Tíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 26
26
Sunnudagur 12. febrúar 1978
Nútíminn ★ ★ ★
Margir munu kannast við
brezku hl.jómsveitina Black
Sabbath, en hún er einkum fræg
fyrir mjög þungt rokk. Hljóm-
sveitin var á hátindi ferils sins
1970, er þeir sendu frá sér breið-
skifuna „Paranoid” og á þeim
tima þótti hljómsveitin meira
að segja frumleg. En svo seig á
ógæfuhliðina og eftir nokkrar
lélegar breiðskifur féll BS nær
þvi i gleymsku. En þótt litið hafi
farið fyrir BS, þá gáfust þeir
ekki upp og hættu, eins og flest-
um hefði e.tv. þótt raunhæfast,
ekki sizt eftir að aðalmaðurinn
hafði fengið þá grillu að verða
heimsfrægur upp á eigin spytur
og sagt skilið við sina gömlu fél-
aga. En reyndin varð önnur.
Ozzie Osbourne, sá er hætti, er
genginn til liðs við Black
Sabbath að nýju, eftir nokkurra
mánaða fjarveru og segist hon-
um svo til, að þessi timi, sem
hann var fjarri Black Sabbath,
hafi verið eins og hjónaskilnað-
ur!
Black Sabbath æfa nú fyrir
upptökur á næstu breiðskifu
sinni, sem bera mun heitið
„Never say die” og er það vel til
fundið þvi að ekkert lýsir hinum
ódrepandi baráttuvilja Black
Sabbath betur.
(Byggt á NME)
Ozzie Osbourne, söngvari
Black Sabbath.
„NEVER SAY DIE”
Black Sabbath
fi
Tvær nýjar
s tór hlj óms veitir
— sem mikils er að vænta af
í framtiðinni
Horace Parlan er lamaður á hægri hendi en er þó einn af fremstu
Jazzpianistum i heiminum.
JASSVIÐBURÐUR
Trio Horace Parlan
með hljómleika
hér á landi
1 gær komu til landsins, á
vegum Jass vakningar, þrir
bandariskir jassleikarar, Trio
Horace Parlan, og munu þeir
leika hér á þrem tónleikum og
var hinn fyrsti þeirra i Mennta-
skólanum við Hamrahlið i gær-
kveldi.
Jassleikarar þeir sem um
ræðir eru, Horace Parlan
pi'anoleikari f. 19.1.31. Doug
Raney gitarleikari f. 29.8.56. og
er þvi aðeins 21 árs gamall, og
Wilbur Little, bassaleikari f.
5.3.28.
Trióið kemur hingað i beinu
framhaldi af Evrópuferð sinni
og héðan halda þeir n.k. þriðju-
dag áleiðis til Noregs. 1 samtali
viö Jónatan Garðarsson fv. for-
mann jassvakningar kom eftir-
farandi fram.
Meðlimir Trio Horace Parlan
erubúsettir i Evrópu, nánar til-
tekið eru þeir Parlan og Raney
búsettir i Danmörku og Little i
Hollandi. Astæðan fyrir þessari
hljómleikafór er sú, að nýlega
gaf Doug Raney út sina fyrstu
breiðskifu og stóð til að þeir
Parlan myndu kynna hana
tveir, en á siðustu stundu fengu
þeir Wilbur Little til liðs við sig
og hófu kynningu á breiðskifu
Raneys og nú eiga islenzkir
jassáhugamenn þess kost að
kynnast leik þessara ágætu
listamanna og um leiö fulltrúum
þeirra jassleikara er hafa gert
garðinn frægan i kóngsins
Kaupmannahöfn nú um nokkurt
skeið.
Astæðuna fyrir þeirri grózku,
er rikt hefur i Kaupmannahöfni
sambandi viö jassmá aö nokkru
rekja til þess að blökkumenn-
irnir Dexter Gordon saxafón-
leikari og Kenny Drew
pianóleikari ásamt Norman
Gránz framleiðanda hafa á
undanförnum árum setzt að I
Danmörku og helgaö jassinum
krafta sina.
Ekki er að efa aö mikill feng-
ur er i' komu Trio Horace Parlan
og meðlimir þess eru svo sann-
arlega ekki af verri endanum.
Horace Parlan er fæddur i
Pittsburg i Pennsylvaniu i
Bandarikjunum, hann hóf
pianónám 7 ára, aö ráði lækna,
en 5 ára hafði hann lamazt að
hluta til i hægri hluta likamans.
Parlan lærði að beita vinstri
höndinni við leik sinn og er nú
yfirburðamaður á þvi sviði.
Hann hefur leikið með mörgum
heimsfrægum köppum I gegn-
um árin, og i þvi sambandi næg-
ir að nefna nöfn eins og Charles
Mingus, Booker Erwin, George
Tucker, Dexter Gordon, Tubby
Hayes o.fl.
Parlan hefur verið búsettur i
Höfn siðan 1972 og leikið reglu-
lega i Jasshus Monmatre auk
þesssem hann hefurleikið inn á
breiðskifur og tekið þátt i
hljómleikahaldi.
