁrni Einar, Gísli
Galdur og Balli eru helstu plötusnúðar staðarins ásamt Dj
Lazer og Magga Legó.DrykkurinnBjórinn er án efa vinsælasti
drykkurinn á barnum en drykkurinn Amazing, sem í er vodka
cranberry, sprite og lime, hefur vakið mikla lukku hjá kvenþjóðinni.
OLIVER Fyrir utan Oliver eru alltaf raðir og það er einkennandi fyrir staðinn að væn og feit VIP röð
inniheldur oft fólk sem enginn veit haus né sporð á. Þetta er líka eini staðurinn sem hefur byggt
gler yfir röðina til að hlífa gestum sínum. Þegar inn er komið er þröng á þingi og þá sérstaklega á
dansgólfinu, þar sem mikil stemning ríkir. Þeir sem vilja taka nokkur spor eru á réttum stað á Oliver.
Nái maður borði er skemmtilegt að sitja allt kvöldið og fylgjast með selebbunum sem oft flykkjast
á svæðið en staðurinn er ekki sá best hannaði í heimi því efri hæðin er eins og gufubað og rýmið
lítið.
Hverjir?
Þarna kemur saman fólk sem stundaði Rex og Hverfisbarinn þegar þeir staðir voru upp á sitt besta, í
bland við pöpulinn. Sem sagt frægir og „wannabe“ frægir, öll Landsbankadeildin eins og hún leggur
sig, sjónvarpsfólk og stöku fyrirmenni úr stjórnmálum og atvinnulífinu. Þarna má til dæmis sjá Eið
Smára þegar hann er á landinu, Nylon-stelpurnar, Ragnheiði Guðfinnu, Dóru Takefusa, Arnar og
Bjarka Gunnlaugssyni, strákana úr Strákunum sálugu, Höllu Vilhjálmsdóttur og Þorvald Davíð.
Tónlistin
Dj Jói, Dj Daði, og dj parið Suzy og Elvis sjá oft um stemninguna á
Oliver en tónlistin er skemmtileg blanda af klassíkerum undanfarinna
áratuga og nýjustu popptónlistinni í bland við smá elektróník.
Drykkurinn
Mojito er vinsælasti drykkurinn bæði meðal karla og kvenna, á kostnað
Breezer drykkju sem fer minnkandi. Kokteilar á borð við Cosmopolitan
eru að sækja í sig veðrið meðal Oliver-gesta.
VEGAMÓT Á Vegamótum er að finna fólk á aldursbilinu 22-30 og er það einkennandi fyrir hópinn að
konurnar eru flottar en karlmennirnir eiga það til að vera heldur sveittir og sjúskaðir, að undanskildum
selebbunum. Dansgólfið rúmar um það bil tíu manns en það skapar þeim mun þéttari stemningu.
Hverjir?
Nokkuð oft hefur sést til Eiðs Smára Guðnasonar á Vegamótum þegar hann er á landinu. Einnig má sjá
Krumma í Mínus og systur hans Svölu Björgvinsdóttur. Ragnhildur Gísla og Dóra Takefusa líta stundum
við og Kolbrún Pálína fyrirsæta. Afgreiðsludömur úr tískuverslunum bæjarins fjölmenna
ásamt ungum fyrirsætum sem hafa gert garðinn frægan í Ford, þar á meðal Matthildur
Ford stelpa. Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir kíkja af og til á Vegamót.
Tónlistin
Á Vegamótum er helst spilað hip hop og R&B í bland við aðrar tónlistar-
stefnur. Fílíngurinn á dansgólfinu er því töluvert öðruvísi en á Oliver eða
Hverfisbarnum og fólkið sömuleiðis. Dj. Sóley, Dj. Dóri og Adda og
Edda spila á Vegamótum.
Drykkirnir
Vinsælustu drykkirnir á staðnum eru gin í tónik og bjór, að sögn eiganda staðarins.
BARINN Barinn er ein nýjasta viðbótin í skemmtanaflórunni. Staðurinn er stór og rúmar
frekar marga en það er kannski hans helsta vandamál enn sem komið er. Fyrsta hæðin
stílar augljóslega á „hipstera“ lið bæjarins og tekst það býsna vel. Á annarri hæðinni
er eins og komið sé inn á allt annan skemmtistað, andrúmsloftið er mun poppaðra
og fólkið yngra. Partílögin mynda hopp stemmingu á dansgólfinu og svitinn lekur af
fólki. Það verður að segjast að þessir hópar blandast frekar illa í
stiganum við dyrnar og úr verður grautur af fólki sem erfitt er
að átta sig á. Barinn mun þó vafalaust mótast mikið á næstu
mánuðum.
