Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 66
46 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Heimasíða Barcelona fylgdi Eiði Smára Guðjohnsen, nýjustu stjörnu liðsins, hvert fót- mál á fyrsta degi hans hjá liðinu. Eiður Smári æfði með liðinu í fyrsta skipti í fyrradag en hann var vakinn klukkan 7.45 og sóttur hálftíma síðar á hótelið þar sem hann dvelur. Honum var þá ekið á Nou Camp, þar sem hann gekkst undir læknisrannsóknir. „Ég hitti alla nýju liðsfélagana mína þegar ég kom í rannsóknirn- ar. Fyrsti dagur á undirbúnings- tímabilinu er mjög svipaður hjá öllum liðum, fyrir utan nokkur smáatriði. Eftir að við skiptum um föt og gerðum okkur tilbúna fyrir æfinguna fengum við okkur aðeins að borða til að ná okkur eftir rann- sóknirnar. Ég hef kynnst mismun- andi matarmenningu, þar á meðal þeirri spænsku, en í hádeginu fórum við konan mín aftur upp á hótel og fengum okkur pasta í hádegismat,“ sagði Eiður. Eftir nokkurra vikna frí kom Eiður til Barcelona í síðustu viku og viðurkenndi að viðbrigðin væru mikil. „Fyrir mann eins og mig sem er frá Íslandi er hitinn mjög mikill en ég er að venjast honum,“ sagði Eiður, sem æfði svo með lið- inu sínu. „Hjá Chelsea æfðum við aldrei fyrir framan almenning en stundum komu stuðningsmenn að horfa á æfingar hjá okkur hjá PSV,“ sagði landsliðsfyrirliðinn en almenningur getur fylgst með æfingum hjá liðinu. „Þó að ég þekki leikmennina ekki persónulega hef ég nokkrum sinnum mætt þeim undanfarin ár. Ég man vel eftir Sylvinho frá því hann lék með Arsenal og hann talar góða ensku, rétt eins og Oleguer. Sylvinho hefur hjálpað mér mikið, rétt eins og allir hinir strákarnir,“ sagði Eiður Smári, sem þegar er farinn að læra spænsku og katalónsku. Það var mjög góð tilfinning að æfa í fyrsta skipti. Það er mjög gaman að fá að æfa hjá leikvang- inum, þannig var það ekki hjá Chelsea og ég er þegar mjög hrif- inn af því hve fólk lifir fyrir fót- boltann hérna,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barce- lona. - hþh Eiður Smári nýtur lífsins fyrstu 24 klukkutímana sína hjá Evrópumeisturunum: Ég er að venjast hitanum í Barcelona FJÖR Á ÆFINGU Eiður Smári glottir á æfingu við hliðina á Frank Rijkaard, stjóra liðsins. Líklega skemmtir hann sér yfir brandara Santiago Ezquerro, sem hann lýsir sem „skemmtilegum og fyndnum.“ Greinilegt er að Eiður nýtur sín vel hjá nýja liðinu sínu. NORDICPHOTOS/AFP LEIKMAÐUR UMFERÐARINN AR LIÐ UMFERÐARINNAR Pálmi Haraldsson Ari Freyr Skúlason Eyjólfur Héðinsson Arnar Gunnlaugsson Ólafur Stígsson Kjartan Sturluson Atli Sveinn Þórarinsson Kofi Dakinah Steinþór Gíslason Marel Baldvinsson Þórður Guðjónsson 4-4-2 FÓTBOLTI Ari Freyr Skúlason er nýorðinn nítján ára gamall og hefur komið við sögu í tíu leikjum Vals í sumar. Ari skoraði sitt fyrsta mark þegar Valur vann Íslands- meistara FH í fyrsta leik 11. umferðarinnar en markið var einkar glæsilegt og tryggði Valsmönnum 2-1 sigur. Ari Freyr vinnur við að helluleggja og sleikti sól- ina úti í vinnu sinni í gær þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. „Það var ekki leiðinlegt að leggja sjálfa Íslandsmeistarana og það á þeirra eigin heimavelli. Auð- vitað var það svo sérstakt að ná að skora og það fyrir framan alla þessa áhorfendur. Þetta gat varla orðið sætara,“ sagði Ari, en 2.638 manns sáu Ara skora stórglæsilegt mark sem kom Val í 2-0 áður en FH náði að minnka muninn. „Þetta var einn af bestu leikj- unum mínum í sumar og það er alltaf gaman að skora fyrsta mark- ið sitt. Guðmundur Benediktsson sendi boltann á mig, ég lagði bolt- ann fyrir mig, lét vaða á markið og vonaði svo bara það besta,“ sagði Ari. sem fagnaði markinu vel og innilega. „Ég fékk tækifæri í byrjunar- liðinu og varð að nýta það, ég held að það hafi