Fréttablaðið - 20.07.2006, Side 33

Fréttablaðið - 20.07.2006, Side 33
FIMMTUDAGUR 20. júlí 2006 Epal með í flugið NÚ GEFST ÞEIM SEM FERÐAST UM LEIFSSTÖÐ KOSTUR Á AÐ KAUPA NORRÆNA HÖNNUN Í NÝRRI VERSLUN EPAL SEM ÞAR HEFUR VERIÐ OPNUÐ. Epal Design er ný verslun í brottfar- arsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þar eru á boðstólum nytjahlutir frá virtum framleið- endum sem flestir eru norrænir, svo sem Georg Jensen, Rosendahl, Stelton, Marimekko, Piet Hein, iittala, Woodnotes, Scanwood, Vipp og Norman, auk 20-30 íslenskra listiðnaðarmanna og hönnuða. Allt eru þetta hlutir sem auðvelt er að taka með sér í flugið. Ætlunin er að í Epal Design verði alltaf eitthvað nýtt að sjá og að munir eftir æ fleiri listamenn bæt- ist í hóp þeirra sem fyrir eru. Innrétting- arnar í versluninni eru hvítar hillur frá danska fyrirtæk- inu Montana. Inn í þær er felld ljósmynd og áformað er að skipta reglulega um mynd. Sú fyrsta er af Vestmannaeyja- gosinu 1973 eftir ljósmyndarann Emil Þór Sigurðsson. Kaffikanna frá Stelton. Marimekko diskamottur. Epal í Leifsstöð Ekki gleyma blómunum ÞAÐ ÞARF AÐ ÞRÍFA POTTA- PLÖNTURNAR EINS OG ANNAÐ Á HEIMILINU. Rykið sem sest í allar glufur á heimilinu sest einnig á pottaplönt- urnar. Það er gaman að hafa falleg blóm inni hjá sér en um leið og þau fara að safna ryki missa þau sjarmann og verða gróðrarstía fyrir alls kyns óhreinindi. Best er að gefa sér góðan tíma í að þurrka af blómunum og strjúka af hverju blaði með rökum og volgum klút. Til að ná fram gljáa er gott að setja nokkra dropa af undanrennu út í volgt vatnið. Ekki gleyma að þvo þá hlið laufblaðanna sem snýr niður. Ef blómið er virkilega skítugt má stinga því inn í sturtuklefann og úða á það með volgu vatni. Þegar sumarið er jafn þungbú- ið og það hefur verið á höfuð- borgarsvæðinu er ekki úr vegi að lýsa aðeins upp tilveruna. Þó svo sumarið sé í hámarki hafa löngu björtu sumarkvöldin á höf- uðborgarsvæðinu verið heldur dimmari en síðustu árin enda leyn- ast þau fyrir ofan skýin. Til að lýsa upp tilveruna er því ekki úr vegi að taka vel á móti gestum sínum með ljúfri birtu við útidyrnar. Þótt útiljós séu meira notuð yfir vetrartímann skiptir ekki öllu hvort þau eru sett upp að sumri eða vetri. Vilji fólk spara rafmagnsútgjöldin má líka nota útikerti, olíulampa eða skemmti- lega kyndla sem stungið er niður í jörðina. Einnig mætti nota hálf- brunnin kerti sem sett eru í glerk- rúsir sem lýsa þá upp nánasta umhverfi sitt á blíðviðriskvöldum. Líflegt sumarljós Fallegir útikyndlar sem fást í versluninni Ljósin í bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Á sumrin eiga ungir sem aldnir það til að eyða meiri tíma úti í garði en innanhúss. Því er gott ráð að koma fyrir ruslafötu á veröndinni eða pallinum. Hana má festa á vegg eða hreinlega hafa færanlega. Þá þarf ekki að tipla inn á skítugum skónum til að koma til dæmis bananahýðinu á réttan stað eftir að bananinn er kominn ofan í maga. sniðug lausn } útiruslafata

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.