Tíminn - 12.02.1978, Side 29
Sunnudagur 12. febrúar 1978
;t Ail ;i :L il n
29
HERRANOTT
Albert
á
brúnni
leiklist
HERRANÓTT
Menntaskólans f
Revkiavik.
ALBERTABRÚNNI
eftir Tom Stoppard.
Þýöandi:
Olga Guörún Arnadóttir
Leikstjóri:
Þórhallur Sigurösson.
Leikmynd:
Nemendur i byggingarlist
Herranótt Menntaskólans i
Reykjavik frumsýndi Albert á
brúnni eftir Tom Stoppard á
öskudaginn, en verkið er árlegt
framlag skólans til leiklistar-
innar i borginni.
Að þessu sinni var leikið i
Breiðholtsskóla, þar sem að-
staöan er hin ágætasta, sumsé
leikhús, sem tekur marga i sæti.
Hefur undirritaður ekki áður
séð svona fullkomna aðstöðu i
skóla, og er það reyndar furðu-
legt að svona góð aðstaða skuli
ekki vera notuð meira I þágu
leiklistarinnar, þvi Breiðholt er
stór bær, a.m.k. miðað við Is-
lenzkar aðstæður, og þvi' ekkert
til fyrirstöðu að þar geti þrifizt
leiklistarlif, eða áhugaleikhús.
Herranótt
Herranótt Menntaskólans i
Reykjavik hefur það umfram
aðra leikflokka i skólum, aö þar
er byggt á gamalli hefð, sem
rekja má aldir aftur i tímann.
Skólinn, eða öllu heldur nem-
endurnir, keppa ekki aðeins við
sjálfasig, heldur hafa lika heið-
ur aö ver ja, og það hefur liklega
oröiðtil þiessaðHerranóttbýður
yfirleitt upp á vandaðar sýning-
ar.
Sveinn Einarsson, þjóöleik-
hússtjóri, greinir nokkuð frá
Herranótt i safni til sögu
Reykjavikur, eða Reykjavik i
1100 ár, sem Sögufélagið gaf út
árið 1974, og telur hann fyrstu
tegund leiklistar, sem vitað er
um i Reykjavik, vera „siðasta
skeið Herranæturinnar, hún
flyzt með skólanum frá Skál-
holti og fer fram hér i Reykja-
vik, og hér liður hún lika undir
lok”.
Sveinn lýsir Herranótt tíl
forna á þessa leið:
„Ég þarf ekki að lýsa þessari
hefö, hún er nokkuð kunn og
tæki þar að auki lengri tima
heldur en við mundum geta ætl-
aðokkur hér, aukþesssem hún i
sjálfu sér á ekki heima i þessu
samhengi; að verulegu leyti er
hún afsprengi bændamenn-
ingarinnar, en við ætlum fyrst
og fremst að finna uppi leiklist-
ina á mölinni, leiklistina, sem er
sprottin af þvi fólki, sem býr i
fjölbýli. Herranóttin er krýn-
ingarathöfn, þar var kóngur,
þar var biskup, sem prédikaði,
þetta er allt i tengslum við svip-
uð fyrirbærierlendis, og skal ég
ekki fara nánar út i það. Hins
vegar gerist það áriö 1799, að sá,
sem valinn hafði verið kóngur
og átti að prédika, hann leggur
niður sin veldistákn, epli og
sprota og þvi um likt, þakkaði
Magnater alla sina sæmd, eins
og segir þar, en sagðist ekki
vilja vera öðrum fremri. Þetta
þótti yfirvöldum heldur váleg
tiðindi, og er þá komiö að til-
vitnuninni, sem alþekkt er,
héldu, að hér væri komin
„óleyfileg frihedsprincipia” i lik
ingu við þá, sem þá höfðu verið
„á ferö i Paris”, var þar átt við
frönsku byltinguna. Nema þaö
skipti engum togum, að fyrir-
tæki skólapilta var bannaö og
lagðist af. örlögin eru stundum
gráglettin, sá, sem þurfti aö
gera þetta, var Geir biskup
Vidalin, sem var yfirmaður
skólans, og hafði sjálfur skrifað
leikrit fyrir skólapilta.”
