Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 13. mal 1978. menn og málefni Þeir koma með sama graut i sömu skál VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK 9 l»I Al'til.YSIH l M AI.I.T i.ant) i>i:<;ah h ah. I.YSIK I MOHHl'NHI.ADIM Á myndinni eru: Birgir ísl. Gunnarsson, Ólafur B. Thors, Albert Guðmundsson, Davíö Oddsson, Magnús L. Sveinsson, Páll Gíslason, Markús Örn Antonsson, Elín Pálmadóttir, Sigurjón Á. Fieldsted. Ragnar Júlíusson, Hilmar Guðlaugsson, Bessí Jóhanqsdóttir, (vantar á myndina), Margrét S. Einarsdóttir, Sveinn Björnsson, Hulda Valtýsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, (vantar á myndina), Sveinn Björnsson, Valgarð Briem. Við erum reiðubúin Viö erum frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum 28. maí n.k. og skipum 18 fyrstu sætin á framboöslistanum. Kosningaskrltla Sjálfstæ&isflokksins I Reykjavlk. Fólkiö sem I 206 vikur kjörtlmabilsins lifir I filabeins- turni, tekur á sig sendilsgervi i tvær vikur —og býöur auk þess vinnu, þegar veriö er aö skera gatna- geröarframkvæmdir i sumar niöur um fjóröung af þvl aö beinn rekstrarkostnaöur borgarinnar gleypir orðiö svoaö segja allar tekjur hennar. „We are ready, willing and able” auglýsa þeir. Fyrir kosningar er jafnan mikiö um dýröir. Þá er timi skóflustungunnar góökunnu, og þá eru dagar vigsluhátiöanna. , Þeir, sem setiö hafa ábúðarmiklir i filabeinsturni sinum, koma út með ljúfmannlegu sniði og yfir- bragði, bjóða háum og lágum til sin á hverfisfundi, taka þýðlega á málum fólks og hafa um það hin þokkalegustu orð, að úr þvi skuli nú bætt, er kvartað er yfir, og því til góðralyktaráðið, er uppi hefur dagað i kerfinu. En oft, þvi miður er ekki ráðrúm til þess að ganga endanlega frá þessu fyrr en eftir kosningar. Það gerir.hvað timinn er orðinn naumur, og svo náttúr- lega bannsettar annirnar, sem seint verður lát á. Að svo mæltu er fólki klappað notalega á öxlina, það er svo mikil vinsemd,sem inni fyrir býr, og sönn alúð lögð i handtakið, þegar kvatt er. Og þá er hverfis- fundurinn búinn. Uppákomur i heimahúsum En það koma ekki nema fáir á hverfisfundi eða i móttöku hjá borgarstjóranum og fólki hans. Ekki miðað við allan þann sæg, sem til er af fólki i bænum. Það liggur i' augum uppi, að betur má gera. í gamla daga fóru bóksalar migangandi um byggðir i sölu- erindum og á seinni árum hefur verið mikil tizka, að góðgerða- félög láti ganga i hús til þess að selja merki og happdrættismiða. Þetta hefur auðvitað ekki fariö fram hjá borgarstjóranum. Þess vegna veröur það nýjung þessara kosninga, að hann mun senda vel skóaða liðsodda sina inn á heimilin, likt og sölubörn frá Krabbameinsfélginu, til þess aö mæla fólk máli og lofa þvi góðu — eftir kosningar. Likt og árvökul smurbrauðs- stofa, sem afgreiðir brauð og rúllupylsu eða óðalsost i skyndi, mun Sjálfstæðisflokkurinn senda eitt stykki tungulipran boðbera i heimahús eftir pöntun til þess að spila þar rullu sina af fingrum fram. En það er náttúrlega viss- ara að vera með fyrra fallinu til þess að njóta þessa eftirlætis, þvi að óvist er, að svona uppákomur verði boðnar fram eftir kosningar. Það gæti orðið fjögurra ára bið eftir gestunum, ef þeir eru ekki pantaðir strax. Nú borga þeir reikningana Fyrir kosningar gildir það að styggja engan, gera engan aftur- reka. Það hefur Sjálfstæðis- mönnum i Reykjavik lengi verið ljóst. Þess vegna leggja þeir aldrei i það háskaspil að úthluta lóðum, sem fleiri kunna að girnast en fengið geta, rétt fyrir kosningar. Það er talin „betri” pólitik að láta alla lifa i voninni i þeim efnum sem öðrum, þar sem sumir geta hlotið það, sem þeir vilja, en aörir verða að mæta af- gangi. Það er reglan hjá Birgi & Co.ierfö frá fyrri borgarstjórum, að leggja viðkvæm mál i salt og láta liklega við sem flesta — fram yfir