Doug Raney er frá New York
og eins og áður segir aðeins 21
árs gamall. Þrátt fyrir sinn
unga aldur hefur Raney afrekað
margt, sem á heimsmælikvarða
má telja, en það á hann ekki
langt aðsækja, þvi að faðir hans
er Jimmy Raney, sem hefur
verið talinn einn af mestu jass-
gitarleikurum sem uppi eru i
dag.
Doug Raney hefur ný lokiðvið
sina fyrstu breiðskifu, en hún
var hljóðrituð i september á sið-
asta ári. Með Raney leika á
skifunni, þeir Duke Jordan á
pianó, Hugo Rassmussen á
bassa og Billy Hart á trommur.
Doug Raney hefur m.a. leikið
með Herbie Hancock á breið-
skffunni Mwandishi.
Wilbur Little er frá Norður
Karólinu. Hann er nú búsettur i
Holiandi. Little hefur starfað
með mönnum eins og Miles
Davis, John Coltrane, Randy
Weston og Duke Jordan.
Tónleikar Trio Horace
Parlan verða i kvöld á Hótel
Esju og á morgun mánudag á
Hótel Loftleiðum. Báðir tónleik-
arnir hefjast kl. 21.
Frá Bretlandi berast þær
fregnirað tvær nýjar stórhljóm-
sveitir hafi verið stofnaðar.
Að annarri þeirra standa ekki
ómerkarimenn en Bill Bruford,
áður með Yes, Gong, King
Crimson og Genesis, John
Wetton, áður með King
Crimson, Family, Roxy Music
og Uriah Heep, Allan Holds-
worth, sem hefurleikið með Soft
Machine Jean Luc Ponty og
Gong og Eddie Jobson, sem tók
m.a. við af Eno i Roxy Music,
auk þess sem hann hefur leikið
með Curved Air og Frank
Zappa. Hin nýja hljómsveit
kemur til með að heita U.K.
Eins og sjá má á þessari uppp-
talningu eru þetta allt frábærir
listamennjsem gaman verður að
heyra frá i framtiðinni, en nú
þessa dagana vinna þeir að
sinni fyrstu breiðskifu, sem
koma mun út hjá E.G. Records,
og mun vera fyrirhugað að þeir
fylgi henni eftir með hljóm-
leikahaldi i Bretlandi nú i vor.
Aðdragandinn að stofnun
hljómsveitarinnar var sá, að
Bill Bruford og John Wetton,
höfðu haft samband viö Rick
Wakeman, árið 1976 með það
fyrir augum að stofna hljóm-
sveit, en sú hugmynd komst
aldrei lengra, en að þeir komu
nokkrum sinnum saman til
æfinga, — en ekkert meira.
Hugmyndin var svo endurvakin
i fyrra, þegar gamall kunningi
þeirra beggja, Eddie Jobson,
kom til London, sem meðlimur i
hljómsveit Frank Zappa.
Bruford og Wetton fengu Jobson
til liðs við sig ogfylltihann fylli-
lega upp i það skarð, sem
Wakeman, haföi skilið eftir
sig. Bruford, Wetton og Job-
son hófu þvi næst æfingar af
kappi, sem trló, þar til að
sú hugmynd vaknaði að
bæta Allan Holdsworth i
hópinn en hann hafði aðstoð
að Bruford við gerð sinnar
fyrstu breiðskifu, „Feels
good to me”, en hún kom út
fyrir skömmu og hefur vakið
mikla athygli. Og nú eru þeir
sem sagt fjórir og liklegir til
mikilla afreka og er vonandi að
þeir komist klakklaust yfir alla
fæðingarerfiðleika, þvi að heim-
inum veitir ekki af nýrri
frábærri hljómsveit, sem fyllt
getur i eitthvað af þeim skörð-
um, sem komin eru i hóp hljóm-
sveita sem hafa lagt sig i lima
við að flytja vandaöa rokktón-
Hin hljómsveitin sem
stofnuð hefur verið, ber nafnið
Dick Coverdale Band, eftir
söngvaranum Dick Coverdale,
en hann er fyrrum söngvari
Deep Purple, hinnar sálugu.
Coverdale hefur staðið fyrir ut-
an hljómsveitalifið i 18 mánuði,
eða jafn langan tima og liðinn er
siðan Deep Purple leystist upp.
Coverdale hefur fengið til liðs
við sig, þá Mick Moody og
Bernie Marsden, sem leika á
gitara, David Dovell trommu-
leikara, en hann er fyrrum
trommuleikari Streetwalkers en
þeir eru nýhættir, og fjórði með-
limurinn er Neil Murray bassa-
leikari en hann er fyrrverandi
Colosseum meðlimur.
Nú, og þessa dagana munu
þeir félagar i DCB vera að
stöðugum æfingum og upp úr
miðjum mánuðinum munu þeir
vafalaust hafa nóg aö gera við
að kynna nýja breiðskifu Davids
Coverdale, sem ber heitið
„North Wind”, en hún mun vera
væntanleg á markaðinn um
svipað leyti.
(Byggt á NME.)
U.K., frá vinstri, John Wetton, bassi og söngur Allan Holdsworth,
gítarar, Bill Bruford, Trommur og siagverk og Eddie Jobson,
hljómborð og fiðla.