Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 65

Fréttablaðið - 15.07.2006, Síða 65
LAUGARDAGUR 15. júlí 2006 49 FÓTBOLTI Fyrr í vikunni lék Gunnar Heiðar Þorvaldsson sinn fyrsta leik fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96, er það lagði þýskt neðri deildarlið í æfingaleik, 10-0. Gunnar Heiðar skoraði eitt mark í leiknum. „Það var nú bara með skalla eftir horn, ekkert merkilegt,“ sagði Gunnar Heiðar í samtali við Frétta- blaðið í gær. Hann bætir því þó við að það hafi vitanlega verið ánægju- legt að skora í sínum fyrsta leik með nýju félagi og sé vonandi góðs viti fyrir framhaldið. Æfingatímabilið byrjaði af krafti í síðustu viku og segist Gunn- ar Heiðar aldrei hafa lent í öðru eins. „Það hafa verið þrjár æfingar á dag í níu daga en sem betur fer lýkur þessu á morgun,“ sagði hann. „Maður hefur nú unnið sem sjó- maður og vaknað eldsnemma á morgnana til að fara á sjó en það er bara barnaleikur miðað við þetta. Fyrstu dagana hélt ég að ég ætlaði að gefa upp öndina þá og þegar,“ sagði hann og hló. „Við hlupum sex kílómetra klukkan sjö um morguninn, áður en við fengum okkur morgunmat. Svo var æft klukkan tíu og svo aftur klukkan fjögur og í bæði skiptin var spilað og tekið mikið á því. Deginum lauk svo með öðru langhlaupi. Ég held að ég hafi aldrei hlaupið jafn mikið á ævinni. Þessa fyrstu daga þegar maður var hvað verstur var bara sagt „welcome to Germany“. Þetta er víst ekki óalgengt hér.“ Gunnar Heiðar hefur nú jafnað sig á fótbrotinu sem hann varð fyrir í nóvember síðastliðnum. „Ég var hins vegar ekki í nógu góðu standi þegar ég kom til Þýskalands því ég fékk ekki tækifæri til að jafna mig hjá Halmstad og var sendur beint í liðið. Ég þurfti því að byrja á núlli hér.“ En hann ber liðinu og liðsfélög- unum afar góða söguna. „Mér líkar frábærlega og ég hefði aldrei getað ímyndað mér hversu auðvelt það væri að aðlagast. Strákarnir hafa tekið okkur nýju strákunum frábærlega,“ sagði hann en einn þeirra nýju er herbergisfélagi hans, Svíinn Christoffer Anders- son sem lék með Lilleström í fyrra. „Það er ágætt að geta talað sænsku uppi á herbergi,“ sagði Gunnar Heiðar en sem stendur er allt liðið statt í æfingabúðum rétt fyrir utan Hannover. Og hann segist vongóður um að vinna sér sæti strax í byrjunarlið- inu. „Þegar ég samdi við þetta lið var það að hluta til vegna þess að ég vildi ekki fara til einhvers stór- veldis þar sem ég yrði bara geymd- ur á bekknum. Það kom mér á óvart að ég er ekkert á eftir þess- um gæjum sem eru hér og ég veit ekki hvort það segir meira um liðið en deildina. Ég finn að ég á fullt erindi hingað og ætla mér að festa mig í sessi í þessu liði.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON Er hér á æfingu með sínu nýja félagi, þýska úrvalsdeildar- liðinu Hannover 96.FRÉTTABLAÐIÐ/NEUE PRESSE Hélt ég væri að deyja Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur hafið æfingar hjá sínu nýja félagi, Hannover 96 í Þýskalandi. Hann segir að hann hafi aðlagast félaginu mjög vel þrátt fyrir afar strangar æfingar sem ætluðu að gera út af við Gunnar á fyrstu dögunum. FÓTBOLTI Ruud van Nistelrooy ósk- aði í gær eftir því að vera seldur frá Manchester United. Sam- kvæmt fjölmiðlafregnum í Hol- landi eru taldar yfirgnæfandi líkur á því að hann gangi til liðs við Real Madrid á næstunni. Hollenska dagblaðið De Tele- graaf heldur því fram að Nistel- rooy hafi komist að samkomulagi um kaup og kjör við spænsku ris- ana og að félögin eigi eftir að ræða kaupverð á kappanum. Umboðs- maður Nistelrooy, Rodger Linse, sagði að hann vonaðist til að Nistel- rooy