Fréttablaðið - 15.07.2006, Side 63
V I N N I N G A R V E R ÐA A F H E N D I R H J Á BT S M Á R A L I N D. KÓ PAVO G I .
M E Ð Þ V Í A Ð TA K A Þ ÁT T E R T U KO M I N N Í S M S K LÚ B B. 9 9 K R / S K E YT I Ð.
S E N D U S M S S K E YT I Ð J A S M F Á N Ú M E R I Ð
1 9 0 0 O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð M I ÐA F YR I R T VO.
V I N N I N G A R E R U B Í Ó M IÐA R F YR I R T VO * DV D M YN D I R
TÖ LV U L E I K I R VA R N I N G U R T E N G D U R M YN D I N N I
O G M A R G T F L E I R A
9.
HVE
R
VIN
NUR
!
Tónleikadagskrá Sigur Rósar á
Íslandi er nú óðum að taka á sig
mynd. Eins og Fréttablaðið
greindi frá í byrjun júnímánaðar
leikur sveitin á stórtónleikum á
Miklatúni 30. júlí næstkomandi.
Þeir tónleikar verða opnir öllum
og ókeypis er inn. Aðrir stórir
útitónleikar verða svo haldnir í
Ásbyrgi 6. ágúst, um verslunar-
mannahelgina, og verður ókeypis
inn á þá.
Eins og áður hefur komið fram
í Fréttablaðinu hyggjast liðsmenn
Sigur Rósar leika á átta eða níu
tónleikum alls hérlendis í ágúst.
Ekki hafa enn verið gefnar upp
staðsetningar eða tímasetningar á
hinum tónleikunum. Á fréttasíðu
Sigur Rósar kemur þó fram að
vísbendingar um það verði að
finna á stórtónleikunum á Mikla-
túni. Allir tónleikarnir verða tekn-
ir upp fyrir útgáfu á DVD-diski
með Sigur Rós.
Liðsmenn Sigur Rósar ljúka
yfirferð sinni um tónlistarhátíðir
í Evrópu með tónleikum í Portú-
gal annað kvöld. Þeir snúa því
aftur til Íslands í byrjun vikunnar
og þá ættu frekari tíðindi af tón-
leikunum að berast.
Sigur Rós leikur í Ásbyrgi
SIGUR RÓS Jónsi og félagar leika á fjölda
tónleika hérlendis í lok júli og ágúst.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Hljómsveitin Baggalútur
hefur sent frá sér nýtt lag,
Allt fyrir mig, sem Björg-
vin Halldórsson syngur, en
það verður á nýju plötunni
þeirra, Aparnir í Eden.
Freyr Gígja Gunnarsson
ræddi við Guðmund Pálsson
um lag sem er hálfgerður
ómagi.
Baggalútur sló í gegn á síðasta ári
með plötunni Pabbi þarf að vinna
en þar léku þeir köntrítónlist eins
og sannir Nashville-búar. Eftir
þessar vinsældir lögðust félagarn-
ir í dvala og íhuguðu hvernig þeir
gætu mögulega bryddað upp á ein-
hverjum nýjungum enda kom það
ekki til greina að hjakka í sama
farinu. Hawaii-hljóðfærið ukulele
hafði heillað þá um nokkurt skeið
og því var ákveðið að blanda því
saman við köntríið sem þeir höfðu
náð góðum árangri með.
Nýja
lagið,
Allt
fyrir mig,
stingur
reyndar í
stúf við
það sem
koma skal á nýju plötunni en þegar
Fréttablaðið náði tali af Guðmundi
Pálssyni, liðsmanni Baggalúts, var
hann nýkominn frá Króatíu þar
sem hann hafði verið að sleikja sól-
ina ásamt fjölskyldu í viku. „Lagið
hefði í raun átt að vera á síðustu
plötu, það er hálfgert uppgjör við
hana,“ útskýrir hann. „Þegar ljóst
var að Björgvin hefði ákveðið að
taka sönginn að sér kom hins vegar
aldrei neitt annað til greina en að
hafa lagið svona,“ bætir hann við.