örlagadaginn, sem að þessu sinni er 28. mai. Aftur á móti getum við meö góðrisamvizku ráðlagtþeim sem eigaógreidda reikninga eða ávis- anir á Reykjavikurborg, að sæta færi næstu tvær vikur. Þótt þeir séu hvekktir sökum fyrri reynslu i skiptum sinum við borgar- stjórnarvaldið, þá má það nærri öruggt heita, að þessa daga fram að kosningum verða engar bið- raðir hjá gjaldkeranum og ekkert múður. Það væri lika svo and- styggilegt að geta ekki staðið i skilum i jafniskyggilegri nálægð við atkvæðakassana. Þess vegna hljóta þeir að vera búnir að fara i Landsbankann upp á yfirdrátt eða víxil. Gorkúlan vex - framkvæmd- irnar minnka Tekjur Reykjavikurborgar á þessu ári eru áætlaðar nærri hálfum fimmtánda milljarði króna. Þetta eru að visu flot- krónur eins og hjá öðrum, en þó álitleg fárhæð. En þvi er verr og miður, að rekstrarkostnaðurinn hjá Reykjavíkurborg hefur haft mikið af tilhneigingu gorkúlunnar áseinni árum. Hann hefur þanizt út af mikilli vaxtaorku, og nú er beinn rekstrarkostnaður orðinn mjögnærri þrettán milljörðum á ári. Yfirbyggingin er orðin ári hátimbruð, og með sama vaxtar- hraða er skammt i það að hún gleypi gersamlega allar tekjurnar að öUu óbreyttu, svo að ekki veröi lengur unntað leggja handarvik i það, sem heitir nýjar fram- kvæmdir, án þess að taka peninga til þess að láni. Það yrði enn ný ávisun handa næstu kynslóð að borga. Þegar þess er gætt, hve rekstrarkostnaður Reykjavikur- borgar hefur bólgnað i höndunum á Sjálfstæðisflokknum, og nauða- litið verður afgangs, þegar hann hefur verið reiddur af höndum, þarf enginn að láta sér bilt við veröa, þegar vitnast, að draga verður saman framkvæmdir við gatnagerð og holræsagerð i sumar um fjórðung frá þvi, sem gertvar ráð fyrir i fjárhagsáætl- uninni i desembermánuði siðast liðnum án tillits til þess, hvort at- vinnuástand verður gott eða slæmt þegar kemur fram á sumarið. Það er einfaldlega ekkert afgangs til þess að standa við þá áætlun. Og þó — sumum kemur þetta ef til vill óvart, einkanlega ef ^þeir hafa lagt trúnað á þá máttarstólpa- kenningu, að Sjálfstæðisfor- kólfunum sé öðrum mönnum betur gefið að fara með peninga. En það er nú misskilningur — að minnsta kosti ef peningarnir eru sameign allra Reykvikinga. Hitt er svo sjálfgefið: Kosningasálfræðin hjá borgar- stjóranum og ftokknum hans leyfir ekki , að borgarbúum sé sagt, fyrr en eftir kosningar, hvaða framkvæmdir lenda i úti- deyfu i sumar, hvaða hverfi verða enn að biða malbikunar og annars. Endurskoðunin á áætluninni fer ekki fram fyr en i næsta mánuði, af þvi að það gæti verið óhollt fyrir heilsufar ihalds- atkvæðanna að hún verði fyrr gerð. Skóflustung- ur og vigslu- athafnir Allar horfur eru á þvi, að minna verði um skóflustungur i vor heldur en stundum hefur áður verið. Kannski kemur það ekki stórlega að sök, þvi að stundum hefur fyrsta skóflustungan farið fyrir lítið hjá borgarstjóranum i Reykjavik. Dæmi um það er kosninga skóflustungan, sem einu sinni átti að verða upphaf æsku- lýðshallar í kálgörðunum, þar sem nú eru hús öryrkjabanda- lagsins, en varð aldrei annað en einn skurður djúpur. _ . A hinn bóginn verða væntan- lega vigslur. Til dæmis er búið aö afhýðá biöstöðina á Hlemmi og má furðu gegna ef hún verður ekki vigð með talsverðri viðhöfn nokkrum dögum fyrir borgar- stjórnarkosningarnar. En þeir sem þar eiga að fá inni með sölu- búðir, verða áreiðanlega að biða sins heiðursdags fram yfir mánaðamótin, þvi að sum verzlunarplássin eru talin gróða- vænleg og þess vegna gildir að allir sem eftir þeim hafa falazt fái sofið i næstu tvær vikur á þeirri von, að einmitt þeir séu hinir útvöldu er við brjóstið verða lagðir. Samanborið við fyrri tið verða þó jafnvel vigslurnar að likindum fáar og svipdaufar. Einu sinni var það til dæmis borgarspitalinn,og svo seint á ferðinni, að siðustu dagana