Fréttablaðið - 15.07.2006, Qupperneq 66
15. júlí 2006 LAUGARDAGUR50
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
valdi að vera í búningi númer 7
hjá Barcelona. Það gerði hann til
að heiðra minningu föður vinar
síns, sem lést fyrir skömmu, en
félagið hafði tekið frá númerið 22,
ef ske kynni að Eiður vildi halda
sig við númerið sem hann bar hjá
Chelsea.
Treyja númer 7 hjá Barcelona
hefur ávallt borið nafn mikilla
heiðursmanna á bakinu. Sá síðasti
til að klæðast treyjunni var svíinn
Henrik Larsson en þar áður var
Argentínumaðurinn Javier Savi-
ola í treyjunni.
Á heimasíðu Barcelona kemur
fram sú merkilega staðreynd að
leikmenn sem bera númerið 7 á
bakinu hjá Barcelona hafa ávallt
búið yfir mikilli tækni, auga fyrir
markinu og staðið sig frábærlega
hjá félaginu fornfræga. Í mörgum
tilfellum hafa leikmenn komist í
tölu goðsagna á meðal blóðheitra
stuðningsmanna Barcelona.
Carles Rexach skal fyrstan
telja af þessum leikmönnum, en
hann spilaði sinn fyrsta leik í sjö-
unni frægu í september árið 1967,
tvítugur að aldri. Hann spilaði á
hægri kantinum og var spyrnu-
maður mikill. Rexach spilaði í sex-
tán ár með Barcelona, lék 665 leiki
fyrir félagið og er annar leikja-
hæsti leikmaðurinn í sögu félags-
ins, aðeins á eftir Miguelo sem lék
670 leiki. Rexach var markahæsti
leikmaður spænska boltans á tíma-
bilinu 1970-1971 þegar hann skor-
aði sautján mörk í 29 leikjum.
Tríó frá Norðurlöndunum hefur
klæðst treyjunni frægu, Allan
Simonsen frá Danmörku, svíinn
Larsson og Eiður Smári. Bæði
Simonsen og Larsson voru í mikl-
um metum á meðal stuðnings-
manna liðsins, en sá fyrrnefndi
kom til Barcelona árið 1979. Hann
átti að fylla skarð Johan Neeskens
og fólst það hlutverk ágætlega úr
hendi. Neeskens er á meðal bestu
leikmanna sem spilað hafa með
Barcelona en er nú orðinn aðstoð-
arþjálfari Frank Rijkaard hjá
félaginu. Simonsen öðlaðist virð-
ingu með hraða sínum og fjölda
stoðsendinga, en hann yfirgaf
félagið árið 1982, sama ár og Mara-
dona kom til félagsins.
Larsson kom eftir frábæran
feril hjá Celtic í Skotlandi og var
hluti af liðinu sem varð meistari
undanfarin tvö ár, auk Evrópu-
meistaratitilsins. Þrátt fyrir að
hafa verið varamaður lengi vel,
auk þess að meiðast illa, var Lars-
son gríðarlega vel metinn enda
kvartaði hann aldrei og skilaði
sínu hlutverki með miklum sóma.
Portúgalinn Luis Figo gerði svo
garðinn frægan þegar hann kom
til félagsins árið 1995, síðasta árið
undir stjórn Johan Cruyff. Það var
einnig fyrsta tímabilið sem nöfn
leikmanna voru aftan á treyjunum
auk númeranna. Figo kom frá
Sporting í Lissabon 22 ára gamall
og varð fljótlega einn allra besti
leikmaður spænsku deildarinnar.
Hann var einnig fyrirliði Barce-
lona en gerðist svo skúrkur þegar
hann fór yfir til erkifjendanna í
Real Madrid og er mjög illa liðinn
fyrir vikið.
Hvað Eiður Smári Guðjohnsen
afrekar svo í búningi Barcelona
verður að koma í ljós á næstu
árum, en ljóst er að hans bíður
ærið verkefni með því að spila í
treyju númer 7 hjá Barcelona.
hjalti@frettabladid.is
Goðsagnir númer 7 hjá Barcelona
Eiður Smári Guðjohnsen kaus að vera númer sjö hjá Barcelona en þar með fylgir íslenski landsliðsfyrirlið-
inn í fótspor margra merkra manna hjá spænska stórliðinu, þeirra á meðal eru Figo og Henrik Larsson.
GÓÐUR Í SJÖUNNI Eiður Smári er hér á blaðamannafundi sem hann hélt á Íslandi ásamt
syni sínum Sveini Aroni.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TVEIR GÓÐIR Carlos Rexach og Henrik
Larsson eru tveir þeirra sem voru í treyju
númer sjö hjá Barcelona. Báðir voru í mikl-
um metum hjá stuðningsmönnum liðsins.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Páll segir að það hafi
engan veginn verið um viljaverk
að ræða þegar hann rak olnbog-
ann í hausinn á Baldri sem
vankaðist við höggið. Baldur lá
óvígur eftir á vellinum og var
fluttur með hraði upp á sjúkra-
hús eftir að hugað hafði verið að
honum.
