Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 8
 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Við höldum með þér! Komdu v ið á næs tu Olís-s töð og fáðu stimpil í Ævintýr akortið – og æv intýragl aðning í leiðinni . Vertu m eð í allt sumar! Frábær ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna Ýmsir forystumenn Samfylkingarinnar hafa upp á síðkastið ritað og rætt um leiðir til að ná gripi um stjórnartauma. Ólík sjónarmið sýnast hins vegar vera innan flokksins um þá kjarnaspurningu að hvers kyns ríkisstjórnarsamstarfi eigi að stefna í næstu kosningum. Umræða af þessu tagi er um margt áhugaverð, meðal annars fyrir þær sakir að kjósendur eiga nokkurn rétt á að stjórnmála- flokkar geri hreint fyrir sínum dyrum um þetta álitaefni. Tilgangurinn með samruna Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins á sínum tíma var fyrst og fremst sá að mynda pólitískt mótvægi gegn Sjálfstæðisflokknum. Nokkuð stór hluti alþýðu- bandalagsmanna átti þó ekki málefnalega samleið með samein- uðum flokki og úr varð vinstri grænt. Segja má að Samfylkingin hafi í síðustu þingkosningum náð því að vera raunverulegt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Hún var þá aðeins litlu minni og náði í fyrsta sinn í sögunni að taka fyrsta þingsætið í Reykjavík af Sjálfstæðisflokknum. Upp á síðkastið virðist heldur hafa hallað undan fæti. Í sveitar- stjórnarkosningunum var Samfylkingin til að mynda nokkuð fjarri því að standa jafnfætis Sjálfstæðisflokknum. Hún varð eiginlega nokkurs konar pólitísk millistærð. Vera má að þessi vígstaða hafi opnað þá umræðu sem nú er hafin innan flokksins. Í raun réttri snýst hún um að hverfa frá því upphaflega markmiði með stofnun hans að kjósendur eigi að geta valið um að hafa stjórnartaumana í höndum sjálfstæðis- manna eða samfylkingarmanna. Ræða sem formaður Samfylkingarinnar hélt á fundi trúnaðarmanna, skömmu eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, var almennt túlkuð sem skýr skilaboð um að flokkurinn stefndi að því að ná stjórnartaumunum með vinstri grænu. Á hinn bóginn sagði formaðurinn einnig að næstu þingkosn- ingar myndu snúast um annað tveggja, að brjóta bandalag núverandi stjórnarflokka upp eða á bak aftur. Með þessum ummælum opnaði formaðurinn í reynd fyrir þá umræðu sem nú er hafin um breyttan tilgang flokksins. Á því er reginmunur hvort stjórnmálaflokkur keppir að því að koma í stað annars í forystu fyrir ríkisstjórn eða vera bestur til að vinna með honum. Hvor kosturinn er líklegri til að vinna fleiri til fylgis skal ósagt látið. Á hinn bóginn skiptir það kjósendur nokkru máli að hafa sem skýrasta kosti þegar þeir ganga að kjörborðinu. Það þjónar þeim tilgangi að auka pólitíska ábyrgð að þeir geti með atkvæði sínu haft bein ráð um það hvers kyns ríkisstjórn situr við völd. Í því ljósi væri það skref til baka fyrir lýðræðisþróun í land- inu ef Samfylkingin hyrfi frá því markmiði að láta kosningar snúast um það hvort hún verður í ríkisstjórn eða Sjálfstæðis- flokkurinn. Á hinum Norðurlöndunum hafa hefðir í stjórnmálum tryggt að kjósendur eiga að öllu jöfnu skýrt val af þessu tagi í kosning- um. Svo virtist sem mál gætu verið að skipast á þann veg. En nú sýnast vera meiri áhöld þar um. Vel má vera að Samfylkingin þróist einfaldlega inn í það gamla hlutverk Framsóknarflokksins að tryggja til skiptis setu ríkisstjórna til hægri og vinstri og verða þannig að meðaltali á miðjunni. Hugsanlegt er að með slíkri stöðu verði hægara um vik en með upphaflegu markmiði að ná einhverju gripi um stjórnartaumana. