Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 16
20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Um eitt hundrað göngu-
menn leggja af stað á
laugardagsmorgun í sólar-
hringsgöngu um tinda
Glerárdals í Eyjafirði.
Gengið verður á 24 tinda á
24 klukkustundum. Fjöldi
göngumanna hefur tvöfald-
ast síðan í fyrra.
„Það er höfuðið sem skiptir
mestu máli. Fólk þarf að hafa trú
á að það komist þetta,“ segir
Ragnar Sverrisson, kaupmaður á
Akureyri, sem fer fyrir göngu-
mönnum. Líkamlegt atgervi
skiptir vitaskuld máli en ekki
öllu og það eitt og sér ræður ekki
úrslitum.
Gangan langa er talsverð þol-
raun, enda tindarnir í Glerárdal
tignarlegir. Nokkrir þeirra eru
yfir 1.400 metrar og sá hæsti −
Kerling − er 1.538 metrar. Alls
leggja þeir sem fara á alla tind-
ana um fimmtíu kílómetra að
baki.
Sérstakt félag hefur verið
stofnað utan um Glerárdalsgöng-
una og er Ragnar formaður þess.
46 tóku þátt í göngunni í fyrra og
gengu 17 á alla 24 tindana. Aðrir
fóru ekki alla leið eða slógust í
hópinn á göngunni miðri. Sama
verður uppi á teningunum að
þessu sinni, fólki er í sjálfsvald
sett hve langt það gengur og
getur notið aðstoðar björgunar-
sveitarmanna í Súlum við að
komast á milli staða. Þá verður
gengið í þremur hópum sem fara
mishratt yfir.
Ragnar segir tímann líða hratt
á göngu sem þessari. „Maður
gleymir alveg tímanum, þetta er
svo mikil áskorun og maður
hugsar bara um að komast á
næsta tind.“
Veðrið var göngumönnum
hagstætt í fyrra og segir Ragnar
spána fyrir laugardaginn góða.
Fyrir utan mat þarf fólk helst að
hafa með sér plástra enda kunna
fætur að særast þegar skrefin
eru mörg. Þá er von á góðgæti af
himnum ofan, því flugkapparnir
Arngrímur Jóhannsson, kenndur
við Atlanta, og Magnús Þor-
steinsson, kenndur við Avion,
ætla að fljúga yfir gönguleiðina
og kasta niður vatni, orkudrykkj-
um og sviðasultu.
Ragnar er fullur tilhlökkunar
enda hefur undirbúningur göng-
unnar staðið lengi. Honum er
líka enn í fersku minni hve stór-
fenglegt ferðalagið var í fyrra og
vill því óður og uppvægur
endurtaka leikinn. „Fallegast var
að standa á Kerlingu klukkan eitt
um nóttina og sjá roðann í
norðri,“ svarar Ragnar spurður
um fallegustu sýnina á leiðinni í
fyrra. Viðbúið er að sú sýn verði
ekki síðri í ár.
bjorn@frettabladid.is
ÁFRAM GAKK Gengið eftir Vindheimajökli
frá Bungu að Strýtu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓLAFUR SVERRISSON
HORFT TIL NORÐURS Ekki er aðeins gengið í Glerárdalshringnum heldur líka horft enda
útsýnið með eindæmum og fegurðin mikil. FRÉTTABLAÐIÐ/HELGI BORG
LAGT Á BRATTANN Gengið eftir fjallshryggnum sem liggur að Súlum. Bóndi, Þríklakkar og
Kerling sjást í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓLAFUR SVERRISSON
24 tindar á 24 klukkustundum
ÞÁTTTAKENDUR Í GLERÁRDALSHRINGNUM 2005 Gangan hófst við Skíðahótelið í Hlíðarfjalli
og þaðan verður einnig lagt upp í ár. 46 lögðu af stað í fyrra og 17 gengu allan hringinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HELGI BORG
GLAÐBEITTIR GÖNGUMENN Á STEINSFELLI Hér má sjá Ragnar Sverrisson, Kristján Þórisson og Valtý Hreiðarsson. Í bakgrunni eru Tröllatind-
ur, Tröllahyrna og Tröllafjall. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓLAFUR SVERRISSON
„Það er bara allt gott að frétta, eins og á að
vera á svona sólardögum. Þá reynir maður
að líta á björtu hliðarnar,“ segir Guðmund-
ur Gíslason, forstöðumaður fangelsa á
höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur er mjög
ánægður með að sólin sé loksins farin
að láta sjá sig. „Ég vona að hún verði hjá
okkur sem lengst, og veitir ekki af enda
búið að vera helst til hráslagalegt hjá okkur
það sem af er sumri.“ Hann býr þó ekki svo
vel að geta legið sæta sumardaga heima-
við því hann á ekki marga frídaga eftir.