tekist. Þetta kemur með gríðarlegt sjálfstraust inn í liðið okkar og sýnir öðrum að FH er ekkert ósigrandi. FH- ingarnir voru kokhraust- ir fyrir leikinn eins og þeir hafa verið allt tíma- bilið en það var gaman að lækka aðeins í þeim rostann. Þetta skaut þeim kannski aðeins niður á jörðina,“ sagði Ari léttur í bragði. Fimmtán ára gamall fór Ari út til Hollands á vit ævintýranna og gekk í raðir Heerenveen. Hann kom svo aftur heim fyrir sumarið eftir að samningur hans rann út en Ari ber Hollandi vel söguna. „Það var alveg frábært úti, ég æfði fyrst með U-17 ára liðinu og var svo með U-19 ára liðinu og varaliðinu. Þeir eru með þriðju bestu akademíuna í Hollandi, á eftir Ajax og Feyenoord, og ég bætti mig mikið sem leikmaður, sérstaklega tæknina og slíkt. Ég fékk að ráða hvort ég yrði í her- bergi eða hjá einstæðri móður og vera þar með öðrum leikmanni. Ég valdi síðari kostinn enda var ég ungur og hún reyndist mér frá- bærlega. Ég er enn í sambandi við hana og hún er nánast eins og mamma númer tvö,“ sagði Ari þegar hann rifjaði upp góðar minningar frá Hol- landi en hann sneri heim í fyrra og er að spila sitt fyrsta tímabil á Íslandi. „Ég gæti svo sannarlega hugsað mér að fara aftur út og ég stefni á það. Ég veit ekki hversu lengi ég verð hérna heima en ef það gefst tækifæri reyni ég að nýta mér það. Ég get líka vel hugsað mér að vera áfram hérna heima og næla mér í dýrmæta reynslu hér og venjast íslenska boltanum betur. Það er dýrmætt að fá alla þessa reynslu, sér í lagi þegar maður er með læri- meistara eins og Gumma Ben, það gerist ekki betra,“ sagði Ari Freyr, sem veit vel hvert hugurinn liggur. „Draumurinn er að fara til Eng- lands. Liverpool er mitt uppáhalds- lið en það færi auðvitað eftir því hvaða lið kæmu til sögunnar. Helst vildi ég fara þar sem er góð aka- demía og besti kosturinn er fyrir mig,“ sagði þessi efnilegi leikmað- ur sem á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands, en hann stefnir á að komast aftur út. „Það er það sem allir ungir knattspyrnumenn ætla sér, atvinnumennskudraumurinn blundar í okkur öllum og ég er ekkert öðruvísi. Það er gaman að sjá stráka eins og Rúrik Gíslason og Bjarna Þór Viðarsson. Ef hug- urinn er til staðar getur maður gert það sem maður vill,“ sagði Ari Freyr Skúlason, einn efnileg- asti leikmaður Landsbankadeildar karla. hjalti@frettabladid.is Ánægður að lækka rostann í FH Valsarinn Ari Freyr Skúlason hefur verið valinn leikmaður 11. umferðar af Fréttablaðinu. Ari átti stórleik gegn Íslandsmeisturum FH og skoraði annað marka Valsara, sem urðu fyrstir til að leggja FH að velli í sumar. EFNILEGUR Ari Freyr er hér í leik með Valsmönnum í sumar en hann hefur komið við sögu í tíu leikjum Vals í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR FÓTBOLTI Valsarinn ungi Ari Freyr Skúlason, leikmaður 11. umferðar hjá Fréttablaðinu, er á leiðinni á reynslu hjá sænska liðinu IFK Gautaborg. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Ara, sagði við Fréttablaðið í gær að Valsarar væru að reyna að finna tíma fyrir Ara í samráði við IFK. Ólafur sagði jafnframt að fleiri lið í Svíþjóð og Danmörku hefðu talað við sig og sýnt Ara Frey áhuga. Leikmaðurinn sjálfur segir í viðtalinu hér til hliðar við Frétta- blaðið að hann dreymi um atvinnu- mennskuna og vonist til að eitt- hvað spennandi komi upp. Hlutirnir voru ekki lengi að gerast og líklegt er að Ari fari til reynslu hjá fleiri félögum á næstunni. „Það var eitthvað verið að fylgj- ast með mér á Bröndby-leiknum en ég veit ekki hvað kemur út úr því, vonandi verður það eitthvað spennandi,“ sagði Ari. - hþh Ari Freyr Skúlason: Á leiðinni til Gautaborgar ARI FREYR Í leik með Val gegn Blikum í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Jóhannes Valgeirsson