tilkynni hvaða lið hann muni spila með á næstu leiktíð, áður en æfingar hefjast hjá United þann 24. júlí næstkomandi. Nistelrooy varð mjög pirraður á síðustu leiktíð þar sem Alex Ferguson knattspyrnustjóri lét hann oft verma varamannabekk liðsins á seinni hluta síðustu leik- tíðar. Þær sögusagnir hlutu byr undir báða vængi er Nistelrooy yfirgaf leikvanginn áður en síð- asti leikur tímabilsins hófst í vor en hann var þá sem fyrr ekki í byrjunarliði United. Það gæti þó komið til vandræða þegar félögin reyna að semja um kaupverð því Real Madrid er reiðubúið að borga tíu milljónir punda fyrir hann en United vilja fá fimmtán milljónir. Real gæti þó lent í vandræðum með framherja þar sem Ronaldo verður frá í upp- hafi leiktíðar vegna uppskurðar sem hann gekkst undir nýverið. Nistelrooy var keyptur frá PSV Eindhoven árið 2001 fyrir nítján milljónir punda og hefur hann skorað 149 mörk í 218 leikjum sínum fyrir félagið. United er sem stendur í æfinga- ferð um Suður-Afríku þar sem Sir Alex staðfesti fréttirnar. - esá NISTELROOY OG ROONEY Félagarnir saman á góðri stund á æfingasvæði Manchester United.NORDIC PHOTOS/GETTY Ruud van Nistelrooy er líklegast á leiðinni til Real Madrid eða Bayern München: Nistelrooy óskar eftir sölu frá Manchester United FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, staðfesti í gær að félagið væri mjög nálægt því að semja við pólska markvörðinn Tomasz Kuszczak, sem er samningsbundinn West Brom. Kuszczak, sem er 26 ára gamall, verður varamarkvörður fyrir Edwin van der Sar en hinir markverðir liðs- ins, Ben Foster og Tim Howard verða lánaðir til Watford og Everton á næstu leiktíð. - esá Manchester United: Að landa Kuszczak TOMASZ KUSZCZAK Reynir hér að ná knettinum af Philippe Senderos, leikmanni Arsenal.NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Craig Bellamy segir að hann skuldi Liverpool að standa sig vel en hann gekk nýverið í raðir félagsins sem hann studdi í æsku. Bellamy var kynntur á blaðamannafundi í gær ásamt Mark Gonzales en báðir spila þeir fyrsta leik sinn fyrir félagið í dag í æfingaleik gegn Wrexham. „Margir myndu efast um mig enda hef ég farið fimm sinnum í hnéaðgerðir. En að félagið hafi svona mikla trú á mér segir meira en mörg orð. Ég hef eytt gríðar- lega miklum tíma í endurhæfingu, einn míns liðs eftir að aðrir hafa farið heim. Ég vissi að ég ætti eftir að afreka eitthvað á ferlinum og sá dagur er loksins runninn upp,“ sagði Bellamy á blaða- mannafundinum í gær. „Ég veit að ég verð ávallt litinn hornauga sem leikmaður. Ég get alveg sagt öllum að ég sé í alvörunni góður strákur en fólk segir samt áfram það sem það vill segja og halda. Það eina sem ég get gert er að halda áfram að bæta mig en það eina sem skiptir máli núna er hvernig liðinu mínu geng- ur,“ sagði Bellamy. - hþh Craig Bellamy: Ég skulda Liverpool KYNNTIR TIL LEIKS Gonzales, Rafael Benítez og Craig Bellamy í gær. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Bolton hefur fest kaup á varnarmanninum Abdoulaye Meite sem kemur frá Marseille. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Meita skrifaði undir fjög- urra ára samning. Hann á þó eftir að fara í læknisskoðun og fá atvinnuleyfi. „Við höfum fylgst með Abdoul- aye í nokkurn tíma. Hann hefur alla burði til að standa sig vel í ensku úrvalsdeildinni. Hann er ungur og mun eflaust aðlagast líf- inu á Englandi fljótt,“ sagði Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolt- on, á opinberri heimasíðu liðsins. Þá er Bolton nálægt því að ganga frá samningi við Suður-Afr- íkumanninn Quinton Fortune. Eftir að hafa verið leystur undan samn- ingi við Manchester United fór Fortune til Celtic en ákvað að semja ekki við skoska félagið. - hþh Bolton: Fá Meite og nálgast Fortune MEITE Spilaði vel með Fílabeinsströndinni á HM. