Tíminn - 12.02.1978, Síða 32

Tíminn - 12.02.1978, Síða 32
YPIRLIT UM SKYRSLU VERÐBÓLGUNEFNDAR Þegar verðbólgunefnd lauk störfum 8. febrúar fylgdu grein- argerð hennar sérálit þau.er hér fara á eftir ásamt bókunum er nokkrir aöiiar létu gera, og álits- gerð formanns Vinnuveitenda- sambands og Stéttarsambands bænda og ályktun stjórnar þess. Fara þessi sérálit og greinar- gerðir hér á eftir. Álit Jóns Sigurðssonar, Guð- mundar G. Þórarinssonar, Hall- dórs Ásgrimssonar, Jóhannesar Nordal, Jónasar H. Haralz og Ólafs G. Einarssonar. Við erum i meginatriðum sam- mála um tillögur þær og ábend- ingar um umbætur i stjórn efna- hagsmála og skipulegt samráð aðilanna á vinnumarkaðnum og stjórnvalda, sem stuðlað gæti að varanlegum árangri i viðureign- inni við verðbólguna sem settar eru fram i 4. og 5. kafla skýrsl- unnar. Við teljum einnig að brýn þörf sé fyrir ákveðnar aðgerðir i efna- hagsmálum þegar i'stað, og jafn- framt sé mikilvægt að við lausn á hinum aðsteðjandi efnahags- vanda séu farnarleiðir, sem leggi grundvöll að bættri efnahags- stefnu á næstu árum. í aðalatrið- um er um tvær leiðir að velja til lausnar á þessum stundarvanda: 1. Aðfylgja þeirri meginhugmynd sem sett er fram i Dæmi 2 i 3. kafla skýrslunnar og lýsa mætti sem samdráttar-og nið- urfærsluleið gegn verðbólgu að afstaðinni óhjákvæmilegri gengislækkun um nálægt 10% þegar i stað en gerðir kjara- samningar haldist óbreyttir. 1. Að fylgja þeirri meginhugmynd sem sett er fram i Dæmi 5 i 3. kafla skýrslunnar og lýsa mætti sem málamiðlunarleið gegn verðbólgu, að afstaðinni um það bil 15% gengislækkun þegar i stað, samhliða nokkurri skerðingu verðbótaákvæða giidandi kjarasamninga auk hliöarráðstafana á sviði rikis- fjármála og lánamála. Eins og nú er ástatt i efnahags- málum teljum við þá meginhug- mynd sem fólgin er i málamiðl- unarleiðinni, sem lýster i fimmta dæminu (nánar tiltekið Dæmi 5b) i lokagrein 3. kafla sé skárri kost- ur, þegar tekið er tiliit til sem flestra markmiða i efnahagsmál- um. 1 þessu felst fyrst og fremst ábending um aðalatriði nauðsyn- legra aðgerða en ekki um fram- kvæmd þeirra i einstökum grein- um. 1 þessu efni skiptir miklu máli að ekki sé gengiö lengra i mildandi ráðstöfunum á sviði rik- isfjármála en raunverulegur grundvöllur er fyrir. Að öðru leyti visum við til þess sem segir i niðurlagi 3. kafla. „að fimmta leiðin komist næst farsælli lausn, þótt á henni megi sjá ýmsa agnúa. Aðalatr- iðið er, að snúizt verði ákveðið og afdráttarlaust við verð- bólgu- og jafnvægisvanda þjóð- arbúsins. Hér er ekki valið miUi þægilegra kosta, en velja þarf skjótt og með ákveðnum hætti milli kostanna fjögurra þ.e. hvort fara skuli samdrátt- ar- og niðurfærsluleiðina, launastöðvunarleiðina eða leið gengislækkunar með stöðvun eða skerðingu verðbóta. Vandinn er sá að kjósa þá leið, sem viðunandi árangur næst eftir frá efnahagslegu sjónar- miði án þess að valda svo kröft- ugu afturkasti i næstu kjara- samningum að upp sé vakin enn á ný kröpp verðbólgualda. Það er skammgóður vermir að draga snögglega úr verðbólgu- hraðanum á árinu 1978, ef af aðgerðum til viðnáms gegn verðbólgu að þessu sinni hlýzt enn aukin verðbólga siðar.” Sameiginlegt álit Full- trúa ASÍ, BSRB og full- trúa þriggja flokka i verðbólgunefnd. I þeim tillögum sem nefndar- formaður hefur lagt fram i verðbólgunefnd, er gert ráð fyrir beinni riftun kjara- samninga og verulegri al- mennri kjaraskerðingu. Við undirritaöir 5 nefndarmenn: Ásmundur Stefánsson, fulltrúi ASÍ, Gylfi Þ. Gfslason, fulltrúi þingflokks