Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 12
12
Sunnudagur 12. febrúar 1978
Tíminn heimsækir Vopnfirðinga
Framleiðsluverðmætið geysimikið:
„Ekki erum við
ómagar á þjóð-
f élaginu’ ’
— segir Kristján Magnússon sveitarstjóri
Siðasta ár var mjög gott til út-
gerðar frá Vopnafiröi og bárust
3700 lestir af bolfiski á land. bar
af færði skuttogarinn Brettingur
28601estiraðlandi. Þá bárust 2860
lestir af loðnu á land á Vopnafirði
og er þetta hvort tveggja mun
meira hráefni en áður hefur verið
landað á Vopnafirði. Meginhluti
þessa afla var unninn hjá fisk-
vinnslunni Tanga hf. og öll loðnan
var unnin i verksmiðju fyrirtæk-
isins.
Brúttóútflutningsverðmæti
sjávarafurða frá Vopnafirði var á
siðasta ári 1100 millj. kr. og sölu-
verðmæti landbúnaðarafuröa var
300 —350millj. kr. A þessu sést að
hinir 862 ibúar Vopnafjarðar
hrepps geta ekki talizt neinir ó-
magar á þjóðfélaginu þar sem
þeir framleiða svo mikil
verðmæti, sagöi Kristján
Magnússon sveitarstjóri i samtali
við Timann.
Nú er unnið að byggingu á nýju
frystihúsi á Vopnafirði og er
vonazt til að það komizt i gagnið
næsta sumar. Kristján sagði aö
þá væri knýjandi nauðsyn að fá
meira hráefni og er þvi verið að
athuga með skipakaup til
Vopnafjarðar. mó.
Unnið úr fiski á VOPNAFIRÐI Timamyndir MÓ.
Þórður Pálsson vinnur aö frágangi ibúðanna ásamt Jóni Grimssyni.
Timamynd MÓ.
Dvalarheimiliö nær á myndinni. Heilsugæzlustööin fjær. Vonazt er til
að heilsugæzlustööin veröi tekin I notkun voriö 1979.
Flutt í dvalarheimili
aldraðra siðar
í þessum mánuði
Áform um að byggja fleiri ibúðir,
enda er eftirspurn mikil
MÓ — Vopnafirði — Seinni hluta
þessa mánuðar verður flutt inn i
sex íbúðir sem byggðar hafa ver-
ið fyrir aldraða á Vopnafirði. Það
var byrjaö að vinnaö að undir-
búningi þessara framkvæmda
fyrir tveimur árum,en verklegar
framkvæmdir hófust ekki fyrr en
i júnimánuði 1976, svo óhætt er að
segja að mikill hraði hafi verið á
framkvæmdínni. Dvalarheimiliö
er byggt af elliheimilissjóði
Kvenfélags Vopnafjarðar og
Vopnafjarðarhreppi, en umsjón
með byggingarframkvæmdum
hefur Þórður Pálsson á Refsstað
haft.
bórður sagði i viðtali við
Timann að byggingin væri alls 306
ferm. að grunnfleti. I húsinu væru
tvær ibúðir fyrir hjón og fjórar
einstaklingsibúðir. Einstaklings-
ibúðirnar eru 25 ferm en
hjónaibúðirnar eru 40 ferm. Þá er
sameiginleg setustofa fyrir allar
ibúðirnar og einnig þvottahús.
Auk þess eru mjög stórar og góð-
ar svalir á húsinu svo að gamla
fólkið eigi auðvelt með að njóta
útiveru.
Kostnaður við bygginguna er
nú um 36 millj. kr. en fullgerð
kostar byggingin eitthvað meira.
Elliheimilissjóðir kvenfélagsins
og Vopnafjarðahrepps, og þau
föstu lán, sem unnt hefur verið að
fá til framkvæmdanna, hafa að
mestu staðið undir kostnaðinum
þar , að sveitarfélagið þurfti að
leggja nokkurt fé fram. til
lokaframkvæmdanna. Siðan er
áætlað að sveitarsjóður sjái um
að greiða vexti og afborganir af
lánunum.
Þórður sagði að það væri mun
meira um að einstaklingar sæktu
um dvöl á slikum heimilum, en
hjón. bvi taldi hann að áherzlu
ætti aö leggja á að byggja ein-
staklingsibúðir.
Dvalarheimilið er reist á lóð
heilsugæzlustöðvarinnar, svo
auðvelt verður að hlynna að fólk-
inu þar i framtlðinni. Þá er fyrir-
hugað að byggja fleiri hús fyrir
aldraða þarna i framtiðinni.
Undir dvalarheimilinu er 180
ferm. kjallari, sem ekki er búið
að ákveöa á hvern hátt verður
notaður. Þórður taldi að mjög
kæmi til álita að koma þar upp
heilsuræktaraðstöðu, eins og t.d.
saunabööum o.fl.
Kapp er við
— rætt við Guðna Þ. Sigurðsson
útgerðarmann á Vopnafirði
hákarla-
veiðar
MÓ — Vopnafirði —Ég fer að
fara á hákarlaveiðar ef veður
leyfir, sagði Guöni Þ. Sigurðs-
son á Vopnafirði i samtali við
blaðamann Timans á dögunum.
Annars hefur verið leiðindaveð-
ur hér og ekki gefið til slikra
veiöa að undanförnu. Skip
Guðna er Guðborg NS 36, en það
er 10 tonna bátur, fimm ára
gamall. Að undanförnu hefur
Guðni verið að gera bátinn upp
og endurbæta á ýmsan hátt.
— Ég stunda hákarlaveiðar
fram á vorið, sagði Guöni, en
siðan fer ég á grásleppuna. Sið-
an er ég á þorskveiðum á sumr-
in. Grásleppuveiðin var léleg i
fyrra og sömu sögu er einnig að
segja af þorskveiðum. Ég vil
helzt ekki vera að segja frá þvi
hvað ég fékk mikið. Það er
ekkert gaman að gefa slikt upp,
ef það er mjög litið.
Annars gengu hákarlaveið-
arnar nokkuð vel og fékk ég 35
hákarla. bað má vel vera að ég
hafi fengið flesta hákarla af
Vopnafjarðarbátunum, en það
hefur þá trúlega verið vegna
þess að hinir hafi hætt fyrr en
ég.
Aðspurður sagði Guöni, að
það væri rétt að það væri ávallt
nokkuðkapp i mönnum að veiða
sem flesta hákarla, jafnvel
meira kapp en á öðrum veiðum.
Vopnfirðingar hafa löngum
verið frægir fyrir hákarlaveiöar
og hafa stundað þær lengi. Oft-
ast ná þeir lika góðri verkun á
hákarli sinum og þykir þetta hið
mesta lostæti og er á borðum
viða um land.