voru iðnaðarmenn látnir vinna þar eins lengi og þeir gátu staðið uppi, likt og gerðist á togurum fyrir daga vökulaganna svo að hann næði vigslu fyrir kosningar og var þó ekki að frá- gangi, er til frambúðar væri. heldur skyndifrágangi og bráða- birgöa, er nægt gat vigslugestum og ljósmyndurum blaðanna. Hámarki náöi vigslugleðin eitt kosningaárið i borgarstjóratið Geirs Hallgrimssonar. Þá segja tölfróðir menn að vigslurnar hafi orðið sjö enda hafði þá verið frestaö að taka sumt i notkun sem vigjanlegt taldist, eða vigslan látin biða, þar til rétt dæmdist að gera það eftir lögum kosningasál- fræðinnar. Hátindurinn var, er Geir ók i fararbroddi með stóral- varlegu augnaráði úr gömlu slökkvistöðinni við Tjarnargötu i hina nýju við öskjuhlið. Það vantaði ekkert annað en litlar stúlkur stæðu i röðum með blóm meðfram götunum eins og gert var, þegar hann heimsótti Sovétrikin. En þangað var hann ekki búinn að fara á þessu sæla slökkvistöðvarári. Kosninga- remba og skuldasöfnun En þetta var nú þá. Arið 1974 með sina landnámshátið og kosningar, er lika komið i tals- verða fjarlægð. En er þó ekki enn nálægt Reykvikingum að vissu leyti. Þá þótti henta að tjalda þvi, sem til var,og raunar talsvert miklu meira. Borgarstjórnar- meirihlutinn rembdist i rass og sinar við að sýna mátt sinn og veldi, svo að engum sæist yfir það. hver hann var. Þetta var ár grænu byltingarinnar sem enn er reyndar grá i jaðrana og her- kostnaðurinn varð mikill. I reynd komst Reykjavikurborg harla nærri greiðsluþroti ekki alls ólikt þeim i New York. Niu urðu borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins svo að það fékkst sem eftir var sötzt. En i ágústmánuði stöðvaðist allt hjá borginni af þvi of miklu hafði verið eytt. Bráða- birgðaskuldir við Landsbankann voru orðnar sjö hundruð milljónir króna og skútan var að þvi komin að steyta á skeri eða hafði jafnvel gert það,varð að breyta þessum yfirdráttarskuldum og vixlum i föst lán. 1 framhaldi af þessu var horfið að þvi óyndisúrræði að taka er- lent lán handa Reykjavikurborg. En slik lán hafa það eðli að gróð- inn af þeim er seintekinn likt og var af hestakaupum við Sumar- liða póst i fyrri tið. Þessir pening- ar undu upp á sig og hafa nú náð þeim vexti á eitthvað sjö misser- um að vextir og afborganir nema um þrjú hundruð milljónum króna á ári. Og munu gera betur, áður en sagan er úti. Þannig er siðasta kosningaár enn á meðal okkar i reikningum Reykjavikurborgar og á blöðum þeim, sem almenninur fær fyrir peningana sem til Gjaldheimt- unnar ganga. Sendlar smurbrauðs- stofunnar 1 stuttu máli sagt: Reykviking- ar eiga þess kost að fá erindreka Sjálfstæðisflokksins heim til sin, inn i eldhúsið til frúnna og inn i herbergið til elsku litlu barnanna, sem sannarlega eiga skilið að fá klapp á kinnina þvi að þau munu seinna meir fá að borga brúsann — allar óreiðuskuldirnar sem gestirnir frá hinni pólitisku smur- brauðsstofu Sjálfstæðismeirihlut- ans i Reykjavik hafa stofnað til og munu hlaða upp i framtiðinni i takt við siaukinn tilkostnað viö rekstrarbákniö sem þanið er út ár frá ári. „Vantar þig fólk?” spyr Birgir & Co i stórum auglýsingum i Morgunblaðinu og birtir mynd af sér við átjánda mann. Það er áhlaupasveitin sem i tvö hundruð og sex vikur kjörtimabilsins er fólk i filabeinsturni en tekur á sig gervi sendilsins i tvær vikur fyrir kosningar. Vikurnar tvær, þetta pólitiska veiðitimabil, gildir þessi regla: „Bara hringja.þá kemur það”. Það kemur þetta fólk úr sendi- sveit borgarstjórans sem berst fyrirenn einni framlengingunni á ihaldsstjórn á Reykjavik. Það kemur tindilfætt og brosmilt, skólað til fjórtán daga þægileg- heita með sama graut i sömu skál og tilreiddur hefur verið fyrir all- ar aðrar borgarstjórnarkosning- ar. —JH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.