Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 4
4 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
������������������
�������� ��������
�����������������
�������������
�����������������
�����������
�����������
���������������
�����������
�����������
���������������
���������������
���������������
���������������
��������������
�� ������� ��
������������
����
�������� �����������
� ��� ����������������
��������������� �����
��������� ���� ���
����� ��������������
��������������� ������
����������� ��� �����
�������������������������
����������� ���� ������
������� ���� ����� ��� �
�������� ��� ��������
����������� ��� �� ��
� ���� �������������
������������ ������ ���
����������������
������������
�����������
����������� ���� ��� �� �
���������������������
��������������� �����
���� �� ������������������ �
����� ������������������������������
��������������������������
��������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
�� ��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�
�
�
��
��
�� ��
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
BRUSSEL, AP Aðildarríki NATO hafa
ákveðið að senda aukið herlið til
syðri hluta Afganistans frá og með
næstu mánaðamótum, með þeim
fyrirvara að ríki sem standa utan
NATO en taka þátt í Alþjóðlegu
öryggissveitinni samþykki það.
Sveitirnar munu að einhverju leyti
taka við hlutverki Bandaríkja-
manna á svæðinu. Þar með verða
alls um 18 þúsund hermenn undir
stjórn NATO í landinu. Að auki er
stefnt að því að auka enn um 6 þús-
und hermenn í liðinu fyrir árslok.
Talíbanar voru flæmdir út úr
höfuðborginni, Kabúl, fyrir fimm
árum. Samt sem áður ráða þeir
enn lögum og lofum víðs vegar um
landið og vex ásmegin ef eitthvað
er. Þeir eru sérstaklega öflugir í
suðurhéruðunum.
Bretar, Kanadamenn og Hol-
lendingar hafa nú þegar sent fleiri
hermenn suður til Helmand-
héraðs, en þar eru ræktuð um
tuttugu prósent af öllu ópíumi á
heimsmarkaði. Samkvæmt frétt-
um BBC-fréttastofunnar er leið-
togi uppreisnarmanna í Helmand
Khan Muttaqi, fyrrum mennta-
málaráðherra talíbana. Muttaqi
mun eiga auðvelt með liðsöflun
því hann heitir bændum að verja
ópíumakra þeirra gegn því að þeir
hjálpi honum í baráttunni við inn-
rásarherinn. - kóþ
Aðildarríki NATO hafa ákveðið að senda aukið herlið til Afganistans:
Fleiri hermenn í suðurhéruð
ÞÝSK HERKONA Í AFGANISTAN Þessi kona
er meðlimur í Alþjóðlegu öryggissveitinni í
Kabúl. NORDICPHOTOS/AFP
HAMINGJA Íslendingar eru ekki
lengur „hamingjusamasta“ þjóð í
heimi, heldur í fjórða sæti. Frænd-
ur vorir Danir eru í því fyrsta,
Svisslendingar í öðru og Austur-
ríkismenn í því þriðja.
Af listanum að dæma virðist
best að búa í litlum Evrópu-
löndum.
Adrian White, prófessor við
Háskólann í Leicester, segir könn-
unina leiða í ljós að auðæfi séu
ekki trygging fyrir hamingju,
heldur skipti aðgangur að heilsu-
gæslu mestu máli. Síðan kemur
velmegun eða ríkidæmi og mennt-
un fast á eftir. Greint er frá þessu
á heimasíðu háskólans. - kóþ
Danir hamingjusamastir:
Ísland í fjórða
gleðisætinu
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Kópa-
vogi gerði nokkrar kannabisplönt-
ur upptækar við húsleit í heima-
húsi í bænum í fyrrinótt. Þá
fundust í húsinu kannabislauf auk
tækja og tóla til neyslu ólöglegra
vímuefna.