knattspyrnu- dómari lenti í kröppum dansi er hann dæmdi leik Grindavíkur og Fylkis í fyrra- kvöld en þegar 25 mínútur voru liðnar af leiknum kenndi hann sér meins aftan á læri og ljóst að hann hefði tognað. „Ég var stífur fyrir leikinn og hélt fyrst að þetta væri bara þreyta en það kom í ljós að þetta var eitthvað meira. En ég tognaði aðeins lítillega og verð vonandi klár eftir nokkra daga. Það er eins gott því ég á að dæma Evrópuleik á næsta fimmtudag,“ sagði Jóhannes. Enginn varadómari var á leiknum og þurfti að kalla til Magnús Þórisson sem var staddur í Reykjavík. Jóhannes kláraði því fyrri hálfleikinn draghaltur og sár- kvalinn. „Ég hef aldrei lent í öðru eins. Einbeitingin var ekki mikil enda þurfti ég að passa mig að gera ekki meiðslin verri.“ Jóhannes segir dómara hafa í nokkur ár beðið KSÍ að vera með varadómara á öllum leikjum, ekki einungis sjónvarps- leikjum og í nokkrum leikjum í síðustu umferð- um mótsins. „Það myndi auðvelda starf okkar allra verulega,“ sagði Jóhannes. „Ef við hefðum verið í Vestmannaeyjum hefði sennilega þurft að blása leikinn af.“ Halldór B. Jónsson, formaður dómaranefndar KSÍ, segir að málið hafi oft verið rætt og það sé á dagskrá KSÍ í vetur að ræða það enn frekar. „Það er ekki ólíklegt að fjórði dómarinn verði á öllum leikjum í efstu deild í framtíðinni en það hafa ekki enn verið teknar neinar ákvarðanir um það. Það er margt sem þarf að athuga eins og hvort að kostnaður við fjórða dómarann sé réttlæt- anlegur.“ En Halldór segir að aðstæður líkar þeim sem komu upp í Grindavík séu afar viðkvæmar. „Þetta er vissu- lega skipulags- atriði og mikið álitamál.“ JÓHANNES VALGEIRSSON: DÆMDI LEIK SÁRKVALINN OG DRAGHALTUR Viljum hafa varadómara á öllum leikjum > Garðar til Svíþjóðar? Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugs- son hefur hafið viðræður við félagið Norrköping sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, staðfesti þetta við Fréttablaðið í gær og sagði að félagið stæði ekki í vegi fyrir leikmönnum sem vildu komast til útlanda að spila. Ekki er ljóst hvenær eða hvort Garðar hættir hjá Valsmönnum og heldur utan en ljóst er að það verður mikill missir fyrir Val ef Garðar fer enda er hann markahæsti leikmaður liðsins í Landsbankadeild- inni. Þá hefur hann raðað inn mörkum fyrir félagið í bikarkeppninni í gegnum tíðina. FÓTBOLTI Spænska stórveldið Real Madrid tilkynnti í gærkvöldi að það hefði fest kaup á brasilíska lands- liðsmanninum Emerson og ítalska landsliðsfyrirliðanum Fabio Canna- varo. Báðir koma þeir því aftur til Fabio Capello, sem þjálfaði Juventus áður en hann tók við Real Madrid, en kaupverðið á þeim kumpánum er samtals 13,7 milljónir punda. „Real Madrid getur staðfest að félagið hefur komist að samkomu- lagi við Juventus vegna kaupanna á Fabio Cannavaro og Emerson. Báðir leikmennirnir eru í fríi en verða kynntir á Bernabeu-leikvanginum þegar þeir skrifa undir samninga sína,“ sagði í yfirlýsingu frá Real Madrid í gær en báðir gerðu þeir tveggja ára samning með mögu- leika á framlengingu um eitt ár. Þeir eru fyrstu leikmennirnir til að yfirgefa Juventus eftir að félagið var dæmt niður í ítölsku B-deildina en mjög líklegt verður að teljast að fleiri fylgi í kjölfarið á næstunni. - hþh Real Madrid: Kaupa Emerson og Cannavaro KA og Þór að sameinast Rúnar Sigtryggsson og Sævar Árnason munu að öllum líkindum þjálfa sam- einað liðs Þórs og KA í DHL-deild karla í handbolta næsta vetur undir nafninu Akureyri - Handboltafélag. Aðeins á eftir að ganga frá örfáum smáatriðum en verið er að hanna nýjan búning fyrir liðið sem verður í efri deildinni og leikur heimaleiki sína í KA-heimilinu. CANNAVARO Kyssir hér sjálfan heimsmeist- aratitilinn í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.