Tíminn - 12.02.1978, Síða 23
Sunnudagur 12. febrúar 1978
23
Vronski og Anna leika tennis I útiegöinni frá lifi heldra fólksins I Rússlandi
Anna
Karenina
— framhaldsmynd frá brezka sjónvarpinu
1 frumdrögum sinum að
skáldsögunni lýsir Tolstoj önnu
Kareninusem öfriðri, með lágt,
mjótt enni og stórt nánast af-
myndað nef. En hún hafði
keppnina með sér a.m.k. hvað
úthtiö snerti. Höfundurinn varð
ástfanginn af henni og gerði á
henni fegrunaraðgerð áður en
hann kynnti hana lesendum, og i
gegnum árin hafa fegurstukon-
ur leikið hlutverk hennar. Sjálf
Gréta Garbo lék hana tvisvar,
og Vivien Leigh hin undurfagra
fór með hlutverk hennar 13 ár-
um siöar. 1 tiu mynda fram-
haldsflokki frá BBC eru önnu
enn gerðgóö skil. Nicola Pagett,
sem lék Elisabetu, hina
duttlungafullu dóttur Bellamys
lávarðar í Húsbændum og hjú-
um, kann að komast næst því að
túlka konuna, sem Tolstoj skap-
aði fyrir 100 árum.
Þrátt fyrir fegurö sina var
Gréta Garbo einkennilega karl-
mannleg i aöra röndina, og það
var eins og hún bæri ósýnilega
áletrun: „Horfið en snertið
ekki”. Vivien Leigh var mjög
kvenleg, en hún var einnig fjar-
ræn, eins og dýrmætt listaverk i
glerkassa.Nicola Pagetter hins
vegar bæði Ulfinninganæm og
lostafull, jarðnesk og blóðheit.
Andlit hennar er alltaf lifandi,
en þannig lýsir Tolstoj einmitt
önnu Kareninu. 1 samanburöi
viö fýrirrennara sina eru and-
litsdrættir Nicolu hvergi nærri
fullkomnir: augun eru svolítið
útstæð, varirnar of þykkar, og
kinnbeinin óvenju há. En fyrir
eina af þessum dásamlegu til-
viljunum náttúrunnar, vega
gallarnir hver annan upp og út-
koman verður sérkennUega fag-
urt andlit.
Ef leikkonan, sem fer meö
hlutverk önnu er rétt valin,
hlýtur Anna Karenina aö verða
gott leikverk, og Nicola Pagett
ber þessa mynd uppi með glæsi-
leika sinum og töfrum, segir
Gerald Clarke I bandariska
timaritinu Time. Myndin fer
hægt að af staö eins og margar
aðrar i flokknum Masterpiece
Theater og höfundur handrits-
ins, Donald Wilson, hefur gert
fyrstu þrjú atriöin ófyrirgefan-
lega ruglingsleg. Ahorfandinn
er jafnvel í vafa um, hvenær
ástasamband þeifra önnu og
Vronski greifa hefst. En þegar
atburðarásin er loks komin af
stað, gengur allt glæsilega fýrir
sig til loka — er Anna mætir ör-
lögum si'num á brautarstöðinni.
Hlutverk
Önnu
hefur
aldrei
verið
betur
leikið,
segir
gagn-
rýnandi
Time
Tekin i
Ungverjalandi
Eric Porter, sem lék Soames
Forsyte i SöguForsyteættarinn-
ar fer hér meö hlutverk annars
kokkáls, Karenins, eiginmanns
önnu. Andlit hans og sál virðast
Vronski riöur um skógana i
nágrenni St. Pétursborgar
brothætt og visnuð eins og sið-
ustu haustlaufin, og þegar hann
heilsar önnu, sem er að koma
frá Moskvu á brautarstöðinni i
St. Pétursborg, segir hann aö-
eins: „Það er gott að þú ert
komin. heim aftur. Það er held-
ur leiöinlegt hér án þin.”
Vronski, sem verið hafði sam-
ferða önnu i lestinni, er and-
stæða hans. Stuart Wilson leikur
hann, fallegan mann, róman-
tiskan, eftirsóttan i hópi þeirra,
er lifa hátt. „Mér liöur eins og
hungruðum manni þegar ein-
hver gefur honum mat,” þannig
lýsir Anna tilfinningum sinum
gagnvart Vronski.
Myndaflokkur, sem tekur
samtals 10 klst. að sýna,hefur
ýmislegt fram yfir venjulega
kvikmynd — 8 klst. a.m.k. Þessi
Anna Karenina hefur rikari
blæbrigði en kvikmyndirnar.
Tolstoj ætlaði upphaflega að
kalla skáldsögu sina Tvenn
hjónabönd, og eitt aöalþema
bókarinnar er andstæðan milli
hamingjusömu hjónanna Kitty-
ar (Caroline Langrishe) og Lev-
ins (Robert Swann) og þeirra
ólukkulegu, Kareninhjónanna. 1
myndaflokknum er hægt að
túlka þennan annan söguþráð
verksins og sanna þau frægu orö
Tolstojs úr upphafi skáldsög-
unnar: „Allar hamingjusamar
fjölskyldur eru eins, en
óhamingjusöm fjölskylda er
óhamingjusöm á sinn sérstaka
hátt.”
Flest útiatriði myndaflokks-
ins voru tekin I Ungverjalandi,
og gömlu göturnar I Budapest
koma í stað Moskvu og St.
Pétursborgar fyrir hundrað ár-
um. Það eina sem vantar á er
rússneska viðáttan. Mynda-
tökumönnunum hefur tekizt
betur upp i inniatriðunum I stof-
um og danssölum, sem sýna
fullkomlega glæsiheim aðalsins
fyrir byltinguna, þegar franska
var i hávegum höfð og allt var
leyfilegt ef þaö var falið. Nær
allir eigasérástarsamband eins
og Anna og Vronski.og hórdóm-
ur lætur rikisfólkinu dável.
Anna Karenina er saga um
andstæður, hamingju og
óhamingju, hlýju og kulda. Hún
hefur áður verið vel sögð, en
hvergi, nema auövitað i skáld-
sögu Tolstojs sjálfri, hefur hún
verið túlkuð á eins sterkan og
öruggan hátt og i þessum
myndaflokki brezka sjónvarps-
ins.
(Þýtt og endursagt SJ)
STEINA-
SAFNARAR
Litlar slipivélar (tromlur)
og slipiduft fyrir
^ steinasafnara
8 S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
Sfcemmuvegi 48 - Kópavogl - Slml 76877 - Pósthdtf 19S
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
Hversvegna að
burðast með
allt í fanginu
fötu.skrúbb, þvottaefni og flr.
Hvað með tveggja fötu skruggukerru.
sem eyðir engu. kemst yfir 20 km/klst.
og er ótrúlega lipur í umferðinni?
lalaSlBKalstsIsilEÍIsIsIalsIsIaSIsIsiIsIsIs
YAHIAHA
since 1887
Drifreimar í Yamaha
snjósleða fyrirliggjandi
Verð með söluskatti kr. 2.668
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Armula 3 Reykjavik simi 38900
IsIsIalsIslalsIsSIsSIsIslsIslsIalslsIsIa
v