Fréttablaðið - 20.07.2006, Side 31

Fréttablaðið - 20.07.2006, Side 31
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 5 Simpson í bleiku ASHLEE SIMPSON ER NÝTT ANDLIT VICTORIA‘S SECRET. Ashlee Simpson er nýtt andlit nærfatarisans Victoria’s Secret. Þessi 21 árs söng- kona verður andlit nýrrar línu hjá fyr- irtækinu sem ber hið einfalda nafn Pink, eða bleikt. Margir sóttust eftir þessu starfi og sló Simpson meðal annars Idol-stjörnuna Kelly Clarkson út en fyr- irtækið leitaði einmitt að ungri stjörnu til að kynna línuna. - lkg nærfatatíska } Simpson hefur verið að gera það gott í tónlistarbransanum vestanhafs. Aftur til fortíðar SUMARLÍNAN Í ÁR FRÁ TOM FORD - ESTÉE LAUDER HEITIR AZURÉE, EN MEÐ HENNI LEITAR TOM FORD Í FORTÍÐ ESTÉE LAUDER. Azurée var upprunalega ilmur sem kom á markað hjá Estée Lauder árið 1969. Nýja azurée-línan inniheldur hins vegar þrjár mismunandi förð- unarlínur; azurée, cap bronzée og st. tropée, ásamt líkamsvörum. Blái liturinn ræður ríkjum í umbúð- um en í línunum er lögð áhersla á hlutlausar varir, léttan kinnalit og „smoky“ augnmálningu. Nýtt frá MAC BLEIKAR VARIR OG STERKIR AUGN- LITIR Nýju litirnir frá MAC eru svo sannarlega sumar- legir. Varirnar eiga að vera létt bleikar á móti augnskuggum í sterkum litum eins og grænum, fjólubláum og svörtum. Brons er áferð sem er áberandi í línunni og ætti hver kona að finna eitthvað við sitt hæfi í fjölbreyttu litaúrvalinu. - lkg snyrtivörur } Pedro Lourenco hefur haldið sjö tískusýningar þrátt fyrir ungan aldur. Foreldrar hans eru báðir brasilískir hönnuðir. Hinn 16 ára gamli Pedro Lourenco sýndi nýjustu vor- og sumarlínu sína á tískuvikunni í Sao Paulo og var það í sjöunda skiptið sem hann hélt tískusýningu. Pedro var aðeins 12 ára þegar hann sýndi föt sín í fyrsta skiptið en hann hefur hannað föt frá fjögurra ára aldri. Þessi ungi hönnuður á ekki langt að sækja hæfileika sína. Foreldr- ar hans eru brasilísku hönnuðirn- ir Renaldo Lourenco og Gloria Coelho sem einnig sýndu hvort sína línuna á tískuvikunni í Sao Paulo. Pedro þykir hæfileikaríkur þó föt hans minni um margt á hönn- un annarra og sumum finnist frumleikann vanta. Áhugasvið Pedros liggur í hátísku og hann hefur sagt að hann hafi í hyggju að flytja til Parísar þar sem hann vonast til að geta unnið sem aðstoðarmaður í einhverju tísku- húsanna. Foreldrar hans hafa náð langt í Sao Paulo en hafa ekki leit- að mikið út fyrir landsteinana. „Ég vil fara frá Brasilíu. Tískan hér snýst helst um stuttermaboli og gallabuxur en ég hef áhuga á hátískunni,“ sagði hann. 16 ára hönnuður Sumartíska Pedros Lourenco árið 2006. ÚTSALA ÚTSALA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.