„Sjúkraþjálfarinn kom og
spurði hvort mig svimaði. Í sömu
andrá og ég neitaði því byrjaði
mig að svima hrikalega og þegar
hann fór að þreifa á staðnum þar
sem höggið kom heyrði ég brak.
Þá var mér hent í hálskraga og
beint upp á sjúkrahús þar sem
teknar voru af mér myndir en
sem betur fer er allt í góðu. Mér
líður vel núna og býst fastlega
við því að verða klár í slaginn á
þriðjudaginn,“ sagði Baldur en
Keflvíkingar sækja þá Víkinga
heim.
„Það er erfitt að segja hvort
þetta sé rautt spjald eða ekki.
Hann kemur með olnbogann á
undan sér en ég trúi ekki að hann
hafi gert þetta viljandi. Ég heyrði
að dómarinn hefði verið vel stað-
settur en annars get ég ekki
dæmt um það,“ sagði Baldur, en
kollegi hans úr Vestmannaeyj-
um, Páll, er mjög ósáttur með
dóminn.
„Ég fór bara upp í boltann og
skallaði hann. Ég skil þennan
dóm alls ekki, mér hefði þótt
ósanngjarnt að fá gult spjald
fyrir þetta. Ég held að hann hafi
dæmt þetta meira út frá því
hversu mikið hann Baldur meiddi
sig. Ég held að það geti enginn
maður hoppað svona upp jafn-
fætis auk þess sem hann var líka
með olnbogann rétt fyrir neðan
andlitið á mér. Ofan á allt fór
vörin á mér í sundur þegar ég
fékk olnbogaskot fyrr í leikn-
um,“ sagði Páll við Fréttablaðið í
gær.
„Svona er þetta bara í íþrótt-
um, menn geta meiðst. Ég skil
það bara ekki hvernig hann fékk
út að rétt væri að gefa mér rautt
spjald fyrir þetta. Ég held að það
sé ekki hægt að gera neitt við
þessu, ætli ég taki ekki á mig
bannið bara. Ég hefði viljað sjá
hann draga spjaldið til baka enda
óskiljanlegur dómur,“ sagði
Eyjamaðurinn.
„Ég get tekið það á mig að ein-
hvern tíma hef ég átt skilið að fá
rautt spjald en svo sannarlega
ekki í þessu tilviki. Ég held að
það sé augljóst að ég sé með ein-
hvern stimpil á mér sem grófur
leikmaður. Það þyrfti að gefa
ansi mörg rauð spjöld í sumar ef
þetta er ný stefna sem er tekin í
þessu. Þá held ég að maður verði
bara að hætta því að fara upp í
skallabolta,“ sagði Páll. - hþh
Páll Hjarðar er mjög ósáttur við rauða spjaldið:
Hefði verið ósáttur
við að fá gult spjald
BORINN AF VELLI Baldur er hér kominn
á börurnar, með kragann um hálsinn og
innvafinn í teppi enda var úrhellisrigning á
fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Til hamingju Ítalía !
Moschino tekur þátt í gleðinni og gefur þeim viðskiptavinum sem kaupa
tvo hluti í Moschino Friends herra línunni þennan flotta HM leður fótbolta
FÓTBOLTI Spænska félagið Valencia
hefur gefið það út að það vilji
kaupa Cristiano Ronaldo af
Manchester United. Stuðnings-
menn enska liðsins eru margir
hverjir farnir að ókyrrast. Í gær
óskaði Ruud van Nistelrooy eftir
sölu frá félaginu auk þess sem
Ronaldo hefur gefið lítið fyrir þær
fréttir að hann verði áfram hjá
United, eins og félagið sendi frá
sér yfirlýsingu um.
„Það væri frábært að fá hann.
Hann er ungur leikmaður sem
gæti gert góða hluti með okkur.
Það ættu að vera fleiri leikmenn
sem eru jafn góðir og hann á mark-
aðnum,“ sagði Quique Sanchez
Flores, stjóri Valencia, í gær.
Búast má við því að Ronaldo fái
skelfilegar viðtökur frá stuðnings-
mönnum margra liða á Englandi
eftir að hann fór fram á að Wayne
Rooney yrði rekinn af velli á HM,
sem svo varð. - hþh
Valencia:
Vill fá Cristia-
no Ronaldo
RONALDO Er í fríi í heimalandi sínu og
hefur gefið út að framtíð hans sé í óvissu.
NBA Hið fornfræga NBA-lið, Bost-
on Celtics, hefur náð samkomu-
lagi við stórstjörnuna Paul Pier-
ce um að hann framlengi samning
sinn við félagið til þriggja ára.
Talið er að samningur þessi sem
gildir út árið 2008 tryggi Pierce
tæpar 60 milljónir dollara á
samningstímanum, en deildin á
þó enn eftir að samþykkja þessa
ráðstöfun. - hþh
Paul Pierce:
Framlengir hjá
Boston Celtics