„Ég fór í frí þegar var kuldi og fer að vinna
þegar sólin kemur,“ bætir hann við.
Aðsetur forstöðumanns fangelsa á
höfuðborgarsvæðinu er í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg og segir Guðmund-
ur að sólin skíni líka niður í garðinn við
Hegningarhúsið. „Bæði þeir sem eru í
fangelsi og þeir sem starfa við þetta
reyna að nýta sér sólina sem mest.
Við leyfum föngunum auðvitað að
njóta sólar eins og við getum.“
Í starfi hefur Guðmundur í nógu
að snúast. Hann segir að sá tími sé
löngu liðinn þegar færri fangar voru í
húsi á sumrin. „Það er alltaf nóg að
gera hérna hjá okkur og nokk-
uð stöðugt. Oft hefur
verið þannig í þessum
fangelsisbransa að
það hefur verið
rólegra á sumrin.
Mér finnst þó eins
og það gildi ekki
núna og meiri
traffík hérna en oft hefur verið,“
segir Guðmundur og bætir við
að hann telji að öll fangelsin
séu full um þessar mundir. Að
óskoðuðu máli er Guðmund-
ur ekki tilbúinn að gefa upp
líklegar ástæður fyrir því að
fleiri fangar eru nú í fangelsun-
um. Hann segir sína tilfinningu
þó vera að slíkt hljóti
að skýrast af fleiri
brotum og þyngri
dómum. „En
þetta er bara
svona óábyrgt
tal,“ bætir
Guðmundur
við.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐMUNDUR GÍSLASON, FORSTÖÐUMAÐUR FANGELSA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Fangarnir fá að njóta sólarinnar
1. Hlíðarfjall
2. Blátindur
3. Bunga
4. Strýta
5. Kista
6. Kambshnjúkur
7. Nafnlaust fjall
8. Tröllafjall
9. Tröllahyrna
10. Tröllatindur
11. Steinsfell
12. Snorragnúpur
13. Jökulborg
14. Kistufjall
15. Nafnlaust fjall
16. Stóristallur
17. Glerárdals-
hnjúkur
18. Kerling
19. Þríklakkar
20. Bóndi
21. Litli Krummi
22. Stóri Krummi
23. Syðri Súlur
24. Ytri Súlur
FJÖLLIN Í RÉTTRI RÖÐ
Vegatollur er ekkert
grín
„Við látum engan sleppa án
þess að borga.“
MARINÓ TRYGGVASON, ÖRYGG-
ISFULLTRÚI SPALAR SEM REKUR
HVALFJARÐARGÖNGIN. FRÉTTA-
BLAÐIÐ 19. JÚLÍ.
Góð vísa?
„Sólin fer að leika stærra
hlutverk í okkar lífi á næst-
unni.“
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON
VEÐURFRÆÐINGUR UM GÓÐA
VEÐRIÐ SEM ALLTAF ER ALVEG AÐ
KOMA. FRÉTTABLAÐIÐ 19. JÚLÍ.
Sorglegt
Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri
Lýðheilsustöðvar, segir hræðilegt að
heyra um stjórnmálaflokk barnaníð-
inga í Hollandi sem berst fyrir því að
kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf
ár úr sextán árum. Hollenskur dóm-
stóll neitaði á mánudaginn að banna
flokkinn á þeim grundvelli að það væri
réttur kjósenda að dæma um lögmæti
stjórnmálaflokks.
„Ofbeldi á aldrei rétt á sér og það er
sorglegt, ef satt er, að menn láti sér
detta í hug að stofna stjórnmálaflokk
sem hefur það á stefnuskrá sinni að
berjast fyrir lækkun kynlífsaldurs úr
sextán árum í tólf.“
Anna Elísabet segir að börn séu langt
frá því að hafa tekið út andlegan eða
líkamlegan þroska sinn tólf ára og
efnið því stórfurðulegt baráttumál hjá
stjórnmálaflokki. „Enda virðast vera
á ferð menn sem eiga yfir höfði sér
ásakanir og jafnvel dóma um kynferðis-
ofbeldi.
Niðurstaða dómstólsins sem neitaði
að banna stjórnmálaflokkinn er
einkennileg og ekki til þess fallin að
vernda börn.“
SJÓNARHÓLL
FLOKKUR NÍÐINGA Í HOLLANDI
ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
FORSTJÓRI LÝÐHEILSUSTÖÐVAR