Fréttablaðið - 20.07.2006, Side 58
20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR38
bio@frettabladid.is
Hetjudáðir í kvikmyndum
eru oftast drýgðar af karl-
mönnum. Þeir bjarga fögr-
um konum úr klóm illmenna
og kvænast þeim í sögulok.
Indiana Jones, James Bond
og Luke Skywalker hafa
oftar en ekki bjargað veröld-
inni frá brjáluðum nasistum,
geðsjúkum glæpamönnum
eða sjálfum Svarthöfða.
Öðru hverju spretta þó upp
kvenhetjur sem eru engu
síðri en hinir byssuglöðu
karlar.
Kannski var Kleópatra ein fyrsta
kvenhetja hvíta tjaldsins. Elizabeth
Taylor blómstraði í hlut-
verki hinnar egypsku
prinsessu sem lét sitt
ekki eftir liggja í
ráðabruggi Róm-
verja. Þrátt fyrir að
Kleópatra hafi ekki
lyft sverði í mynd-
inni stjórnaði hún
hersveitum sínum
og var meira en
bara einhver
postulínsdúkka
sem beið eftir
prinsinum á
hvíta hestinum.
Konur eru
yfirleitt í hlut-
verki hins vitra í
kvikmyndum.
Skemmst er að minnast
Véfréttarinnar í Matrix sem gat
sagt fyrir með ógurlegri nákvæmni
hvað ætti eftir að eiga sér stað. Kon-
urnar draga ekki upp byssurnar
heldur segja körlunum frekar hvern
á að skjóta. Hetjur okkar í Íslend-
ingasögunum þekkja þetta kannski
manna best þar sem konurnar sættu
sig ekki við neinn heigulshátt þegar
kom að því að hefna fyrir kinnhesta
eða sæti í brúðkaupum.
Hefndin hefur löngum verið eitt
af aðalsmerkjum karla, sem hika
ekki við að borga óvini sínum til
baka í margfaldri mynd. Fátt er
hins vegar jafn hættulegt og kona í
hefndarhug, eins og óvinir Beatrix
Kiddo komust svo eftirminnilega að
raun um í Kill Bill.
Hin morðóða brúður hefði þó
varla ratað inn í kvikmyndahús
Hollywood-borgar ef ekki hefði
verið fyrir Ripley í Alien-myndun-
um. Sigourney Weaver náði þar að
sannfæra heimsbyggðina um að
konur gætu líka bjargað körlum
þótt í flestum tilvikum væri því
öfugt farið. Ripley var mikið hörku-
tól sem kallaði ekki allt ömmu sína
og lét meðal annars nokkra „one-
linera“ fjúka þegar lífið var murkað
úr hinum óvinveittu gestum.
Þótt konur eigi vissulega undir
högg að sækja á hetjumarkaðnum í
kvikmyndum hafa kvikmyndafram-
leiðendur áttað sig á því að hetjan
þarf ekki alltaf að hafa skegg og
stutt hár, eða svo vitnað sé til Jean
Luc Godard: „Það eina sem þarf í
kvikmynd er kona með
byssu.“
- fgg
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Sendu SMS skeytið JA VOF
á númerið 1900 og þú gætir
unnið miða fyrir tvo.
Aðavinningur er:
PlayStation 2 tölva, tveir bíómiðar og
Over the Hedge leikurinn!
Aukavinningar eru: Bíómiðar fyrir tvo
Over the Hedge tölvuleikur
DVD myndir · Tölvuleikir · Varningur tengdur
myndinni og margt fleira!
Sjóræningjarnir í Karíbahafinu
halda áfram að láta gamminn
geisa vestanhafs. Dead Man’s
Chest er nú orðin aðsóknarmesta
kvikmyndin í sumar samkvæmt
imdb.com en hún hefur halað inn
258 milljónir eftir hálfan mánuð í
sýningu. Kvikmyndin var aftur í
efsta sætinu þessa vikuna og því
ljóst að framleiðandinn Jerry
Bruckheimer og Disney hafa enn
og aftur veðjað á réttan hest. Þau
Johnny Depp, Keira Knightley og
Orlando Bloom eru sem fyrr í
aðalhlutverkum en að þessu sinni
berjast þau við sæskrímsli sem
telja sig eiga rétt á sálu Jack
Sparrow.
Reyndar skyggir slæm útkoma
Disney-fyrirtækisins á þessar góðu
fréttir en fyrirtækið neyddist til að
segja upp fjölda starfsmanna vegna
slæmrar útkomu. Samkvæmt tals-
manni Disney, Lowell Singer, er
ekki búist við því að hlutabréfin
hækki neitt að ráði á næstu tólf
mánuðum. Ástæða þess er sögð að
sjónvarpsstöð Disney, ABC, á í
miklum fjárhagsörðugleikum auk
þess sem lagt var út í mikinn kostn-
að vegna samninga við NFL-deild-
ina auk NASCAR-kappakstursins.
