Fréttablaðið - 15.07.2006, Side 64

Fréttablaðið - 15.07.2006, Side 64
48 15. júlí 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Handboltaforysta heimsins var samankomin í Berlín í Þýskalandi í gær þar sem dregið var í riðla fyrir heimsmeistara- keppnina í handbolta sem fer fram í Þýskalandi snemma á næsta ári. Ísland var í öðrum styrkleika- flokki en dregið var í sex fjögurra liða riðla. Frakkland, Úkraína og Ástralía eru í B-riðli ásamt Íslandi en fyrstnefnda þjóðin varð Evr- ópumeistari í Sviss nú fyrr á árinu. „Ég er mjög sáttur við þetta. Frakkar eru með frábært lið og Úkraínumenn eru einnig sterkir,“ sagði Alfreð Gíslason landsliðs- þjálfari eftir dráttinn í gær en hann ásamt Einari Þorvarðarsyni, framkvæmdastjóra HSÍ, var í Berlín. „Fyrirfram átti ég mér engan sérstakan óskamótherja en riðillinn er vissulega sterkur. Við ætlum okkur þó að fara áfram og við eigum möguleika gegn öllum þessum stórþjóðum, líka Frökk- um.“ Eins og venja er fengu gest- gjafarnir að velja sér riðil áður en hin liðin í 1. styrkleikaflokki voru dregin úr hattinum en Þjóðverjar völdu að fara í C-riðil þar sem fyrir voru Pólland, Brasilía og Argentína. Ef Ísland verður eitt tveggja liða sem kemst áfram úr sínum riðli mun liðið mæta efstu liðunum úr A- og C-riðli. A-riðill- inn er fyrirfram einn sá veikasti á mótinu en þar leika lið Túnis, Sló- veníu, Kúvæts og Grænlands. Ekki hefur enn verið ákveðið í hvaða borgum riðlarnir munu verða en Einar reiknar fastlega með því að Magdeburg verði fyrir valinu fyrir íslenska riðilinn. „Það kæmi alls ekki á óvart. Það væri bæði gott fyrir þýska sambandið og framkvæmdaraðila mótsins enda þekkja handboltamenn vel til margra franskra og íslenskra handboltaleikmanna sem leikið hafa með Magdeburg undanfarin ár.“ Mótið hefst þann 19. janúar næstkomandi og lýkur þann 4. febrúar. Ef Ísland kemst áfram upp úr sínum riðli og verður eitt fjögurra efstu liða í sex liða milli- riðlinum mun það leika tíu leiki á mótinu. Efstu sjö liðin á mótinu munu svo eiga möguleika til að vinna sér sæti á ólympíuleikunum 2008. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is EVRÓPUMEISTARAR Frakkar fögnuðu sigri á EM í Sviss fyrr á árinu. NORDIC PHOTOS/AFP Ísland í riðli með Evrópu- meisturum Frakklands Í gær var dregið í riðla fyrir heimsmeistaramótið í handbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári. Ísland verður í B-riðli ásamt Frakklandi, Úkraínu og Ástralíu. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari er ánægður með dráttinn. RIÐLARNIR Á HM A-RIÐILL TÚNIS, SLÓVENÍA, KÚVÆT, GRÆNLAND. B-RIÐILL FRAKKLAND, ÍSLAND, ÚKRAÍNA, ÁSTRALÍA. C-RIÐILL ÞÝSKALAND, PÓLLAND, BRASILÍA, ARGENT- ÍNA. D-RIÐILL SPÁNN, TÉKKLAND, EGYPTALAND, KATAR. E-RIÐILL DANMÖRK, NOREGUR, UNGVERJALAND, ANGÓLA. F-RIÐILL KRÓATÍA, RÚSSLAND, MAROKKÓ, SUÐUR- KÓREA. FÓTBOLTI Horacio Elizondo, arg- entínski dómarinn sem gaf Zine- dine Zidane rautt spjald í úrslita- leik HM, er ánægður með eigin frammistöðu í leiknum og segir að hann geti ekki leyft sér að hugsa um ákveðnar persónur sem spila leiki sem hann er að dæma. „Dómari á að vinna með 22 leikmönnum, ellefu í hvoru liði sem eru allir með sitt númer hver. Hann getur ekki leyft sér að velta því fyrir sér hvað þeir heita,“ sagði Elizondo en eins og alheimur vissi var leikurinn svanasöngur Zidane sem hefur átt stórbrotinn knattspyrnuferil. „Þegar ég sá Materazzi í gras- inu stöðvaði ég leikinn samstund- is,“ sagði dómarinn um atvikið. „Fyrsti aðstoðardómarinn sagði mér hvað fjórði dómari leiksins hafði sagt honum. Maður getur ekki leyft sér að hugsa um að maður sé að reka Zidane út af í hans síðasta leik.