Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 34
[ ]
Í versluninni Iljaskinni á Háa-
leitisbraut 58-60 er úrval af
skóm fyrir viðkvæma fætur.
„Við reynum að velja góða skó sem
eru líka fyrir augað. Aðalatriðið er
þó að þeir séu fótvænir,“ segja eig-
endur Iljaskinns, hjónin Júlíus
Arinbjarnarson og Helga Stefáns-
dóttir. Helga er löggiltur fótaað-
gerðafræðingur og rekur stofu
ásamt Ósk Óskarsdóttur á hæðinni
fyrir ofan búðina en veitir ráðgjöf í
Iljaskinni frá 15-18 á fimmtudög-
um og einnig á laugardögum þegar
búðin er opin. „Það er hægt að gera
svo margt til að leiðrétta álag.
Getur verið nóg að breyta sóla með
því að setja inn í hann tábergspúða
eða stuðning fyrir hælinn,“ segir
hún. „Það er líka gaman að geta
hjálpað fólki að velja hentuga
skó.“
Júlíus tekur undir þau orð og segir
algengt að fólk festist í númerum
og átti sig ekki á að fæturnir breyt-
ist með aldrinum. „Við mælum
fætur og athugum stærðirnar. Fót-
urinn á ekki að ná alveg fram í tá
heldur á að vera nokkurra milli-
metra loftrúm,“ segir hann og
bætir við brosandi. „Það þarf að
hjólastilla bílinn og þannig er það
með skótauið líka.“
Þau Helga og Júlíus eru búin að
eiga Iljaskinn í sex ár. Þar selja
þau sjúkrasokka, fótakrem og inn-
legg, auk skótaus bæði fyrir óvenju
viðkvæma og almenning. „Okkur
langaði að vera með eitthvað virki-
lega gott á fæturna og bjóða upp á
ráðgjöf. Fótavandamál eru svo
algeng og öll óþægindi frá þeim
vilja leita upp í ökkla, hné, mjaðm-
ir og bak,“ segir Helga. „Það er
talið að 90 prósent fótmeina séu til-
komin vegna þess að skórinn pass-
ar ekki á fótinn. Þetta má nefnilega
engu muna. Ef skórinn er aðeins of
stuttur eða of þröngur þá klemmir
hann taugar, æðar og vöðva og
heftir liðhreyfingu í táberginu. Það
leiðir til þess að tábergið sígur.“ Í
framhaldinu sýnir Júlíus skó
með mjúku og eftirgef-
anlegu efni ofan á rist-
inni, fyrir þá sem eru
komnir með krepptar
tær af gigt eða öðru. Einn-
ig skó fyrir breiða fætur, í K-breidd
og M-breidd. „Ef M-breiddin dugar
ekki þarf að sérsmíða,“ upplýsir
hann. Skórnir eru aðallega frá
Þýskalandi, Danmörku og Spáni
og þau hjón segjast vanda
valið. Þau telja orðið „heilsu“
vera ofnotað í auglýsing-
um og segja slæmt
þegar seldir eru
svokallaðir
heilsuskór án
þess að gæðamat
sé þar á bak við.
gun@frettabladid.is
Skór úr mjúku leðri,
með grænu innleggi
og uppfylltum hæl.
Verð 11.490.
Fótvænir skór sem eru
einnig fyrir augað
Eðal Green Comford
skór með svokölluðum veltisóla.
Gefur þrýsting á iljarnar og lagar
sig að fætinum. Verð 12.490
Helga og Júlíus mæla fætur fólks ef með þarf og athuga hvaða skóstærð hentar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Herraskór
úr mjúku
leðri og með
frönskum renni-
lás. Verð 9.990.Þessi gefur gott pláss fyrir
tærnar. Parið er á
9.990.
Franski rennilásinn á þess-
um Green Comford-sandala
gefur möguleika á breikkun.
Parið kostar 10.890.
Það er ekki bara smart og kvikmyndastjörnulegt
að vera með sólgleraugu - það er líka gott fyrir augun að fá
vörn fyrir sterkri sólinni.
Sa
m
kv
. d
ag
bó
ka
rk
ön
nu
n
G
al
lu
p
ap
rí
l 2
00
6.
Auglýsingasími: 550 5000