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Marcello Lippi, fyrrum landsliðsþjálfari Ítala, er sagður hafa skráð sig í einn af betri mála- skólum Mílanóborgar þar sem hann ætlar sér að læra ensku á sem skjótastan máta. Lippi stýrði ítalska landsliðinu til heimsmeist- aratitilsins í Þýskalandi en hætti með liðið í kjölfarið. Hann hefur áður verið orðaður við Manchest- er United og hafa þær sögur nú gengið í endurnýjun lífdaga. Þegar hann var spurður um hugsanlegt starf hjá Manchester United á sínum tíma sagði hann einfald- lega: „Hvernig á maður að vinna á stað þar sem maður skilur ekki tungumálið.“ - esá Marcello Lippi: Sækir ensku- námskeið FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH hafa samið við danska framherjann André Shei Lindbeak til tveggja ára. Pétur Stephensen, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH, sagði við Fréttablaðið í gær að Lindbeak væri ætlað að fylla það skarð sem Atli Viðar Björnsson skilur eftir sig en Atli verður frá í langan tíma vegna krossbanda- slits. Lindbeak er stór og stæðilegur leikmaður sem hefur gott auga fyrir markinu. Hann er 29 ára gamall og kemur frá Landskrona í Svíþjóð, en hann er kunningi Auð- uns Helgasonar sem lék með sænska liðinu á sínum tíma. Pétur sagði jafnframt að þetta þýddi ekki endalok Allans Dyring, hins danska framherja FH, sem hefur ekki náð að heilla stuðnings- menn liðsins. - hþh André Shei Lindbeak: Samdi við FH til tveggja ára FÓTBOLTI Juventus hefur verið dæmt niður í Serie-B deildina auk þess sem félagið mun missa 30 stig. Það þýðir að erfitt verður fyrir liðið að komast upp um deild, þrátt fyrir að það haldi nokkrum af sínum betri mönnum en búast má við því að flestir leik- menn liðsins verði seldir eða lán- aðir á næstu vikum. Juventus var einnig svipt tveimur síðustu titl- um sínum á Ítalíu. Lazio og Fiorentina voru einn- ig send niður um deild en AC Milan verður áfram í Serie-A deildinni, en mun missa 15 stig og fær ekki að taka þátt í Meistara- deildinni á næsta tímabili. Líklegt er að enska félagið Liverpool taki þeirra stöðu þar en ensku bikar- meistararnir eru hæst skrifaða liðið sem þarf að taka þátt í und- ankeppni deildarinnar. Sjö stig verða svo tekin af Lazio en tólf af Fiorentina. Fyrr á þessu ári komst upp um forráðamenn Juventus sem höfðu hagrætt úrslitum leikja. Aðild Lazio og Fiorentina komst einnig upp en hún var ekki jafn mikil og hlutdeild Juventus, þrátt fyrir að þau væru sek. AC Milan slapp vel frá dómnum en félagið átti einn- ig hlut í máli. Þegar hefur heyrst af mikilli óánægju með að samræmis hafi ekki verið gætt í dómn- um. Hneykslið átti sér stað á 2004/2005 tíma- bilinu en 25 einstakl- ingar, forráðamenn liða, háttivirtir ein- staklingar úr Ítalska knattspyrnusamband- inu, dómarar og línu- verðir eru viðriðnir málið. Þeir eiga yfir höfði sér sektir og aðrar refsingar. Samtöl á milli Luciano Moggi, þáverandi stjórnarfor- manns Juventus, og manns sem raðaði dóm- urum niður á leiki í Serie-A deildinni láku í fjölmiðla í maímánuði. Rannsóknin hefur teygt anga sína víða og hafa fjöldamargir verið yfirheyrðir vegna málsins. Liðin hafa nú þrjá daga til að áfrýja dómn- um. - hþh Sex dögum eftir að Ítalía varð heimsmeistari ríður skandallinn þar í landi liðum og leikmönnum að fullu: Juventus niður í Serie-B og missir 30 stig JUVENTUS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.