“ Elizondo er 42 ára gamall og hefur hug á að hætta dómgæslu. „Mér finnst ég hafa náð mínum markmiðum í dómgæslu og það er kominn tími til að kenna öðrum það sem ég hef lært á mínum ferli. Ég vil ganga héðan út um aðaldyrnar,“ sagði sá argentínski sem rak einnig Englendinginn Wayne Rooney af velli í leik liðs- ins gegn Portúgal í fjórðungsúr- slitum keppninnar. Síðan atvikið átti sér stað hefur Zidane sagt að Materazzi hafi farið niðrandi orðum um systur sína og móður. FIFA hefur hafið rannsókn vegna ummælanna. - esá HORACIO ELIZONDO Ætlar að leggja flautuna á hilluna. NORDIC PHOTOS/AFP Argentínski dómarinn Horacio Elizondo ætlar að hætta dómgæslu: Sér ekki eftir brottvikningu Zidane FÓTBOLTI Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hefur gefið skýrslu til aganefndar FIFA sem ákvað að rannsaka þátt Ítalans í atvikinu sem leiddi til þess að Zinedine Zidane fékk rauða spjald- ið í úrslitaleik HM á sunnudag. Zidane sagði í sjónvarpsviðtali á miðvikudag að hann hefði móðgað systur sína og móðir. Upphaflega áttu báðir aðilar að gefa sína skýrslu þann 20. júlí en þar sem Materazzi verður í fríi þá mætti hann í viðtal hjá FIFA í gær. - esá Rannsókn FIFA: Materazzi gefur skýrslu ZIDANE OG MATERAZZI Tveir umtöluðustu knattspyrnumenn heims.NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Ungverski landsliðsfyrir- liðinn Zoltan Gera verður um kyrrt í herbúðum West Bromwich Albion en hann fór fram á að vera seldur frá félaginu fyrir skömmu. Félag- ið neitaði þeirri beiðni og gaf í kjölfarið út yfirlýsingu um að það væri ekki í samræmi við stefnu félagsins að selja lykilmenn sína. Gera var orðaður við Wigan ásamt liðsfélögum sínum Nathan Ellington og Curtis Davies. Gera átti frábæra leiktíð þarsíðasta tímabil en var meiddur lengi vel í vetur og lék aðeins fimmtán leiki með félaginu sem féll úr úrvals- deildinni í vor. - esá Zoltan Gera: Ekki seldur frá West Brom FÓTBOLTI „Þetta er dæmigert fyrir þessa viku,“ sagði Uwe Rösler, þjálfari Lilleström, eftir að hann missti af flugi liðsins til Newcastle en liðin mætast í Intertoto-keppn- inni um helgina. Hann hafði gleymt vegabréfinu sínu heima og uppgötvaði það of seint. „Aldrei hefur þetta gerst í 25 ár,“ sagði Rösler. Vikan hófst með því að lið hans gerði 2-2 jafntefli við Kefla- vík hér heima en í vikunni mætti liðið Odd Grenland í norsku úrvalsdeildinni þar sem sömu úrslit litu dagsins ljós. Odd Gren- land jafnaði leikinn í uppbótar- tíma og var Rösler svo svekktur að hann hélt rakleiðis út í bifreið sína eftir leik án þess að ræða við leikmenn eða fjölmiðla. Þetta var fjórði leikur liðsins í röð í deild- inni án sigurs. - esá Uwe Rösler þjálfari Lilleström: Missti af flug- inu til Englands FÓTBOLTI Inter Milan hefur viður- kennt að ætla sér að kaupa Luca Toni, Zlatan Ibrahimovic eða David Trezeguet í sumar. Massimo Mor- atti, eigandi Inter, hefur sjálfur staðfest fréttirnar en Toni var í viðræðum við liðið fyrir HM. „Hugmyndin er að kaupa Trez- eguet, Ibrahimovic eða Toni. Við þurfum að vita hversu mikið þá langar til að koma til Inter áður en við stígum næsta skref. Toni er efstur á listanum en hinir koma vel til greina,“ sagði Moratti, sem gæti fengið samkeppni frá Real Madrid um kappana. - hþh Innkaupalisti Inter Milan: Luca Toni efstur á blaði HEIMSMEISTARI Fabio Grosso er þegar far- inn til Inter og Luca Toni gæti verið næstur. NORDICPHOTOS/AFP KRAFTASPORT Á