Ennfremur þetta:
„Lærði skólinn flyzt til
Reykjavikur árið 1846, og þá er
þegar hafizt handa um skóla-
leiki að nýju, Holberg verður
fyrir valinu, ég held, að Eras-
mus Montanus hafi veriö fyrst-
ur 1847, og siðan var Den
stundeslöse eða Æðikollurinn.
Skólapiltar léku að sjálfsögðu á
islenzku, en annars var land-
lægt á þessum tima að leika á
dönsku. Það er ekki aö undra,
bærinn er hálf-danskur, þýðing-
ar erulitlar til, og það veröur i
tizku eins og þá var orðaö, „aö
ganga á danska kommindiu”. Á
engar þessar sýningar er þó selt
inn, það gerist i fyrsta skipti 14.
janúar 1854.”
Það er örðugt að meta Herra-
nótt,- gildi hennar fyrir liðandi
stund hefur sjálfsagt verið mis-
jafnt, en ávallt hefur liklega
þótt nokkur fengur að sýningum
nemenda.
Hitt er örðugra, sumsé þaö
að meta hin miklu áhrif sem
Herranótt hefur haft á leikhús-
lifið hér á landi, og er þá bæði
átt viö bókmenntir og leiklist.
A Herranótt kynnast margir,
sem siðar urðu liðtækir, leiklist-
inni fyrst, en þvi hafa læröir
menn haldið fram að i raun og
veru fari menn aðeins einu sinni
i leikhús, én það er i- fyrsta sinn
— og sumir jafna sig aldrei.
Albert á brúnni
Rétt eins og menntaskóla-
nemar dragast áfram með
langa og oft óljósa sögu i leik-
list, þá hygg ég að almenningur
geri ef til vill meiri kröfur til
Herranætur en skólasýninga al-
mennt. A það bæði viö um verk-
efnaval og uppfærslu leikja.
Albert á brúnni eftir Tom
Stoppard er ágætt verk og sam-
boðið skólanum. Leikurinn er i
þýðingu Olgu Guðrúnar Arna-
dóttur og var fluttur i útvarp ár-
ið 1975.
Tom Stoppard er fertugur aö
aldri, og er einn vinsælasti
leikjahöfundur Breta. Frá þvi
er greint, að leikrit hans hafa
verið tekin til sýningar af rúm-
lega 350 leikfélögum i 19 lönd-
um, og verk hans eru kennd i
skólum viðs vegarum heim, og
þau hafa verið þýdd á yfir 30
tungumál.
Aibert á brúnni segir frá ung-
um menntamanni, sem leggur
stund á heimspeki i skóla. Hann
fær vinnu i vinnuflokki, sem
málar stórbrú. 1 flokknum eru 5
menn, og þegar þeir hafa lokið
við að mála siðustu stálbitana á
öðrum endanum, þá stendur það
heima, að hinn endinn er
byr jaöur að flagna og það verö-
ur að byr ja að mála brúna aftur.
1 tugi ára hafa sumir þessara
manna málað brúna, en þá
kemur tæknin til skjalanna.
Vinnuhagræðingur borgarinnar
finnur það út, að með þvi að
nota dýrari málningu, sem end-
ist i átta ár, þá megi fækka
málurunum úr fimm i einn, og
Albert sækir um stööuna, þvi
brúin hefur heillað hann og orð-
ið grundvöllur nýrrar reynslu
og hamingju.
Albert barnar vinnukonuna
heima hjá sér, og þau giftast,
þvi hann er frá góðu heimili, og
ungu hjónin byrja búskap. En
Albert hefur meiri áhuga á
brúnni en ungu konunni sinni og
barninu, brúin verður honum
ástriða,og hannreynir að dvelj-
ast þar öllum stundum.
