Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 8
8 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR VEISTU SVARIÐ? 1Eftir hvern er málverkið Sumar-dagur í sveit sem er verðmætasta listaverk RÚV? 2Hversu mikið var virði gullforða Seðlabankans í júní? 3Hvaða stjórnmálaflokkur fékk nýverið staðfestingu dómstóla í Hollandi á lögmæti sínu? SVÖR Á BLS. 50 KAUPMANNAHÖFN, AP Søren Esper- sen, þingmaður danska Þjóðar- flokksins, fer fram á að allir Danir sem koma heim vegna átakanna í Líbanon verði yfirheyrðir um hvort þeir hafi verið á atvinnuleysis- bótum þar eystra. Þingmaðurinn segir þetta „ein- stakt tækifæri“ til að sannreyna hvort einhverjir hinna 1.700 dönsku flóttamanna, sem margir eru af líbönskum uppruna, hafi svindlað á danska velferðarkerf- inu. Samkvæmt dönskum lögum þarf bótaþegi að tilkynna ríkinu um brottför sína úr landi og segir Espersen að tryggja þurfi að bóta- þegar séu í virkri atvinnuleit en ekki sumarfríi. Hörð viðbrög hafa verið við ummælum Espersens í Danmörku og sagði einn andstæðinga hans þau „smekklaus og tillitslaus“ og að þau vitnuðu um „skort á almennu velsæmi,“ í ljósi áfalls hinna heim- komandi. Þjóðarflokkurinn þykir neikvæður í garð innflytjenda í Danmörku, sérstaklega þeirra sem aðhyllast íslamstrú. - kóþ Þingmaður danska Þjóðarflokksins vill kanna svindl á velferðarkerfinu: Flóttamenn verði yfirheyrðir HEIMKOMAN Þessir dönsku flóttamenn lentu á Kastrup-flugvelli í vikunni og voru að vonum fegnir heimkomunni. NORDICPHOTO/AFP 1.390.000,- Bílumst! Nýr, fallegri og miklu betri Opel. ��� ����������������������������������������������������������������� ��� �������������������������������������������������������� �������������������������� ��������� ����������������������������� ��� ����� ������ ����������������� ����������������� ������������������������ ��������� ����������������� ���������� � ����� ����������� ���������������������� LEIÐANGUR Nákvæmt dýptarkort af 6.700 ferkílómetra svæði á og við Reykjaneshrygg er afrakstur leið- angurs rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar. Leiðangurinn stóð yfir í tvær vikur og var markmið hans að kortleggja með fjölgeisla- mælingum þekkt kóralsvæði, friðuð veiðisvæði og mikilvægar veiðislóðir ásamt því að afla upp- lýsinga um jarðfræði hafsbotnsins. Kortlagningin leggur grunninn að fyrirhuguðum rannsóknum á búsvæðum kórala og áhrifum svæðafriðunar á samfélög botn- dýra þar sem beitt verður fjar- stýrðum búnaði. - at Árni Friðriksson í leiðangri: Þekkt kóral- svæði kortlögð LANDHELGISGÆSLAN Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra hefur kynnt fyrir ríkisstjórn skýrslu um tillögur að framtíðarskipu- lagi þyrlubjörgunarþjónustu á Íslandi. Lagt er til að í þyrlu- björgunarsveit Landhelgisgæsl- unnar verði til frambúðar þrjár stórar og langdrægar björgunar- þyrlur auk Dauphin-þyrlunnar TF-SIF. Þær verði keyptar nýjar og Super Puma þyrla Landhelgis- gæslunnar, TF-LÍF, verði seld. Nýju þyrlurnar verða að geta flogið 300 mílur á haf út hið minnsta, geta híft 25 menn um borð og flogið til baka og þá átt varaeldsneyti til hálftíma flugs. Ekki er við því búist að unnt verði að fá þrjár nýjar þyrlur keyptar til Landhelgisgæslunn- ar fyrr en eftir 2010 og jafnvel svo seint sem árið 2015. Ástæð- an er sú að val, samningagerð, hönnun og framleiðsla er taf- samt ferli þar sem kröfur eru miklar til véla sem eiga að starfa við jafn krefjandi aðstæður og eru hér við land. Sterklega kemur til greina að samstarf verði haft við norsk stjórnvöld sem hyggjast endurnýja þyrlu- flota sinn á sama tíma og Íslend- ingar og að því fylgi nokkur sparnaður. Þrjár stórar björgunarþyrlur eru grunnstærð þyrlusveitar Landhelgisgæslu Íslands en reynslan sýnir að óvænt atvik eru algeng í rekstri slíkrar sveitar. Því er lagt til að minni þyrla gæslunn- ar, TF-SIF, verði áfram í eigu Landhelgisgæslunnar