Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 70

Fréttablaðið - 20.07.2006, Síða 70
 20. júlí 2006 FIMMTUDAGUR50 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 glaðningur 6 mannþvaga 8 fiskur 9 stormur 11 hætta 12 minnispunktur 14 traðka 16 í röð 17 almætti 18 utan 20 guð 21 faðmlag. LÓÐRÉTT 1 ófá 3 samþykki 4 fullur 5 hamfletta 7 svangur 10 sönghópur 13 dæling 15 hástétt 16 töf 19 núna. [ VEISTU SVARIÐ? ] Svör við spurningum á blaðsíðu 8. 1. Gunnlaug Scheving. 2. Rúmlega þrír milljarðar krónar. 3. Flokkur barnaníðinga. LAUSN LÁRÉTT: 2 gjöf, 6 ös, 8 áll, 9 rok, 11 vá, 12 glósa, 14 troða, 16 hi, 17 guð, 18 inn, 20 ra, 21 knús. LÓÐRÉTT: 1 mörg, 3 já, 4 ölvaður, 5 flá, 7 soltinn, 10 kór, 13 sog, 15 aðal, 16 hik, 19 nú. opið alla laugardaga 11-14 Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA, VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA Á grillið! Nýr humar, lúða, sólþurrkaður saltfi skur, skötuselur og keila. *Gallup Október 2005 Mest lesna tímaritið * „Þetta verður hasarmynd í anda Speed og Twister, mynd eins og hann er þekktur fyrir að gera,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason, sem ráðinn hefur verið til starfa við næstu kvikmynd leikstjórans Jan de Bont. Jan de Bont er kunnur hasar- myndaleikstjóri og þekktustu myndir hans eru áðurnefndar Speed og Twister auk fyrstu Tomb Raider-myndarinnar. De Bont hóf feril sinn sem kvikmyndatökumað- ur og þekktustu myndir hans á þeim vettvangi eru Die Hard, Basic Instinct og Lethal Weapon 3. Óttar hefur unnið mikið með de Bont síðustu tvö ár við gerð aug- lýsinga. „Við höfum gert aragrúa af auglýsingum. Síðast vorum við að klára Citröen-auglýsingu með Sean Connery í aðalhlutverkinu,“ segir Óttar. Kvikmyndin sem Óttar mun taka upp heitir Stopping Power og er bandarísk framleiðsla þó að upptökur fari fram í Berlín. Aðspurður segir Óttar að til- kynnt verði um val á leik- urum á næstu vikum, fjögur þekkt nöfn verða í aðalhlut- verkunum en aukahlut- verkin skipa Þjóðverjar og aðrir Evrópubú- ar. „Þetta leggst auðvitað mjög vel í mig enda er það frá- bært tæki- færi að fá að taka þátt í mynd af þessari stærðargráðu. Þarna stíg- ur maður með aðra löppina inn í þennan Hollywood-heim, hvað sem svo gerist,“ segir Óttar. Undirbún- ingur fyrir tökurnar hefst í byrjun ágústmánaðar og stendur í fimm vikur. Sjálfar tökurnar hefjast svo 13. september og klárast í lok nóv- ember að sögn Óttars. Hann veit ekki hvað tekur við hjá sér eftir það. „Þetta er eins langt og maður sér fram í tímann í mínum heimi. Ég býst við því að fara aftur í aug- lýsingarnar eftir þetta. Hins vegar er því ekki að neita að þessi mynd gæti verið vísbending um fleiri störf úti. Maður er í það minnsta strax byrjaður að finna fyrir smá „fídbakki“ frá Hollywood,“ segir Óttar, sem hefur eytt síðustu tveim vikum í að helluleggja við hús sem hann var að byggja sér í Garðabæ. „Það hefur verið fínt að vinna við húsið til að hreinsa hugann. Nú getur maður aftur farið að snúa sér að bíópælingunum.“ hdm@frettabladid.is ÓTTAR GUÐNASON: RÁÐINN TÖKUMAÐUR Í NÆSTU MYND JAN DE BONT Tekur upp Hollywood- hasarmynd í Berlín „Fyrir nokkrum árum leigðum við vespu á Kanarí og keyrðum þá hringinn um eyjuna og þótti mjög gaman. Þannig má eigin- lega segja að þessi hugmynd sé til komin,“ segir Jón Jóns- son, sem opnað hefur vespu- leigu á Stokkseyri ásamt eiginkonu sinni Elsu Kol- brúnu Gunnþórsdóttur. Hjónin hafa í sjö ár séð um rekstur Shell-skálans á Stokkseyri og í tvö ár rekstur Shell-skál- ans á Þorlákshöfn. Margir Íslendingar hafa, eins og þau hjónin, nýtt sér vespur á ferðalögum erlendis en Jón segir að þær henti ekki síður á Íslandi, ekki síst á Suðurlandi þar sem mikið er um flatlendi. „Þetta er mjög skemmtilegur ferðamáti og einfalt að keyra. Vesp- urnar eru án gíra og því er bara gefið í og þannig er mjög auð- velt fyrir alla að keyra þær. Þetta eru ekki mjög öflug tæki en komast þó upp í 70 km hraða. Svo er líka alveg hægt að keyra vespurnar þó vegirnir séu blautir því menn eru með fæturna á bak við hlíf á meðan maður fær gusurnar beint á lappirnar á mótorhjóli,“ segir Jón, sem býst við því að hinn íslenski ferðamaður verði dugleg- ur að nýta sér þennan nýja ferða- möguleika. Til að byrja með munu hjónin bjóða upp á fimm 50cc vespur af gerðinni Zip sem er amerískt merki og eru þær leigðar í lág- mark tvær klukkustundir í senn. „Það er afar stutt í ýmsa sögu- fræga staði sem gaman er að keyra til og skoða. Það er til dæmis hægt að fara í Gaulverjabæ og upp með Þjórsá, niður á Selfoss og til baka. Við ætlum að búa til gróft kort af svæðinu þar sem merktir eru inn á áhugaverðir staðir sem gaman er að rúnta til.