Þrír menn voru handteknir
vegna málsins en þeim var sleppt
að loknum yfirheyrslum. Grunur
leikur á að mennirnir hafi verið að
rækta plönturnar til sölu á kanna-
bisefnum. Málið er í rannsókn hjá
lögreglunni í Kópavogi og er gert
ráð fyrir að ákæra verði lögð fram
eftir helgi. - öhö
Lögreglan í Kópavogi:
Kannabisplönt-
ur í heimahúsi
KANNABISPLANTA Lögreglan í Kópavogi
gerði upptækar plöntur í heimahúsi.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 28.7.2006
Bandaríkjadalur 72,85 73,19
Sterlingspund 135,38 136,04
Evra 92,33 92,85
Dönsk króna 12,375 12,447
Norsk króna 11,735 11,805
Sænsk króna 9,996 10,054
Japanskt jen 0,6301 0,6337
SDR 107,67 108,31
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
127,9599
Gengisvísitala krónunnar
BARCELONA, AP Þúsundir flugfar-
þega voru strandaglópar á flug-
velli Barcelona á Spáni í gær
sökum ólöglegs verkfalls starfs-
manna flugfélagsins Iberia. Fresta
þurfti nærri 6.000 flugum á einum
annasamasta degi sumarleyfa-
tímans.
Á föstudag gengu 2.500 starfs-
menn út og 200 þeirra hópuðust
saman á flugbrautum sem haml-
aði flugumferð mestallan daginn.
Starfsmennirnir eru að mót-
mæla því að flugfélagið Iberia
hefur misst leyfi til að þjónusta
flugfarþega á flugvellinum. - sdg
Strandaglópar í Barcelona:
Þúsundir fastar
á flugvellinum
DOHA, AP Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
undirstrikar mikilvægi samkomu-
lags ríkisstjórnar Líbanon um til-
lögur að friði og segir það sýna að
ríkisstjórnin í Líbanon sé að standa
sig.
Fulltrúar Hizbollah-hreyfingar-
innar skrifuðu undir samkomulag-
ið, sem felur í sér afvopnun skæru-
liða og fjölgun í alþjóðlegu herliði í
Suður-Líbanon. Samkomulagið er
hið fyrsta sem Hizbollah-hreyfing-
in hefur sæst á til að binda enda á
átökin sem felur í sér að erlent her-
lið verði sent á vettvang.
Ísraelsk stjórnvöld hafa lýst
stjórnvöld í Líbanon ábyrg fyrir
árásum Hizbollah-hreyfingarinn-
ar og Avi Dichter, ráðherra í ríkis-
stjórn Ísrael, sagði í gær að Líban-
on væri að gjalda það fullu verði
þessa dagana. Dichter sagði
óásættanlegt fyrir stjórnvöld í
Líbanon að fela sig á bakvið þá
staðhæfingu að hryðjuverkasam-
tök sem þeir hafi ekki stjórn yfir
starfi á þeirra landsvæði.
Rice flaug aftur til Mið-Austur-
landa í gær til að halda áfram
friðarumleitunum. Rice hyggst
kynna tillögur Bandaríkjastjórnar
að friðarsamkomulagi fyrir báðum
deiluaðilum. Í þeim er lagt til að
erlent herlið á vegum Sameinuðu
þjóðanna verði flutt á svæðið til að
koma á stöðugleika að sögn banda-
rísks embættismanns sem vildi
ekki láta nafns síns getið. Einnig
er lagt til að Hizbollah-hreyfingin
afvopnist og skæruliðar hennar
verði sameinaðir her Líbanon,
ísraelsku gíslunum sem Hizbollah-
hreyfingin hefur í haldi verði
sleppt og svæði í Suður-Líbanon
verði afmarkað í því augnamiði að
koma Ísrael úr færi frá eld-
flaugum Hizbollah-hreyfingarinn-
ar. Jafnframt er lagt til að lausn
verði fundin á deilu um landsvæði
sem Ísrael stjórnar í dag en Líban-
on gerir tilkall til og að alþjóðleg
uppbyggingaráætlun verði samin
fyrir Líbanon.