Konan jagast. Telur að hann
geti fengið betri stöðu vegna
þess að hann er menntaður, en
Albert veit að þá verður hann að
fórna brúnni og hamingju sinni
um leið.
Þetta er ekki merkilegur
söguþráður, en styrkleiki þessa
verks er fólginn i hliðstæöunum.
Þótt verkið snúist um brú, þá
dregst samfélagið ósjálfrátt inn
i máliö, og viö sjáum heiminn
frá nýrri hlið.
Leikurinn er brotinn upp I
stutt atriði, sem tengjast vel,
þrátt fyrir mikinn hraða. Tákn-
málið er auðskilið fyrir h vern og
einn.
Þórhallur Sigurðsson leik-
stýrir þessu verki, en hann hóf
einmitt leikferil sinn hjá Herra-
nótt. Þórhallur nýtir vel starfs-
kraftinn. Uppfærslan verður
stilfærð, vegna þess hve allir
eru ungir. Bandarikjamenn
gera nú dálitið af gangster-
myndum, þar sem börn fara
meö hlutverk mafiuforingj-
anna. Þótt nemendur MR séu
komnir til þroska, þá eru æsku-
töfrarnir svo afgerandi, að það
setur sérstakan svip á verkið,
sem er mjög áhrifamikið á köfl-
um.
Leikurinn er frjáls, hæfilega
stilfærður, og hann gerir hæfi-
legar kröfur til imyndunarafls-
ins.
Leikmyndin er hreint af-
bragð, frumlegoglátlausi senn.
Viö brjótum ekki þá hefð að
geraeinstökumleikurum skil.
Þó teljum viö þennan hóp vera
jafnari en oft áður.
Þessir fóru með hlutverk:
Sveinn Yngvi Egilsson
Sigriður Erla Gunnarsdóttir
Ilalldóra Gunnarsdóttir
Jón Atli Arnason
Þórhallur Eyþórsson,
Magnús Erlingsson,
Margrét Rún Guðmundsdóttir,
Guðmundur Jóhannsson,
Egill Másson,
Kristján Franklin Magnús,
Mimir Völundarson,
Ólafur Rögnvaldsson,
Þá er ekki annað eftir en aö
þakka gott boð og skemmtilega
sýningu.
Jónas Guðmundsson
Opið bréf til
ríkissaksóknara
Hr. rikissaksóknari
Þórður Björnsson.
Fundur kennara og nemenda
Flensborgarskólans i Hafnarfiröi
mótmælir þvi harðlega að þú i
krafti þins embættis hafir látið
banna sýningar á kvikmyndinni
„Veldi tilfinninganna” eftir
japanska leikstjórann Nagisa
Oshima.
Við mótmælum þvi að þú skulir
leyfa þér aö úrskuröa kvikmynd,
sem vakti geysilega athygli i
Cannes ’76 og margir vildu kalla
einstætt listaverk, kvikmynd,
sem brezka kvikmyndastofnunin
kaus beztu mynd ársins ’76,íclám,
er varði við lög að sýna á þessari
fyrstu kvikmyndahátiö Islands.
Þætti okkur fengur í aö vita hvort
þú hyggst einnig ákvarða hver
verði leyfiieg dagskrá listahátið-
ar á sumri komanda.
Okkur þvkir það næsta óheilla-
vænleg þróun, að geðþótta-
ákvöröun embættismanna hins
opinbera sjceri úr um hvað er list
og hvað ekki.
Bændur - Verktakar
Höfum stóraukið varahlutalager okkar,
og höfum fyrirliggjandi flestalla varahluti
i Perkingsmotora og Massey Ferguson
dráttarvélar og traktor gröfur.
Vélar og þjónusta h.f.
Smiðshöfða 21, simi 8-32-66.