Tíminn - 12.02.1978, Qupperneq 9

Tíminn - 12.02.1978, Qupperneq 9
Sunnudagur 12. febrúar 1978 9 Harriet Andersson og Herbert Fleischmann f kvikmyndinni „Barböru". Ný norræn ópera eftir færeysku skáldsögunni ,,Barböru” SJ — Danska tónskáldið Henn- ing Wellejus hefur lokið við að semja tvö mikil tónverk, óperuna „Barböru” eftir sam- nefndri skáldsögu Færeyingsins Jörgens Franz Jacobsen og sellókonsert sem hann tileinkar Erlingi Blöndal Bengtsson, að þvi skýrt er frá i frétt i dag- blaðinu Politiken nú i vikunni. Islenzkir lesendur kannast ef- laust margir viö skáldverk Jacobsens, sem flutt var sem framhaldssaga i útvarpinu og sænsk kvikmynd eftir sögunni hefur einnig verið sýnd hér i sjónvarpi. Barbara er blóðheit prestsekkja. Eftir lát manns sins veröur hún fyrst ástfangin af nýja prestinum en siðan i ungum stúdent. Þetta hneykslar hið fámenna færeyska sam- félag, þótt fleiri stúlkur þar en hún búi yfir heitum ástriðum: Niu mánuðum eftir heimsókn fransks herskips má sjá mörg merki hennar viöa. Tónskáldið Wellejus segir: — Ég er hrifinn af þessari heitu, lifandi kvengerð. Til aö gæða verkið lífi notar hann viöa færeyska dansa og þjóðvísur I verki sinu. Öperan er tveggja stunda löng i flutningi eöa 326 partitursiöur. Hún er samin fyrir sex einleik- ara, kór, fullskipaða sinfóniu- hljómsveit. Tónskáldiö hefur hug á að óperan verði sett á svið i Kaupmannahöfn og hann mun senda menntamálaráöherra Færeyinga eintak af henni Wellejus hefur gefið Færeying- um óperu sina. Loks skýrir Politiken frá þvi að Henning Wellejus hafi nú snúiö sér að enn einu stórvirki, sem hann semur fyrir málm- blásturshljóðfæri og Knud Hovaldt Carsten Swanberg ætla að leika aö leika á tónleikaferð um Norðurlönd. * Flóamarkaöur til styrktar Margrétar - sunnudaginn 12. febrúar klukkan 14, verður flóa- markaöur á Hallveigarstöðum. Félagar Zontaklúbbs Reykjavik- ur hafa opnað hirzlur á heimilum sinum og fundið þar marga nýti- lega hlutiscm þeir gátu án verið og ætla nú að selja við hagstæðu verði. Arið 1944 stofnaði klúbburinn sjóð til minningar um starf Mar- grétar Bjarnadóttur Rasmus, sem þá hafði lokið starfsferli sin- um við stjórn Heyrnleysingja- skólans. Hún barðistfyrir aðbæta hag nemenda sinna og þekkti flestum betur hve höllum fæti þeir stóðu i lifsbaráttunni. Sjóðurinn, sem nefndur er Mar- grétarsjóður notar fé sitt jafnóð- um og þess er aflað. Hann hefur styrkt kennara, fóstrur og aðra sem stunda framhaldsnám með það takmark i huga að efla heil- brigði og þroska mál-og heyrnar- skertra. Einnig hefur fé verið varið til tækjakaupa. Zontaklúbbur Reykjavikur hef- ur nú á prjónunum áætlun um að vekja hreyfingu i þá átt að koma upp aðstöðu, þar sem börn innan skólaaldurs gætu fengið hjálp sérmenntaðra kennara til þess að lagfæra málhelti. Sérfræðingar telja mikilvægt aö slik hjálp sé veitt i tíma. C&SBGj Auglýsingadeild Tímans BÆNDUR SÚG- þurrkun Eins og undanfarin ár smíðar Landssmiðjan hina frábæru H-12 og H-22 súgþurrkunarblásara Bldsararnir hafa hlotið einróma lof bænda fyrir afköst og endingu Sendið oss pantanir yðar sem fyrst LANDSSMIÐJAN Reykjm ík

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.