Fréttablaðið - 15.07.2006, Page 56
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR40
menning@frettabladid.is
!
> Ekki missa af...
sýningum Bjarkar Guðnadótt-
ur, Daníels Magnússonar
og Hildar Bjarnadóttur sem
verða opnaðar í Nýlistasafninu á
Laugavegi í dag kl. 17.
stofutónleikum Sigrúnar
Eðvaldsdóttur fiðluleikara á
Gljúfrasteini á morgun. Tónlist
Bachs mun óma í fallegu og
sögulegu umhverfi í Mosfells-
bænum kl. 16.
döffleiksýningunni This Side
Up frá Singapúr sem verður
sýnd í Tjarnarbíói kl. 20.30
annað kvöld. Sýningin er hluti
af alþjóðlegri döff-leiklistarhátíð
sem haldin var á Akureyri.
Kl. 19.30
Fjöllistamennirnir í Gelitin-lista-
hópnum verða með gjörning við
opnun sýningar sinnar í Kling &
Bang á Laugavegi. Þátttakend-
urnir leggja upp frá Hlemmi á
hestum og ríða niður Laugaveg-
inn. Gjörningurinn varir síðan um
ótilgreindan tíma svo það er um að
gera að kíkja við í galleríinu síðar
um kvöldið.
Annað ´90-partí sumarsins verður haldið á Bar 11 í
kvöld en forkólfar þess eru plötusnúðarnir DJ Curver
og DJ Kiki-Ow. Yfirskrift kvöldsins er „No Limits“ sem
vísar til ódauðlegrar lagasmíðar hljómsveitarinnar
2Unlimited sem gerði garðinn frægan á árunum
sem sumir vildu gleyma en nú er kominn tími til að
minnast.
Gífurleg stemning myndaðist á skemmtistaðnum
Bar 11 þegar fyrra ´90-kvöldið var haldið nú í sumar
og komust þá færri að en vildu.
Tónlist og tíska frá tíunda áratugnum á nú upp
á pallborðið á ný og segir í fréttatilkynningu
skipuleggjendanna að nú vaði þessi músík uppi á
meginlandinu, einkum í Þýskalandi, og er rætt um
endurkomu menningarfyrirbrigðisins „reif“ sem á
sínum tíma vakti óhug foreldra en umtalsverða kát-
ínu ungmenna. Hvetja skipuleggjendurnir til þess að
fólk klæði sig eftir tilefninu og dragi fram „stüssy“-
klæðnaðinn, samfestingana og hvítu gallabuxurnar
auk nauðsynlegra fylgihluta á borð við glósprota,
flautur og hanska sem máski geta hjálpað fólki að
komast í rétta gírinn.
Nostalgían hefst formlega á miðnætti og varir
eitthvað út í íslensku sumarnóttina. Aðgangur er
ókeypis.
DJ KIKI-OW OG DJ CURVER Spila Dr. Albarn og Delight,
Haddaway og 2Unlimited á annarri ´90-samkomu
sumarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hvar er Haddaway?
Tríóið Þremenningasambandið
heldur lokatónleika sína í Nor-
ræna húsinu í dag kl. 16 undir yfir-
skriftinni „Fyrirgefið samtíning-
inn“ en á tónleikunum verður
boðið upp á samtíning sumarsins í
tónum og heimabökuðu góðgæti.
Þremenningasambandið er
klassískur tónlistarhópur sem
starfaði á vegum Hins hússins í
sumar sem hluti af verkefninu
Skapandi sumarstörf. Tríóið er
skipað þremur stúlkum á nítjánda
ári, Arngunni Árnadóttur sem
leikur á klarinettu, Ástu Maríu
Kjartansdóttur sellóleikara og
Höllu Oddnýju Magnúsdóttur
píanóleikara.
Á efnisskrá kvöldsins eru
Kyrrðardansar eftir Þorkel Sigur-
björnsson, fyrsti kafli úr Píanó-
sónötu KV 330 í C-Dúr eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart, Hyldýpi
fuglanna úr Kvartett fyrir enda-
lok tímans eftir Olivier Messiaen,
Allemande og Courante úr Selló-
svítu nr. 2 eftir Johann Sebastian
Bach og Tríó Op. 11 „Gassenhau-
er“ eftir Ludwig van Beethoven.
Aðgangur er ókeypis.
Sumarlegar kveðjur
ÞREMENNINGASAMBANDIÐ LEIKUR KLASS-
ÍSKAN SAMTÍNING Síðasta tækifærið til að
heyra stöllurnar leika saman í bili.
Rúmenska tónskáldið Doina
Rotaru er stödd hér á landi
en tónlist hennar er á dag-
skrá í þriðja hluta Sumar-
tónleika Skálholtskirkju.
Verkin, sem flutt verða af
Caput-hópnum, nefnast
Klukkur, Prana-aparnir, og
Japanskur garður.
Þetta er fyrsta í sinn sem Doina
Rotaru heimsækir Ísland en hún
hefur dvalið hér í viku og segist
heilluð bæði af landi og þjóð.
