Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.07.2006, Qupperneq 4
4 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR ����������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ��������������������� ������������������������������������������������������������������ ������ ������� ���� ���� ������ � ������ ��� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� LÖGREGLUMÁL Fjögur umfangs- mikil fjársvikamál eru nú til rann- sóknar hjá lögreglunni í Reykja- vík. Í öllum tilvikum er um að ræða þjófnaði af bankareikning- um fólks, þar sem þjófarnir hafa farið án heimildar inn í heima- banka viðkomandi og millifært fjármuni út af reikningum þeirra. Í þremur af þessum málum eru fleiri tilvik en eitt og um umtals- verðar fjárhæðir að ræða, sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins. Fyrsta málið af þessum fjórum er þannig vaxið að í október 2005 voru millifærðar fjárhæðir út af reikningum í bönkum hér. Það var gert frá erlendum IP-tölum, sem þýðir að tölvurnar erlendis voru notaðar. Fjárhæðirnar voru lagðar inn á reikninga tveggja einstakl- inga hér á landi. Þeir tóku síðan peningana út og sendu þá með peningaflutningafyrirtækinu Western Union til eins af Eystrasaltslöndunum. Er talið að þeir erlendu einstaklingar sem fóru án heimildar inn í heimabank- ana hafi haft samband við menn- ina tvo hér til að geta notað reikn- inga þeirra, þannig að um eins konar peningaþvætti hafi verið að ræða. Öðrum mannanna hafði verið boðið starf við peningaflutn- inga gegn þóknun. Hinn maðurinn gaf þær skýringar að hafa ætlað að stofna netsölufyrirtæki og tjáðu erlendu aðilarnir honum að lagðar yrðu fjárhæðir inn á reikn- ing hans, um lán fyrir vörukaup- um væri að ræða. Um mánaðamótin nóvember- desember 2005 kom næsta þjófn- aðarmál upp. Þá var millifært úr heimabönkum frá íslenskri IP-tölu yfir á reikninga manna sem komið höfðu við sögu lögreglu. Slíkar færslur voru gerðar í sex tilvikum og þar reyndist einnig vera um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að í öllum tilvikunum áttu milli- færslurnar sér stað í gegnum opna þráðlausa beina sem víða eru stað- settir. Þriðja málið kom upp í mars á þessu ári. Þá var færð frá íslenskri IP-tölu há fjárhæð úr heimabanka, einnig inn á reikning einstaklings sem hefur áður komið við sögu lögreglu. Samkvæmt upplýsing- um Fréttablaðsins eru tengsl milli tveggja síðustu málanna og leikur grunur á að sömu þjófar hafi verið að verki. Síðasta málið kom upp nýlega, en þá voru notuð SMS-skilaboð til fólks um að það hefði verið skráð á sérstaka stefnumótasíðu og yrði að skrá sig út af henni, ella yrði viðkomandi að borga tiltekna upp- hæð. Um leið og viðkomandi afskráði sig af umræddri stefnu- mótasíðu komst vírus í tölvuna sem safnaði saman nauðsynlegum upplýsingum um hvernig þjófarn- ir kæmust inn á heimabanka við- komandi og síðan voru fjárhæðir millifærðar á bankareikninga erlendis. Tvö tilvik í þessu máli hafa verið kærð til lögreglu og mun henni kunnugt um tvö til víðbótar. Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið hefur aflað sér nema upphæðir í öllum þessum fjár- svikamálum nær tuttugu milljón- um króna. Lögreglan hvetur fólk enn sem fyrr til að láta yfirfara varnarbún- að í tölvum sínum og fylgjast með heimabankafærslum. jss@frettabladid.is Milljónir yfirfærðar af bankareikningum Rannsókn lögreglunnar í Reykjavík á umfangsmiklum fjársvikamálum leiðir meðal annars til gruns um peningaþvætti hér á landi. Upphæðum sem nema nær 20 milljónum króna hefur verið stolið af bankareikningum Íslendinga. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 19.07.2006 Bandaríkjadalur 74,69 75,05 Sterlingspund 136,49 137,15 Evra 93,31 93,83 Dönsk króna 12,505 12,579 Norsk króna 11,711 121,779 Sænsk króna 10,071 10,131 Japanskt jen 0,6366 0,6404 SDR 109,45 110,11 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 129,6199 Gengisvísitala krónunnar JERÚSALEM, AP Ísraelsk yfirvöld segja að eldflaug Hizbollah-samtakanna hafi skemmt byggingu í Nasaret. Þrennt er talið látið, þar af tvö börn. Jesús Kristur er oft kenndur við Nasaret og bæinn prýða fjölmargar kirkjur og önnur kennileiti krist- innar trúar, en ekki er vitað til þess að skemmdir hafi orðið á þeim. Íbúar bæjarins eru flestir af arabísku bergi brotnir. Alls hafa sextán ísraelskir borg- arar og tólf hermenn látið lífið í átök- unum en tala látinna líbanskra borg- ara nálgast þriðja hundraðið. - kóþ Stríðið í Mið-Austurlöndum: Sprengjuregn í Nasaret FJÖLMIÐLAR Hádegisfréttir NFS í gær voru með óvenjulegu sniði, en þeim var varpað beint út frá Ægis- garði við Reykjavíkurhöfn. „Við vitum ekki til þess að sjónvarps- fréttatími hafi áður verið sendur út í heild sinni undir beru lofti,“ segir Þór Jónsson, varafréttastjóri NFS. „Stundum hafa verið sendar út útvarpsfréttir utandyra, en aldrei sjónvarpsfréttir.