Hverjir?
Staðurinn virðist höfða til alls konar fólks enn sem komið er.
Björk Guðmundsdóttir er ein fárra stjarna sem hafa kíkt á
Barinn.
Tónlistin
Tónlistin er töff og hafa plötusnúðar á borð við Gísla
Galdur og Magga Legó spilað á neðri hæðinni undan-
farnar helgar.
Vinsælast á barnum
Eins og fjölbreytileiki gestanna á Barnum gefur til kynna
eru allir drykkir kúl á staðnum.
ÖLSTOFAN
Vinalegur en reykmettaður andi svífur yfir vötnum á Ölstofu
Kormáks og Skjaldar við Vegamótastíg, sem hefur verið athvarf lista-
manna, rithöfunda, fjölmiðlunga og ungpólitíkusa undanfarið hálft
fjórða ár. Aldursdreifingin er mikil þótt óalgengt sé að nokkur undir
25 ára aldri læðist þar inn. Loftræstingin er Akkilesarhæll Ölstofunn-
ar og er reykjarsvælan þar inni stundum svo mikil að hún er allt að
því saðsöm. Straumur gesta á staðinn bendir þó til að stemningin
bæti það upp. Fimmtudagskvöld eru að margra mati bestu kvöld
vikunnar á Ölstofunni. Þá er yfirleitt hægt að fá sæti og ef það
myndast biðröð fyrir utan gengur yfirleitt hratt á hana.
Hverjir?
Fréttastofa RÚV, NFS og blaðamenn borgarinnar fjölmenna á
Ölstofuna. Einnig mæta á staðinn Hilmir Snær leikari, Ari Alexander
kvikmyndagerðarmaður, Eyrún Magnúsdóttir úr Kastljósinu, Borgar
Þór Einarsson formaður SUS, Einar Kárason, Silja Hauksdóttir, Guð-
jón Bjarnason arkitekt, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Katrín Júlíusdóttir alþingismaður.
Vinsælast á barnum
Aðall staðarins er viðkunnalegir barþjónar sem taka gestum alltaf vel og muna hvaða tegund
fastakúnnarnir drekka, sem er reyndar í flestum tilfellum bjór og léttvín. Bjórinn kostar ekki
nema 500 krónur, sem er til eftirbreytni.
Tónlistin
Tónlist var lengi vel talin óþörf á Ölstofunni, þar sem gestirnir eru fyrst og fremst fólk
orðsins og mætt til að fá sér drykk og spjalla saman. Í seinni tíð hefur þó verið tekið upp
á því að leika þar tónlist við misjafnar undirtektir.
PRIKIÐ
Prikið er rótgróið kaffihús og vinsæll
skemmtistaður um helgar. Staðurinn hefur
verið nokkuð fastmótaður síðastliðin ár.
Stemningin á Prikinu er sveitt og loftið á
efri hæðinni er reykmettað. Við barinn á
neðri hæðinni má sjá sömu andlitin aftur
og aftur.
Hverjir?
Meðalaldurinn á Prikinu hefur greinilega
lækkað upp á síðkastið og er hann núna
hvor sínu megin við tvítugt. Þeir einstakl-
ingar sem hafa haft sig
mest frammi í íslensku hip hop senunni síðustu ár eru algengir
gestir á Prikinu, má þar nefna Dóra DNA og Danna Deluxe.
Tónlistin
Hip hop hefur lengi verið ráðandi á staðnum og sjá plötusnúðar á
borð við DJ B-Ruff og Gísla Galdur oft um tónlistina.
Drykkurinn?
Priksmenn drekka bjór og vodka í Burn, sem er orkudrykkur.
Vinsælir skemmtistaðir falla fljótt í gleymsku og nýir staðir spretta
upp eins og gorkúlur. Litlar breytingar hafa orðið á djammstaða-
markaðnum undanfarið en nokkrir nýir staðir verða opnaðir með
haustinu. Þangað til er nóg af gömlum og góðum börum til að eyða
sumarnóttunum á og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Hverful frægð
skemmtistaðanna