Alþýðuflokksins, Karvel Pálmason, fulltrúi þingflokks Frjálslyndra og vinstri manna, Kristján Thor- lacius fuiltrúi BSRB og LUðvik Jósepsson, fulltrúi þingflokks Alþýðubandalagsins, lýsum okkur andviga slikum aðgerð- um og teljum okkur ekki fært að standa að nefndarálitinu. Frá undirskrift samninga ASl-félaganna og atvinnurek- enda eru nú einungis liðnir rUmir 7 mánuðir og rétt rUm- lega 3 mánuðir frá undirskrift aðalkjarasamnings BSRB og f jármálaráðherra. í þessu sambandi má minna á, að i haustspá Þjóðhagsstofnunar og yfirliti stofnunarinnar um þró- un og horfur efnahagsmála i janúarlok á þessu ári er aukn- ing þjóðartekna talin rúmlega 7% árið 1977, en Þjóðhagsstofn- un spáði um 5% i áætlun sinni sl. vor. Sá rammi sem stjórn- völd hafa miðað við, hefur þannig reynzt rýmri en áður var gert ráð fyrir. Sú rikis- stjórn sem sjálf hefur undirrit- að kjarasamninga fyrir þrem mánuðum og afgreitt fjárlög fyrir rUmummánuði, stefnirnU að riftun samninga. Stefna verður að samfelldum aðgerðum, sem miða að endur- skipulagningu efnahagslifsins, þannig að markmiðunum stöð- ugu verðlagi, vaxandi kaup- mætti og fullri atvinnu sé náð til lengri tima. Þvi er brýnt að þær aðgerðir sem nU verður gripið til, torveldi ekki fram- búðarlausn þessara mála, eins og fram lagðar tillögur gera ráð fyrir. Það er skoðun okkar að þann vanda sem við er að etja, megi leysa án þess aðrifta samningum eða skerða almenn launakjör. Þá ber að itreka að grundvallarforsenda þess að sú vfðtæka samstaða sem nauð- synleg er, ef lausnin á að koma að varanlegu gagni, er fyrir- fram rofin með aðgerðum af þvi tagi sem nú eru boðuð. Það er algjört grundvallaratr- iði að samningar sem varða kaup og kjör séu haldnir eins og aðrar fjárskuldbindingar i þjóðfélaginu. Um leið og við leggjum fram meðfylgjandi verðlækkunartillögu, leggjum við áherzlu á að unnið verði að þvi m.a. að jafna sveiflurnar i efnahagslifinu, koma skipulagi á fjárfestingarmálin, hrinda fram Urbótum i skipan fjár- mála rikis og sveitarfélaga og bæta fyrirkomulag verðlags- eftirlits. Skammtimalausnin verður aðleggja grunn að lang- timalausn. SU tillaga sem við leggjum hérfram stefnir að þvi að hægja á verðbólgunni, án þess að til atvinnuleysis þurfi aðkoma.þótt ljóst sé að hér er ekki um að ræða nema skref i átt að lausn málsins til fram- búöar. Auk þessara fjárlagaaðgerða verði verzlunarálagning lækkuð um 10%, þannig að áhrif verð- iækkunaraðgerðanna á fram- færsluvisitöluna verði sem hér segir: Lækkun verzlunarálagningar 1 1/2% Auknar niðurgreiðslur 3% Niðurfelling vörugjalds 1 1/2% Lækkun alls 7% Samkomulag 5 fulltrúa i' verð- bólgunefnd erþannig byggtá þvi grundvallaratriði að ekki verði hróílað við kjarasamningum, fuli atvinna haldist og dregið veröi úr verðbólgu með verðlækkunarað- gerðum. Um hinn sérstaka vanda út- flutningsatvinnuveganna gerum við ekki tillögur hér, þar sem ljóst er að gengislækkun er þegar á- kveðin. Sú ákvörðun knýr enn á um að gengið sé til verðlækkunar- aðgerða af þvi tagi, sem hér er gerð tillaga um. Ásmundur Stefánsson Gylfi Þ. Gislason Karvel Pálmason Kristján Thorlacius Lúðvik Jósepsson Við, sem erum fulltrúar ASl og BSRB tökum fram að samtök okkar eru reiðubUin að eiga við- ræður við rikisstjórnina á grund- velli þessara tillagna. Asmundur Stefánsson Kristján Thorlacius Gylfi Þ. Gislason tekur eftirfar- andi fram: Éger i meginatriðum sammála þeim hugmyndum sem settar eru fram i 4. og 5. kafla skýrslunnar varðandi umbætur i stjórn efna- hagsmála og skipulegt samráð aðilanna á vinnumarkaðinum og stjórnvalda