Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 6
6 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR
Okkar þekking nýtist þér ...
Ókeypis ráðgjöf !
Sími: 440 - 1800
Komfort loftkæling
Er heitt og þungt loft á þínum
vinnustað?
www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
* Rétt hitastig og hreint loft
* Eyðir svifögnum, lykt ofl.
* Bætir heilsuna og eykur
vellíðan og afköst
starfsmanna
KJÖRKASSINN
Brást ríkisstjórnin rétt við gagn-
vart Íslendingunum í Beirút?
Já 83%
Nei 17%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að lækkun matarskatts
skili sér til neytenda?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÍBANON, AP Bandarísk og ísraelsk
stjórnvöld hafa komið sér saman
um að ísraelski herinn geti haldið
áfram árásum sínum á Líbanon,
athugasemdalaust af hálfu Banda-
ríkjanna, í um það bil eina viku í
viðbót með það markmið að valda
sem mestu tjóni á vígbúnaði Hiz-
bollah-samtakanna, að því er bæði
bandaríska dagblaðið New York
Times og breska dagblaðið
Guardian héldu fram í gær.
Að því búnu muni Condoleezza
Rice, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, halda af stað til Ísraels
og Líbanons til þess að þrýsta á
um vopnahlé. Tony Snow, tals-
maður Hvíta hússins í Washing-
ton, staðfesti það á blaðamanna-
fundi í gær að bandarísk
stjórnvöld teldu rétt að Ísrael
héldi árásunum áfram þangað til
Hizbollah-samtökin yrðu orðin
óvíg. „Vopnahlé sem myndi skilja
vígbúnað hryðjuverkamanna
eftir óskemmdan er óviðunandi,“
sagði hann.
Ísraelar héldu því fram í gær
að með loftárásunum hefði þeim
tekist að eyðileggja um það bil
helminginn af vígbúnaði Hiz-
bollah-samtakanna, að því er fram
kemur í fréttaskeyti frá AP-frétta-
stofunni. „Það tekur okkur ein-
hvern tíma að eyðileggja það sem
eftir er,“ sagði Alon Friedman,
herforingi í ísraelska landhernum,
í viðtali við útvarpsstöð Ísraels-
hers í gær.
Evrópusambandið er ósam-
mála þessu. Javier Solana, utan-
ríkismálafulltrúi Evrópusam-
bandsins, sagði í gær nauðsynlegt
að vopnahlé kæmist á sem fyrst.
Áður hafði Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, gert kröfu um að samið yrði
um vopnahlé sem allra fyrst.
Ísraelsk stjórnvöld höfðu á
þriðjudaginn sagst undir það búin
að átökin stæðu vikum saman.
Átökin, sem nú þegar hafa staðið í
rúma viku, hafa orðið um þrjú
hundruð manns að bana og um
það bil hálf milljón manna hefur
hrakist að heiman vegna þeirra.
Fuad Saniora, forsætisráð-
herra Líbanons, sagðist í gær ætla
að krefja Ísrael um skaðabætur
vegna þess tjóns sem árásirnar
hafa valdið.
„Er þetta það sem alþjóðasam-
félagið kallar rétt til sjálfs-
varnar?“ spurði hann á fundi með
erlendum sendiherrum í Líbanon.
Meðal þeirra sem hlýddu á mál
hans var sendiherra Bandaríkj-
anna.
gudsteinn@frettabladid.is
Á LEIÐ YFIR LANDAMÆRIN Ísraelskir hermenn héldu yfir landamærin til Líbanons í gær og lentu þar í hörðum átökum við liðsmenn Hiz-
bollah, sem kostuðu tvo ísraelska hermenn og einn Hizbollah-mann lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ísraelar hafa viku
til að gera árásir
Ísraelski herinn ætlar sér að eyðileggja allan vígbúnað Hizbollah áður en árás-
um á Líbanon verður hætt. Evrópuríki eru ósátt við afstöðu Bandaríkjanna.
Forsætisráðherra Líbanons ætlar að krefja Ísrael um skaðabætur.
OLÍA Úrskurðarnefnd upplýsinga-
mála hefur gert Ríkiskaupum að
afhenda forráðamönnum Atlants-
olíu niðurstöðu útboðs frá því árið
2003 vegna eldsneytiskaupa ríkis-
stofnana. Ríkiskaup hafði neitað
að láta gögnin af hendi og kærði
Atlantsolía neitunina. Gögnin
verða afhent á hádegi í dag.
