Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 27

Tíminn - 13.05.1978, Blaðsíða 27
Laugardagur 13. maí 1978. 27 Vaða Listahátíðarmenn reyk? Nú mun ákveðið að popp hljómsveitin Smokie sé væntanleg á Listahátið í sumar. Þykir undirrituðum rétt að koma þeirri spurn- ingu á framfæri, hvort ekki verði að gera einhverjar lágmarkskröfur til þeirra hljómsveita sem fengnar eru hingað á Listahátíð, eða halda forráðamenn Lista- hátíðar, að það sem Smokie hafa upp á að bjóða, sé list? Ef svo er ekki, hljóta for- ráðamenn Listahátíðar að vaða reyk er þeir hlutast til um að fá þessa tilteknu hljómsveit hingað til lands. —ESE liljómsveitin Smokie — Njóta mikilla vinsælda f Þýzkalandi, en þar hefur ekki þurft aö sýna mikiö annaö en „fögur smetti” til þess aö komast á toppinn. —ESE This Year's Model - Elvis Costello The Attractions RAD 2/ FALKINN ,This Year’s model” Elvis Costello and The Attractions, er ein boy you’re touching I’ll be at the keyhole outside your Margir texta C-ostellos fjalla um bedroom door. kynlifiö i textum sem þessum og You think that I don’t know the öörum álika ismeygilegum og mest auglýsta hljómplata, sem nokkur „new wave” listamaöur be watching. hefur sent frá sér til þessa. Arangurinn er i fullu samræmi viö auglýsinguna, þvi aö „This year’s niodel” hefur nú um nokkurt skeiö veriö á lista yfir söluhæstu plötur i Bretlandi og þó viöar væri leitaö. En i sjálfu sér nægir auglýsingin ekki ein til þessaöum metsöluplötu sé að ræöa, hæfileikar veröa aö vera fyrir hendi og af þeim hefur Elvis Costello gnótt. This Year’s model er önnur stóra plata Costello og er frami hans undraverður. Á plötunni er hvert lagið ööru betra og textar góöir. Hljóöfæraleikur er góöur og söngur sömuleiðis. Þá er stjórn upptöku I höndum Nick Lowe og hann er þekktur fyrir allt annaö en hand- vömm. Tónlistin á This year’s model spannar öll sviö rokktónlistarinnar allt frá Buddy Holly til þess sem 10 cc eru aö gera. Costello leggur mikið upp úr textum og eru margir þeirra mjög góöir, eins og eftirfar- andi linur bera vitni: Later in the evening, when arrangements are made. þannig er This yer’s model — But I’ll be at the video and I will tsmeygilega góö. -ESE ★ ★ ★ ★ + Please don’t touch - Steve Haekett CHR1176/ FÁLKINN Steve Hackett fyrrum gitarleik- ari hljómsveitarinnar Genesis lét svo um mælt er hann yfirgaf hljóm- sveitina, að hann væri hreinlega orðinn leiöur á hvernig Genesis heppnaöist allt. Hann langaði til aö reyna sig viö eitthvaö nýtt og koma eigin verkum á framfæri. Siöan hefur Genesis gefiö út hljómplötu sem „heppnaðist” rétt eins og allar hinar þrátt fyrir aö .. þá voru aö- eins eftir þrir.. Og nú hefur Hackett lika gefiö út hljómplötu, „Please don’t touch”, og sannar meö henni aö ákvöröun hans hefur án efa ver- iö rétt. Hackett kemst vægast sagt mjög vel frá þessari plötu. Of- metnaöur hans er ckki meiri en svo, aö þar sem hann treystir öör- um betur en sjálfum sér fær hann aöstoð. Útkoman er mjög góö plata, fjölbreytileg en þó nægilega heilsteypt. Lögin eru flest mjög góö, sum verulega skemmtileg, önnur skemmtilega athyglisverö. KEJ Sinfóníuhljómsveit íslands Tón/eikar i Háskólabiói fimmtudaginn 18. mai kl. 20.30. Stjórnandi KARSTEN ANDERSEN Einleikari EMIL GILELS Efnisskrá: Sjostakovitsj — Sinfónia nr. 12 Grieg — Pianókonsert Aðgöngumiðar i bókabúð Lárusar Blöndal Skólavöröustig og Eymundsson Austurstræti. Aðalfundur Sölusambands islenzkra fiskframleiðenda verður haldinn i hliðarsal Hótel Sögu fimmtudaginn 8. júni n.k. og hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá samkvæmt félagslögum Lagabreytingar. Stjórn Sölusambands islenzkra fiskfram- leiðenda Leiguíbúðir á Hjónagörðum Félagsstofnun stúdenta auglýsir lausar til leigu fyrir stúdenta við nám i Háskóla ís- lands og annað námsfólk 2ja herbergja ibúðir í Hjónagörðum við Suðurgötu. íbúðirnar eru lausar frá 1. júli, 1. ágúst og 1. september. Leiga á mánuði er nú kr. 21.500, en mun hækka 1. sept. Kostnaður vegna hita, raf- magns og ræstingar er ekki innifalinn. Leiga og áætlaður kostnaður vegna hita, rafmagns og ræstingar greiðist fyrirfram einn mánuð i senn. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu Félagsstofnunar stúdenta, sem jafn- framt veitir frekari upplýsingar. Um- sóknarfrestur er til 4. júni n.k. Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, simi 16482. Garðyrkjuráðunautur Samband sunnlenzkra kvenna og samtök sunnlenzkra sveitafélaga hafa ráðið til starfa garðyrkjufræðing i sumar. Mun hann aðstoða ibúa þéttbýlis sveita- félaga með skipulag á lóðum og veita al- mennar upplýsingar til ibúa varðandi garðrækt. Einnig mun hann halda fundi með ibúum á hverjum stað og verða fundirnir auglýstir sérstaklega siðar. íbúar eru beðnir að hafa samband við eftirtalda aðila ef þeir óska eftir þessari þjónustu: Vik i Mýrdal: Sigriður Sigurgisladóttir, simi 7118 Hvolsvöllur: Rannveig Baldvinsdóttir, simi 5134 Hella: Anna Bjarnason, simi 5889 Selfoss: Hildur Ingvarsdóttir, simi 1545 Eyrarbakki: Guðfinna Sveinsdóttir, simi 3139 Stokkseyri: Margrét Frimannsdóttir, simi 3244 Hveragerði: Gréta Úrban, simi 4338 Þorlákshöfn: Edda Pálsdóttir, simi 3767.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.