sem stuðlað gæti að varanlegum árangri i viðureign- inni við verðbólguna. Varðandi hugmyndir þær, sem settar eru fram i 3. kafla um efnahagsráðstafanir nú, er ég að- ili að framangreindum tillögum, og tel rikisstjórnina eiga þegar i staðað taka upp viðræður við að- ila vinnumarkaðsins og bænda- samtakanna á þeim grundvelli. Ef ekki næst samstaða um þessar ráðstafanir en i ljós kæmi að rikisstjórnin vildi virða gerða kjarasamninga m.a. með þvi að draga úr rekstrarútgjöld- um rikisins og opinberum fram- kvæmdum eins og gert er ráð fyr- ir i dæmi 2 i 3. kafla, og ef bænda- samtökin gætu ekki fallizt á lækk- un útflutningsbóta, mæli ég með þvi, að framkvæmdar verði þær aðgerðir sem felast i dæmi 2, með þeirri breytingu að i stað tekju- skattshækkunar og Utsvarshækk- unar komi heimild til sveitarfé- laga til þess að hækka aðstöðu- gjald á atvinnurekstur, enda gætu þaudregið Ur framkvæmdum sin- um, ef þau telja hækkun aðstöðu- gjaldanna varhugaverða. Gylfi Þ. Gislason Til viðbótar þeim yfirlýsingum og tillögum, sem ég stend að, á- samt fjórum öðrum nefndar- mönnum i verðbólgunefnd, vil ég taka fram eftirfarandi: Ein af meginorsökum hinnar hröðu verðbóíguaukningar á sið- ari árum er, að minum dómi, ó- hagkvæm og skipulagslaus fjár- festing á vegum hins opinbera og annarra aðila i þjóðfélaginu. Þessari öru fjárfestingu hefur fylgt óhófleg og stórvarasöm skuldasöfnun erlendis. Ég tel að jafnframt þvi sem gerðar eru ráðstafanir til lagfær- ingar á skipulagi fjárféstinga- mála til lengri tima, sé rétt að hefjast handa þegar á þessu ári og hægja nokkuð á fjárfestingu, sem unnt er að fresta, jafnvel þó þörf sé. Kristján Thorlacius Lagt fram i verðbólgu- nefnd 8. febrúar 1978. Mér er ljóst, að þörf er marg- vfslegra skammtimaráðstafana i efnahagsmálum vegna erfiðrar stöðu atvinnuveganna nú. Stjórn- völd hafa þegar tekið ýmsar mik- ilvægar og stefnumarkandi á- kvarðanir, sem að þessu lúta, og tel ég því óhjákvæmilegt, að þau ljúki nauðsynlegum aðgerðum með vali þeirra leiða, sem bezt teljast fallnar til og falla að þvi, sem þegar hefur komið til fram- kvæmda. Ég tel ýmislegt af þvi, sem fram kemur i 4. og 5. kafla fyrir- liggjandi draga að skýrslu „verð- bólgunefndar” geta orðið til mik- ils gagns og til bóta i meðferð efnahagsmála en ég tel starf nefndarinnar, að þvi er snertir langtimamarkmið, ekki komið á það stig, að hún hafi lokið verk- efni sinu. Reykjavik, 8.2.1978 Jón H. Bergs Ég undirritaður tel nauðsynlegt og óhjákvæmilegt að gerðar verði efnahagsráðstafanir til að draga Ur verðbólgu og tryggja rekstur atvinnuveganna og atvinnuöryggi launþega. 1 trausti þess að tekið verði tillit til ábendinga stjórnar Stéttar- samband bænda um þetta efni, sem hérfylgja með, mæli ég með ráðstöfunum þeim, sem gert er ráð fyrir i dæmi 5 i tillögum for- manns nefndarinnar, með frávik- um þeim er felast i áðurnefndum fyrirvara og viðbótarráðstöfun- VERÐLÆKKUNARLEIÐ Fjáröflun: 1.10% hækkun á skatti félaga auk 5% skyldusparnaðar 900m.kr. 2. Veltugjald á sama skattstofn og aðstöðugj. 4300 m.kr. 3. Lækkun rekstursgjalda rikisins 1500m.kr. 4. Útflutningsuppbætur, sem færastá niðurgreiðsl. 1000 m.kr. 5. Áhrif aðgerðanna á rikissj. 2000 m.kr. 6. Hækkun tekna rikisins v/betriinnheimtu söluskatts 1000 m.kr. v/breyt-á tekjusk. 