Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 13. maf 1978. 13 Peningar eru ekki — og við hóf- um ekki búskap til þess að eignast mikla peninga, segja ung hjón, sem i haust hófu búskap vestur i Barða- strandafsýslu Þaö þýðir ekki fyrir neinn að fara út i búskap til þess að verða rikur að veraldlegum gæðum, en peningar eru ekki allt i lifinu. Ánægjan af þvi að umgangast skepnurnar og vera i nánum tengslum við náttúruna er einnig mikils virði. Þetta sagði ungur bóndi Þrá- inn Hjálmarsson á Kletti i Geiradalshrepp i samtali við Timann. Þráinn hóf búskap á Kletti ásamt konu sinni Málfriði Vilbergsdóttur siðastliðið haust. Þá keyptu þau hjón jörðina ásamt bústofni,heyjum og vél- um og fluttu vestur. Bústofninn er nú rúmlega tvö hundruð fjár og stefna þau hjón að þvi að hafa sem mestan arð af kindunum. Þegar blaða- maður var þar á ferð um fyrstu helgi i mai voru tiu ær bornar og allar tvilemdar, þannig að vel litur út með frjósemina. Þau hjón eru bæði fædd og uppalin i þéttbýlinu við Faxa- flóa en höfðu bæði verið i sveit á sumrin. En Þráinn kvaðst alla tið hafa verið ákveðinn i að búa i sveit. Siðan þegar þau fréttu af þessari jörð á siðastliðnu sumri ákváðu þau að fara og skoða hana og kaupin voru gerð. — Vissulega er erfitt að hef ja búskap i sveit, sögðu þau hjón. Þótt við höfum fengið jarða- kaupalán og bústofnskaupalán, segir það litið i svona mikla fjárfestingu. Siðan bætist þar við að við fáum ekkert innlegg fyrr en næsta haust, eða ári eftir að við hófum búskap. 1 raun hefði þetta verið alveg vonlaust ef við hefðum ekki verið að byggja i Reykjavik, og látið húsið upp i kaupverðið. Einnig hefur það hjálpað okkur mikið að Málfriður hefur unnið i kaupfélaginu i Króksfjarðarnesi hálfan daginn. Þá sögðu þau hjón að það hefði hjálpað þeim mikið hve vel nágrannarnir tóku þeim og verið þeim hjálplegir þegar á hefði þurft að halda. Málfriður kvaðst vera orðin málkunnug öllum i sveitinni enda koma allir i kaupfélagiö. Þá væri mikið félagslif i sveit- inni miðað við mannfjölda. T.d. hefði leikritið Karolina snýr sér að leiklistinni verið æft og sýnt i vetur. Léku þau hjón bæði i' þvi leikriti, og kváðu öruggt að slikt hefðu þau aldrei fengið að reyna ef þau hefðu búið áfram fyrir sunnan. Þá tók Þráinn þátt i aö skemmta á þorrablótinu og þannig mætti nefna fjölmargt, sem þau hjón reyna i sveitinni, en hefðu aldrei fengið að taka þátt i ef þau hefðu áfram búið á mölinni. Að lokum sögðust þau vera mjög ánægð og- lifa hamingju- sömu lifi, enda væru þau laus við alla taugaveiklun og stress, sem fylgdi borgarlifinu. MÓ. Málfriður Vilbergsdóttlr og Þráinn Hjálmarsson. Þráinn bóndi hugar að ám sfnum í fjárhúsi. V\Vft°Ð frá IILSAYÍK til þeirra sem hyggja áfunda- eóa ráóstefnuhald 'rr Fundarstaður: Hótel Húsavík Tímabil: Fram að 15. júní og eftir 30. ágúst Tímalengd: Tveir sólarhringar Fjöldi þátttak.: 10 - 100 manns Verð: Kr. 26.324.-* og 28.828.-** á mann Innifalið í verði: Flugferðir til og frá Húsavík. Flutningur milli flugvallar og Hótels Húsavikur. Gisting og fullt fæði. Afnot af fundarsölum og hjálpartækjum. * MálsveríSir í veitingahúð ** Málsverðir í veitingasal. Hótel Húsavík er löngu lands- þekkt fyrir vandaða og góða þjónustu. Þar eru 34 herbergi. veitingasalur og veitingabúð, notalegur barogsetustofa. Einnig er á staðnum sundlaug og sauna. Húsavík.er friðsæll kaupstaður i nánd við víðfrægar ferða- mannaslóðir. Þaðan erauðvelt að fara i stuttar skoðunarferðir. Hér er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja sameina skemmtun og starf. HOTEL -4VIHVUÍK Húsavík Simi 9641220 Simnefni: Hotelhusavik Telex 2152 fyrirHH Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.