„Þótt þetta sé í fyrsta sinn sem ég
sæki Ísland heim þá hefur tónlist-
in mín áður verið leikin í Skál-
holti. Fyrir þá tónleika samdi ég
ákveðið tónverk en ég reyni ávallt
að tengja tónlist mína við altæk
tákn, sammannlegar stemmingar
eða heimspeki sem hefur almenna
tilvísun. Táknið verður hugmynd
af verki og þessi hugmynd getur
af sér bygginguna, hryn, hending-
ar, form og tjáningu verksins.
Þessi einkenni sjást best á nafn-
gift sumra verka minna eins og
Spiralis Circle, Magic Circles
Shadows, Wings of Light og Tempo
di fumo.“
Doina undirstrikar að hún
sæki einnig áhrif sín í tónsmíðum
til fornrar rúmenskrar alþýðu-
tónlistar. „Reyndar merkir nafn
mitt gömul rúmensk þjóðlög, svo
það liggur nánast beint við að ég
sæki áhrif mín í tónsmíðum þang-
að. Þessi forna þjóðlagatónlist
lýsir fortíðarþrá og vekur með
manni angurværð og þjáningar-
fulla depurð.“
Nýir og gamlir straumar
Tónsmíðar sínar segir Doina ekki
markast af einni tegund áhrifa
heldur fléttist þar saman bæði
gamlir straumar og nýir. „Þú
finnur ýmsa strauma í tónlist
minni en sú tegund heimspeki
sem einna helst hefur haft áhrif á
tónsmíðar mínar er kínversk,
indversk og japönsk heimspeki.
Verk mitt, Prana-aparnir, sem
verður flutt í Skálholti vísar til
að mynda í orku öndunarinnar í
indverskri heimspeki og Japanski
garðurinn er verk sem er innblás-
ið af hugmyndafræði zen-
búddisma. Hið gamla og nýja á
hvort tveggja vísan stað í verkum
mínum.“
Kolbeinn Bjarnason flautuleik-
ari er meðlimur í Caput-hópnum
en hann kynntist verkum Doina
Rotaru fyrir sex árum þegar hann
var á tónleikaferðalagi í Japan.
„Mig langaði til að spila einhverja
tónlist eftir aðra en japönsk tón-
skáld og fór þess á leit við jap-
anska félaga mína að mæla með
einhverjum öðrum. Þeir voru
tregir til þess í byrjun, en á end-
anum mæltu þeir með tónverkum
Doinu, sem þeir tjáðu mér að væru
hreint stórkostleg.“ Síðar var upp-
taka af tónleikum sem Kolbeinn
hélt í Tókýó, þar sem hann spilaði
verk eftir Doina, send til hennar
en í framhaldinu óskaði hún eftir
samstarfi. „Hún setti sig strax í
samband við mig og stóð fyrir því
að ég hélt tónleika í Rúmeníu.
Caput-hópurinn sótti Rúmeníu
einnig heim í boði Tónskáldafé-
lags Rúmeníu, en Sigurður Hall-
dórsson, listrænn stjórnandi Sum-
artónleikanna í Skálholti, var þá
með í för og að hans frumkvæði
var ákveðið að bjóða Doina Rot-
aru hingað.“
Engin sígaunatónlist
Þegar Kolbeinn er beðinn um að
lýsa tónlist Doinu tekur hann fram
að ekki sé beinlínis unnt að lýsa
henni sem þjóðlagatónlist. „Það er
ekki eins og um einhvers konar
sígaunatónlist sé að ræða og í raun
ekki hægt að kalla tónlist hennar
þjóðlega. Doina sækir fremur
klisjur og andrúmsloft úr mjög
gamalli rúmenskri þjóðlagahefð
og umbreytir því í tónsmíðum
sínum.“ Kolbeinn segir Doinu
kafa svo djúpt í rúmensku þjóðar-
sálina að í raun séu verk hennar
aftur orðin alþjóðleg. „Þetta er
eins og sagt er með Bjart í Sumar-
húsum, að hann sé svo íslenskur
að allir skilji hann í öllum löndum.
Fólk getur fundið sameiginlega
tengingu í hinu þjóðlega, landa á
milli. Japanar urðu til dæmis
heillaðir af tónlist Doinu vegna
þess að þeir fundu í henni jap-
anskan hljóm. Ef maður kafar
nógu djúpt þá má finna tengingar
á milli alþýðutónlistar hvaðanæva
að,“ segir Kolbeinn.
„Tónlist Doinu verður hins
vegar best lýst sem göldróttri, en
það sem hún leitast við að gera er
að skapa dálítið forneskjulegar
stemmingar í tónverkum sínum.“
Kolbeinn segir það einstaklega
auðvelt að spila tónlist Doinu Rot-
aru því hún sé bæði rétt samin og
svo áhrifarík að þeir sem hana
flytji berist einfaldlega með henni
áreynslulaust.
Þriðji hluti Sumartónleikanna í
Skálholti fer fram dagana 13.-16.
júlí. Nánari upplýsingar um tón-
leikana er að finna á vefsíðunni
www.sumartonleikar.is.
bryndisbjarna@frettabladid.is
KOLBEINN BJARNASON FLAUTULEIKARI Hefur átt farsælt samstarf með tónskáldinu Doinu
Rotaru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÓNSKÁLDIÐ DOINA ROTARU Tengir tónlist
sína við altæk tákn og sammannlegar
stemmingar.
Göldróttir sumartónleikar