þar sem hún hentar vel til leitar- og björg- unarstarfa þar sem ekki er þörf á stærri þyrlu. Hagkvæmt er að eiga áfram litla og meðfærilega þyrlu eins og TF-SIF þar sem hún er um helmingi ódýrari í rekstri en stærri þyrlan, TF- LÍF, og getur sinnt margvíslegum eftirlitsstörf- um með minni tilkostnaði. Mælt er með að allar þyrlur Landhelgisgæslunnar verði stað- settar í Reykjavík. Hagkvæmnis- og öryggissjónarmið krefjast þess að sveitin hafi bækistöð á einum stað og að hún sé í tengslum við höfuðstöðvar Landhelgisgæslu Íslands. Hugmyndir um flutning sveitarinnar til Keflavíkur virðast því hafa verið blásnar af. Þar til nýjar þyrlur verða keyptar verður starfsgeta björg- unarsveitarinnar tryggð með leiguþyrlum. Kostnaður við kaup nýju þyrlnanna þriggja er mikill enda kostar ný sérútbúin björgun- arþyrla tæpa tvo milljarða króna. svavar@frettabladid.is Þyrlusveitin fer hvergi Rekstur þyrlubjörgunarsveitar Landhelgisgæslunnar verður tryggður með leiguþyrlum næstu árin. Kaup á þremur nýjum þyrlum geta dregist til ársins 2015. TF-SIF Dauphin-þyrlan verður áfram í eigu Landhelgisgæslunnar. Ekki hefur verið ákveðið af hvaða tegund nýju þyrlurnar verða en nokkrar koma til greina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJARAMÁL Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra segist ekki ætla að afnema núverandi vaktakerfi flug- umferðarstjóra í flugstjórnarmið- stöðinni, en Félag íslenskra flug- umferðarstjóra skoraði á hann á dögunum að fella vaktakerfið úr gildi og taka upp það kerfi sem gilti áður. „Ég tel afar mikilvægt að stjórnendur og flugumferðar- stjórar nái sam- komulagi um þetta, en niðurstöðu Félagsdóms verður ekki áfrýjað. Ég deili ekki við dómarann að því leyti,“ segir hann. Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, segist hafa heyrt af ákvörðun Sturlu en ekkert hafi verið rætt um hana innan félags- ins. „Ég er sammála því að sætt- ir eru besta lausnin á deilum en við höfum enga aðkomu að mál- inu í rauninni. Við sættum okkur ekki við stöðuna eins og hún er.“ Félagsdómur úrskurðaði nýlega að breytingar stjórnenda Flugmálastjórnar á vaktakerfi flugumferðarstjóra skyldu standa þrátt fyrir mótmæli starfsmanna. Meðal breytinga er ný skilgreining á orðinu „dagur“, en samkvæmt nýja kerfinu má vikulegt 48 klukku- stunda frí flugumferðarstjóra hefjast hvenær sem er sólar- hringsins. - sþs Samgönguráðherra um áskorun flugumferðarstjóra: Segist ekki deila við dómarann STURLA BÖÐVARSSON KÍNA, AP Efnahagur Kínverja er í örum vexti þessi misserin. Hag- vöxtur á síðasta ársfjórðungi nam 11,3 prósentum og hefur ekki verið meiri í áratug. Kínversk stjórnvöld óttast að miklar byggingarframkvæmdir og örlæti banka á lánsfé geti ýtt af stað verðbólgu. Talið er líklegt að þau bregðist við þeirri hættu með því að hækka vexti og fella geng- ið. Útflutningur hefur einnig vaxið hröðum skrefum, en verðbólga mælist þó aðeins 1,3 prósent um þessar mundir. - gb Kínversk stjórnvöld óttast verðbólgu: Hagsældin vex hratt Á REIÐHJÓLI Í SJANGHAÍ Nýjar byggingar rísa hratt í Kína um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NOREGUR Norðmenn óttast nú að fuglaflensa hafi borist inn í land- ið með ólöglegri sölu á fuglum frá Danmörku, kemur fram í frétt Aftenposten í gær. Þó ekki sé um mannskæða veiruafbrigð- ið að ræða líta Norðmenn málið afar alvarlegum augum. Nær ómögulegt er að finna alla fuglana, sem flestir voru hænsnfuglar keyptir til undan- eldis, en frá janúar fram í mars keyptu Norðmenn fugla frá Viborg í Danmörku fyrir um 750.000 íslenskar krónur. Norsk yfirvöld fara þess á leit við þá sem gætu hafa keypt fugla frá Viborg að þeir hafi samband við sig og láti aflífa fugla sína. Um tuttugu þúsund fuglar voru aflífaðir í Viborg í síðustu viku. - smk Ólögleg fuglasala vekur ugg: Norðmenn ótt- ast fuglaflensu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.