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Samfylkingin og stjórnartaumarnir: Í leit að góðu gripi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem er formaður Samfylkingarinnar, var í viðtali við Helga Seljan á NFS á sunnudaginn var. Þetta var fróðlegt viðtal og upplýsandi. Að sjálfsögðu spurði Helgi formann- inn hvernig stæði á því að frá því að hún tók við flokknum skyldi fylgi hans hafa minnkað jafnt og þétt. Mér fannst Ingibjörg svara því heiðarlega til að auðvitað þyrfti hún að líta í eigin barm og að mannlegi þátturinn hefði vissu- lega sitt að segja. En hún viður- kenndi einnig að það væri nokkuð til í því sem menn segja að stefna Samfylkingarinnar væri ekki nógu skýr og erfitt að keppa við til dæmis Vinstri hreyfinguna-grænt framboð, sem hefði alveg frá- munalega skýra stefnu. En til þess að verða stór flokkur sem gæti keppt við Sjálfstæðisflokkinn gæti Samfylkingin ekki leyft sér svona skýra stefnu eins og VG hefur, því Samfylkingin þyrfti að láta útfærslu fylgja sinni stefnu til að halda í trúverðugleika sinn. Mér hefur reyndar ekki þótt neitt vanta upp á að VG geri grein fyrir hvernig þeir hyggist koma stefnu sinni í framkvæmd, en það er annað mál. Samfylkingin vill skilgreina sig sem valkost við Sjálfstæðisflokkinn og telur að það sé best gert með fremur óljósri stefnu – gott og vel. En vandinn er ekki bara sá að kúrsinn sé óljós, því jafnvel þar sem tala má um stefnu er útfærslan illskilj- anleg, mótsagnakennd og tilvilj- anakennd frá degi til dags. Í við- talinu við Ingibjörgu var meðal annars rætt um sjávarútveginn og varnarmálin. Það var áhugavert sem þar kom fram. Sjávarútvegsmál Í síðustu kosningum lagði Sam- fylkingin mikla áherslu á svokall- aða fyrningarleið í kvótamálun- um. Þá átti að afskrifa allan kvóta á ákveðnum árafjölda og gilti þá einu hvort menn höfðu keypt kvóta eða áunnið sér hann í árdaga kvótakerfisins. Í kosningabarátt- unni kom í ljós að gengi þessi stefna Samfylkingarinnar fram væri það rothögg fyrir sjávarút- veginn og tilræði við landsbyggð- ina. Kosningameistarar Samfylk- ingarinnar espuðust svo upp í þessu öllu saman að flokkurinn lét sig hafa það að birta ógeðfellda mynd af glottandi kalli sem lá á vindsæng (sennilega í útlöndum, veðrið virtist vera gott á mynd- inni) og skilaboðin voru að íslenskir útgerðarmenn væru arð- ræningjar og afætur á íslensku þjóðinni. Eftir kosningar varð þessi sérkennilega útfærsla Sam- fylkingarinnar á sjávarútvegs- stefnu sinni flokksforystunni vita- skuld hið mesta feimnismál. Ingibjörg Sólrún mætti síðan á fund með LÍÚ og lofaði bót og betrun gegn gagnkvæmu þagnar- bindindi. Mesta óréttlæti sögunnar. Helgi Seljan spurði Ingibjörgu hver stefnan væri þessa dagana, hvort Samfylkingin væri enn sömu skoðunar og hún var fyrir þremur árum. Svarið var alveg makalaust. Samfylkingin ætlar að verða stór flokkur sem keppir við Sjálfstæðisflokkinn. Þess vegna segir Ingibjörg Sólrún að stefna Samfylkingarinnar í sjávarút- vegsmálum verði útfærð í sam- vinnu við hagsmunaaðila í grein- inni. Það er innan við ár í næstu þingkosningar og Samfylkingin hefur ekki enn mótað og útfært stefnu sína í einu veigamesta við- fangsefni íslenskra stjórnmála. Máli sem Samfylkingin hefur reyndar ítrekað haldið fram að sé dæmi um eitthvert mesta órétt- læti sögunnar. Og í þessu mikla óréttlætismáli ætlar flokkur jafn- aðarmanna að móta útfærslu sína í samráði við LÍÚ! Ætli samninga- menn Samfylkingarinnar panti þá viðtal við kallinn á vindsænginni? Varnarmál Í viðtalinu innti Helgi Ingibjörgu líka eftir stefnu Samfylkingar- innar í þessu erfiða og viðkvæma máli. Svar Ingibjargar var að hún hefði farið með málið til Atlants- hafsbandalagsins (NATO) um leið og það lá fyrir að Bandaríkja- menn hygðust hætta fastri við- veru hér. Þar með hefði tvíhliða viðræðum verið hætt á milli þjóð- anna og málið rætt á vettvangi NATO. Það er áhugavert að bera þetta