laugardag fer fram hin árlega aflraunakeppni, Suður- landströllið. Keppnin hefst á Sel- fossi klukkan 13.30 þar sem meðal annars verður keppt í trukka- drætti og drumbalyftu. Klukkan 15.30 verður keppt í axlalyftu við Hótel Örk og keppninni lýkur við Eden í Hveragerði þar sem kepp- endur burðast með Húsafellshell- una. Á meðal keppenda verður Kristinn Óskar Haraldsson, einnig þekktur sem Boris, sem nýlega tryggði sér þátttökurétt í keppn- inni um sterkasta mann heims. Suðurlandströllið: Keppt á Selfossi TENNIS Spænski tennisspilarinn Rafael Nadal slapp í fyrradag ómeiddur úr bílslysi er hann var á leið til heimilis síns á Mallorca á Spáni. Bíll sem hann var farþegi í rásaði út af veginum og hafnaði á rafmagnsstaur sem féll á hliðina í kjölfarið. Kona sem býr rétt hjá heyrði lætin og kom að slysinu þar sem Nadal var og sagði hún hann hafa verið eilítið ringlaðan, en óskaddaðann. Nadal komst nýverið í úrslit Wimbledon-mótsins þar sem hann tapaði fyrir Roger Federer. Fyrr á árinu fagnaði hann sigri á opna franska meistaramótinu. - esá Rafael Nadal: Lenti í bílslysi RAFAEL NADAL Lenti í bílslysi á Spáni en er ómeiddur. NORDIC PHOTOS/AFP Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru hefur danska félagið Silkeborg augastað á nokkrum leikmönnum Keflavíkur. Þeirra á meðal eru Jónas Guðni Sæv- arsson og Hólmar Örn Rúnars- son en Keflvíkingum hefur nú borist formleg beiðni frá Silkeborg um að fá Hólmar Örn til reynslu hjá sér. Rúnar Arnar- son, faðir Hólmars og formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur sagði við Fréttablaðið í gær að verið væri að reyna að finna hentugan tíma fyrir Hólmar til að fara út þar sem hann mun dveljast í nokkra daga. Með Silkeborg leika tveir Íslendingar, Bjarni Ólafur Eiríksson og Keflvíkingurinn fyrrver- andi Hörður Sveinsson. „Það skemmir ekki fyrir að hafa strákana þarna og sérstaklega erum við Höddi ágætis félagar eftir að hafa spilað saman. Ég hef heyrt í Hödda um þetta og hann ber liðinu söguna ágætlega. Það liggur þó ekkert fyrir í þessu og ég er auðvitað ekki búinn að ákveða neitt ennþá. Það verður að koma í ljós hvort þetta gangi upp eða ekki,“ sagði Hólmar en hann var nálægt því að ganga til liðs við sænska liðið Trelleborg en það mál féll upp fyrir á síðustu stundu. Aðstoðarþjálfari Silkeborg dvaldist hér á landi um tíma og tók sérstaklega eftir Hólmari. „Það er jákvætt að það sé verið að fylgjast með mér, ég veit nú ekki hvort ég hef skapað mér neitt nafn en vissulega er gaman að fá þessa viðurkenningu. Það sýnir að maður er að gera eitthvað rétt,“ sagði Hólmar Örn sem gæti þar með orðið næsti íslend- ingurinn í nýlend- unni sem er að skapast í Silkeborg. KEFLVÍKINGURINN HÓLMAR ÖRN RÚNARSSON: FER TIL REYNSLU HJÁ SILKEBORG Íslendinganýlenda í fæðingu Ólöf María úr leik Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir er úr leik á móti í Ungverjalandi sem er liður í Evrópumótaröð kvenna. Hún lék á fimm höggum yfir pari í gær og var samtals á átta yfir pari. Var hún talsvert frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og lauk keppni í 112. sæti. > Tap fyrir Hollandi Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri mátti þola stórt tap fyrir Hollendingum í fyrsta leik sínum í B- keppni EM sem fer fram í Lissabon í Portúgal. Holland vann leikinn 99-58. Jóhann Árni Ólafsson átti stórleik með 18 stig, 12 fráköst og 4 stoðsending- ar en næstur kom Kristján Sigurðsson með 16 stig. Báðir leika með liði Njarðvíkur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.