Tíminn - 12.02.1978, Síða 7
Sunnudagur 12. febrúar 1978
aaÍM'í'l'
TímamyndirGE
Sviðsmynd er eftir Gunnar Bjarnason og búninga teiknaði Guðrún Svava Svavarsdóttir.
Þj óðleikhúsið frumsýnir
örlagaþrunginn harmleik
Ödipus konung eftir Sófókles, sem uppi var
á 1. öld f.Kr.
Flosi Ólafsson, Bjarni Stein-
grimsson, Sigmundur Orn
Arngrimsson, Klemens Jónsson
og Eyvindur Erlendsson. Þá
koma fram nokkur börn og hópur
leiklistarnema.
Sem fyrr segir er þetta í fyrsta
skipti, sem Odipus konungur er
sýndur hérlendis og reyndar
fyrsti griski harmleikurinn, sem
ÞjóWeikhúsiö ræðst i að sýna.
Eina griska leikritið, sem áður
hefur verið sýnt hér, var gaman-
leikurinn Lýsistrata eftir
Aristófanes. Leikfélag Reykja-
vikur sýndi hins vegar fyrir
nokkrum árum annað leikrit
Sófóklesar, Antigónu, einnig i
þýðingu Helga Hálfdánarsonar og
undir stjórn Sveins Einarssonar.
Sófókles (496 — 406 f.Kr.) er
einn þriggja frægustu harm-
leikjahöfunda frá blómaskeiöi
griskrar leikritunar (auk
Æskilosar og Evripidesar).
Sófókles samdi á annað hundrað
leikrit en einungis 8 þeirra hafa
varðveitzt. Þekktust þeirra eru
Þebu-leikirnir svonefndu: Odipus
konungur, Odipus i Kólonos og
Antigóna. Þessi þrjú leikrit eru
samfelld að efni, en hvert um sig
þó sjálfstæð verk, enda eru þau
ekki samin sem reglulegur þri-
leikur. Frá leikritum og leiksvið-
um Forn-Grikkja liggur óslitinn
ferill fram til vorra daga.
Leikritið, sem Þjóðleikhúsiö
sýnir nú, fjallar um Odipus kon-
ung, sem veröur fyrir þeirri spá-
sögn að hann eigi eftir að drepa
föður sinn og ganga að eiga móð-
ur sína. (Þar af er dregið hugtak-
ið Odipusarkomplex i sálfræði.)
Ekki skal efni leiksins rakið nán-
ar, en þar er sú hugmynd sem út-
listar að enginn ráði örlögum sín-
um.
Þaö er stefna Þjóðleikhússins
aö sýna á ári eitt sigilt leikrit,
sem ekki hefur veriö flutt áður
hér á landi, og virðast leikhús-
gestir kunna vel að meta hana. 1
fyrra varð Lér konungur eftir
Shakespeare fyrir valinu.
Kennarar og skólanemendur
hafa sýnt þessari sýningu Þjóð-
leikhússins áhuga og viljaö fá
þýðingu Helga Hálfdánarsonar
undir hendur. Mál og menning
hefur látið gefa leikritið út og
kemur það I verzlanir frumsýn-
ingardaginn.
Frumsýningin á Odipúsi kon-
ungi verður föstudagskvöldið 17.
febr. kl. 20 og 2. sýning sunnu-
dagskvöldið 19. febr. kl. 20:30.
Gunnar Eyjólfsson sem ödipus konungur.
Á föstudagskvöld i næstu viku
(17. febr.) verður frumsýning i
Þjóðleikhúsinu á ödipusi konungi
eftir Sófókles I nýrri, áður óbirtri
þýðingu Heiga Hálfdánarsonar.
Þessi forngriski harmleikur hefur
ekki verið fluttur áður hériendis
en hann er talinn meðal öndvegis-
verka leikbókmenntanna og
reyndar þekktasta leikrit höfund-
ar. Helgi Skúlason leikstýrir
verkinu, leikmynd er eftír Gunn-
ar Bjarnason og Guðrún Svava
Svavarsdóttir gerir búninga.
Titilhlutverkið, ödipus konung
leikur Gunnar Eyjólfsson,
Jóköstu drottningu leikur Helga
Bachmann og Kreon, bróður
hennar Rúrik Haraldsson.
Yfir 30 manns koma fram I sýn-
ingunni,þará meðal ýmsir helztu
leikarar Þjóðleikhússins. Valur
Glslason leikur Teiresias
spámann, Ævar R. Kvaran prest,
Þorsteinn O. Stephensen, Báldvin
Halldórsson og Hákon Waage eru
einnig I mikilvægum hlutverkum
og er þá ótalinn 12 manna talkór
undir forystu Róberts Arnfinn-
sonar. Aðrir i kórnum eru Krist-
björg Kjeld, Þóra Friöriksdóttir,
Herdls Þorvaldsdóttir, Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Guðrún Þ.
Stephensen, Helga Jónsdóttir,
Helga Bachmann — Jókasta drottning.
Róbert Arnfinnsson stjórnar 12 manna talkór.