Hljómsveitin nýtur liðsinnis
tveggja blástursleikara frá Nas-
hville en Allt fyrir mig var tekið
upp á fjórum stöðum. „Lagið sjálft
var tekið upp í Geimsteini, Björg-
vin söng í Sýrlandi, blásturshljóð-
færin voru hljóðrituð í Omni Sound
Studios í Nashville en önnur
umhverfishljóð voru síðan tekin
upp í Félagsheimilinu á Flúðum,“
segir Guðmundur sem lýsir laginu
sem hálendisköntríslagara. „Það er
einhvern veginn hægt að heyra í
vindinum án þess að hann sé þar,
lagið er með eyðimerkurbrag og
hálendið er jú okkar eyðimörk.“
útskýrir Guðmundur sem sparaði
ekki stóru orðin um hæfileika
Björgvins Halldórssonar. „Björg-
vin hafði ákaflega lítið fyrir þessu,“
segir Guðmundur en stórsöngvar-
inn minnir óneitanlega á Johnny
Cash í laginu. „Björgvin er enda á
svipuðum stalli hjá okkur og Cash í
Bandaríkjunum.“ - fgg
Uppgjör við síðustu plötu
JOHNNY CASH
ÍSLANDS?
Björgvin Hall-
dórsson syngur
nýja lag Baggalúts
og þykir minna
á sjálfan Johnny
Cash.
NÝTT LAG KOMIÐ Baggalútur hefur sent frá sér nýtt lag sem verður að finna á nýrri plötu en
hún er væntanleg á næstu dögum.
Í kvöld munu taktfastir elektró
tónar hljóma í portinu á bak við
Loftkastalann. Þeir Róbert Aron
Magnússon, betur þekktur sem
Robbi Chronic, og Halldór Gunn-
laugsson standa fyrir þessum við-
burði og hafa fengið til liðs við sig
Smirnoff sem mun sjá gestum fyrir
drykkjum allt kvöldið.
Í kvöld mun franski plötusnúð-
urinn Dj Jerry koma fram en hann
er frá Kitsunjé-útgáfunni sem er
ein sú stærsta og vinsælasta í dans-
tónlistargeiranum um þessar mund-
ir. Einnig munu Dj AlfonsX, Dj
CasaNova og Steed Lord koma
fram. „Planið er að halda svona
partí með reglulegu millibili og
vera alltaf með það nýjasta og
ferskasta úr tónlistarheiminum þá
stundina,“ segir Róbert og bætir
því við að þeir félagarnir séu með
margt annað skemmtilegt í burðar-
liðnum fyrir haustið. Partíið hefst
kl. 21 og stendur til kl. 1 eftir mið-
nætti. Boðsmiða þarf til að komast
inn en hægt er að nálgast miða á
www.myspace.com/smirnoff101 og
senda þeim skilaboð.
Franskt elektró
ROBBI CRONIC Heldur partí í kvöld þar
sem franski plötusnúðurinn Dj Jerry spilar
taktfasta elektró tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
*SÝNDAR Í STAFRÆNNI ÚTGÁFU. MYND OG HLJÓÐ
SAMBÍÓIN SÍMI: 575-8900 www.sambioin.is
SUPERMAN RETURNS
SUPERMAN RETURNS VIP
THE BREAK UP
THE FAST AND THE FURIOUS 3
BÍLAR ísl. tal
CARS enskt tal
SHE´S THE MAN
KL. 12:40-1:40-3:50-4:50-7-8
10:10-11:10
KL. 1:40-4:50-8-11:10
KL. 3:50-6-8-8:15-10:20-10:30
KL. 8-10:20
KL. 12:30-1-3-5:30
KL. 1-3:30
KL. 6
B.I. 10
B.I. 12
SUPERMAN RETURNS
THE BREAK UP
BÍLAR ísl. tal
KL. 2-5-8-11
KL. 8-10:10
KL. 2-5
B.I. 10
* SUPERMAN RETURNS
THE BREAK UP
BÍLAR ísl. tal
KL. 1-2-4-6-8-10-11:10
KL. 8:20-10:30
KL. 1-3:30-6
B.I. 10 SUPERMAN RETURNS
THE BREAK UP
THE LAKE HOUSE
CARS enskt tal
BÍLAR ísl. tal
KEEPING MUM
POSEIDON
KL. 2:50-5:50-9-10:40
KL. 3:45-6-8:15-10:40
KL. 3:45-6-8:15-10:30
KL. 8:15
KL. 3:30-5:50
KL. 3:45-6-8:15
KL. 10:30
B.I. 10
B.I. 12
B.I. 14
SUPERMAN RETURNS
FAST & THE FURIOUS 3
THE LAKE HOUSE
BÍLAR
KL. 2-5-8-11
KL. 5
KL. 8-10:10
KL. 2
B.I. 10