7. Sala spariskirteina 2000 m.kr. Alls 12.700 m.kr. Ráðstöfun: 1. Vörugjald fellur niður 6800 m.kr. 2. Niðurgreiðslur auknar 3200 m.kr. 3. Leiðrétting á forsendum fjárlaga (en skv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar er óhjákvæmi- legt að afla þessara tekna, þar sem fjárlaga- forsendur hafa reynzt rangar) 2100 m. kr. Alls: 12.100 m.kr. Sunnudagur 12. febrúar 1978 um fyrir landbúnaðinn svo hagur hans verði tryggður. Reykjavik, 8/2 1978 Gunnar Guðbjartsson Stjórn Stéttarsambands bænda teiur nauðsyniegt að gerðar verði efnahagsráðstafanir bæði til að draga úr verðbólgu og eins og ekki siður til að tryggja rekstur atvinnuveganna og atvinnuöryggi i landinu. Stjórn Ste'ttarsambands getur þvi eftir atvikum fallizt á 10-15% gengisfellingu nú, enda verði gerðar hliðarráðstafanir til að milda áhrif gengisfellingar á kjör þeirra iægstlaunuðu, svo sem bænda. Lögð er áherzla á eftirtalin atr- iði • 1. 'Ekki verði lagðar hömlur á hækkun búvöruverðs til bænda vegna hækkaðs verðs aðfanga,svo sem kjarnfóðurs, áburðar o.fl. 2. Sérstök áherzla er lögð á lækkun útsöluverðs á búvör- um með þvi að söluskattur af kindakjöti verði felldur niður eða hann verði endurgreiddur og niðurgreiðslur auknar. 3. Verði lagðar hömlur á kaup- gjaldshækkanir mismunandi eftir launafjárhæð, komi skýrt fram hvort miðað er við tima- kaup dagvinnu, timakaup miðað við tiltekinn vinnutima eða heildarfjárhæð mánaðar- launa án tiilits til timafjölda sem unninn er. 4. Stjórn Stéttarsambandsins telur vaxtahækkun umfram það sem orðið er varasama fyrir atvinnuvegi landsmanna og getur ekki mælt með þeirri leið né heldur verulegum samdrætti lánsf jár i krónutölu frá siðasta ári hjá stofnlána- sjóöum atvinnuveganna. Stjórnin leggur áherzlu á lög- festingu frumvarps um breyt- ingu á lögum um Stofnlána- deild landbúnaðarins sem nú er hjá rikisstjórn. 5. Lögð er áherzla á nauðsyn þess að gæta aðhalds i rikis- rekstri og þá helzt á þann veg að dregið verði úr útgjöldum við rekstur einstakra rikis- stofnana og banka með bættu skipulagi og aukinni vinnu- hagræðingu. Ekki er mælt með samdrætti i samgöngu- máium. Talið er rétt að at- huga möguleika á að fresta nýjum virkjunarframkvæmd- um. Mælt er með þvi að draga úr erlendum lántökum svo sem frekast er fært. 6. Ýmis atriði um stjórn fjár- festingarmála og fjármála- stjórn eru i skýrslu formanns- ins með þeim hætti að stjórn Stéttarsambands bænd getur ekki fallizt á þau. Mjög er ó- ljóst hvað átt er við með arð- semismati framkvæmda og einkum þegar langtimasjón- armið eru höfð i huga, vegna sibreytilegra aðstæðna i framleiðslu og markaðsþróun. Eftir atvikum er unnt að fall- ast á rýmkun bindiskyldu sparifjármyndun yfir ákveðið mark, enda verði ekki horfið frá þvi að Seðlabankinn veiti afurðalánin til atvinnuveg- anna og þau aukin frá þvi sem nú er. 7. Stjórn Stéttarsambands bænda telur að skilgreina þurfi skýrt hvaða félög eru skattskyld og skyldug til að binda fé í sparnaði sbr. tillögu formanns nefndarinnar um það efni. Hún telur ekki rétt að stótarfélög né menningarfé- lög eigi né geti fallið undir þann flokk. Þar er t.d. átt vð ungmennafélög, kvenfélög, búnaðarfélög, búnaðar- og ræktunarsambönd og stéttar- félög hvers konar. 8. Nauðsynlegt er að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til aðstoðar skuldugum bændum, svo þeir ekki verði neyddir til að hætta búrekstri, ef þrengt er að kjörum allra þegna með efnahagsráðstöfunum þeim sem framundan eru. Þetta er sérstök nauðsyn þar sem fjár- magnskostnaður i búvöru- verði er alls ófullnægjandi. 9. Gengismunur af landbúnaðar- vörum falli til landbúnaðarins svo sem venja hefur verið. 10. Rétt þykir að vekja athygli á þeim mun sem nú er á tolla og söluskattsgreiðslum af vélum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.