Gögnin sýna verðið sem ríkið
greiðir Skeljungi og Olís fyrir
eldsneyti, olíur og rekstrarvörur á
ökutæki og vélar. Samið var til
þriggja ára og hefur samningur-
inn verið tvíframlengdur og gildir
hann til 30. apríl á næsta ári.
Úrskurðarnefndin féllst ekki á að
verð og afslættir sem ríkið greiddi
félli undir mikilvæga fjárhags- og
viðskiptahagsmuni fyrirtækj-
anna.
Albert Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Atlantsolíu, segir
að upplýsingar eigi að fullvissa
forsvarmenn fyrirtækisins um að
í þeim leynist ekki eimur frá
fornri tíð. Þar á hann við verðsam-
ráð olíufélaganna: „Þegar upphaf-
legt útboð var sett í gang 2003
voru markaðsaðstæður með
öðrum hætti en nú,“ segir Albert.
Hann segir samkeppnina hafa
aukist og að verðið bjóðist nú
lægra: „Við viljum sannreyna
hvort unnt sé að bjóða betur en
gert var fyrir þremur árum.“ - gag
Úrskurðarnefnd upplýsingamála úrskurðar Atlantsolíu í vil:
Afsláttur til ríkisins upplýstur
VIÐ FYRSTU BENSÍNSTÖÐ ATLANTSOLÍU
Framkvæmdastjórinn Albert Þór
Magnússon segir ákvörðun úrskurðar-
nefndar upplýsingamála, Atlantsolíu í vil,
sigur fyrir fyrirtækið sem og almenning.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
MENGUN Rússneski togarinn
Tsefey kom inn til Hafnarfjarðar-
hafnar á mánudag vegna vélarbil-
unar. Síðan hefur togarinn spúð
svörtum reyk án afláts yfir hafnar-
svæðið svo að svartan reykjar-
mökk hefur lagt yfir stórt svæði í
og við höfnina. Mökkurinn var
sýnilegur úr margra kílómetra
fjarlægð í gær.
Reykurinn kom úr ljósavél
skipsins, sem sér því fyrir raf-
magni. Hafnarfjarðarhöfn getur
ekki séð togaranum fyrir raf-
magni því rafkerfi skipsins er
frumstætt, eins og tilfellið er í
mörgum skipum af þessum slóð-
um. Rússarnir þurfa því yfirleitt
að sjá sér sjálfir fyrir rafmagni,
þó það heyri til undantekninga að
jafn mikil mengun hljótist af.
Íbúar í nágrenni hafnarinnar
kvörtuðu til hafnaryfirvalda yfir
megnri fýlu og sjónmengun af
völdum reyksins. „Þetta er auðvit-
að mjög bagalegt og við vonum að
gert verði við togarann með hraði
svo við losnum við hann héðan
sem fyrst,“ segir Már Sveinbjörns-
son hafnarstjóri. „Við vonuðumst
til að losna við hann í dag, en
umboðsmaður skipsins segir að
búið verði að gera við hann á
morgun og þá fari hann, sem við
vonum að standist.“
Magnús Þórarinsson, umboðs-
maður togarans, staðfesti við
blaðamann að skipið myndi fara í
dag ef allt gengur að óskum. Skip-
inu verður fyrst siglt út á ytri höfn
í prufusiglingar og ef engin vand-
ræði koma upp heldur það á miðin
í framhaldi, íbúum Hafnarfjarðar
án efa til mikillar ánægju. - æþe
Rússneskur togari í Hafnarfjarðarhöfn spúir svörtum reyk yfir bæinn:
Svart reykjarský yfir firðinum
RÚSSNESKI TOGARINN TSEFEY Reykjar-
mökkurinn frá skipinu var sýnilegur úr
nokkurra kílómetra fjarlægð.
SLYS Ríflega þrítugur svifhlífar-
stökksmaður fótbrotnaði þegar
hann brotlenti í norðurhlíð fjalls-
ins Þorbjarnar við Grindavík um
hádegisbil í gær.
Maðurinn var á ferð með föður
sínum en eftir að hafa stokkið
fram af fjallinu skellti sterk vind-
hviða honum aftur í bjargið með
þeim afleiðingum að hann fót-
brotnaði en slapp að öðru leyti
ómeiddur. Maðurinn var fluttur
með sjúkrabíl til Reykjavíkur, þar
sem hann gekkst undir skoðun.
Lögreglan í Keflavík kannast
ekki við að fallhlífar-, svifhlífar-
eða svifdrekastökk séu stunduð af
Þorbirni. - sh
Svifhlífarstökksmaður:
Skall í fjallshlíð
eftir vindhviðu