Bandaríkin eru undir síauknum
þrýstingi að finna lausn á átökun-
um sem hafa kostað hundruð
mannslífa og hrakið 750 þúsund
Líbana frá heimilum sínum. Ísrael
hóf árásir á Suður-Líbanon eftir að
Hizbollah-hreyfingin tók tvo ísra-
elska hermenn í gíslingu 12. júlí
síðastliðinn. Átökin hafa síðan
undið upp á sig á þann veg að Ísra-
el stefnir nú að því að binda enda á
völd skæruliða í Suður-Líbanon.
Hizbollah-hreyfingin hefur svar-
að fyrir sig með eldflaugaárásum
á Ísrael.
Ísraelsk stjórnvöld höfnuðu í
gær beiðni Sameinuðu þjóðanna
um þriggja daga vopnahlé til að
gera borgurum kleift að koma sér
burt og svo unnt yrði að flytja
hjálparbirgðir á svæðið. Talsmað-
ur Ísraelsstjórnar sakaði skæru-
liða Hizbollah-samtakanna um að
hindra flutninga á lyfjum og mat í
þeim tilgangi að skapa neyðar-
ástand sem þeir kenni Ísrael síðan
um. Að sögn fulltrúa hjálparstarfs
Sameinuðu þjóðanna hefur Hiz-
bollah-hreyfingin ekki skapað
nein vandamál við flutning á
aðstoð enn sem komið er.
sdg@frettabladid.is
Friðarumleitanir í
Líbanon halda áfram
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kynnir friðarsamkomulag
fyrir Ísrael og Hizbollah-hreyfingunni. Rice lýsir yfir ánægju með friðaráætlun
ríkisstjórnar Líbanons sem Hizbollah-hreyfingin skrifaði undir.
ÍSRAELSKIR HERMENN Átök Ísrael og Hizbollah-hreyfingarinnar hafa staðið yfir í átján daga. Talið
er að 475 Líbanar og 54 Ísraelar hafi látist í átökunum, mestmegnis almennir borgarar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÁLYKTUN Efnahags- og félagsmála-
ráð Sameinuðu þjóðanna hefur
samþykkt ályktun þar sem gagn-
rýndar eru aðgerðir Ísraelsmanna
á Gaza-svæðinu. Þá er lýst yfir
áhyggjum af efnahags- og félags-
legum áhrifum af hersetu Ísraela í
Palestínu, Austur-Jerúsalem og á
Gólanhæðum.
Ísland studdi ályktunina en hún
var samþykkt með 43 atkvæðum.
Þrjú ríki sátu hjá og þrjú voru á
móti. Hjálmar W. Hannesson,
fastafulltrúi Íslands í New York, er
varaforseti ráðsins. - öhö
Efnahags- og félagsmálaráð SÞ:
Gagnrýnir að-
gerðir Ísraela
HÁTÍÐ Hátíðin Á góðri stund í
Grundarfirði sem hófst á föstu-
daginn lýkur í kvöld. Mikið var
um að vera í bænum í gær, meðal
annars gafst bæjarbúum og gest-
um hátíðarinnar kostur á að skoða
Varðskipið Ægi. Þá var keppt í
hlaupi og hjólreiðum og siglt á
kajak í höfninni.
Kvöldið endaði síðan á bryggju-
balli. Var mikil stemning í bænum
að sögn viðstaddra. - öhö
Bæjarhátíðin Á góðri stund:
Mikil stemning
í Grundarfirði
AFLRAUNAR Keppt var í aflraunum við
samkomuhús bæjarins. MYNDI/GAUI ELLA
Reikningi lokað Bobby Fischer deilir
við svissneska bankann Union Bank of
Switzerland, en honum var tilkynnt að
reikningi hans hjá bankanum yrði lokað
án frekari skýringa. Hann grunar að skoð-
anir hans á gyðingum tengist málinu.
FJÁRMÁL