Sjóræningjar mala gull
JACK SPARROW Kemst í hann krappan þegar sæskrímsli krefja hann um sálina.
Fuck you and your self-
righteous code of the goddamn
streets. Did it pull you out of a
30 year stint in only 5 years?
No, it didn’t, I did. Did it get
you acquitted 4 fucking times?
No, it didn’t, I did, so fuck you,
fuck the streets, your whole
goddamn world is this big, and
there’s only one rule, you save
your own ass.
David Kleinfield útskýrir fyrir Carlito í Carlito’s Way
hvernig heimurinn hafi breyst á meðan hann sat í
grjótinu. Sean Penn eins og hann gerist bestur.
Kvenhetjur hvíta tjaldsins
NÝ GERÐ AF HETJU
Einhver vinsælasta
tölvuleikjapersóna
heims er kven-
skörungurinn Lara
Croft en Angel-
ina Jolie hefur
túlkað þessa
nýju hetju.
MAY DAY Grace
Jones reyndist
ekki vera neitt
síðri en James
Bond í A
View to a Kill.
Hún bjargaði
leyniþjónustu-
manninum frá
bráðum bana
í lokin.
BAUÐ GEIMVERUNUM BIRGINN
Ripley var alvöru kvenhasarhetja,
barðist með
kjafti og
klóm við
geimver-
urnar og lét
nokkra fimm-
aurabrand-
ara fjúka í
leiðinni.
ASNALEG EÐA ALVÖRU
HETJA?
Jane Fonda var ef til vill
fyrsta kven-hasarhetjan í
kvikmyndinni Barbarella
sem í dag er orðin
hálfgerð költmynd.
SARAH CONNOR
Linda Hamilton lyfti lóðum og æfði
sig með skotvopn fyrir kvikmynd-
ina Terminator 2 þar sem hún var
hálfpartinn í hlutverki hryðjuverka-
manns sem hugðist eyða líftækni-
fyrirtæki.
KLÁR VAMPÍRA
Kate Beckinsale reif upp
byssurnar og barðist við var-
úlfa í kvikmyndinni Under-
world. Myndin var kannski
ekki góð en Beckinsale var
sönn hasarhetja.
HEFNDIN ER SÆT Beatrix Kiddo fékk sér sverð og hjó mann og annan í miklu morðæði.
KATTARKONAN Því miður tókst Halle Berry ekki að
feta í fótspor Michelle Pfeiffer sem Kattarkonan en
í myndinni voru hetjan og skúrkurinn konur.
ÓVÆNT FORTÍÐ
Samantha Caine kunni
að kasta hnífum og
skjóta af byssu en vissi
samt ekki hvernig stóð
á því. Í ljós kom að hún
var leigumorðingi sem
hafði misst minnið.
Eftirlætis kvikmynd: Edward Scissorhands.
Hrikalega góð saga, vel leikstýrð og flott leikin.
Eftirminnilegasta atriðið: „Luke, I am your
father,“ er ógleymanlegt atriði úr Stjörnustríðs-
bálkinum. Dýralífsatriðið í UHF með ‘Weird Al’
Yankovic var líka mjög skemmtilegt.
Uppáhaldsleikstjóri: Tim Burton, aldrei spurn-
ing, en Coen-bræðurnir koma fast á hæla hans.
Mesta hetja hvíta tjaldsins: Hellboy sem Ron
Perlman gerði ódauðleg skil í samnefndri
kvikmynd. Svarthöfði drap náttúrlega keisarann
og fær prik fyrir það.
Mesti skúrkurinn: Bill í Kill Bill-myndunum
sem var alveg svívirðilega vondur. Vondi gæinn
úr Wolf Creek var náttúrlega viðbjóðslegur og
svo litla stelpan í The Ring. Hef aldrei getað
litið litlar stelpur með svart hár sömu augum.
Hvaða persóna fer mest í taugarnar á þér?
Jar Jar Binks úr fyrstu Stjörnustríðsmyndinni.
Hann er algjör viðbjóður og hatur mitt á
þeirri persónu er nánast ótæmandi.
Ef þú fengir að velja kvikmynd til að leika í,
leikstjóra og mótleikara, hvernig mynd yrði
það? Tim Burton myndi leikstýra og George
Lucas framleiða. Bruce Willis léki á móti mér
en hún myndi gerast í Vestmannaeyjum og
yrði um leitina að gullna lundanum. Surtsey
yrði uppspretta hins illa þar sem við þyrftum
að berjast við dreka og ljón.
KVIKMYNDANJÖRÐUR VIKUNNAR ÞORKELL MÁNI PÉTURSSON ÚTVARPSMAÐUR
Berst við ljón og dreka í Surtsey
TIM BURTON