“ - snæ Opna fyrstu vespuleigu landsins NÝJUNG Í FERÐAÞJÓNUSTU Vespuleigan á Stokkseyri er sú eina sinnar tegundar á landinu og taka hjónin Jón og Elsa sig vel út á hjólunum. Þau hafa meðal annars ferðast á slíkum farartækjum um Kanaríeyj- ar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VESPA Nú er hægt að bruna um Suður- landið á allt að 70 kílómetra hraða. ÓTTAR GUÐNASON Hefur verið ráðinn sem kvikmyndatökumaður fyrir Holly- wood-mynd sem Jan de Bont leikstýrir. FRÉTTIR AF FÓLKI Rokksöngvarinn Krummi úr hljóm-sveitinni Mínus lenti í óhappi um síðustu helgi. Krummi var að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur og afrakstur kvöldsins var stórt sár sem hann ber á enninu. Illar tungur hafa haldið því fram að Krummi hafi lent í útistöðum við drengina úr hljóm- sveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome og hafi uppskorið sárið þar. Í samtali við Fréttablaðið sagði Krummi þetta vera uppspuna frá rótum. Honum hafi einfaldlega tekist að fljúga á hausinn síðla nætur og meiðst á enninu við fallið. Nýr menningarpáfi hefur verið ráðinn til starfa á DV. Sá heitir Óttar Martin Norðfjörð og hefur fengist við ritstörf síðustu misserin. Óttar sendi frá sér bókina Barnagælur fyrir síðustu jól. Bókin var umdeild í meira lagi enda var umfjöllunar- efnið barnaníðingur og var athöfnum hans lýst ansi ítar- lega. Páll Baldvin Baldvinsson, þá umsjónarmaður menningarsíðu, skrifaði ritdóm um bókina í DV og gaf henni lægstu mögulega einkunn, hauskúpu. Páll Baldvin er nú ritstjóri DV og hefur ráðið Óttar sem sinn arftaka. Máttur fyrirgefningarinnar, á báða bóga, má heita mikill. Blaðakonan Kolbrún Bergþórsdóttir datt í lukkupottinn á dögunum þegar hún vann sér inn pítumáltíð fyrir sig og samstarfsfólk sitt í leik á Rás 2. Kolbrún lýsti yfir mikilli ánægju með þetta þegar hún fékk fréttirnar. Ekki hefur minni gleði farið um hjarta hennar þegar í ljós kom fyrir skömmu að Kol- brúnu yrði falið að skrifa seinna bindi ævisögu Jóns Bald- vins Hannibalssonar, fyrrum ráðherra og sendiherra. Fyrra bindið, sem kallaðist Tilhugalíf, kom út fyrir nokkrum árum og var aðdáendur Jóns Baldvins farið að lengja eftir framhaldinu. Nú er hann snúinn heim til Íslands og er sagður undirbúa langar spjallstundir með ævisagnaritaranum Kolbrúnu. Páll Valsson hjá Eddu er þó þögull sem gröfin um útgáfu bókarinnar, segir að ef svo færi að byrjað væri á ritun bókarinnar innan tíðar væri ólíklegt að hún kæmi út á þessu ári. - hdm HRÓSIÐ ... fær Davíð Þór Jónsson fyrir að ætla að lífga upp á Gettu betur með því að setjast í dómarasætið. Barbie-dúkkan sem Fréttablaðið sagði frá fyrir skemmstu er orðin ansi vinsæl meðal Íslendinga en eins og sagt var í blaðinu í gær keypti Sigurjón Sighvatsson dúkk- una sem klædd er í upphlut en ekki peysuföt eins og ranglega var sagt í fréttinni. Sigurjón er sem kunnugt er annálaður safnari en vildi sem minnst ræða málið þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Boð Sigurjóns er talið hafa verið það hátt að hann hafi haft í hyggju að sprengja verðið en virðist hafa misreiknað sig. Brynjólfur Erlingsson, gröfu- maður í Kópavogi, hélt sig nefni- lega heldur betur svikinn þegar hann las blaðið í gær því Brynjólf- ur taldi sig hafa keypt umrædda dúkku. „Ég keypti hana á 66 doll- ara eða í kringum fimm þúsund krónur,“ sagði Brynjólfur í samtali við blaðið þar sem hann var stadd- ur í sumarfríi heima hjá sér. „Ég sá hana í Fréttablaðinu og kíkti á dúkkuna á netinu, bauð í hana enda alveg ótækt að slík dúkka yrði seld til einhvers annars lands en Íslands,“ sagði Brynjólfur. Þegar Fréttablaðið fór síðan á stúfana á eBay kom í ljós að þrjár dúkkur í upphlut eru enn í boði fyrir áhugasama. Hæsta boðið var enn sem komið er 25 dollarar og því ljóst að einhverjir geta fest kaup á góðum safngrip fyrir lítin pening. - fgg Barbie-stríð á eBay BARBIE-DÚKKAN FRÆGA Ekki einungis um eina dúkku að ræða heldur virðist sem fimm dúkkur séu til sölu á uppboðsvefnum eBay. Á TÖKUSTAÐ Óttar sést hér við tökur á einu af verkefnum sínum. Nýlega tók hann upp bílaauglýsingu þar sem Sean Connery var í aðalhlutverki.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.