saman við þá leið sem ríkisstjórnin hefur valið. Þegar Bandaríkjamenn lýstu því yfir í mars að þeir vildu ræða hvernig þeir gætu uppfyllt samnings- bundnar skyldur sínar um varnir Íslands án þess að hér væri her- stöð var ákveðið að ganga til þeirra viðræðna. Jafnframt var tekið fram hjá íslenskum stjórn- völdum að ef niðurstaða viðræð- anna yrði ekki viðunandi myndu Íslendingar fara með málið til NATO. Í þessu máli er vandséð hvaða valkost Samfylkingin býður þjóðinni upp á. Framtíðarhópurinn Það er áhugavert að kynna sér hvað framtíðarhópur Ingibjargar Sólrúnar um utanríkismál hafði að segja um varnarmálin: „Um afstöðu til herbúnaðar Bandaríkjastjórnar á Íslandi eru skiptar skoðanir innan hópsins. Sumir vilja helst slíta öllu hernað- arsamstarfi við Bandaríkin, en aðrir vilja viðhalda því eins og kostur er. Ráðlegt er að viður- kenna þennan ágreining hiklaust en sameinast jafnframt um stefnu sem flestir flokksmenn telja horfa til hins betra og næstum allir geta sætt sig við.“ Það var og! Kannski örvæntingarfull leit að fylgi sé að bera allt málefna- starf í Samfylkingunni ofurliði. En ef Ingibjörg Sólrún áttar sig ekki betur á stefnu eigin flokks en raun ber vitni, hvernig í ósköpun- um getur hún ætlast til þess að kjósendur geti það? Leiðtoginn leitar að stefnu Í DAG SAMFYLKINGIN ILLUGI GUNNARSSON Samfylkingin vill skilgreina sig sem valkost við Sjálfstæð- isflokkinn og telur að það sé best gert með fremur óljósri stefnu – gott og vel. En vandinn er ekki bara sá að kúrsinn sé óljós, því jafnvel þar sem tala má um stefnu er útfærslan illskiljanleg ... AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. Misheppnuð raddstýring Hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft kynnti á dögunum raddstýringartækni sem á að fylgja með næsta stýrikerfi þess, Windows Vista. Tæknin á að gera fólki kleift að skrifa texta með því einu að lesa hann fyrir tölvuna, en eftir kynn- inguna í gær lítur út fyrir að tæknin eigi enn langt í land. Kynnirinn ætlaði að sýna gestum hversu auðvelt það væri að skrifa texta í Word með því að lesa hann upp, en hugbúnaðurinn skildi engan veginn hvað hann var að segja. „Dear mom“ varð að „Dear aunt“, „fix aunt“ skildi tölvan sem „let’s set“ og „delete that“ varð að „so“. Að lokum ætlaði kynnirinn að velja allan textann með skipuninni „select all“ en á tölvuskjánum birtist „double the killer select all“. Bara rétt að kíkja Félagar í Sambandi ungra sjálfstæðis- manna reyndu í fyrradag að hindra aðgengi almennings að skattskrám í Reykjavík. Í ályktun sem félagið sendi frá sér sama dag er skorað á fjármála- ráðherra og Alþingi að „gera þegar í stað breytingar á lögum til að koma í veg fyrir þennan ósóma“. Félagið vill meina að fjárhagsmálefni séu einkamál hvers og eins, og meðal viðkvæmustu persónuupplýsinga í nútímasamfélagi. Þessar skoðanir eru góðar og gildar, en athygli vakti að margur SUS-arinn tók þátt í mótmælunum með því að lesa skattskrárnar og spjalla við aðra um innihald þeirra. „Sjáðu hvað fyrrverandi kærastinn minn var að borga í skatt,“ var meðal orða sem heyrðust hjá skatt- stjóra í fyrradag. Laddi að telja? Samtök herstöðvaandstæðinga héldu mótmælafund fyrir utan bandaríska sendiráðið við Laufásveg í gær. Tilefnið var stríðið í Líbanon, og fluttu Stefán Pálsson, formaður samtakanna, og Ögmundur Jón- asson, þingflokksformaður Vinstri grænna, ávörp. Furðu vekur að samkvæmt lögreglu voru milli fimm og sex hundruð manns á staðnum þegar mest var, en í beinni útsendingu NFS frá fundinum leit ekki út fyrir að nema eitt til tvö hundruð manns hefðu mætt. Ætli Laddi hafi séð um mannfjöldatalningu lögreglunnar líkt og hann gerði í áramótaskaupinu? salvar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.