“ „Það var svo glimrandi gott veður að okkur fannst sniðugt að prófa þetta. Tæknimenn fóru strax í málið og þetta gekk áfallalítið. Svo var skemmtilegt hversu margir komu til að kíkja á okkur, eftir að hafa heyrt í okkur í útvarpinu,“ segir Þór. - sgj Hádegisfréttir NFS í gær: Fréttir undir berum himni HÁDEGISFRÉTTIR NFS Hafliði Helgason og Þór Jónsson njóta veðurblíðunnar í beinni útsendingu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA UMFANGSMIKIL RANNSÓKN Lögreglan í Reykjavík hefur til rannsóknar fjögur stór fjársvika- mál þar sem þjófar hafa ráðist inn á bankareikninga fólks og millifært yfir á aðra reikninga. SVÍÞJÓÐ, AP Raðnauðgarinn Niklas Lindgren, 33 ára, fékk í gær fjórtán ára dóm fyrir þrjár nauðganir, eina tilraun til nauðgunar og eina morð- tilraun í bænum Umeå í norðurhluta Svíþjóðar. Einnig greiðir hann tæpar níu milljónir króna í miskabætur til þeirra fimm kvenna, frá 15 til 51 árs að aldri, sem hann réðst á, en árás- irnar voru á árunum 1998 til 2005. Ein nauðgunarákæra féll niður. Lindgren var kallaður „Haga- maðurinn“ af sænskum fjölmiðlum, eftir hverfinu þar sem árásirnar áttu sér stað. Rannsóknin var sú ítarlegasta sem farið hefur fram í Umeå. 2.500 manns voru yfirheyrð- ir og 777 DNA-sýni tekin. -sgj Raðnauðgari dæmdur: Hagamaður- inn fær 14 ár BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti beitti neitunar- valdi í fyrsta sinn í gær gegn lögum um að veita auknu ríkis- fjármagni til rannsókna á stofn- frumum úr fósturvísum. „Þessir drengir og stúlkur eru ekki varahlutir,“ sagði Bush á fundi í gær með foreldrum sem ættleitt hafa fósturvísa annarra para og notað þá til að eignast börn. Bush hefur setið í forsetastóln- um í fimm og hálft ár. Er Repúblikanaflokkur hans klofinn í afstöðu sinni til stofnfrumurann- sókna sem talið er að geti hjálpað sjúklingum með sjúkdóma á borð við Alzheimer og Parkinson. Til samanburðar má nefna að forveri Bush, Bill Clinton, beitti neitunarvaldi 38 sinnum og George Bush eldri 44 sinnum. - smk Stofnfrumurannsóknir: Bush beitir neitunarvaldi BUSH MEÐ BARN Barnið sem George W. Bush heldur hér á var ættleitt þegar það var frosinn fósturvísir. KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Aðkoma einkaaðila að öryggisleit á Kefla- víkurflugvelli er tímabundin ráð- stöfun sem verður endurskoðuð á haustmánuðum að sögn Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Álíta margir þetta fyrsta skrefið í átt að einka- væðingu öryggisgæslu á vellinum. Athugasemdir bárust frá eftir- litsstofnun evrópska efnahags- svæðisins í febrúar við að öryggis- leit á komufarþegum frá löndum utan ESB væri ekki fyrir hendi. Að sögn Björns þurfti að bregðast skjótt við þessum athugasemdum. „Við hefðum þurft að ráða inn 30 til 40 manns til að takast á við þessa viðbót í starfsemi sem var ekki að nást þó auglýst hafi verið eftir fólki og því snerum við okkur til einkaaðila.“ Lögreglumenn og tollverðir sem Fréttablaðið hefur rætt við telja að starfsmenn utanaðkomandi öryggis- gæslufyrirtækja hafi engan rétt til líkamsleitar á fólki og segja þeir dæmi um að karlkyns öryggisverð- ir leiti á kvenkyns farþegum, sem er ólöglegt með öllu. Björn segir að ekki hafi nein kvörtun borist vegna öryggisleitar, hvorki skrifleg né munnleg. „Öryggisleitin er alltaf undir stjórn starfsmanna flugmálastjórnar. Starfsmenn öryggisþjónustanna voru sendir á námskeið um hvernig standa eigi að öryggisleit og sinna starfinu af stakri prýði.“ - sdg VOPNALEITARSALUR Í LEIFSSTÖÐ Starfs- menn Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands sinna öryggisleit ásamt starfsmönn- um Flugmálastjórnar. Starfsmenn öryggisþjónusta sinna öryggisleit á Keflavíkurflugvelli: Aðeins tímabundin ráðstöfun Keyrt á barn Keyrt var á barn við götuna Sambyggð í Þorlákshöfn í gær. Barnið var flutt með einkabifreið á sjúkrahúsið á Selfossi en meiðsli þess reyndust minniháttar. Sauma þurfti nokkur spor vegna skurðar á fæti. Níu stöðvaðir Lögreglan í Hafnar- firði stöðvaði í gær níu ökumenn fyrir að nota ekki bílbelti við keyrslu á vegum í Hafnarfirði. Einn ökumaður var stöðvaður með útrunnið ökuskírteini. Fjöldi ökumanna hefur verið stöðvaður í bílbeltaátaki á vegum lögreglunnar. LÖGREGLUFRÉTT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.